NT - 26.06.1984, Side 22
Þriðjudagur 26. júní 1984 22
LlL íþróttir
Blautur, blautari
og jafntefli varð
■ Ekki er laust við a<> mcnn
hafi blotnað á Valsvelli í gær-
kvöld er Valur og Fram áttust
við í ausandi rigningu.
Leiknum lauk með jafntefli 1-1
og verða það að teljast nokkuð
sanngjörn úrslit miðað við gang
leiksins. Að vísu voru Vals-
menn öliu ágengari nær allan
leikinn en gekk illa að skapa
sér færi og hvað þá að nýta þau.
EINKUNNAGJÖF NT:
Valur
Stefán Arnarson........4
Jóhann Þorvarösson .... 4
Guðmundur Kjartansson . 3
Þorgrímur Þráinsson .... 3
Grímur Sæmundsen......2
Bergþór Magnússon .... 5
Guðmundur Þorbjömss .. 4
| örn Guðmundsson.....4
Guðnl Bergsson.........5
Valur Valsson..........3
1 Hilmar Sighvatsson ..5
Anthony K. Gregory kom
inná fyrir Hilmar á 80. mín.
Fram
Guðmundur Baldursson . 4
Þorsteinn Þorsteinsson .. 4
Trausti Haraldsson.....4
Sverrir Einarsson......2
Hafþór Sveinjónsson .... 6
Kristinn Jónsson .......4
Bragi Björnsson ........5
Örn Valdimarsson .......5
Rafn Rafnsson ..........5
Guðmundur Steinsson ... 3
Guðmundur Torfason ... 3
Viðar Þorkelsson kom inn
fyrir Rafn á 72. mín.
Fyrri hálfleikur var hryliilega
daufur og vildi það blaða-
mönnum til happs að það rigndi
svo mikið að nær ógerningur
var að sjá hve lítið gerðist á
leikvellinum. Hin góða sjón
blaðamanns NT gerði það þó
að verkum að hann greindi
þrjú marktækifæri í fyrri hálf-
leik. Fyrst bjargaði Sverrirmið-
vörður Framara á línu strax á 9
mín., þá átti Hilmar Sighvats-
son hörkuskot á 21. mín. sem
Guðmundur varði vel og loks
skaut Guðni Bergsson í Guð-
mund félaga sinn Þorbjörnsson
inn á markteig Framara og
bjargaði það Frömurum í það
skiptið.
Sfðari hálfleikur var örlítið
fjörugri og sáu þá tvö mörk
dagsins ljós. Það var strax á 55.
mín. að Framarar spiluðu lag-
lega á milli sín og endaði sú lota
með því að Guðmundur Steins-
son fékk boltann óvaldaður inn
í vítateig Valsara, lagði hann
fyrir sig og sendi svo tuðruna í
bláhornið, 1-0.
Við markið hresstust Valsar-
ar og sóttu hart að marki Fram-
ara og á 70 mín. átti Bergþór
slaka fyrirgjöf fyrir mark Fram,
Trausti ætlaði að hreinsa frá en
knötturinn skrúfaðist í mark-
hornið og staðan orðin 1-1.
Nú var sem leikmenn vökn-
uðu í næstu 5 mínútur og áttu
Guðmundur Torfason og Valur
Valsson báðir hörkuskot sem
ekki rötuðu rétta leið. Síðustu
15 mín. leiksins sváfu svo leik-
menn beggja liða, greinilega
sáttir við jafnteflið.
Eins og fyrr greindi var
leikurinn í heild í slakara lagi
og má kenna veðurguðunum
að vissu leyti þar um. Völlurinn
var með þyngra móti og bauð
uppá mikið af skriðtæklingum.
Voru leikmenn lömr við að
notfæra sér þann möguleika,
þó enginn sem Hafþór Svein-
jónsson sem tæklaði menn
uppí klof hvenær sem færi gafst
og var stór heppinn að fá ekki
rautt spjald í leiknum.
Af einstökum leikmönnum
má nefna Grím Sæmundsen
sem var gífurlega duglegur í
liði Vals og þá voru Valur
Valsson, Guðmundur Kjart-
ansson og Þorgrímur þokkaleg-
ir. Hjá Fram bar einna mest á
Sverri Einarssyni sem var mjög
traustur í vörn, einnig börðust
Guðmundarnir ágætlega
frammi.
