NT - 22.06.1984, Side 3
Föstudagur 22. júní 1984 3
Slitnaði upp úr
samningaviðræðum
- enginn virkjanasamningur
■ í gærmorgun slitnaði upp úr
viðræðum um samræmdan
kjarasamning fyrir virkjana-
framkvæmdir á landinu öllu. Þá
lýstu forráðamenn Verkalýðs-
félagsins Rangæings því yfir að
félagið tæki ekki lengur þátt í
viðræðunum. Akvörðun
Rangæings kom í kjölfar ítrek-
aðra yfirlýsinga VSÍ þess efnis
að Vinnuveitendasambandið
teldi aðTungnaársamningurinn
væri í fullu gildi fram til 15. apríl
1985. Fulltrúar annarra félaga
og landssambanda í samninga-
nefnd stéttarfélaganna ákváðu
þá að „kanna rnálið" í ljósi
þessa.
Þetta mál á sér orðið alllang-
an aðdraganda. Fulltrúar stétt-
arfélaganna í þessum samninga-
viðræðum hafa aldrei farið leynt
með þá skoðun sína að Vinnu-
veitendasambandið hafi nánast
engan áhuga fyrir að gera sam-
ræmdan virkjanasamning og
viðræðurnar hafi því mestan-
part verið skrípaleikur.
Á blaðamannafundi sem
samninganefnd stéttarfélag-
anna efndi til í gær, kom fram
sú skoðun að fáránlegt væri að
halda áfram viðræðum um
samning sem gilda ætti fyrir
landið allt þar eð sá samningur
ætti ekki gilt fyrir Tungnaár-
svæðið, samkvæmt þessum
skilningi VSÍ.
Fulltrúar stéttarfélaganna
gær.
■ Frá blaðamannafundinum í
kváðu það hins vegar skoðun
sína að Tungnársamningurinn
hefði fallið úr gildi þegar í
september í haust, þótt enn sé
að vísu unnið eftir honum með-
an beðið er eftir nýjum samn-
ingi.
Pótt nú hafi þannig slitnað
upp úr viðræðum um samræmd-
an kjarasamning, kváðu menn
ekkert því til fyrirstöðu að tekn-
ar yrðu upp samningaviðræður
um kjarasamning fyrir virkjun-
arframkvæmdir við Blöndu.
NT hafði í gærkveldi sam-
band við Þórarin V. Þórarinsson
samningamann VSÍ og kvað
hann viðræðuslitin koma sér
spánskt fyrir sjónir. Það hefði
NT-mynd: Kober!
verið boðið að nýr samræmdur
virkjanasamningur leysti Tungna-
ársvæðissamninginn af hólmi
þegar að kæmi. Þórarinn kvað
það vafamál, hvort heppilegt
væri að fjölga meira samningum
fyrir einstök virkjanasvæði,
heildarsamningur væri tvímæla-
laust heppilegri frá sjónarmiði
VSÍ.
Enn frestast Blanda
■ Enn frestast framkvæmdir við Blöndu-
virkjun. Eins og NT hefur áður greint
frá getur Landsvirkjun ekki hafið fram-
kvæmdir fyrr en kjarasamningur hefur
verið gerður. Viðræður um slíkan samn-
ing hafa nú staðið yfir hátt á annað ár án
árangurs og eftir að slitnaði upp úr þeim
í gær er Ijóst að enn mun líða langur tími
þar til framkvæmdir geta hafist.
Halldór Jónatansson, forstjóri Lands-
virkjunar, sagði í stuttu samtali við NT í
gærkvöldi að Landsvirkjun hefði náð
samkomulagi við Ellert Skúlason og Jern-
betong um að þessir aðilar framlengdu
tilboð sitt til 1. september, en það hefði
annars átt að renna út 1. júlí. Þetta
samkomulag felur jafnframt í sér að
skiladagar verða óbreyttir, þótt vinna við
framkvæmdir hefjist ekki fyrr en í sept-
ember. Aðspurður kvað Halldór fyrir-
sjáanlegt að þetta hefði nokkurn kostnað-
arauka í för með sér, en sagðist ekki
tilbúinn að nefna neina upphæð að svo
stöddu.
Atómstöðin enn á flakk
■ Atómstöðin eftir Þorstein Jónsson
verður sýnd á tveimur kvikmyndahátíð-
um í Evrópu í næsta mánuði.
Hún tekur þátt í samkeppni á helstu
kvikmyndahátíð Austur-Evrópu, sem
haldin verður í Karlovy Vary í Tékkó-
slóvakíu. Hátíð þessi er haldin til skiptis
þar og í Moskvu. Atómstöðin verður
sýnd þann 13. júlí.
Frá Karlovy Vary heldur Atómstöðin
til Taorminu á Sikiley og tekur þátt í
hátíð, sem hefst þar 18. júlí. Þar fær hún
ekki að taka þátt í samkeppninni, vegna
þess að hún var í þeirri deildinni á
tékknesku hátíðinni.
Þorsteinn Jónsson leikstjóri og Örnólf-
ur Árnason framleiðandi myndarinnar
og framkvæmdastjóri munu verða við-
staddir sýningarnar.
