NT - 06.09.1984, Blaðsíða 29
Fimmtudagur 6. september 1984 29
íhaldsmenn fengu
211 þingsæti af 282
- Turner vill halda áfram formennsku
Frá Sveini Agnarssyni, fréttarítara NT í Kanada:
■ „Stefna okkar er að skapa atvinnu og
koma Kanada á réttan kjöl á ný,“ sagði
Brian Mulroney, formaður Ihaldsflokks-
ins og verðandi forsætisráðherra kjósend-
um í kjördæmi sínu Baiecomeau í Que-
bec-fylki eftir stórsigur íhaldsflokksins í
þingkosningunum á þriðjudag varð Ijós.
Flokkurinn hlaut 211 af 282 þing-
sætum, mesti sigur sem um getur í sögu
kanadískra stjórnmála.
John Turner, formaður frjálslyndra,
sem hlutu aðeins 40 þingmenn kjörna
vann nokkuð óvænt sigur í kjördæmi sínu
í úthverfi Vancouver-borgar, en hann er
eini þingmaður frjálslyndra í fylkinu
Bresku-Kólumbíu. Hann tók ósigrinum
karlmannlega og hét því að hefja endur-
byggingu þegar í stað. „Kjósendur vildu
breytingu og fólkið hefur ætíð rétt fyrir
sér,“ sagði hann. „En það kemur dagur
eftir þennan dag. Ég hlakka til að taka
við starfi leiðtoga stjórnarandstöðunnar
ogmun sinna því embætti af heilum hug.“
Formannstign Turners kvað þó vera í
hættu, því margir telja rétt að skipta um
leiðtoga frjálslyndra. Turner hefur sagt
að hann hyggist leiða flokkinn svo lengi
sem flokkurinn vilji, en stundum hefur
örlað á því hjá Turner að hann hafi litla
löngun til að dansa eftir stjórnmálapíp-
unni. „Það koma stundir þegar ég efast
um eigin geðheilsu," lét Turner eitt sinn
hafa eftir sér, og hafa ber í huga að
Turner sagðist í mars síðastliðnum fyrir
leiðtogakjör frjálslyndra engan áhuga
hafa á að taka aftur þátt í stjórnmálum.
Sumir telja afdrifaríkustu mistök Turn-
es hafa verið þau að boða til kosninga of
snemma nú í haust. Kosningastjóri Turn-
es taldi óráðlegt að boða til kosninga svo
snemma, þar sem öll sár væru ekki gróin
eftir formannskjörið fyrr í sumar. Þá
taldi hann að venja þyrfti kjósendur við
Turner sem forsætisráðherra, jafnframt
því sem flokkurinn þyrfti tíma til að móta
stefnu sína í kosningunum og fá góða
frambjóðendur fyrir flokkinn í vestur-
hluta Kanada.
Búist er við að stjórnarskiptin hér
verði innan fárra vikna og þegar er farið
að benda á líkleg ráðherraefni. Joe
Clark, fyrrum forsætisráðherra og leið-
togi íhaldsmanna, þykir líklegastur í
embætti utanríkisráðherra og annar ráð-
herra úr stjórn Clarks, Michael Wilson,
er talinn líklegur sem næsti fjármálaráð-
herra.
■ Brían Mulroney og kona hans, Mila, fagna eftir yfirburðasigurinn í kanadísku
þingkosningunum. Síraamynd-POLFOTO
Búlgarir
sleppa
ftala
Róm-Reuter
■ ítala, sem dæmdur var í tíu
ára fangelsi í Búlgaríu í fyrra,
verður sleppt úr haldi einhvern
næstu daga, líklega á 40 ára
afmæli búlgörsku byltingarínn-
ar 9. september.
ítalinn, Paolo Farsetti, var
handtekinn ásamt vinkonu sinni
árið 1982 og dæmur fyrir að
hafa tekið ljósmyndir af mikil-
vægum hernaðarmannvirkjum.
Vinkonan var dæmd í þriggja
ára fangelsi, en sleppt fyrirnokkr-
um mánuðum.
Italir hafa haldið því fram að
dómurinn yfir Farsetti hafi verið
í hefndarskyni fyrir handtöku
Sergei Antonovs, starfsmanns
búlgarska flugfélagsins í Róm,
sem setið hefur í fangelsi á
Ítalíu grunaður um aðild að
banatilræði við Jóhann Pál páfa
árið 1981.
Umsjón: Ragnar Baldursson og Egill Helgason i
Sovétmenn:
Þurfa ekki
báxít til ál-
framleiðslu
■ Sovéskt vikutímarit hefur skýrt frá
því að tiiraunir með námuefnið synneryte,
sem fundist hefur í miklu magni í Síberíu,
hafl leitt í Ijós að úr því sé hægt að
framleiða ál á mun ódýrari hátt en úr
báxíti. ^
Synneryte hefur einnig þann kost að
við vinnslu á því er hverfandi úrgangur.
Auk álsins er hægt að framleiða úr því
fyrsta flokks sement og pottösku sem
notuð er í áburð. Það dregur nafn sitt af
ánni Synnyr sem virðist vera eini staður-
inn þar sem það er að finna.
Uppgötvun þessa efnis er mjög mikil-
væg fyrir Sovétmenn. Þeir hafa nú þegar
ákveðið að allar nýjar álverksmiðjur,
sem reistar verða í Síberíu, skuli nota
synneryte sem hráefni í stað báxíts. Þeir
segja að þetta muni tryggja Sovétríkjun-
um nægjanlegt hráefni til álframleiðslu
á komandi öldum.
Tilraunir með pottösku sem er fram-
leidd úr synneryte hafa einnig leitt í ljós
að það er einstaklega gott sem áburður
fyrir margar mjög mismunandi nytjajurt-
ir. Sovétmenn fullyrða að þessi pottaska
auki ekki aðeins uppskeruna heldur bæti
einnig næringargildi hennar.
|1k 7 Lifandi r Askrifta- r m
m blað simi 686300
ÞEIRBERANAFN
MEÐRENTU
. VAXTAKOSTIR
UTVEGSBANKANS
Frá ogmeð 1. september 1984 verða vextir
Útvegsbanka íslands sem hér segir:
INNLÁN
Vsxtli
aUs
Sparisjóðsbœkur
Sparireikningar:
a) með 3 mán. uppsögn
b) með 6 mán. uppsögn
c) með 12 mán. uppsögn
20,0% 21,0%
23,0% 24,3%
24,5% 26,0%
Vextii
aUs
Verðtryggðir reiknlngar
a) með 3 mán. bindingu
b) með 6 mán. bindingu
Vaxtii
aUs
crvoxtuB
a) Sparnaður 3-5 mán.
b) Sparnaður ó mán. eða lengur
20,0% 21,0%
23,0% 24,3%
Vextii
aUs
Spariskirteinl 6 mán. binding
Vextii
aUs
Tókkareikningar
Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a) innstœður í Bandaríkjadollurum
b) innstœður í sterlingspundum
c) innstœður í vestur þýskum mörkum
d) innstœður í dönskum krónum
Vextii
aUs
Almennir víxlar (íorvextir)
Viðskiptavixlar (lorvextir)
Yfirdráttarlán
Endurseljanleg lán:
a) íyrir íraml. á innlendan markað
b) lán í SDR
Almenn skuldabróf
Viðskiptaskuldabróf
Verðtryggð útlán:
a) allt aö 2>/2 ár
b) minnst 2V2 ár
22,0%
23,0%
26,0%
EINN BANKI • ÖLL ÞJÓNUSTA