NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 28.08.1984, Qupperneq 2

NT - 28.08.1984, Qupperneq 2
 fíF Þriðjudagur 28. ágúst 1984 2 ui Frétttir Hið fræga hús við Þingvallastræti 22 á Akureyri: Enginn vill kaupa íbúd dómhafa eftir útburðinn -ÓlafurogDaniellaætlaafturmeðmálið ffyrir Mannréttindanefnd Evrópuráðs ■ Efri hæð hússins að Þing- vallastræti 22 á Akureyri hefur nú verið auglýst til sölu, en íbúð þessi er i eigu Grimu Guð- mundsdóttur. Neðri hæð húss- ins er í eigu hjónanna Ólafs Rafns Jónssonar og Danicllu Sommers, en eins og kunnugt er. voru þau dæmd til útburðar s.l. vetur fyrir brot á lögum um fjölbýlishús. Að sögn Guðmundar Arn- aldssonar, annars sona ■ Grímu, hafa nokkrir aðilar sýnt áhuga á kaupum á íbúðinni, en sá áhugi hefur ætíð dvínað þegar í Ijós hefur komið hverjir eiga hina íbúðina í húsinu. Ólafur Rafn og Daniella eiga enn íbúð sína, þótt þeim hafi verið bannað að búa í henni um ótiltekinn tíma. Þau hjón líta hins vegar svo á að Gríma geti ekki selt íbúð sína, þar sem hún sé ekki eig- andi hennar. „Það er enginn löglegur eigandi að Þingvalla- stræti 22. Við keyptum íbúð okkar af Jóni Ágústssyni, en hann keypti sinn hluta af Grímu, sem ekki átti húsið, því lóðaleigusamningurinn var runn- inn út þegar honum var þinglýst," sagði Daniella. „Að auki var húsið byggt án bygg- ingaleyfis. Þá liggur ekki ljóst fyrir hvernig húsinu skal skipt milli íbúðanna tveggja, því að húsið hefur aldrei verið mælt hjá Fasteignamati ríkisins.“ Þau hjón fengu leiguíbúð hjá Félagsmálastofnun Akureyrar- bæjar og hafa verið í henni frá því þeim var gert að fara úi íbúð sinni. Sá leigusamningur rennur út 1. október, en þá munu þau fara í nýtt húsnæði. Hvar það verður er þó ekki ljóst. „Við héldum að við hefðum fengið húsnæði hjá bænum til ótilteknis tíma,“ sagði Daniella. Að sögn Jóns Björnssonar, fél- agsmálastjóra Akureyrarbæjar, er það stefna stofnunarinar að leigja ekki þeim sem eiga íbúð. Hjónin hafa hins vegar ekki í hyggju að selja íbúð sína. Þá sagði Daniella að þau ætluðu að leggja mál sitt að nýju fyrir Evrópudómstólinn í Strassburg. „Þar sem ég er belg- ískur þegn hef ég beðið utanrík- isráðherra Belgíu að taka málið upp fyrir okkur,“ sagði Dan- iella. Eldur í eggjum! ■ Eldur kom upp í eggjapökkunarstöð við hænsnabúið að Sætúni á Kjalarnesi síðdegis í gær. Var slökkviliðið í Reykja- vík kvatt á staðinn en þá hafði heimamönnum tek- ist að ráða niðurlögum eldsins að mestu. Skemmdir urðu á verulegu magni af pökkuðum eggj- um en engar á húsnæði. Ekkert slökkvilið er á Kjalarnesi um þessar mundir og því leitað til Reykjavíkurslökkviliðsins og varð að kalla út varalið í höfuðborgarstöðina meðan 8 menn héldu upp á Kjalarnes. Að sögn varðstjóra hjá slökkvilið- inu er stofnun slökkviliðs á Kjalarnesi í bígerð um þessar mundir. Formannaviðræðurnar: Ákveðið að taka á landbúnaðarmálunum - þó samstarfsnefndum stjórnar- flokkanna hafi orðið lítið ágengt ■ Þeir Steingrímur Her- mannsson og Þorsteinn Pálsson halda stöðugt áfram viðræðum um verkefnaskrá ríkisstjórnar- innar fyrir árið 1985. A