NT - 22.08.1984, Blaðsíða 3

NT - 22.08.1984, Blaðsíða 3
0f Miðvikudagur 22. ágúst 1984 Uggvænlegar horfur í atvinnumálum: Fólksflótti frá landsbyggðinni verði ekki gripið til aðgerða NT ræðir við forsvarsmenn bæjar- og sveitarfélaga _ Atvinnuástand er mjög slæmt í mörgum bæjarfélögum úti á landi um þessar mundir og blasir við algert hrun atvinnulífsins og fólksflótti frá byggðarlögunum ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða. Eins og kom fram í NT á mánudaginn er ástandið a Seyðistirði mjög alvarlegt og yfir 100 manns atvinnulausir. Svipaða sögu er að segja frá ísafirði og Akranesi og hafa bæjarstjórnir sent frá sér ályktanir til stjórnvalda um að þegar verði gripið til aðgerða til að leysa vanda þessara byggðarlaga sem byggja afkomu sína af sjávarútvegi. Aftanákeyrsla á Miklubraut: Ökumaður festist ■ Það slys átti sér stað á gatnamótum Miklubrautar og Réttarholtsvegar í gærkvöldi að steypubíll ók aftan á litla Fíat- Uno bifreið. Ekki urðu alvarleg slys á mönnum, en þó þurfti að kalla til tækjabíl slökkviliðsins til að losa ökumann fólksbílsins sem var fastur inni í bílnum. NT hafði samband við for- svarsmenn nokkurra bæjar- og sveitarfélaga á landinu og spurðist fyrir um atvinnuástand og horfur og kom fram hjá allflestum að nokkur kvíði væri í mönnum fyrir haustinu, eink- um þar sem kvóti skipanna er búinn, eða við það að klárast. Töldu flestir að eina ráðið væri að auka við kvótann til að forða allsherjaratvinnuleysi í þeim byggðarlögum þar sem lífið er fiskur. Sturla Böðvarsson í Sfykkis- hólmi kvað útgerðina eiga við erfiðleika að etja, kvótinn sem Stykkishólmsbátar fengu var taicmarkaður og því verið stopp þar til skelveiðarnar hófust. Hann sagði óvissuástand ríkja með haustið því verð á skel og hörpudiski væri óráðið en hins vegar væri mikil gróska í öðrum atvinnugreinum, einkum bygg- ingariðnaði og skipasmíðum. Væri ekkert atvinnuleysi í Hólm- inum eins og nú stæði og gætu þeir hæglega bætt við sig 100 manns í vinnu. í Bolungarvík er allt í gangi eins Qg er en að sögn Guðmund- ar Kristinssonar bæjarstjóra er farið að ganga verulega á kvóta skipanna. Þar byggist allt á útgerð og því mikil óvissa um haustið. Sagði hann hryllilegt að hugsa til þess atvinnuleysis sem við blasi og séu það hálf- gerð öfugmæli að tala um að ■ Verður það þetta sem blasa mun við í frystihúsum engin vinna. haust, - aflabrögð séu góð, því það stytti tímann í þennan vágest. Á Skagaströnd varð Sigfús Jónsson fyrir svörum og sagði hann ástandið gott um þessar mundir en óvissa væri útaf k vóta og óttuðust menn að togararnir yrðu stopp ef ekki fengist viðbót. Snorri Finnlaugsson bæjarrit- ari á Dalvík sagði að þar snérist allt um fisk og horfur væru ekki góðar. Einn togari væri búinn með kvóta og annar ætti lítið eftir. Rækjuvinnslan gæfi ekk- ert af sér og vildu Dalvíkingar fá hærra verð fyrir rækjuna og stærri fiskikvóta. Ef það gerð- ist ekki yrði útlitið svart í haust. Á Þórshöfn er Stakfellið búið með sinn kvóta og sagði Stefán Jónsson sveitarstjóri að ef ekki fengist meiri kvóti yrðu þeir að taka fólk á atvinnuleysisskrá, því þar væru engir aðrir atvinnu- möguleikar aðrir en fiskurinn. Nokkuð annað hljóð var í strokknum á Fáskrúðsfirði og kvað Sigurður Gunnarsson sveitarstjóri gott ástand vera í atvinnumálum bæjarins eins og stæði og fiskaðist vel. Togararn- ir stæðu vel og myndu ekki stöðvast, eins væri ekki langt í síidina. í Vestmannacyjum var gott hljóð í mönnum og stærri húsin voru að byrja að taka á móti afla í gær, eftir að hafa verið í sumarfríi frá lokum júlímánað- ar. Ólafur Elísson bæjarstjóri kvað atvinnuástand gott, til þess að gera og stæði kvóti skipanna sæmilega og ætti ekkert að aftra því að afli bærist á land í Eyjum, þótt einstaka skip væru búin með sinn hlut. Kvað hann ekkert óttahljóð í Eyjamönnum vegna haustsins en þar byggðist öll afkoma á veiðum og nú væri beðið eftir síldinni og eins myndu Vestmannaeyingar gera út á loðnu með haustinu. Steinþór Júlíusson bæjar- stjóri í Keflavík kvað atvinnu- ástand þar ekki vera verra en verið hefði. Þar væri næg at- vinna en sjávarútvegurinn stæði ekki föstum fótum og ríkti þar sama óvissa og undanfarið og væri einhver uggur í útgerðar- mönnum. Sæu menn ekki frarn á neitt betri tíð og það þyrfti lítið til að setja þetta allt úr skorðum, eins og hann orðaði það. Kartöf lubændur í hár saman: Standa forystumenn kartöflu- bænda í biðröð hjá Hagkaupi? - eða lánaði Hagkaup Jens fyrir vélinni? Styttir