NT - 22.08.1984, Síða 1
Uggvænlegar horf-
ur í atvinnumálum
■ Misjafnar horfur eru í at-
vinnumálum landsbyggðarinn-
ar og sums staðar blasir við
algert hrun atvinnulífsins og
fólksflótti frá byggðarlögunum
ef ekki verður einhver breyt-
ing á. Einkum á þetta við í
sjávarþorpunum fyrir norðan
og vestan þar sem afkoma
manna byggist að lang mestu
leyti á sjósókn. Horfurnar eru
heldur betri sunnanlands og
austan en þó byggist ajlt á því
að gæftir haldist og síldin,
þetta dyntótta silfur sjávarins,
sýni sig.
Sjá frétt á bls. 3
í dag skein sól
■ Þessa mynd af ungum veiði-
görpum tók Árni Bjarna, ljós-
myndari NT í höfuðborginni í
gær, en þá var fyrsti sdiardagur
Reykvíkinga í þrjár vikur.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar, þá hefur
stöku sinnum sést tii sólar í
ágústmánuði en þær sælu-
stundir munu vera teljandi á
fingrum annarrar handar. Hins
vegar var fyrsti dagur mánað-
arins dæmigerður sólardagur
sem lofaði góðu - en sveik
þau fögru fyrirheit. Fiest
bendir þó til að meira verði um
efndir að þessu sinni, því
Veðurstofan hefur upplýst, að
næstu daga muni norðanátt
ríkja um mestallt landið með
sól og bjartviðri að nyrsta hluta
Norðurlands og Vestfjörðum
undanskildum.
MMudagur 22. ágúst 1984 -212. tbl. 68. árg.
Jafnlaunastefna á Hvammstanga:
Láglai inafól lk-
ið fékk flesl
ar krónurnar
- þegar launum eins var skipt á milli
annarra
■ Stjórn Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga hækkaði í vor laun afgreiðslu-
fólks síns með því að ráða ekki í eina viðbótar-
stöðu en deila þess í stað laununum á milli
fólksins, þannig að þeir er höfðu minna en 15
þúsund á mánuði fengu mest, eða 1500 kr.
viðbót á mánuði, en aðrir fengu minna.
Samkvæmt heimildum NT
mun þetta hafa verið gert í
samráði milli verslunarstjór-
ans og káupfélagsstjórans en
starfsfólk mun ekki vera meira
en svo ánægt, því við þetta
hefur álag á það aukist til
muna, en það’ talið sig skila
fullu verki fyrir. Mælist þessi
krónutöluhækkun að vonum
vel fyrir, en þó er það skoðun
flestra að kaupið sé of lágt,
þrátt fyrir þetta, enda hér ekki
um raunverulega kauphækkun
að ræða þar sem vinnuálagið
hefur aukist að sama skapi.
NT hafði samband við
Gunnar V. Sigurðsson kaup-
félagsstjóra á Hvammstanga
útaf þessu máli en hann kvaðst
ekki ræða kjaramál starfs-
fólksins.við fjölmiðla.
Sprengingin
í gærkvóldi
af eðlileg-
um orsökum
■ Allmörgum íbúum
Reykjavíkur brá illilega í
brún í gærkveldi laust eftir
kl. 10 þegar þeir heyrðu
öflugan sprengihvell. Það
var ekki fyrr en eftir
nokkra leit sem lögregl-
unni tókst að finna sprengi-
staðinn. Reyndist hann
vera í Grafarholtinu og
þegar seinast fréttist var
álitið að um gatna-
gerðarframkvæmdir hefði
verið að ræða.