sunnu- daginn hittu þeir m.a. Jóhannes Nordal og ræddu stöðu þjóðar- búsins út á við, án efa m.t.t. stöðunnar í álviðræðunum sem Jóhannes Var nýkominn frá. Viðræðunum miðar vel að sögn þeirra félaga og er á þeim að heyra að niðurstöður gætu legið fyrir um eða upp úr mánaðamótum. Búast má við skriflegri skýrslu sem verður lögð fyrir þingflokka stjórnar- flokkanna. Heimildamenn blaðsins eru sammála um það að tekið verði á landbúnaðarmálum í þessum viðræðum. Tvær ncfndir eru nú starfandi frá því í fyrra og hefur samkvæmt heimildum blaðsins hvorug komið miklu í verk. Önnur er samstarfsnefnd flokk- anna sem hefur það verkefni að endurskoða Framleiðsluráðs- lögin. Þar sitja Birgir fsleifur, Egill Jónsson, Davíð Aðal- steinsson og Stefán Valgeirsson. Þeir hafa hist ótal sinnum en ekki orðið sammála um neitt. Hin nefndin er skipuð af land- búnaðarráðherra til þess að endurskoða ábúðarlögin og jarðarlögin og hefur m.a. það hlutverk að breyta lögum þann- ig að hægt verði að fella niður lagabundna styrki til nýrækta- framkvæmda og skurða, en veita fjármagninu frekar til ný- greina í landbúnaði. í þessari nefnd eru m.a. Egill Jónsson og Þórarinn Sigurjónsson. Þessi nefnd hefur lítið gert. Það er ekki út í hött að álykta að þeir Steingrímur og Þorsteinn komi til með að leggja þær línur sem þessar nefndir hafa átt. erfitt með að leggja. Hermóðsson í viðtali við Veiði- hornið á föstudaginn var. Nú eru komnir á land rúm- lega 250 laxar en heildarveiðin í fyrra var um 1701axar. Stærsti laxinn sem fengist hefur á Nessvæðinu í sumar var 25 pund. Laxinn hefur verið ríg- vænn í allt sumar og meðal- þyngdin um 14 pund. Ný laxveiðiá að líta dagsins Ijós? í Þorskafirði rennur á ein er ber heitið Þorskafjarðará og rennur niður Kollabúðardal. Þegar Veiðihornið hafði samband við Ketil Axelsson í Kollabúðum var hann nýbúinn að Ijúka miklu dagsverki ásamt félögum sínum. Slepptu þeir um 20 þúsund sumaröldum seiðum í ána. Undanfarin ár, allt frá 1971, hefur verið unnið mikið rækt- unarstarf í Þorskafjarðará og Dunká í Dölum ■ Frekar dauft hefur verið yfir veiðinni í Dunká í sumar. Veiðihornið átti leið þar framhjá í gær og náði tali af einum veiðimanni sem búinn var að vera þar að veiðum í tvo daga. Hafði hann ekki fengið fisk en sagði að hollið á undan hefði fengið 2 laxa og eru þá komnir 50 laxar úr ánni á þessu sumri sem er siakt, en Dunká hefur komist yfir 200 laxa á góðu sumri. En þrátt fyrir þetta er Dunká með vinalegri ám sern maður hefur séð og er veitt þar á tvær stangir. Laxá í Aðaldal - Nesveiðar „Veiðin hefur gengið sæmi- lega í sumar miðað við í fyrra sumar", sagði Völundur er sá árangur nú að skila sér. Töluvert af laxi hefur gengið í ána í sumar, ásamt vænni sjó- bleikju. Veiði hefur lítið verið stunduð í ánni undanfarin ár meðan ræktun stendur yfir. Veitt hefur verið í matinn og í haust ætlar Ketill að veiða eitthvað af laxi til undaneldis, til að rækta áfram upp stofn árinnar. Stefnir hann að þvf að sleppa eingöngu í ána þeim seiðum sem eiga ætt sína að rekja þangað. Þorskafjarðará er 7 km löng, laxgeng og