NT - 26.06.1984, Page 20
Þriðjudagur 26. júní 1984 20
Utlönd
Heimsstyrjöldin gleymist seint:
Dómsrannsóknar
krafist á fjölda-
morði árið 1945
■ Þrír vestur-þýskir lögmenn hafa krafíst dómsrann-
sóknar á meintu fjöldamorði á meira en 400 föngum sem
hafðir voru í haldi í fangabúðum nasista nálægt Eystrasalti
í seinni heimsstyrjöldinni.
lausir úr búðunum en aðeins 500
tekist að komast um borð í tvö
skip, hinir 400 voru hindraðir í
því og síðan skotnir.
Lögmennirnir sögðust hafa
rætt við þá sem komust af úr
blóðbaðinu þar sem þeir væru
að skrifa bók um skipin tvö sem
fluttu fangana á öruggan stað.
Lögmennirnir skýrðu svo frá
að þeir hefðu fengið sannanir
fyrir því að fangar, sem sleppt
var út Danzig-Sutthof fanga-
búðunum í maí 1945, hefðusíð-
an verið skotnir til bana af
mönnum í SS sveitunum og
Hitlersæskunni.
Lögmennirnir sögðu að alls
hefðu 900 fangar verið látnir
■ Óeirðir og ofbeldisverk halda áfram í Indlandi þar sem hindúar og sikhar eigast við. Eftir að
indverskir hermenn réðust inní Gullna musterið í Amristar og felldu þar 900 sikha hefur veirð mjög
heitt í kolulnum víða um landið, ensikhar krefjast meiri sjálfstjórnar en þeir hafa nú. Um helgina
heimsótti Indira Gandhi forsætisráðherra Gullna musterið í því skyni að rcyna að ná sáttum. Myndin
er af forsætisráðherranum í musterinu. símamynd Poifoto
Danmörk:
Háskólar of margir og offram
leiðsla á menntamönnum
■ Danska menntamálaráðu-
neytið hefur látið rannsaka hver
þörf sé á æðri menntun í land-
inu. Fram kemur að háskólarnir
eru of margir og úrskrifa alltof
marga háskólaborgara á flestum
sviðum mennta.
í nýrri skýrslu frá ráðinu um
æðri menntun, sem opinberuð
verður innan skamms, segir að
átímumsamdráttarverði annað
hvort að gera einum eða tveim
háskólum landsins hærra undir
höfði en hinum, eða fækka skól-
unum.
Niðurstaðan er sú að hvort
sem litið er á kostnaðarhliðina
eða þörfina á æðri menntun séu
háskólarnir óþarflega margir og
sömuleiðis þeir sem útskrifast.
Það er sama hvort litið er á
hugvísinda eða raungreinar,
það er offramleiðsla á mennta-
'mönnum. Embættismennirnir í
menntamálaráðuneytinu telja
t.d. að háskólinn í Hróarskeldu
sé með öllu óþarfur og að engin
ástæða sé til að útskrifa þaðan
kandidata í eðlisfræði, efna-
fræði, stærðfræði og líffræði.
Þá segir að hinar stóru hugvís-
inda - og heimspekideildir við
háskólana í Kaupmannahöfn,
Óðinsvéum og Arósum verði að
draga saman seglin. í þessum
skólum eru 350 fastráðnir kenn-
arar í dönsku, sögu, þýsku,
ensku og frönsku. 165 þeirra er
ofaukið. í þessum fögum eru
útskrifaðir fjórum sinnum fleiri
kandidatar en nauðsyn krefur.
Langflestir þeirra sem Ijúka há-
skólaprófum í þeim greinum,
sem nefndar voru, gerast kenn-
arar við menntaskóla. Á næsta
áratug verður ekki um að ræða
neinar nýjar stöður við mennta-
skólana, segir í skýrslunni.
Óþarft mun þó að segja upp
háskólakennurum í þessum
fögum, segir í skýrslunni. Það
verður aðeins að liðka til í
skólakerfinu og þeim, sem of-
aukið er, geta fengið kennslu
við aðra skóla, svo sem verslun-
arskólana. Á síðasta ári luku
1803 námi frá Kaupmannahafn-
arháskóla. 45% þeirra eru
konur. Læknadeild átti metið,
en 463 luku læknakandídata-
prófi, þar af 38% konur. 428
luku prófi frá heimspekideild,
59% þeirra konur. 41 lauk guð-
fræðiprófi, en aðeins 25 árið á
undan.
Það kom í Ijós að námstíminn
hefur lengst, nema í læknis-
fræði. í öðrum greinum eru
stúdentar nú tveim árum lengur
í háskólanámi en áður var talið
eðlilegt.
Ítalía:
Lögreglu-
embætti
í deilum
Kóm-Reuter
■ ítalskt dagblað hefur
kennt samkeppni og deil-
um tveggja lögregluem-
bætta á Italíu um að ekki
hefur tekist að finna 16
ára gamla dóttur sendi-
manns í Vatikaninu, sem
hvarf fyrir réttu ári.
