NT - 28.08.1984, Page 20
Þriðjudagur 28. ágúst 1984 20
■ Höfuðpersónurnar í Aðkomumanninum, Mike Scully og Fiona Neave
Sjónvarp kl. 21.05 í kvöld:
A iði komui maði Ul ri n in
6. og síðasti þáttur
■ Síðasti þáttur hins spenn-
andi breska myndaflokks, Að-
komumaðurinn, verður á
dagskrá í sjónvarpinu í kvöld.
Líklega skýrist þá allt, og von-
andi endar þetta allt vel.
I síðasta þætti gerðist það
helst að Frank Scully og Fiona
Lytton-Neave fóru að draga
sig saman eftir að Fiona sagði
Wrathdale upp. Móðir hans
kom í heimsókn frá Feneyjum
með ítalskan gigolo með sér.
Hún uppgötvaði að Fiona er
laundóttir Wrathdales lávarð-
ar eldri og hálfsystir Wrath-
dales yngri, sem hún hafði
haldið við í tvö ár.
Sjónvarp kl. 20.35:
Sporðdrekinn
Bresk náttúrulífsmynd
■ Sporðdrekinn nefnist
mynd frá breska sjónvarpinu
sem sýnd verður í því íslenska
í kvöld.
Sporðdrekar eru meðal elstu
tegunda með fyrirfinnast á
jörðinni, líklega hafa þeir ver-
ið til í 400 milljón ár. Þeir hafa
einstaka hæfileika til að lifa af,
geta verið án matar mánuðum
saman, og þola hita sem myndi
drepa flestar aðrar lífverur.
Menn hafa ætíð heillast af
þeim, sporðdrekinn er ógnar-
legt tákn leyndar og dauða,
og kringum hann hafa myndast
goðsögur og sagnir. En hversu
hættulegir eru sporðdrekar?
Til eru um 600 tegundir
sporðdreka. Flestar þeirra eru
tiltölulega meinlausar og bit
þeirra veldur engu meiri
óþægindum en bit býflugu. En
örfáar tegundir eru mjög
hættulegar. Eitur þeirra er
kallað neurotoxín, eða tauga-
eitur. Það hefur áhrif á mið-
taugakerfið og veldur krampa,
lömun og jafnvel dauða. Allt
að 100 manns látast árlega af
völdum sporðdreka, aðallega
í Norður- Ameríku, Mexíkó
og við Karíbahaf. í myndinni
er fjallað um ýmsar alþýðlegar
lækningaaðferðir og rannsókn-
ir á móteitri.
í myndinni kemur einnig
fram Bernard Betts, vísinda-
maður sem á safn lifandi sporð-
dreka í rannsóknastofu sinni.
Það hafa verið búnar til nátt-
úrulegar aðstæður, og þar er
hægt að skoða hegðun sporð-
drekanna. Sýndur er flókinn
mökunardans þeirra, þær ár-
angursríku aðferðir sem sporð-
drekar nota við veiðar, og
einstæð mynd af fæðingu
sporðdreka.
Nýlega hefur ein tegund
sporðdrekans fundist í Eng-
landi. Hún er alveg meinlaus,
en vísindasmenn furða sig á
því að sporðdrekar geti lifað
svo norðarlega. Bætir það enn
við furður þær sem þessi dýra-
tegund býr yfir.
Útvarp kl. 21.45 í kvöld:
Hi An í Irnti^
,fnjon 1 IvUll
Ný útvarpssaga eftir
írann Eric Cross
Orustan
um Dien
Bien
Phu
■ í kvöld verður sýnd bresk
heimildamynd um umsátur
Víetnama um Dien Bien Phu-
dalinn og lokaósigur Frakka
þar, sem leiddi til beinna af-
skifta Bandaríkjamanna af
Víetnamstríðinu.
„Helvíti á mjög litlu svæði".
Þannig lýsti einn þeirra sem
lifði af umsátrið ástandinu á
svæðinu á meðan á umsátri
Vietminhhreyfingarinnarstóð,
snemma árs 1954. Á þessari
öld eru dæmi um mun lang-
vinnari umsátur: Bandarískar
liðssveitir héldu Bataan-skaga
á Filippseyjum gegn Japönum
í meira en tvo mánuði, og
Bretar og sveitir frá breska
samveldinu héldu Tobruk í
átta mánuði gegn Þjóðverjum
og ítölum. Það sem skilur á
milli er að orustan um Dien
Bien Phu telst með meiriháttar
og afgerandi orustum síðari
tíma,jafnmikilvæg ogStalingr-
ad eða Midway. Að auki leiddi
ósigur Frakka þar í maí 1954
til þess að Bandaríkjamenn
hófu bein afskipti af Víetnam
stríðinu.
Einstæðar kvikmyndir frá
báðum stríðsaðilum eru
sýndar, og einnig eru viðtöl við
ýmsa af helstu þátttakendun-
um.
Sagan er rakin allt frá því að
Frakkar tóku Indó-Kína og
gerðu að nýlendu á síðustu
öld, sagt er frá hernámi Japana
snemma á 5. áratugnum og
frelsun landsins undan oki
þeirra. Sagan er síðan rakin
allt til þess er utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, John
Foster Dulles, bauðst til að
varpa atómsprengjum á Dien
Bien Phu um vorið 1954, þegar
Frakkar voru að tapa orrust-
unni. Það voru bandarískir
þingleiðtogar sem komu í veg
fyrir það á síðustu stundu, og
meðal þeirra var tilvonandi
forseti, sem síðar missti emb-
ætti og æru vegna Víetnam-
stríðsins. Það var Lyndon
Johnson.