hefur að geyma marga gullfallega hyli. Fluguveiði mun eingöngu vera leyfð í ánni núna og í framtíð- inni, enda er hún upplögð fyrir fluguna. Laxá í Leirársveit Veiðin er heldur að glæðast í Laxá í Leirársveit. Eftir að íslendingarnir tóku við fyrir helgina hafa þeir fengið 32 laxa á þrem dögum og er það fyrsti laxinn sem tekinn er á maðk í ánni í sumar. Nú eru komnir á sjötta hundrað laxar á land úr Laxá í Leirársveit. Framkvæmdastofnun: Selur starfsmönnum Álafoss 20% hluta- bréfa fyrirtækisins - en einn aðili hafði sóst eftir að kaupa fyrirtækið allt ■ 1 dag og á morgun kemur stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins saman til fundar á Sauð- árkróki. Á dagskrá fundarins er m.a. sala á 20 prósent hluta- bréfa í Álafossi til starfsfólks fyrirtækisins. Bréfin verða ekki gefin út á Starfsmannafélagið heldur var starfsmönnum gefinn kostur á að kaupa hlutabréfin sjálfir. Álafoss er í eigu Fram- kvæmdasjóðs ríkisins sem lýtur stjórn Framkvæmdastofnunar. Stefán Guðmundsson, al- þingismaður, formaður stjórnar Framkvæmdastofnunar, sagði NT í gærkvöldi að hann vonað- ist til að þessi sala á hlutabréfum næði fram að ganga. Hann sagði að seinna í dag Aðgerðir í lok Kvenna- áratugs ■ „Mikill áhugi er fyrir því meðal kvenna, að nota lokaár Kvenna-áratugsins 1985 sem best til að vekja athygli á aðstæðum kvenna á íslandi og vinna að bættri stöðu þeirra á mörgum sviðum," segir í frétta- tilkynningu frá undirbúnings- nefnd fyrir Kvenna-áratugsráð- stefnu SÞ 1985. Þá kemur fram að þegar hefur verið stofnaður starfshópur til að vinna úr hug- myndum sem fram hafa komið um hvað gera skuli á næsta ári. Mun starfshópurinn velja sér framkvæmdastjóra á næsta fundi hópsins sem haldinn verð- ur í dag að Borgartúni 6, kl. 17.00, en þar mun' tekið við tillögum um aðgerðir og til- kynningum um þátttöku. yrði lagt fram mat starfsmanna Framkvæmdastofnunar á verði hlutabréfanna. Stefán sagði að það hefði legið fyrir, síðan í vetur, erindi frá einum aðila um kaup á öllu fyrirtækinu, en það hefði orðið ofaná í stjórn Framkvæmda- stofnunar að fara þessa leið. Þá munu mæta á fund stjórn- arinnar á morgun þingmenn Norðurlandskjördæmis vestra, og fulltrúar frá þéttbýlisstöðum kjördæmisins og sýslumenn. Verða þá til umræðu ýmis mál kjördæmisins og atvinnumál. ----------------------- Enn selur Hagkaup gleraugu ■ „Við höfum ekki enn tekið afstöðu til bréfs heil- birgðisráðherra, en mun- um gera það á næstu dögum,“ sagði Gísli Blönd- al hjá Hagkaup í gær, aðspurður um hvort gler- augnasölu hefði verið hætt í versluninni. Sem kunnugt er ritaði heilbrigðisráðherra bréf til verslunarinnar á dögunum og skýrði frá því að ein- ungis mætti selja gleraugu undir umsjón sjóntækja- fræðings (optikers) og gegn tilvísun augnlæknis. Gísli var spurður hvort það væri ekki skilningur fyrirtækisins að gleraugna- sala þess væri ólögleg sam- kvæmt þessu bréfi. „Það er greinilega skilningur ráðuneytisins," sagði hann. Glcraugnasalan í Hag- kaup heldurþví áfram, þar til annað verður ákveðið.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.