í kjölfar hvarfs stúlk-
unnar fylgdu símhringing-
ar frá mönnum sem sögð-
ust hafa rænt henni til að
krefjast þess að Mehnet
Ali Agca, Tyrkinn sem
reyndi að myrða Jóhannes
Pál páfa verði látinn laus.
Agca, sem situr í lífstíð-
arfangelsi, hefur neitað
því að hann sé viðriðinn
þetta mál.
Herlögreglan, sem er
stjórnað af varnarmála-
ráðuneytinu( og ríkislög-
reglan sem heyrir undir
innanríkisráðuneytið,
rannsökuðu hvarf stúlkunn-
ar hvor í sínu lagi án
nokkurs árangurs.
Dagblaðið Corriere
Della Sera, hélt því fram
að hefðbundin samkeppni
milli lögregluembættanna
ætti sök á því að ekkert
hefði komið fram um
hvarf stúlkunnar. Við
rannsókn málsins hefði
hver hendin verið uppi á
móti annarri og hvorug
lögreglan hefði vitað hvað
hin hafðist að.
Vestur-Þýskaland:
Er vinnu-
deilunum
að Ijúka?
Bonn-Keuter
■ Sáttasemjari í deilu
máimiðnaðarmanna og at-
vinnurekenda í Vestur-
Þýskalandi vinnur nú að
málamiðlunartillögu og
sagt er að góðar vonir séu
um að báðir deiluaðilar
geti sætt sig við hana.
Bílaiðnaðurinn er lamað-
ur og mikið framleiðslutap
hcfur orðið. Þetta eru ein-
hverjar erfiðustu vinnu-
deilur í sögu Þýska sam-
bandslýJveldisins.
Yfirráð yfir Hong Kong?
Ná Kínverjar og
Bretar samkomu-
lagi í september?
Fekinj>-Keuter
■ Forseti Evrópuþingsins, Pi-
eter Dankert, sem er í opinberri
heimsókn í Peking, sagði frétta-
mönnum í gær að hann vissi
ekki betur en Bretland og Kína
hefðu komist að samkomulagi
um að samningur um framtíð
Hong Kong yrði tilbúinn í sept-
ember. Talsmaður breska
sendiráðsins sagði hins vegar að
Bretland liti ekki svo á að
september væri endanleg tíma-
setning.
Dankert var spurður að því
—Bílabúö
Benna
Aukahlutir Varahlutir Sérpantanir
VAGNHJ@LIÐ
Vélaupptekningar
hvort þetta hefði komið fram á
fundi hans með Sir Richard
Evans sendiherra Bretlands í
Peking, og svaraði Dankert því
játandi. Talsmaðursendiráðsins
sagði síðan að sendiherrann
minntist þess ekki að hafa talað
um Hong Kong við Dankert.
Bretar liafa ekki áður gengið
opinberlega að þeirri kröfu Kín-
verja að samningur um hvernig
Hong Kong verði stjórnað, þeg-
ar Kínverjar fá yfirráð yfir borg-
inni árið 1997, verði tilbú-
inn í september.
Deng Xiaoping leiðtogi Kín-
verja sagði kaupsýslumönnum
frá Hong Kong á föstudag að
drög að samningnum yrðu til-
búin í september og endanlegur
samningur undirritaður í lok
ársins.
Kínverjar ætla að stjórna
Hong Kong sem sjálfstæðu ríki
sem halda mun kapitalísku
efnahagskcrfi og lífsmáta sínum
í að minnsta kosti 50 ár eftir
yfirtöku Kínverja. Haft hefur
verið eftir Deng að áætlun Kín-
verja um að leyfa bæði kapital-
isma og kommúisma að þrífast
innan sama lands gæti tekist og
gæfi þá fordæmi sem stuðlað
gæti að lausn annarra vanda-
mála, svo sem samemingu Kór-
eu og Þýskalands.
Vagnhöfða 23
110 Reykjavík
Sími 685825
Vatnskassar og vélahlutir
í ameríska bíla á lager.
Mjög hagstætt verö.
Kvikmyndaleik'
stjóri látinn
■ Kvikmyndaleikstjórinn
Joseph Losey lést á heimili
sínu í London, 75 ára að
aldri s.l. föstudag.
Losey var fæddur í Banda-
ríkjunum og hóf feril sinn
þar en fluttist til Englands
árið 1952 eftir að hafa komist
á svartan lista á tímurn
kommúnistaofstækisins.
Frægastur er hann fyrir sam-
starf sitt með bresku kvik-
myndaleikurunum Dirk
Bogarde og Julie Christie og
leikritahöfundinum Harold
Pinter.
Meðal kvikmynda þeirra
sem Losey stjórnaði, en þær
voru alls yfir 20 talsins, má
nefna Sendiboðann, The Go-
between, og Þjóninn, The
Servant. Losey hafði nýlokið
við gerð síðustu myndar
sinnar þegar hann lést.