upp í Búðardal: Rólegur aðalfund ur kaupfélagsins - þrátt fyrir milljónatap á síðasta ári ■ Öldurnar er farið að lægja í Búðardal, eftir deilur sem koinu upp á fundi Laxárdalsdeildar Kaupfélags Hvammsljarðar fyrir nokkru, eins og NT skýrði frá. Aðalfundur kaupfélagsins var haldinn í fyrrakvöld og var hann rólegur að sögn heimildar- manna blaðsins. ■ „Þessar aðgerðir, að bjóða í kartöflur og kaupa þær framhjá sölusamtök- um framleiðenda og reyna þar með að brjóta þau niður jafngilda því að reynt væri að brjóta niður verkalýðshreyfing- una, þannig að hver atvinnurek- andi gæti boðið í vinnuaflið eftir sínu höfði,“ sagði Guðni Guð- iaugsson formaður Félags kart- öflubænda á Suðurlandi, þegar NT spurði hann álits á kartöfiu- málinu. Hann bætti því við að Jens Gíslason hefði fyrir nokkr- um dögum fengið nýja kartöflu- upptökuvél, sagðist trúa því að Hagkaup hefði lanað honum andvirði vélarinnar, þar til hon- um væru sýndir pappírar frá einhverri lánastofnun sem sönnuðu annað. „Yfirgnæfandi meirihluti kartöflubænda harmar aðgerðir Jens,“ sagði Guðni, „og ég vil skora á aðra framleiðendur að standa saman um lífsafkomu sína,“ Þá sagði hann að ekkert lægi fyrir um mat á kartöflum sem seldar væru framhjá Græn- metisversluninni, né hver ætti þá að greiða gjöld sem Græn- metisverslunin innti af hendi, svo sem matsgjöld og sjóða- gjöld. Guðni benti ennfremur á að Grænmetisverslunin sér um stofnræktun á útsæði og spurði hver ætti að sjá um það ef hún yrði lögð niður. „Að leggja niður Grænmetisverslunina er skref í. þá átt að brjóta niður innlenda framleiðslu,“ sagði Guðni Guðlaugsson. „Ég ætla ekki að fara að svara persónulegu skítkasti,“ sagði Jens Gíslason, þegar NT bar ummæli Guðna Guðlaugssonar undir hann. „Hins vegar skal ég segja það að spurningin er ekki um að brjóta niður nein sölusamtök, þau hafa brotið sig niður sjálf með því að setja reglur sem sumir hagnast á en aðrir ekki. Þar á ég meðal annars við það að við hér í Þykkvabænum höfum alltaf setið eftir með birgðir, löngu eftir að allir aðrir , hafa verið búnir að losa sig við I sínar kartöflur. Á því er engra breytinga að vænta og því er það engin furða að ýmsir fari að líta í kringum sig. Óg hvað sem þessir menn segja um hvað allt er jafnt og heiðarlegt hjá þeim þá er það staðreynd að neyslan á kartöflum hefur farið minnk- andi undanfarin ár og sú þróun náði hámarki með finnska ævintýrinu í vor,“ sagði Jens. Hann sagði að það hefði lengi verið spurning um það hver bryti ísinn og færi að selja framhjá Grænmetisversluninni. „Það sem mennirnir eru hræddir við er ekki það að ég selji til Hagkaups heldur að fleiri fari að dæmi mínu. Ég veit það að meira að segja framámenn í Landssamtökum kartöflubænda hafa boðið Hagkaupi kartöflur til sölu.“ Reikningar ársins 1983 voru lagðir fram og sýndu þeir 6 milljón króna halla, eins og þegar hefur komið fram í NT. lnni í því munu vera reikningar trésmiðjunnar, sem m.a. hefur verið deilt um. Rekstrarhalli trésmiðjunnar reyndist vera 1.4 milljónir. Útkoma kaupfélags- ins í heild mun þó vera betri í raun, en bókhaldshallinn sýnir. Reykingarnir voru samþykktir mótatkvæðalaust. Aðalfundurinn var fjöl- mennur og fjölmargar ræður fluttar, þar sem núverandi kaupfélagsstjóra voru þökkuð störf í þágu fyrirtækisins. Kaup- félagsstjórinn lætur af störfum um næstu mánaðamót og hefur nýr maður verið ráðinn frá þeim tíma. Veðurguðirnir gerðu sitt til að létta á mönnum, því að í fyrradag stytti upp fyrir vestan eftir nokkurra vikna vætutíð, og í gær voru bændur önnum kafnir við heyskapinn. Norðurlandamót grunn- skóla í skák: Yfirburðasigur Hvassaleitisskóla ■ Skáksveit Hvassaleitisskóla vann glæsi- Iegan sigur á Norðurlandamóti grunnskóla í skák, sem lauk í Haparanda í Svíþjóð s.l. sunnudag og varði þar með Norðurlanda- meistaratitilinn, sem skólinn ávann sér í fyrra á Norðurlandamóti grunnskóla, sem þá var haldið í Danmörku. Sveitin hlaut 15 vinninga af 20 mögulegum. Hana skipuðu að þessu sinni Þröstur Þórhallsson, Tómas Björnsson, Snorri G. Bergsson, Heígi Hjart- arson og Héðinn Steingrímsson. í öðru sæti á mótinu varð norska sveitin með 12 ’/2 vinning, þá danska sveitin með 12 vinninga, í fjórða sæti sú finnska með 8 vinninga og þá B sveit gestgjafanna, Svíþjóðar með 7 vinninga og lestina rak A sveitin sænska með 5 vinninga. SOS-nistið Fyrirallan aldur jafnt hepp san erlendis. U 7 Æ -----** LANDSSAMBAND H JÁLPARSVEITA SKÁTA a

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.