Þetta er saga hrokafullra
hershöfðingja frá Vestur-
löndum og úrræðagóðra
bænda frá Austurlöndum, saga
stolts og frábærs hetjuskapar,
saga pólitískra hrossakaupa og
stórkostlegra mistaka. Fyrst og
fremst er þetta heillandi frá-
sögn af tímabili úr samtíma-
sögu sem hefur haft áhrif á
okkur öll.
■ í kvöld hefst lestur á nýrri
útvarpssögu. Sagan nefnist
■ Knútur R. Magnússon
Hjón í koti og er eftir írskan
höfund, Eric Cross. Það er
Knútur R. Magnússon sem les
söguna, en Steinar Sigurjóns-
son þýddi.
Sagan var á sínum tíma
bönnuð í írlandi, þar sem hún
þótti fulldjörf, „en við getum
nú bara brosað að þeirri
dirfsku," sagði Knútur er haft
var samband við hann.
„Sagan byggist mikið á sam-
tölum, þessi hjón eru mjög
elskulegt fólk. Sagan byggir
aðallega á frásögnum karlsins,
þetta er söguglaður maður sem
segir frá og rifjar upp atburði
úr lífi sínu, og þá gjarnan yfir
eldinum í kotinu og tottandi
pípuna. Þýðandinn segir að
þetta sé að írskum sið, og mjög
írskt andrúmsloft svífi yfir
bókinni. Ég þekki þetta nú
ekki sjálfur," sagði Knútur að
lokum.
Þriðjudagur
28. ágúst
7.00 Veðurfregnir, Fréttir. Bæn. í
bítið. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt
mál. Endurt. þáttur Eiriks Rögn-
valdssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Pétur Jósefsson,
talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Eins og ég væri ekki til“ eftir
Kerstin Johansson Sigurður
Helgason les þýðingu sina (11).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Man ég það sem löngu leið“
Ragnheiður Viggósdóttir sér um
þáttinn.
11.15 Hljóðdósin Létt lög leikin af
hljómplötum. Umsjón: Ólafur Þórö-
arson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Michael Jackson, Tina Turn-
er og Poul McCartney syngja.
14.00 „Við bíðum" eftir J.M. Coet-
zee Sigurlina Davíðsóttir les þýð-
ingu sína (15).
14.30 Miðdegistónleikar „Silungur-
inn“ D.550 og „Hirðirinn á hamrin-
um" D.965, Sönglög eftir Franz
Schubert. Christa Ludwig syngur,
Gervase de Peyer leikur á klari-
nettu og Geoffrey Parsons á
píanó.
14.45 Upptaktur - Guðmundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 islensk tónlist: Strengjakvart-
ett Kaupmannahafnar leikur Tvo
þætti fyrir strengjakvartett eftir Jón
Þórarinsson / Elisabet Erlingsdóttir
syngur fimm einsöngslög eftir Jór-
unni Viðar; höfundurinn leikur á
pianó / Martial Nardeau, Kjartan
Óskarsson, Lilja Valdemarsdóttir,
Þórhallur Birgisson og Arnþór
Jónsson leika Sextett eftir Fjölni
Stefánsson / Karlakór Reykjavíkur
og Sinfóníuhljómsveit Islands
flytja „Svarað i Sumartungl" eftir
Pál P. Pálsson; höfundurinn stj.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi:
Gunnvör Braga.
20.00 Sagan: „Júlía og úlfarnir"
eftir Jean Graighead George
Geirlaug Þorvaldsdóttir les þýð-
inqu Ragnars Þorsteinssonar (7).
20.30 Horn unga fólksins i umsjá
Þórunnar Hjartardóttur.
20.40 Kvöldvaka a. Áin streymir
um eyðibyggðValgeir Sigurösson
flytur frumsamin frásöguþátt af
Austurlandi. b. Þáttur úr lífi Ein-
ars Sigurðssonar á Eskifirði.
Frásögn eftir Bergþóru Pálsdóttur
frá Veturhúsum. Guðríður Ragn-
arsdóttir les.
21.10 Drangeyjarferð Fyrsti þátturaf
þremur í umsjá Guðbrands Magn-
ússonar. (RÚVAK).
21.45 Útvarpssagan: Hjón í koti“
eftir Eric Cross í þýðingu Steinars
Sigurjónssonar. Knútur R. Magn-
ússon byrjar lesturinn.
22.15 Veðuriregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Kvöldtónleikar. Sergej Rak-
hmaninoff píanóleikari og
tónskáld. Guðmundur Jónsson
kynnir seinni hluta.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
28. ágúst
19.35 Bogi og Logi Pólskur teikni-
myndaflokkur.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sporðdrekinn Náttúrulífs-
mynd frá breska sjónvarpinu.
Sporðdrekar hafa lifað um langan
aldur á jörðinni enda eru þeir bæði
lífseigir og neyslugrannir. Af þeim
eru til einar 600 tegundir en aðeins
örfáar eru jafnháskalegar og orð
fer af. Þýöandi og þulur Jón O.
Edwald.
21.05 Aðkomumaðurinn Lokaþátt-
ur. Breskur framhaldsmyndaflokk-
ur. Aðalhlutverk: John Duttine,
Carol Royle og Joanna Dunham.
Frank Scully og Fiona Neave eru
farin að draga sig saman. Uppvist
er orðið að Fiona er laundóttir
Wrathdales lávaröar eldri. Þýðandi
Jón O. Edwald.
22.00 Orrustan um Dien Bien Fú
Bresk heimildamynd um umsátur
Víetnama um Dien Bien Fú dal og
lokaósigur Frakka þar vorið 1954
sem leiddi af sér bein afskipti
Bandarikjamanna af striöinu i
Vietnam. Umsjónarmaður Bern-
ard Archard. Þýðandi og þulur Ingi
Karl Jóhannesson.
22.50 Fréttir í dagskrárlok