NT - 06.09.1984, Blaðsíða 1
Lausafjárstaða bankanna:
Hefur stórversnað á
undanförnum vikum!
- þrátt fyrir háa innlánsvexti
■ Lausafjárstaða bankanna
hefur versnað stórlega nú
undanfarnar vikur - útlánin
aukist verulega en innlán stað-
ið nær því í stað þrátt fyrir þá
háu vexti sem bankarnir hafa
að undanförnu keppst við að
bjóða þeim viðskiptavinum
sínum sem einhverja peninga
eiga afgangs. Mun þessi þróun
hafa valdið mönnum veru-
legum vonbrigðum og jafn-
framt áhyggjum meðal manna
í Seðlabankanum.
Samkvæmt bráðabirgða-
tölum reyndist lausafjárstaða
innlánsstofnana orðin neikvæð
um 3,4 milljarða króna nú um
síðustu mánaðamót, þar af var
mínusinn við Seðlabankann
um 2 milljarðar króna en um
1,4 milljarðar gagnvart út-
löndum. Til samanburðar má
geta þess, að tveim mánuðum
áður - í júnílok - var lausafjár-
staðan neikvæð um rúma 2
milljarða króna, þar af um 790
milljónir gagnvart útlöndum.
í ágústlok 1983 var lausafjár-
staðan neikvæð um rúmar 640
milljónir eða innan við fimm-
tung af því sem mínusinn er
nú.
Samkvæmt heimildúm NT
mun bankamönnum þykja það
sláandi dæmi um ástandið í
þjóðfélaginu, að þeir peningar
sem inn í bankana eru lagðir
koma að mestu af höfuðborg-
arsvæðinu, en útlánin fari fyrst
og fremst út á land.
Bankastjórar munu nú einna
helst binda vonir við að fá inn
eitthvað af þeim hundruðum
milljóna af spariskírteinum
ríkissjóðs sem verða inn-
leysanleg nú eftir 10. septem-
ber, en ríkissjóður hefur hins
vegar sem kunnugt er boðið
eigendum þeirra um 8,5%
ávöxtun taki þeir peningana
ekki út.
Frávik frá fyrri Kröflugosum í gær:
■ Kröflugosið er nú í rénum. Þessi mynd var tekin í fyrrinótt og er horft frá Hreindýrahóli í norð-vestur yfir gosstöðvarnar. Eins og sést
hafði nýja hraunið þá þegar þakið mikið landsvæði. NT-mynd: Agusi Hiimarsson
Yfirvinnubann
í Kísiliðjunni
- starfsmenn
ætla að róa sér
■ Starfsmenn Kísiliðj-
unnar við Mývatn hafa
ákveðið að boða til ótíma-
bundins yfirvinnubanns
frá og með föstudeginum
14. september til að knýja
á um kröfur sínar.
Launakröfur þeirra eru
13% hækkun 1. september
og 10% bæði 1. desember
og 1. mars, auk lagfæringa
á launaflokkum.
Viðgerðastopp er fyrir-
hugað í verksmiðjunni frá
24. september og eykst
vinna venjulega fyrir það.
Með yfirvinnubanni á
þessum tíma ætla starfs-
menn því að þrýsta á
viðsemjendur sína. Fund-
ur deiluaðila verður hald-
inn á fimmtudag í næstu
viku.
Þá er einhugur meðal
starfsmanna um að kljúfa
sig út úr samflotinu með
hinum ríkisverksmiðjun-
um.
„Við ætlum að reyna að
spila sjálfir, því að fyrir-
tækið hefur gengið vel, og
það er kannski á öðrum
grunni en hinar tvær verk-
smiðjurnar," sagði Ágúst
Hilmarsson trúnaðar-
maður í Kísiliðjunni.
Austurland:
RARIK lokar á fisk-
vinnslufyrirtækin
- en kveikti um leið á götuljósunum á Djúpavogi
■ „Það gleðilegasta við komu þeirra rafveitumanna var
það að jafnframt sem þeir lokuðu fyrir rafmagnið í
bræðsluna þá komu þeir líka sem ljósberar því þeir kveiktu
hér á götuljósunum aftur, sem var orðið knýjandi. En það
hafa nú verið erfiðleikar hér hjá sveitarfélaginu líka“ sagði
Þórarinn Pálmason, skrifstofustjóri hjá Búlandstindi á
Djúpavogi. Það var einn þeirra staða á Austurlandi sem í
gær fengu eða í dag eiga von á mönnum frá Rafmagnsveit-
um ríkisins til að loka fyrir rafmagnið hjá fjölda
fiskvinnslufyrirtækja austan lands.