■ Hart barist í bleytunni. Guðmundur Steinsson, Bragi Björnsson og Bergþór Magnússon dansa
sannkallaðan regndans. NT-m>nd Ámi
■ Þaö rigndi og rigndi og
má segja að leikinn hafi
rignt niöur. Osköp dapur
leikur og jafntefli sanngjarnt:
Eöa eins og Albert Guð-
mundsson fjármálaráöherra
sagði eftir leikinn: „Þaö vant-
ar sókndirfsku í íslenska
knattspyrnu og liö gera of
litlar tilraunir til aö gera
mörk“. Mörkin gerðu Guð-
mundur Steinsson fyrir Fram
á 55. mín og mark Vals var
sjálfsmark Trausta á 70.mín.
Áhorfendur voru frekar fáir
og blautir. Hafþór Sveinjóns-
son fékk gult spjald hjá
þokkalegum dómara leiksins
Magnusi Theódórssyni.
Stórmót
■ Dagana27.júní-l.júlí,
verður haldið í Vestmanna-
eyjum stórmót í knatt-
spyrnu, fyrir yngstu iðk-
endur íþróttarinnar.
Mót þetta er haldið í
sameiningu, af Tomma-
hamborgurum og knatt-
spyrnufélaginu Tý í Vest-
mannaeyjum. Til mótsins
var boðið sjötta aldurs-
flokki drengja hvaðanæva
af landinu.
Margskonar dagskrá
hefur verið skipulögð fyrir
drengina, svo sem skoðun-
arferðir, bíósýningar,
í Eyjum
kvöldvaka ofl.
Mótið verður sett mið-
vikudagskvöldið 27. júní
með mikilli viðhöfn.
Mótinu verður slitið á
sunnudagskvöld í íþrótta-
miðstöðinni í Vestmanna-
eyjum. Vegleg verðlaun
verða veitt fyrir þrjú efstu
sætin í bæði A og B liðum.
Aukaverðlaun verða svo
veitt fyrir þrjú efstu sætin í
innanhússmóti og cinnig til
markahæsta manns
mótsins, besta
markmanns, prúðasta leik-
manns ofl.
4. deildin í knattspyrnu:
Fáskrúðsfirðingar stefna í úrslit
- ÍR tapaði fyrsta leiknum - Stokkseyringar efstir í B-riðli - Ármenningar upp aftur?
A-riðill:
Arvakur-Hafnir...0-0
■ Alvarlegt ástand hjá Ár-
vakri, liðið hefur ekki sicorað í
þrjá og hálfan leik. Árvakur
var sterkari í leiknum og átti
fjölda færa.
Augnab!ik-Víkverji...l-0
■ Fjörugur leikur og fullur af
vannýttum færum. Harka all-
mikil. Sigur Augnabliks
sanngjarn, en úrslitin 4-2 hefðu
gefið réttari mynd. Markið
skoraði Guðmundur Halldórs-
son.
Ármann-Drengur.. .3-2
■ Þráinn Ásmundsson kom
Ármanni í 1-0 úr vítaspyrnu,
og Jens Jóhannesson bætti um
betur, 2-0. Gústaf Alfreðsson
minnkaði muninn fyrir Dreng,
en Egill Steinþórsson skoraði
þá þriðja mark Ármanns.
Hjörtur Ingþórsson minnkaði
muninn fyrir Dreng áður en
yfir lauk. Ármenningar eru nú
efstir í riðlinum, og stefna hrað-
byri að nýju í ídeildina undir
stjórn Eggerts Jóhannessonar,
sem kom þeim upp fyrir tveim-
ur árum.
Haukar-Aft urelding.. .2-1
■ Haukarnir sterkari allan
tímann. Páll Poulsen og Valur
Jóhannsson skoruðu mörkin.
Valur misnotaði að auki víta-
spyrnu í leiknum, skaut í stöng.
Mosfellingar minnkuðu mun-
inn í lok leiksins.
