NT - 22.08.1984, Page 28

NT - 22.08.1984, Page 28
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT ? j HRINGDU ÞA f SlMA68-65-38 í Vid tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leidir til fréttar í bladinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leidir til bitastædustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gaett Ævintýri ársins í Laugardalshöll ■ Það er mikið um að vera í Laugardalshöllinni í Reykjavík þessa dagana. Gríðarmikið einbýlishús er risið af grunni í miðjum salnum en að öðru leyti er búið að skipta honum öllum niður í ótal sýningarbása sem sýnendur eru í óða önn að innrétta. Gm allan salinn er fólk á þönum fram og aftur, berandi alls kyns byggingarefni á milli sín. Sumir eru að saga til efnið í parketgólfið í básnum sínum, aðrir hafa lagt þar teppi og hafa varla við að ryksuga það. Þaöeraðsjálfsögðu heimils- athuga hvernig undirbúning- sýningin mikla sem nú er í urinn gengi. Við litum fyrst undirbúningi í höllinni. Þetta inn í einbýlishúsið sern stend- miklaævintýriþarsemenginn ur á miðju gólfi og myndar er maður með mönnum nema eins konar miðdepil á sýning- hann fái að vera með ein- arsvæðinu. Þótt húsið virtist hvers staðar úti í horni til að nokkurn veginn fullgert utan koma vörunni sinni á framfæri frá séð, var allt á ferð og flugi við væntanlega kaupendur. innan dyra. Sumir lögðu flísar Sýningin verður opnuð á á gólf, aðrir parket og enn föstudaginn með „pomp og aðrir báru skápa milli her- prakt" og þá verður hver bergja. Þegar við spurðum hlutur að vera kominn á sinn hvernig gengi, sögðust þeir stað. Það eru ekki nema tveir aðallega þvælast hver fyrir dagar til stefnu og því ekki öðrum en brostu þó góðlát- nema von að menn séu að lega að öllu saman. „Þetta flýta sér við undirbúninginn. gengur ekkert með parket- Blaðamaður og Ijósmynd- ið,“ sögðu skápamenn, „það ari NT brugðu sér í höllina í átti að vera klárt á hádegi í gær til að skoða aðstæður og gær“. „Þú segir vel um það,“ svaraði einn parketmanna, „þegar efnið kom ekki á staðinn fyrr en kl. hálf þrjú.“ Þessu næst vakti athygli okkar sýningarbás nokkur sem virtist öllu lengra á veg kominn en hinir. Þar var ris- inn skjannahvítur veggur með bogadregnum gluggum. Þarna reyndist verslunin Tékk-kristall ætlar að stilla út hvers kyns munaðarvarningi. Við snerum okkur að manni sem var þarna eitthvað að bauka og vildum fá að vita hvað þessi byggingarstíll héti. „Ætli það sé ekki Rókókó eða eitthvað þess háttar,“ sagði maðurinn sem reyndar kvaðst heita Skúli Jóhannesson. Eftir að hafa hugsað sig um andar- tak, skipti hann um skoðun og sagði: „Nei annars, við skulum kalla þetta Hallar og herragarðsstílinn." Þegar við höfðum gengið þarna á milli básanna um hríð og Sverrir Ijósmyndað nægju sína, gengum við niður í kjallarann. Þar voru líka menn að störfum en þegar við hugðumst taka þá tali brugð- ust þeir undarlega við og virt- ust ekki með nokkru móti kunna skil á „ástkæra ylhýra málinu," hinni göfugustu tungu sem töluð er á norður- hvelinu. Eftir nokkrar árang- urslausar tjáningatilraunir á ýmsum germönskum tung- um var okkur fylgt til ensku- mælandi yfirmanns á staðnum. Þá kom í ljós að hér voru Tékkar að setja upp sýningu á ýmsum útflutnings- vörum heimalands síns. Petr Holmer, sem var fyrir liðinu, kvaðst m.a. ætla að sýna Skoda og Zetor sem báðir eru íslendingum nokkuð kunnir, en auk þess kristal og ýmsa handunna vöru og jafnvel bækur. Bauð hann okkur að lokunt hjartanlega velkomna aftur á föstudeginum. Á föstudaginn byrjar það. Ævintýri ársins í Laugardals- höllinni. Heimilissýningin 1984. - Og NT verður að sjálf- sögðu á staðnum. ■ Það eru tveir dagar eftir þangað til allt á að vera klapp- að og klárt fyrir sýninguna miklu í Laugardalshöllinni. Undirbúningurinn er í fullum gangi og einbýlishús risið í miðjuin salnum. ■ Jón Guðmundsson lagði flísar á gólfið í þvottahúsinu. A föstudaginn á allt að vera klappað og klárt. ■ Skúli Jóhannesson: „Við skulum kalla þetta Hallar og herragarðsstflinn“. ■ Tékkarnir ætla að sýna Skoda og Zetor og ýmislegt annað sem kannski er minna þekkt á Islandi. Hér fletta þeir kynningarbæklingi um heimaland sitt.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.