Snar pur jai rð-
skjál ftiog
landris hafið
hjá sjóðakerfinu", sagði Þórar-
inn á Djúpavogi, sem hafði frétt
að RARIK-menn hefðu ætlað
sér á alla línuna þar eystra í gær
og í dag. Víðar var auðheyrt á
mönnum að þessi skyndilega
lokun hafi komið þeim nokkuð
á óvart, en jafnframt að menn
treysta því að ráðamenn muni
bjarga málunum fljótlega.
skýringar ekki á
reiðum höndum
■ Snarpur jarðskjálfti, 3 Vi
stig á Richterkvarða, kom fram
á mælum við gosstöðvarnar við
Kröflu kl. 16.30 í gær. Að sögn
Páls Einarssonar jarðeðlisfræð-
ings er það frávik frá fyrri
hegðun jarðeldanna á svæðinu,
þar sem skjálftavirkni hefur
venjulega dottið niður um leið
og gosið brýst út, og sagði Páll
að hann væri ekki viss um
hvernig ætti að túlka hann.
Annað frávik frá fyrri hegðun
Kröfluelda er að land byrjaði
aftur að rísa í gærmorgun, og
hefur það ekki gerst áður á
meðan gos stendur yfir. Þá var
gossprungan lengri en áður og
landsig var einnig meira.
Mjög dró úr gosvirkninni í
gær og undir kvöld gaus úr
sprungunni á 8-9 stöðum. Nyrst
á sprungunni gaus kröftuglega
á tveimur stöðum og þaðan
rann töluvert hraun norður í
Gjástykki. Á öðrum stöðum á
sprungunni var gosið minna og
við Leirhnjúk var það við að
deyja út.
Páll Einarsson sagði, að á
þessu stigi væri ógerningur að
segja til um hversu mikið hraun
hefði komið upp í þessu gosi, en
það væri töluvert að flatarmáli.
Hann vildi heldur ekki spá um
hversu lengi gosið gæti staðið,
en sagði að hin fyrri hefðu varað
í 5-8 daga.
Hæstiréttur:
Staðfestir
gæsiu á
síbrota*
mönnum
■ Hæstiréttur hefur
staðfest gæsluvarðhalds-
úrskurði yfir tveim sí-
brotamönnum sem Saka-
dómur Reykjavíkur hafði
kveðið upp að kröfu rann-
sóknarlögreglunnar, en
síðan voru kærðir til
Hæstaréttar. Annar mað-
urinn tengist sparisjóðs-
bókamálinu hjá Borgar-
fógetaembættinu.
Maðurinn hefur viður-
kennt að hafa tekið við
315 þúsund krónum af alls
1.265.000 krónum sem
teknar voru út af ýmsum
sparisjóðsbókum skipta-
réttar Reykjavíkur. Þá
hefur maðurinn viður-
kennt fíkniefnasölu.
Hinn maðurinn hefur
þrettán sinnum verið
dæmdur fyrir ýmis afbrot
og var úrskurðaður í
gæsluvarðhald vegna sí-
brota ti!17. októbern.k.
Þorsteinn Kristjánsson hjá
hraðfyrstihúsi Eskifjarðar kvað
þá RARIK-menn búna að til-
kynna lokun á fiskimjölsverk-
smiðjuna núna í morgun og
jafnframt í saltfiskverkunina,
og einnig að trúlega verði lokað
fyriV rafmagnið í frystihúsið á
hádegi, að frystiklefnunum þó
undanskyldum.
í Pólarsíld á Fáskrúðsfirði
var í gær tilkynnt um lokun á
hádegi í dag og þá jafnframt að
lokað yrði fyrir strauminn á
heimili framkvæmdastjórans. í
gær var lokað fyrir rafmagnið
hjá síldarvinnslunni á Nes-
kaupstað og á Seyðisfirði frétt-
um við að RARIK-menn væru
búnir að tilkynna komu sína, en
ekki tímasetja hana nákvæm-
lega.
„Við áttum ekki von á að
gengið yrði í þetta með þessum
hætti svona á meðan málefni
sjávarútvegsins eru í skoðun
Ibúar Rauðarárstígs mótmæla:
Vilja vagna SVR burt
■ íbúar við Rauðarárstíg-
inn, fyrir neðan Hlemm, hafa
gefist upp á sífelldu ónæði og
óhreindindum sem stafa frá
aukavögnum SVR, er þar
'TU látnir standa.
Hafa þeir sent Umferðar-
nefnd Reykjavíkurborgar
mótmælabréf og krafist þess
að vagnarnir verði fjarlægð-
ir. Einnig er óánægja með
meint sérréttindi strætó-
stjóra, og því haldið fram að
þeir þurfi ekki að borga í
stöðumæla.
Nánar er fjallað um þetta á
Heimaslóð bls. 6-7.