NT - 22.08.1984, Blaðsíða 24
Miðvikudagur 22. ágúst 1984 24
Honecker vill fá fulla viður-
kenningu á landamærunum
Viðræður hans og Kohls geta orðið erfiðar
■ ÞAÐ má nú telja nokkurn
veginn öruggt, að Erich Hon-
echer muni heimsækja Vestur-
Þýskaland dagana 26.-29.
næsta mánaðar, þótt valdhaf-
arnir í Moskvu séu sennilega á
annarri skoðun.
í viðtali við Neues
Deutschland, aðalmálgagn aust-
ur-þýska kommúnistaflokks-
ins, sem birtist um síðustu
helgi, segir Honecker þetta
ekki berum orðum, en hann
heldur því hins vegar fram, að
vegna vaxandi stríðshættu,
sem m.a. leiði af staðsetningu
bandarískra eldflauga í Vest-
ur-Þýskalandi, sé nauðsynlegt
að menn neyti allra ráða til að
tryggja friðinn, og þar komi
ekki síst til greina að menn
talist við.
Það má segja, að Honecker
gangi hér á vissan hátt á móti
stefnu rússnesku valdhafanna,
sem er nú helst sú, að hefja
ekki viðræður um kjarnavopn-
in, nema að uppfylltum vissum
skilyrðum eða þeim, að banda-
rísku eldflaugarnar í Vestur-
Evrópu verði teknar niður.
Honecker kemur hins vegar
til móts við rússnesku valdhaf-
ana á annan hátt. Hann gefur
til kynna, að frá hans hálfu
munu viðræðurnar snúast um
að fá aukna viðurkenningu á
sjálfstæði Austur-Þýskalands
og draga þannig úr líkum fyrir
sameiningu þýsku ríkjanna,
nema þá á bandalagsgrund-
velli, en honum eru Vestur-
Þjóðverjar andvígir.
Samkvæmt viðtalinu mun
Honecker setja fram þá kröfu,
að Vestur-Þýskaland viður-
kenni austur-þýskan borgara-
rétt, en það er ekki gert nú.
heldur er litið á íbúa beggja
þýsku ríkjanna sem vestur-
þýska ríkisborgara.
Þá mun hann setja fram
kröfu, að fullu stjórnmála-
sambandi verði komið á á milli
ríkjanna og samkvæmt því
skiptist þau á sendiherrum.
Það er ekki gert nú, heldur er
talað um sérstaka sendimenn,
sem bera ekki venjulegan
sendiherratitil.
Loks mun hann færa fram
ósk um endurskoðun landa
mæranna, en í því myndi
felast viss viðurkenning á
landamærum Austur-Þýska-
lands, en þau vilja Vestur-
Þjóðverjar ekki viðurkenna
sem landamæri milli ríkja.
SENNILEGT er að Helmut
Kohl hafni öllum þessum
kröfum í viðræðunum við
Honecker. Fallist hann á þær
væri um að ræða frávik frá
þeirri yfirlýstu stefnu kristilegu
flokkanna að takmarkið sé að
sameina þýsku ríkin, þótt
dráttur verði á því að sinni.
Þetta hefur einnig verið stefna
flokks jafnaðarmanna.
Samkvæmt stjórnarskrá
Vestur-Þýskalands frá 1949
nær hún formlega yfir allt það
svæði, sem Þýskaland náði yfir
fyrir valdatöku Hitlers. Hún
var m.ö.o. miðuð við Weimar-
lýðveldið. Jafnframt er tekið
fram, að í framkvæmd nái hún
fyrst um sinn ekki til annarra
landssvæða en þeirra, sem þá
voru hernámssvæði Bandaríkj-
anna.Bretlands og Frakklands.
Þannig var sett það takmark,
að í fyllingu tímans myndi
stjórnarskráin einnig ná til
Austur-Þýskalands og þeirra
landsvæða, sem féllu undir
Pólland og Sovétríkin í stríðs-
lokin.
Rússar hafa sí og æ túlkað
þetta sem vitnisburð, um, að
Vestur-Þjóðverjar stefni að
því með illu eða góðu að ná
þessum landsvæðum aftur.
Hvað eftir annað hafa þeir
boðið upp á samninga, sem
staðfestu núverandi landamæri
í Evrópu. Því hefur verið hafn-
að af Vestur-Þjóðverjum,
Bandaríkjamönnum, Bretum
og Frökkum.
