NT - 01.07.1984, Blaðsíða 8

NT - 01.07.1984, Blaðsíða 8
Sunnudagur 1. júlí 1984 8 Mynd Arni Sæberg Mynd Guðm. Ingólfsson „Ég held að listamenn séu með verkum sínum að benda á það sem gefur lífinu tilgang. Það er auðvitað æði margt í tilveru okkar sem gefur lífinu tilgang og því er það svo að einn bendir á eitt og annar á annað. Svo eru líka til þeir listamenn sem með verkum sínum eru að fjalla um það sem gefur lífinu ekki tilgang, eða eyðileggur það. Hjá mér er þetta þannig að ég geng stundum með hálf mótaða hug- mynd í langan tíma og svo, smám saman, fer hún að taka á sig fastari mynd. Yfirleitt fer ég ekki að vinna úr þessu fyrr en ég er orðin viss um, að sú aðferð og það efni sem ég ætla að nota, skili því sem ég er að reyna að segja. Þegar verkið er fullmótað er svo kornið að skoðandanum og hvernig áhrif verkið hefur á hann. Mér finnst ég á engan hátt vera að predika með því sem ég er að reyna að koma til skila en á hinn bóginn hef ég misst marks ef áhorfand- inn lítur á þetta eingöngu sem yfirborð eða skraut. Ég held að mörg verk sem ég hef unnið veki ákveðinn óhug hjá fólki þó svo að einhver mundi um lcið segja að þau væru falleg, rétt eins og sú menning sem við höfum skapað. Þar er bæði að finna fegurð og um leið alveg óskaplegan óhugnað. Það er hægt að nálgast sama hlutinn bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Hvað mig snertir þá fer það eftir inntaki verksins sem ég er að fást við hvora leiðina ég kýs að fara. Hugmyndin sem leitar á mig í það og það skiptið ræður mestu um það efni sem ég svo nota þegar ég fer ég að vinna að verkinu sjálfu. Þannig vel ég e.t.v. gler í ákveðna mynd af því að það er brothætt. Talandi um gler þá er það gott efni en forgengilegt um leið og mér finnst það falla vel að hugsuninni um þá hættu sent mannkynið býr við. Hins vegar finnst mér stundum að efnið sjálft eða efnishyggjan sé farin að ráða ferðinni í lífi okkar. Þess vegna hef ég verið að gera tilraunir með verk þar sem efnið er eins lítill þáttur í verkinu eins og mögulegt er, t.d. stuttar kvikmyndir en kvikmyndirnar eru í eðli sínu efnislausar. Þær eru jú aðeins ljósglampar sem hverfa um leið og sýningunni lýkur. Slík verk verða þannig ekki til nema í minningunni. Það sama má segja um performansa eða gerninga. Minningarnar eða upplifanir okkar verða oft stærri hluti af tilverunni en hinir efnislegu hlutir svo sern hús eða bíll. Þær lifa og lengur í mörgum tilvikum. Ég heflíka orðað þetta einhvern tímann á þá leið að sérhvert smáatriði hafi í sér fólgna sjálfstæða merkingu en öll til samans gefi þau fyllri mynd af heildinni. Líf okkar er fullt af alls kyns smáatriðum og augnablikum sem hverfa en öll til samans ráða þau rniklu um skoðanir okkar og lífsmunstur. Þær ljósmyndir sern hér gef- ur að líta eru af verki sem Rúri hefur unnið að í vetur og sýnt var á samsýningu á Kjarvals- stöðum á útmánuðum. Þetta er eins konar líking að sögn Rúrí, sem minnir á augnablik sem maðurinn upplifir í náttúr- unni. Járnplöturnar sem liggja á gólfinu undir glerinu gefa spegiláhrif sem glerið styrkir og heildaráhrifin minna e.t.v. á ljósbrot í gáróttu vatni eða kyrrláta stund við hafið. Myndir Guðm. Ingólfsson. RlM ■ Þaö er óhætt að tullyrða að á undanförnum árum hefur verið mikil gróska í myndlist á íslandi. Sumir halda því fram að þetta blómaskeið hafi borið þann ávöxt að í rauninni sé nú meiri broddur í íslenskri myndlist en finna megi í næstu nágrannalöndum jafnvel þó svo að gömlu höfðatölunni sé gefið frí. Hvað sem um slíkan samanburð má segja verður ekki hjá því gengið að hér á landi eru starfandi fjölmargir listamenn sem hafa ýmislegt fram að færa og auðga tilveru okkar og gefa henni lit. Einn þessara listamanna er Rúrí. Þrátt fyrir annríki við búferlaflutninga og stúss króuðum við hana af á heimili hennar og fengum hana til að segja ofurlítið frá því sem hún er að gera.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.