NT - 26.06.1984, Síða 24
LURIR ÞU
HRINGDU ÞÁ f SÍMA 68-
Vid tökum vid ábendingum um fréttir allan sólarhringinn.
Greiddar verða 10OO krónur fyrir Hverjja áHendingu sem leiðir
til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir
til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
■ Flippcr-báturinn þar sem hann strandaði á Eskincsi, beint fyrir framan Skipasmíðastöðina
Stálvík.
Siglingaklúbburinn Vogur:
Héngu á kjöl
yfir Arnarvog
■ Einum Flipper bát Siglinga-
klúbbsins Vogs í Garðabæ
hvolfdi á Arnarvogi í gær. Rak
bátinn síðan yfir voginn og
strandaði á Eskinesi, beint
framan við Skipasmíðastöðina
Stálvík.
Umsjónarmaður siglinga-
klúbbsins sagði NT í gær að
tveir drengir, ellefu og tólf ára
gamlir hefðu verið að sigla úti
á voginum í ágætis veöri þegar
skyndilega hvessti. Hvolfdi þá
bátnum og náðu drengirnir
ekki að rétta hann við.
Rak bátinn síðan yfir voginn
og voru drengirnir á bátnum á
meðan. Síðan fóru umsjónar-
menn siglingaklúbbsins á
slöngubát til hjálpar og tókst
að losa bátinn af Eskinesi.
Að sögn umsjónarmannsins
var aldrei hætta á ferðum.
Sagði hann að það væri algengt
að skyndilega hvessti þarna.'
Báturinn sem drengirnir
voru á er af Flipper gerð. Það
er ellefu feta bátur með stór-
segl og fokku. í bátnum er laus
kjölur. Þegar bátnum hvolfdi
losnaði kjölurinn úrogtýndist.
Höfðu drengirnir ekki fest
hann með bandi við bátinn
eins og vani er. Fór því slöngu-
báturinn með aukakjöl til
drengjanna.
Bitmý hefur
fjórfaldast
■ ,, Framleiðsia bitmýsstofnsins á flugum hefur sennilega | Osta- og
fjórfaldast nú miðað við það sem var á árunum 1978-82,“ ■ smjörsalan:
Háski
við
Mývatn:
sagði Gísli Már Gíslason líffræðingur í samtali við NT,
þegar hann var spurður um fréttir af óvenju miklum
mývargi við Mývatn.
Gísli Már sagði ástæðuna tyrir
þessari aukningu vera þá, að
þörungar og lífrænar agnir í
Mývatni hefðu vaxið fjórum
sinnum meira í fyrra en næstu ár
á undan, en lirfur bitmýsins lifa
á þessum ögnum. Stofninn er
því kominn í svipaða stærð og
var um 1977, þegar varginum
fór fækkandi.
Gísli Már sagði, að bitmýið
kæmi í tveimur göngum. Sú
fyrri væri nú að ganga niður á
Mývatnssvæðinu, en hin síðari
kæmi um miðjan ágúst. Mývarg-
urinn hverfur að mestu frá
Mývatni í júlí, en heldur sig þá
í Laxárdal.
Þótt fjölgun mývargsins sé til
mikillar bölvunar fyrir menn og
ýmsar skepnur, kemur hún sér
vel fyrir urriðastofninn í Laxá
og ýmsar andategundir þar, því
bitmýið er þeirra eina fæðuteg-
und. Urriðaveiði hefurminnkað
mikið í ánni undanfarin ár, en
Gísli Már sagði, að hann gerði
sér vonir um að urriðaveiðin
færi að glæðast aftur eftir 2-3 ár.
Og á meðan bitmýi fjölgar,
hefur rykmýi aftur á móti fækk-
að mikið og hefur það komið
niður á bleikjuveiði í Mývatni.
Vísindamenn eru að rannsaka
hverju það sætir.
Sparkaði
upp hurð-
umogstal
■ Innbrot var framið í
hús Osta- og smjörsölunn-
ar við Snorrabraut aðfara-
nótt síðastliðins sunnu-
dags. Þjófurinn fór inn í
nokkur fyrirtæki, sem þar
eru til húsa, og stal m.a.
myndbandstæki, litsjón-
varpi, myndavél og nokkr-
um ávísanaheftum. Á
leið sinni um húsið spark-
aði þjófurinn upp ellefu
hurðum og olli töluverð-
um skemmdum með því
athæfi.
Helgarskákmót í Flatey á Breiðafirði:
Skákmeistarar
sofa í tjöldum
- en fá fullt fæði á staðnum
■ Keppendur og gestir á næsta
helgarskákmóti t ímaritsins
Skákar verða að gista í tjöldum.
Mótið verður haldið í Flatey á
Breiðafírði um næstu helgi og
búist er við mikilli þátttöku.
Að venju verða ýmsir þekkt-
ustu skákmeistarar þjóðarinnar
meðal keppenda á mótinu.
Fyrstu verðlaun verða 15 þús-
und krónur, önnur 10 þúsund og
þriðju 7 þúsund. í öldunga- og
kvennaflokki verða verðlaun
boð á helgarmót og einnig verða
þrenn unglingaverðlaun, einnig
boð á helgarmót.
Frá Reykjavík verður flug-
ferð til Stykkishólms að morgni
föstudagsins 29. júní klukkan
09.00 og flóabáturinn Baldur
leggur af stað út í Flatey klukk-
an 14.00 og tekur siglingin tvo
tíma. í Flatey geta svo gestir og
keppendur fengið fullt fæði alla
dagana og ef veður leyfir verður
farið í skemmtisiglingu um
Breiðafjörðinn að móti loknu.