Breiðholtsskólalaug lokað:
Heilsuspillandi
búningsaðstaða
- Ekkert víst að nýir verði byggðir segir borgarstjórinn
■ „Þessum klefum var hrófl-
að upp úr vinnuskúrum til
bráðabirgða í einn vetur en
síðan látið slarka. Það hefur
verið sett fé í þessar fram-
kvæmdir á fjárhagsáætlun á
hverju ári til þess að friða
okkur hér. En síðan alltaf
strokað út af henni seinnipart-
inn“, sagði Þorvaldur Óskars-
son skólastjóri Breiðholtsskóla
en sundlaug skólans hefur nú
verið lokað af heilbrigðis-
ástæðum. Ástæðan er ófull-
nægjandi búningsklefar en að
sögn Þorvaldar hafa klefarnir
ekki haldið vatni né vindi og í
sama streng tók fulltrúi heil-
brigðiseftirlitsins sem NT
ræddi við. Enn er því allt í
óvissu um liagan sundkennslu
þeirra 800 barna sem stunda
nám við skólann.
„Það hefur e^igin ákvörðun
verið tekin í þessu hvort eða
hvenær verður ráðist í viðgerð-
ir eða byggingar þarna“, sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri
þegar NT ræddi við hann síð-
degis í gær. „En ætli það verði
ekki bara sama fyrirkomulag
þarna og við aðra skóla í
borginni að börnin verða keyrð
í aðrar laugar á höfuðborgar-
svæðinu. Það eru fæstir skólar
í borginni sem hafa sundlaug-
ar.“ Aðspurður hversvegna
hefði ekki verið ráðist í úrbæt-
ur á búningsaðstöðunni fyrr
sagði Davíð að þar hefðu verið
önnur brýnni verkefni sem
peningarnir hefðu farið í. „Það
hefur verið kvartað yfir þessari
aðstöðu svo lengi sem ég man
eftir“ sagði borgarstjóri.
Hjá Hróbjarti Lúterssyni
heilbrigðisfulltrúa fengum við
þær upplýsingar að samkvæmt
samþykkt heilbrigðisráðs væri
notkun sundlaugarinnar
bönnuð þar til fengist hefði bót
á búningsaðstöðu en hún er
eins og fyrr segir 8 ára bráða-
birgðaaðstaða.
■ Breiðholtslaug og búningsklefarnir í baksýn. Þeim var komið saman til bráðabirgða fyrir 8
árum en síðan ekki söguna meir. Og mi eftir langa baráttu skólayfirvalda fyrir endurbótum segir
heilbrigðiseftirlitið stopp og lokar sui.dk uginni. nt mynd: Róbcrt
Semur Vinnu-
málasam-
bandið sér?
■ í næstu viku verður fundur
í framkvæmdastjórn Vinnu-
málasambands Samvinnufélag-
anna þar sem tekin verður
ákvörðun um það hvort sam-
bandið greiðir 3% kauphækkun
1. sept. án tillits til hvort félög
hafa sagt upp samningum eður
ei, að sögn Júlíusar Kr. Valdi-
marssonar framkvæmdastjóra.
Þá verður einnig tekin ákvörðun
um það hvort Vinnumála-
sambandið verði í samfloti með
Vinnuveitendasambandi ís-
lands í samningunum. Svo var
ekki í síðustu samningagerð.
Viðsemjendur Vinnumála-
sambandsins eru um 15-20% af
félagsmönnum innan ASÍ.
Viðræður um nýjan
stjórnarsáttmála:
Nýir ráð-
herrar ekki
til umræðu
■ „Það er ekkert rætt um
skiptingu ráðuneyta í þessuin
viðræðum milli stjórnarflokk-
anna“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra, í
samtali við NT í gær. Friðrik
Sophusson tók í sama streng og
sagði að nýir ráðherrar væru
ekkert til umræðu í þessum
viðræðum. „Verði breytingar á
ráðherralista Sjálfstæðisflokks-
ins, sem ekki hefur komið til
tals, þá yrði Framsóknarflokkn-
um einfaldlega tilkynnt um
það“ sagði Friðrik.
Þeir Þorsteinn og Steingrímur
hittast nú daglega og samkvæmt
heimildum NT munu viðræður
flokkanna um endurskoðun á
stjórnarsáttmála standa að
minnsta kosti til mánaðamóta.
Enn sem komið er hefur einkum
yerið rætt um efnahags- og kjara-
mál en önnur atriði munu e.t.v.
koma þar inn síðar.’