Staðan í A-riðli:
Ármann.......6 5 1 0 12- 4 16
Haukar.........6 4 1 15- 8 13
Vikverji......6 3 1 2 10- 5 10
Augnablik .... 6 3 1 2 13-10 10
Árvakur.......6213 6- 8 7
Afturelding ... 6 2 0 4 6-10 6
Haínir .......6114 5-9 4
Drengur....... 6 1 0 4 7-18 3
B-riðill:
Stokksey ri-Hveragerði.. .5-1
■ Stokkseyringar í góðu
formi. Halldór Viðarsson fór á
kostum í leiknum og skoraði
þrjú mörk. Hin skoruðu Sól-
mundur Kristjánsson og Páll
Leó Jónsson þjálfari. Helgi
Þorvaldsson skoraði mark
Hvergerðinga.
Þór Þ-Léttir...2-2
■ Heimamenn voru betri í
fyrri hálfleik. Þá skoraði Ár-
mann Einarsson, en Andrés
Kristjánsson jafnaði fyrir
leikhlé úr vítaspyrnu. Heima-
menn komust aftur yfir með
marki Sæmundar Sigurðssonar,
en Valdimar Guðmundsson
jafnaði með miklu glæsimarki,
þrumuskoti af 35 metra færi
sem fór í blávinkilinn. Léttis-
menn héldu uppi stórskotahríð
í síðari hálfleik, en tókst ekki
að bæta við.
Drangur-Eyfellingur ...0-3
■ Erlendur Guðbjörnsson,
17 ára piltur í liði Eyfellinga,
skoraði tvö mörk í leiknum, og
Magnús Geirsson eitt. Eyfell-
ingar voru töluvert sterkari í
leiknum.
Staðan í B-riðli:
Stokkseyri .... 5 4 0 1 17- 7 12
Lettir........ 6 3 2 1 16- 7 11
Hildibrandur .. 5 3 2 0 14- 5 11
Þór Þ.........4 2 1 2 12- 9 7
Eyfellingur ... 5 2 12 11-10 7
Hveragerði ... 5 1 0 4 7-19 3
Drangur........ 5 0 0 5 2-22 0
C-riðill:
Leiknir-Reynir Hn...l-0
■ Leiknir varheldursterkari,
og skoraði Þorvaldur Guð-
mundsson mark liðsins í fyrri
hálfleik. Reynismenn voru
meira með boltann í síðari
hálfleik, en sköpuðu sér ekki
hættuleg færi.
ÍR-Bolungarvík...0-2
■ Loks lá ÍR, eftir mikla
sigurgöngu þar sem helst voru
ekki skoruð færri en 6 mörk í
leik. Meiðsli hrjáðu ÍR í þess-
um leik, leikurinn var hafinn
án fjögurra fastamanna. Bol-
víkingar náðu sér vel á strik,
áttu sigurinn fyllilega skilinn.
Svavar Ævarsson skoraði í fyrri
hálfleik, en Sigurður Guðfinns-
son í þeim síðari.
Grótta-Bolungarvík...0-1
■ Bolvíkingar byrjuðu með
sigri á Gróttu á föstudagskvöld
í fremur slökum leik. Bolvík-
ingar voru þó mun sterkari, og
skoraði Hjörleifur Guðfinns-
son markið. Bolvíkingar eru nú í
öðru sæti í riðlinum eítir þessa
tvo sigra, og ÍR virðist ekki
lengur öruggt með sigur í riðlin-
um.
Staðan í C-riðli:
ÍR............ 6 5 0 1 28- 7 15
Bolungarvík ..6 4 0 2 11-11 12
Leiknir........5 2 12 10-11 7
Reynir Hn ... 7 2 1 4 13- 15 7
Grótta ....... 5 2 0 3 8-12 6
Grundarfj..... 6 2 0 4 11-19 6
Stefnir....... 3 1 0 2 3-10 3
D-riðill:
Geislinn-Hvöt...2-1
■ Hvatarmenn komust í 1-0
eftir tvær mínútur með marki
Hermanns Arasonar. Geisla-
menn náðu svo yfirtökum í
síðari hálfleik, og Benedikt
Pétursson jafnaði. Reynir Ingi-
marsson skoraði svo sigurmark
heimamanna fyrir leikslok.
Hvatarmenn fóru vestur með
grasskóna með sér, minnugir
grasleiks á Sævangi í fyrra. En
þá höfðu Vestanmenn nýlokið
byggingu malarvallar á Hólma-
vík, og að lokum frágangi hans
hófst leikurinn. Hvatarmenn
kunnu illa við sig á gras-
skónum.
Svarfdælir-Reynir...2-2
■ Svarfdælirvoruöllugrimm-
ari, sóttu meira í síðari hálfleik
og áttu þá m.a.skalla í stöng.
