NT


NT - 28.08.1984, Síða 1

NT - 28.08.1984, Síða 1
Þunnhærðir unglingar?: Stálu hárkollum í Laugardalshöll ■ Pá fáu daga sem heimilis- sýningin hefur staðið í Laugar- dalshöll hefur töluvert verið um þjófnaði á sýningargripum. Þannig hvarf hárkolla úr sýn- ingarbás hárgreiðslustofunnar Papillu á laugardag og í fyrra- kvöld var annarri hárkollu síð- an stolið úr sama bás. í bæði skiptin voru óprúttnir unglingar að verki og náðust þjófarnir í hvorugt skiptið. Dyravörðum var þó gert við- vart undir eins en einhvern veginn sluppu unglingarnir úr greipum þeirra og þrátt fyrir mikla leit fundust þeir hvergi innandyra. Hárkollan, sem var stolið á laugardagskvöld, er ljós með fléttum, svipuð þeim hárstíl sem leikkonan Bo Derek hafði í kvikmyndinni 10. Hin hár- kollan er öllu venjulegri, ljós á lit og með svonefnda boxklipp- ingu. Það eru eindregin tilmæli eiganda Papillu að þjófarnir skili kollunum aftur því þótt hér sé um töluverð verðmæti að ræða koma þau vart ung- lingum að neinu gagni. Flakið af Mount Louis Ágreiningur um mengunarhættu Sjá nánar útlönd bls. 23 Skip Hafrannsóknarstofnunar í seiðaleiðangri: Rannsóknir nú lofa góðum þorskárgangi „Sjórinn er iðandi af lífi,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson ■ Samkvæmt heimildum NT gefa rannsóknir hafrannsókna- skipa Hafrannsóknarstofnunar til kynna að þorskárgangurinn í ár sé mjög sterkur. Hjálmar Vilhjálmsson, leið- angursstjóri á Árna Friðriks- syni, sem er við seiðarannsóknir fyrir Norðurlandi, sagði NT í gærkveldi að mikið líf væri í sjónum. „Ástandið hefur oft verið verra.“ Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, sagði að þetta sýndi að lítill stofn gæti gefið góða hrygningu. En Halldór sagðist jafnframt vilja minna á að þrátt fyrir að stofninn 76 hafi verið talinn mjög góður, skilaði hann sér illa í veiði. Ölafur Halldórsson, leiðang- ursstjóri á Bjarna Sæmunds- syni, sem er einnig við seiða- rannsóknir, fyrir Vestfjörðum, sagði að leiðangurinn hefði gengið vel, en vildi ekki láta hafa neitt eftir sér fyrr en hann hefði getað skoðað árangur beggja skipa. Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknarstofn- unar, sagði að niðurstöður leiðangursins yrðu kynntar þeg- ar þær lægju fyrir, en skipin koma í höfn á fimmtudag. Hringsjá: Selfoss Grímsnes Akranes Grindavík Njarðvík Hornaffjörður Sjábls.6-7 j ■ Það slys átti sér stað á sjúkrahúsinu í Keflavík, snemma í gærmorgun, að kona féll niður í lyftugryfju á milli hæða. Slysið bar að með þeim hætti, að konan hugðist fara með hjólavagn inn í lyftuna og eftir að hafa ýtt á tilheyrandi takka tók hún í hurðina til að athuga hvort lyftan væri komin niður. Hurðin var hviklæst, og því opnaðist hún þó lyftan sjálf væri á annarri hæð. Konan gekk aftur á bak inn um lyftudyrnar og féll af jarðhæðinni niður í lyftugryfjuna. Meiðsl konunnar reyndust ekki jafn alvarleg og ætla mætti en hún brákaðist á hryggjarlið. Má það teljast lán í óláni að atvik þetta skyldi gerast á jarðhæð en ekki annarri eða þriðju hæð. Fokið í flest skjól ■ Eitt og annað hefur verið rætt og ritað um hús- næðisvanda ungs fólks, og fregnir herma að baráttan á leigumarkaði borgarinnar fari harðnandi. Menn deyja þó ekki ráðalausir eins og meðfylgjandi mynd ber með sér og auglýsa grimmt. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem NT aflaði sér þá hefur auglýsing þessi ekki borið árangur enn sem komið er enda hefur víst aldrei þótt happadrjúgt að bera sín vandræðiátorg...? NT-mynd: Róbert. Áhugi hjá Sjóvá á að eignast 13% í Tryggingu hf.: Vill kaupa á 24-földu nafn virði hlutabréfa! ■ Sjóvá hefur gert tilboð í um 13% hlutabréfa Tryggingar h.f. og vill borga 5 milljónir króna fyrir þau, eða 25-falt nafnvirði bréfanna. Með í kaupunum mundu fylgja jöfnunarhluta- bréf, sem Trygging ráðgerir að gefa út til að fimmfalda núver- andi hlutafé. Hlutabréfin, sem Sjóvá vill kaupa eru í eigu þeirra Þorsteins Bernharðssonar og Magnúsar Helgasonar, en þeir voru báðir felldir úr stjórn Tryggingar á aðalfundi, sem haldinn var fyrr í sumar. Einar Sveinsson fram- kvæmdastjóri Sjóvá vildi ekkert tjá sig um þetta mál, þegar NT hafði samband við hann í gær. Lögum samkvæmt á Trygging h.f., eða hluthafarfyrirtækisins, forkaupsrétt á hlutabréfum tví- menninganna. Stjórn fyrirtækis- ins hefur mál þetta í athugun og hefur hún frest til september- loka til að nýta forkaupsréttinn. Ef það verður gert, verður hún að greiða fyrir hlutabréfin sömu upphæð og Sjóvá hefur boðið. Þar sem 13% hlutabréfaeign tryggði Þorsteini og Magnúsi ekki sæti í stjórn fyrirtækisins, velta menn því fyrir sér hvað búi að baki tilboði Sjóvá . Féll niður í lyftugryfju! Hurðin opnaðist þó lyftan væri á annarri hæð NT á heimilissýningunni: Mörg hundr- uð nýrra áskrifenda - 20 þúsund gestir hafa séð sýninguna ■ Mörg hundruð nýir á- skrifendur hafa bæst í hóp lesenda NT á heimilissýn- ingunni í Laugardalshöll- inni. „Undirtektir gesta hafa verið mjög góðar“, sagði Inger Einarsdóttir starfs- maður í NT-básnum á sýningunni, þegar við litum til hennar í gær- kvöldi. Sagði hún, aðgest- irnir væru mjög hrifnir af Reuter-prentaranum, þar sem þeir gætu lesið glóð- volgar erlendar fréttir. Sérstaklega væru út- lendingarnir hrifnir, þar sem þeir gætu ekki lesið íslensku blöðin. Halldór Guðmundsson, blaðafulltrúi sýningarinn- ar sagði í samtali við NT í gærkvöldi, að þeir væru mjög ánægðir með við- tökurnar. „Aðsóknin hef- ur verið mjög góð, bæði á sýninguna og í tívolíið", sagði Halldór. Reiknað var með að gestir yrðu orðnir um 20 þúsund eftir kvöldið í gær, og sagði Halldór, að sýn- ingin í ár færi svipað af stað og sýningin 1982, en þá var heildarfjöldi gesta nærri 74 þúsund.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.