NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 01.07.1984, Qupperneq 10

NT - 01.07.1984, Qupperneq 10
Sunnudagur 1. júlí 1984 10 ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★j^ ★ I® ■: nur amxb ■ Þaö er allt svo stórt í Am- eríku, landið, horgirnar, vandamálin. Dæmi um óleyst vandamál: í San Franciscoeru 10 þúsund manns á götunni, fólk sem á höföi sínu aö halla í almenningsgöröum, á gang- stéttum, í versta falli. Og það er ekkert grín aö verða undir í henni Ameríku, þú mátt kallast góöur aö sleppa lifandi meö tómið í augunum. Þetta eru vandamál scm blasa við þegar maöur gengur um borgina. Þó er eins og eng- inn taki eftir þeim, afskipta- leysi scm nálgast bannfæringu, stéttleysingjar. Ég vorkenni þeim, vildi helst gefa öllum þeirra pening, fæða, klæöa og hýsa en hvað á maöur að gera? Námslánin duga skamrnt þótt góð séu ennþá. Þetta er eitt af þessum stóru vandamálum. Maður reytir af sér 25 aura en mér sýnist þeir fara flcstir í það að viöhalda öðru stóru vandamáli; Áfeng- tsvandamálinu. Það er allt svo stórt í Amer- íku. Svo er líka einhver amer- ískur hraði á öllu. Fjölmiðlar slá þaröll met. Þargildirrcglan „flest atkvatði á mínútu" öfugt við t.d. „Útvarp Reykjavík, góðan dag." Bunan stendur oft svoleiðis úl úr þeim að maður heldur að fólkiö sé komið með ælupest. Þú ferð út í búð til að spara, „an offer you cant refuse" a la Godfather, þú barasta verður. Þú ferð ekki til að kaupa, held- ur spara. Það er nú ameríski mergurinn: „Komdu til okkar og sparaðu. Lifi sparnaðurinn. Komið til mín, gala auglýsing- arnar. Ef þig hungrar og þyrstir, þá komið til mín. Ég veiti 40-60% afslátt. Fljá mér er alltaf útsala. Þú mátt ekki ganga framhjá. Þú munt sjá eftir því alla æfi því við höfum einmitt það sem þig vantar núna og það kostar aðeins þessa lús sem þú átt eftir af mánaðarlaununum. Þú hefur ekki efni á því að ganga framhjá í dag, á morgun, alla daga." Ingólfur Steinsson skrifar frá San Francisco Það er allt svo stórt í Ameríku og svo mikið af öllu Flundrað tegundir af verkja- pillum við öllu frá venjuleguiri höfuðverk upp í átta tíma verk. Hundrað tegundir af þvotta- efni. Ein gerir þvottinn svo hvítan að ég finn ekki hvítu skyrtuna mína, önnur er svo f • . ■ Það er allt hægt að finna í Ameríku. Stóra bfla með lilaðar rúður, sjónvarp, síma og bar til að hanga á. Svo eru líka bflar á leiðinni í brotajárn. sterk að hún rekur upp nærboli og vasaklúta. Svo eru það hin- ar níutíu og átta tegundirnar hver annarri betri. Hundrað tegundir af bílum, nýjum bílum og gömlum og begldum. sportbílum og bílurn í brotajárn. Límúsínur með sjónvarp, síma og bar til að hanga við ógegnsætt rúðugler, horfa á mannlífið, óséður. Hundrað útvarps og sjón- varpsstöðvar allar með pró- grammið fyrir „þig". Hundrað tegundir af garð- áhöldum, búsáhöldum, hár- klippingum. Milljónir af aug- lýsingatrixum fundin upp af háskólamenntuðu fólki í þeirri grein. Flugvél flýgur yfir og púar frá sér skýhnoðrum (amerísk- um) og fyrr én varir er himin- inn farinn að auglýsa: „Super- cuts toppklippingu, Rakarastof- an Loftvogum." Talandi um stærð. Við ætl- uðum út í sveit í fyrra í fyrsta skipti, ókum í þrjár eða fjórar klukkustundir, á hraðbraut all- an tímann, fundum ekki sveit- ina. Þó vorum við í henni mest allan tímann. Við komumst hvergi að fyrir háum giröing- urn. Áðum að lokum á hálf- gerðri umferðareyju. Hér er unnið að því á kerfis- bundinn hátt að breyta náttúr- unni í einhvers konar mann-. lega náttúru þar sem hver hundur er hannaður á teikni- borði. Þó er töluvert um frið- aða staði og ber þar þjóðgarð- ana hæst. Þar er gott að komast í bland við landið. Það er allt svo stórt í Ameríku Þegar litla stúlkan fer í skól- ann á morgnana, þarf hún sér- staka fylgd pabba eða mömmu, stóribró dugar ekki þó hann sé að verða ellefu, því að hér hverfa börn bara út í stærðina, barnarán, óleyst dæmi um alla tíð, mannsal. Það er vissara að fylgja þeim í veg fyrir skólavagninn. Stundumervagnstjórinn nýr og þá þurfa eldri börnin að segja honum til vegar. Litla stúlkan fer í tvo skóla á dag í skólavagninum og þeg- ar við erum á leið heim frá barnaheimilinu segir hún við mig: „Pabbi, ég vildi óska að skólinn væri hérna við endann á götunni og Regnboginn (Heilsubúðin) beint á móti, barnaheimilið við hinn endann á Ramóna og Hornbúðin beint á móti. Þá gæti ég bara labbqð sjálf í skólann og hlaupið niðrá horn að kaupa ís." „Ó aumingja barnið", hugs- aði ég skelfdur, hún er komin með stærðarfóbíuna. Og mér varð hugsað til þeirra daga

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.