En úrslitin urðu jafntefli.
Reynir jafnaði rétt fyrir leiks-
lok. Kristján Vigfússon og
Ingvar skoruðu mörk Svarf-
dæla, en Björn Friðþjófsson
(víti) og Garðar Níelsson
skoruðu fyrir Reyni.
Staðan í D-riðli:
Reynir........4 3 1 0 16- 3 10
Geislinn ....2101 3-3 3
Skytturnar ... 3 1 0 2 8- 9 3
Hvöt..........3 1 0 2 3-11 3
Svarfdælir .... 2 0 1 1 5-9 1
E-riðill:
Æskan-Tjörnes.. .0-2
■ Tjörnesingar áttu allan
leikinn, sérstaklega yfirspiluðu
þeir Æskuna í fyrri hálfleik. Þá
skoraði Skarphéðinn Ómars-
son fyrra mark þeirra, og Magn-
ús Hreiðarsson bætti öðru við í
lok leiksins. Leikurinn var
mjög grófur, en engu að síður
vel dæmdur og einum Æsku-
manni var vikið af leikvelli fyrir
Ijótt brot.
Leik Vasks og Vorðboðans
var frestað.
Staðan í E-riðli:
Tjörnes ........ 2 2 0 0 5-0 6
Vaskur.......... 2 2 0 0 7-3 6
Árroðinn........20 11 2-4 1
Vorboðinn ....... 2 0 1 1 1-4 1
Æskan........... 2 0 0 2 2-6 0
F-riðill:
Heil umferð var í F-riðli á
miðvikudagskvöld:
UMFB-Leiknir...0-5
■ Stórsigur Leiknis á Borg-
firðing uskar Tómasson 2,
Svanur Kárason, Jón Ingi Tóm-
asson og Jón Jónasson skoruðu.
Hrafnkell-Súlan.. .0-4
■ Óttar Ármannsson, Einar
Björnsson, Jónas Ólafsson og
Helgi Jensson skoruðu mörk
Súlunnar.
Sindri-Höttur...2-2
■ Ómar Ingi Bragason og
Guðmundur Óskarsson
skoruðu fyrir heimamenn,
fyrsta og síðasta mark leiksins.
Björgvin Guðmundsson úr víti
og Halldór Halldórsson
skoruðu mörk Hattar.
Egill rauði-Neisti...3-l
■ Ragnar Bogason, Ágúst
Bogason og Þorvaldur Hreins-
son skoruðu mörk Neista, en
Þórarinn Traustason jafnaði
fyrir Egil 1-1.
Onnur umferð var síðan leik-
in á laugardag:
Súlan-UMFB...4-0
■ Borgfirðingar voru fjarska-
lega daprir í leiknum, og hefði
Súlan geta skorað fleiri mörk.
Eitt markanna var sjálfsmark,
hin sícoruðu Jónas Ólafsson,
Ársæll Hafsteinsson og
Magnús.
Höttur-Egill rauði...4-l
■ Höttur átti leikinn, og úr-
slitin lágmarkstölur. Halldór
Halldórsson skoraði tvö marka
Egilsstaðabúa, Bergur Hall-
grímsson og Sólmundur Odds-
son skoruðu hin. Axel Jónsson
skoraði fyrir Egil.
Leiknir-Sindri...6-0
■ Stórsigur Leiknis á Horn-
firðingum. Með þessum sigri
undirstrika Fáskrúðsfirðingar
það að stefnan er í úrslitin.
Óskar Tómasson skoraði tvö
mörk, annað úr víti og hitt með
fallegu skoti af nokkru færi.
Svanur Kárason skoraði tvö,
Helgi Ingason eitt og Jón Jón-
asson eitt eftir mikinn einleik í
gegnum alla vörn Hornfirð-
inga.
Leik Neista og Hrafnkels var
frestað þar til í kvöld.
Staðan í F-riðli:
Leiknir F.....6 5 1 0 19- 1 16
Höttur .......6 4 1 1 15- 7 13
Súlan.........7412 16-10 13
Sindri........7 3 2 2 12-15 11
Neisti........6303 14-13 9
UMFB..........7205 9-19 6
Hrafnkell..... 6 2 0 4 8-14 6
Egill rauði .... 7 0 1 6 7-21 1