Grímur fyr-
ir Björn
■ Forstjóri Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins, dr. Björn
Dagbjartsson hefur fengið árs-
leyfi frá störfum, frá 1. okt. nk.
Jafnframt hefur dr. Grímur Þór
Valdimarsson verið settur til að
gegna stöðu Björns, meðan á
leyfinu stendur.
Halldór
íSovét
■ Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráðherra, fer til Sovét-
ríkjanna í dag og verður þar í
opinberri heimsókn í boði
Kamentsevs, sjávarútvegsráð-
herra Sovétríkjanna, dagana
24. júní til 1. júlí. Ráðherrarnir
munu talast við um samskipti
landanna á sviði sjávarútvegs
og auk þess mun Halldór kynna
sér fiskveiðar og vinnslu í Sovét-
ríkjunum.
Gautur
ekki Gauti
■ { frétt NT í gær af máli
Þorgils Axelssonar og íbúðar-
vals, misritaðist nafn borgar-
dómarans. Hann var Steingrím-
ur Gautur Kristjánsson en ekki
Steingrímur Gauti. Hann er
beðinn afsökunar á þessum mis-
tökum.
Hafrannsóknarstofnunin:
Jón Jónsson læt-
ur af störfum
■ Sjávarútvegsráðherra hefur veitt Jóni
Jónssyni, forstjóra Hafrannsóknastofn-
unar lausn frá störfum forstjóra að eigin
ósk frá 1. júlí n.k. Jón hefur veitt stofn-
uninni forstöðu í þrjá áratugi, en
menntun sína í fiskifræði hlaut hann við
Háskólann í Osló.
Meðal fjölmargra trúnaðarstarfa sem
Jón hefur gegnt á sviði vísindagreinar
sinnar skal helst nefna að hann var
fulltrúi íslands í stjórn Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins síðan 1954, varaforseti
1972-1975. Formaður eða meðlimur í
ýmsum vinnunefndum ráðsins. Fulltrúi
Islands í eftirgreindum alþjóðastofnun-
um: Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndinni, Norðvestur-Atlantshafsfisk-
veiðinefndinni, vísindanefnd Alþjóða hval-
veiðiráðsins, Hafréttarráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna, svo eitthvað sé nefnt. Þá
hefur Jón skrifað fjölmargar greinar og
ritgerðir um fiskveiðar og fiskifræði. Jón
Jónsson mun áfram starfa við stofnunina
við ýmis rannsóknarstörf.
varanlegt
gróðurhúsaplast
Vestur-þýsk gæðavara frá Röhm og Bayer
Makrolon (polycarbonat) er níðsterkt glært plastefni sem hentar íslenskri ylrækt einstaklega
vel. Það býðst nú bæði í tvöföldum og preföldum plötum með sérstakri akrýlhúð sem tryggir
veðurþolið, spegilslétt yfirborð og kemur í veg fyrir að það gulni með tímanum. Makrolon
er auk þess feiknalega höggþolið, létt og einangrandi. Athugaðu eiginleika Makrolons ef
þú hyggst byggja eða bæta gróðurhús og vilt ná hámarks hagkvæmni með fjárfestingunni.
6 mlkilvægustu elglnlelkar Makrolon gróðurhúsanna:
■ Öryggl - Þú eignast sterkara gróðurhús sem stenst betur
vetrarstorma og tryggir um leið meira öryggi í raektun.
■ Orkusparnaður - Þú eignast gróðurhús þar sem orkunotk-
unin minnkar um þriðjung til helming, miðað við einfalt gler
(fer eftir plötuþykktum).
■ Obrjotanlegt - Þú þarft ekki að óttast slæm veður, fok eða
jafnvel steinkast af mannavöldum - Makrolon brotnar ekki.
■ LJósstreyml - Með akrýlhúðinni hefur tekist að skapa
yfirborð sem heldur veðrunaráhrifum í lágmarki (ca. 2%
birturýrnun á 10 árum) og kemur í veg fyrir að plastið gulni
fyrir áhrif útfjólublárra sólargeisla.
■ Svelgjuþol - Þú getur bogalagt plöturnar og þar með byggt
braggagróðurhús sem vegna léttari undirstöðugrindar getur
aukið birtumagnið til plant anna um 10%, miðað við hefð-
bundinn gróðurhúsabyggingastíl.
■ Uppsetnlng - Þú getur auðveldlega klætt gróðurhúsið sjálfur.
okron
ple/igler^H einkaumboð
Tæknllegar upplýslngar tvöfalt brefalt
Plötubvkkt mm 4.5 6 8 10 10
Plötubreldd mm 1980 I98C 1980 1980 1980
Plötulenqd mm Allt aö 6000 fvrir allar qerðir
Þvnqd kq m2 1.0 1.3 1.7 2.0 2.0
Llósstrevml % ca 80 80 80 80 70
Hltaelnangrun \)Wfn2 K-qlldl 3.9 36 3.3 3.1 2.9
^MInnkunhlta- taps f % 33 38 44 47 50
''Mlöað vlð elnfalt gler pr. flatarelnlngu.