Þetta reyndist mikill ásteyt-
ingarsteinn, þegar Willy Brandt
var að semja um bætta sambúð
þýsku ríkjanna og Sovétríkj-
anna og Vestur-Þýskalands um
1970 eða nokkru eftir að hann
varð kanslari. Samkomulag
náðist um orðalag, sem fól það
í sér, að ríkin skuldbundu sig
til að reyna ekki að breyta
landamærum í Evrópu með
vopnavaldi. Kristilegu flokk-
arnir í Vestur-Þýskalandi voru
þó andvígir þesu orðalagi en
hafa sætt sig við það síðar.
Það eru ekki aðeins Austur-
Þjóðverjar sem teljast hafa
sama ríkisborgararétt og Vest-
ur-Þjóðverjar samkvæmt
stjórnarskránni frá 1949. Þetta
er einnig talið ná til þeirra
Þjóðverja í Póllandi, sem bú-
settir eru á þeim landssvæðum,
sem voru þýsk á tímum Weim-
arlýðveldisins. Þjóðverjar í
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Póllandi telja sig njóta þýsks
ríkisborgararéttar og krefjast
á þeim grundvelli að njóta
ýmissa sérréttinda, m.a. ferða-
frelsins.
Það vakti mikla athygli í
síðastliðinni viku, þegar
Glemp erkibiskup gagnrýndi
þessa tilhögun og ásakaði
stjórnarvöld í Bonn fyrir að
framfylgja henni. Fyrir vestur-
þýsk stjórnvöld kom þessi
gagnrýni Glemps á óheppi-
iegum tíma.
ÞAÐ KOM fram í viðtali
Honeckers við Neues
Deutschland, að hann muni
ræða um fleiri atriði við Kohl
en áðurnefndar kröfur um
Erich Honecker
Helmut Kohl
aukna viðurkenningu á Aust-
ur-Þýskalandi. Þar kom til greina
sameiginlegar mengunar-
varnir ríkjanna og aukin sam-
vinna á sviði viðskipta og
menningarmála. Vafalaust
mun Kohl leggja áherslu á, að
viðræður þeirra Honeckers
beri árangur að því leyti.
Fyrir Honecker er það áreið-
anlega mikið metnaðarmál, að
viðræður þeirra Kohls beri
þann svip, að viðurkenning á
Austur-Þýskalandi fari vax-
andi. Það er víðar en á íþrótta-
sviðinu, sem Austur-Þjóðverj-
ar vilja láta að sér kveða.
Austur-Þjóðverjar telja það
t.d. mikilsvert að vestrænir
stjórnmálamenn heimsækja
þá í vaxandi mæli. Á þessu ári
hafa forsætisráðherra Ítalíu,
Svíþjóðar, Grikklands og Kan-
ada lagt leið sína til Austur-'
Berlínar til viðræðna við Hon-
ecker.
ökukennsla
Ökukennsla
og æfingatímar
Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað
strax og greiða aðeins tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi.
Æfing í borgarakstri. Greiðslukjör.
Lærið þar sem reynslan er mest.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
tilboð - útboð
Útboð
Tilboð óskast í að leggja dreifikerfi hitaveitu fyrir hitaveitu
Hveragerðis. Útboösgögn verða afhent á skrifstofu Hvera-
gerðishrepps, Hverahlíð 24 og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Borgartúni 17, Reykjavík gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hveragerðishrepps 3. sept.
1984 kl. 11.
Útboð-Loftræsing
Stykkishólmshreppur óskar eftir tilboðum í
smíði og uppsetningu loftræsikerfis í nýbyggingu
Gagnfræðaskólans í Stykkishólmi. Útboðsgögn
verða afhent hjá Verkfræðistofunni Fjarhitun h.f.,
Borgartúni 17, Rvík., gegn 2500 kr. skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð föstudaginn 31. ágúst
n.k. kl. 11.00 f.h. hjá Fjarhitun h.f.
til sölu
Til sölu
Ford 3000 árg. ’69-’70, allur uppgerður á síðasta
ári, vél, olíuverk, góð dekk, ný sprautaður með
húsi. Verð 75 þús. kr. Upplýsingar í síma
92-1238 á kvöldin.
Til sölu
dráttarvél IH 484 árg. 1979.
Upplýsingar í síma 99-6538.
Jörð til sölu
Jörðin Miklaholtssel Miklaholtshreppi á sunnan-
verðu Snæfellsnesi er til sölu. Á jörðinni er
kúabúskapur. Upplýsingar gefur eigandi jarðar-
innar Jóhann Kristjánsson í síma 93-5616
Þegar bilar mætast er ekki nóg að annar viki vel út á vegarbrún og
hægi ferö. Sá sem á móti kemur veröur að gera slikt hið sama en not-
færa sér ekki tillitssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði
þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km.