NT - 06.09.1984, Blaðsíða 28
Fornir fjandmenn sættast
■ Chun Doo Hwn forseti
Suður-Kóreu er væntanlegur í
opinbera heimsókn til Japans í
dag. Hann mun m.a. hitta Jap-
anskeisara að máli og ræða
tvisvar sinnum við Nakasone,
forsætisráðherra Japans. Þótt
Chun Doo Hwan sé aðeins lcið-
togi suðurhluta Kóreu er heim-
sókn hans talin sögulegur at-
burður þar sem þetta er í fyrsta
skipið er kóreanskur þjóðhöfð-
ingi heimsækir Japan.
■ Dagblað alþýðunnar
skammar kínverska fótbolta-
aðdáendur fyrir slæma siði.
Samkvæmt blaðinu eru
fótboltaaðdáendurnir teknir
upp á þeim ósið að henda tóm-
um flöskum og öðru lauslegu í
erlend fótboltalið ef þau vinna
leiki við kínversk lið.
Vestur-þýska liðið SW Wald-
hof Mannheim vann nýlega kín-
verska A-landsliðið í úrslitaleik
Japanir hafa á liðnum öldum
margoft ráðist á Kóreu og
Kórea var nýienda þeirra fyrri
hluta þessarar aldar. Kóreu-
mönnum hefur reynst erfitt að
gleyma kúgun Japana á
nýlendutímabilinu enda beittu
Japanir mjög harkalegum að-
ferðum til að brjóta kóreanska
þjóðernisandstöðu niður. Þeir
fluttu t.d. fjölda manns nauð-
ungarflutningum til Japans og
neyddu Kóreumenn til að læra
í fótboltakeppni sem haldin var
í Peking. í fögnuði sínum hlupu
þýsku leikmennirnir að áhorf-
endastæðunum þar sem þeir
bjuggust við því að sigri þeirra
yrði fagnað. En í staðinn var
fleygt í þá tómum flöskum.
Þegar bestu leikmennirnir
voru lesnir upp í hátalarakerfi
vallarins var kínverskum leik-
mönnum fagnað með langvar-
andi fagnaðarlátum en erlendir
japönsku.
En tíminn læknar öll sár og
nú er stjórnvöldum í Suður-
Kóreu mikið í mun að efla
samskiptin við Japan til að
styrkja enn frekar efnahagsupp-
byggingu landsins. Þau hafa
m.a. farið þess á leit við Japani
að þeir aðstoði við stofnun verk-
fræði- og tæknistofnunar í Seoul
þar sem Kóreumenn tileinki sér
erlenda tækniþekkingu.
Sumir Japanir hafa áhyggjur
leikmenn fengu aðeins lágvært
klapp.
Það er því greinilegt að í
Kína er að myndast þjóðernis-
sinnuð múgæsing í tengslum við
íþróttir líkt og þekkist á Vestur-
löndum og þótt fjölmiðlar reyni
að sporna við eru þeir ekki
alveg lausir við þjóðernisstefn-
una þegar þeir lýsa með fjálgleik
afrekum kínverskra íþrótta-
manna.
af því að Kóreumenn muni nota
japanska tækniþekkingu til að
herða samkeppni sína við jap-
önsk fyrirtæki. En utanríkisráð-
herra Japana, Shintaro Abe
sagði nýlega að hann væri ekki
sammála slíkum svartsýnisspám
og lofaði stuðningi japönsku
stjórnarinnar við tilraunir
Kóreumanna við að tileinka sér
japanska tækni.
Japanir hafa lagt mikla
áherslu á að undirbúa heimsókn
Chun Doo Hwan með yfirlýs-
ingum um mikilvægi góðra
tengsla Japans og Suður-Kóreu.
Nakasone, forsætisráðherra
Japana, sagði kóreönskum blaða-
mönnum t.d. fyrir skömmu að
sér þætti leitt hvernig tengsl
japönsku og kóreönsku þjóðanna
hefði verið háttað á nýlendu-
tímanum frá 1910 til stríðsloka.
Hann sagði ennfremur að Jap-
anir ættu að íhuga vel þessi
tengsl og leiðrétta þau eftir því
sem nauðsynlegt væri. Lengra
getur Nakasone varla gengið í
opinberum yfirlýsingum án þess
að særa stolt stórs hluta eigin
þjóðar.
Kínverskir fótboltaaðdáendur
henda flöskum í erlend lið
Fimmtudagur 6. september 1984 28
Guatemala:
Skæruliðar
í sókn á ný
Mexíkó-Reuter
■ Vinstri sinnaðir
skæruliðar í Guatemala
eru nú aftur í sókn eftir
nokkurra mánaða hlé.
Stjórnvöld hafa viður-
kennt að 17 hermenn hafi
fallið í bardögum við
skæruliða rétt fýrir sein-
ustu helgi.
Stríðið í Guatemala
hefur staðið í meira en tvo
áratugi eða lengur en í
nokkru öðru landi í Mið-
Ameríku. Stjórnvöld hafa
margoft lýst því yfir að
þau hafi útrýmt seinustu
leyfum skæruliðanna en
þeir hafa alltaf risið upp
aftur af engu minni þrótti
en áður.
Skæruliðar tilheyra fjór-
um skæruliðasamtökum
sem samtals eru talin hafa
2000 til 4000 manns undir
vopnum. Fasta hermenn í
stjórnarhernum eru um
24.000 en auk þess hefur
stjórnin stofnsett sérstakt
þjóðvarðlið sem telur um
hálfa milljón manna.
Þjóðvarðlið þetta tekur
samt frekar lítinn þátt í
bardögum við skæruliða
sem einnig forðast orustur
við það þannig að baráttan
við skæruliðana mæðir
einna mest á stjórnarhern-
um.
Bardagarnir núna virð-
ast óvenju harðir þar sem
herinn hefur bæði notað
stórskotalið og flugvélar.
Þessar miklu hernaðarað-
gerðir stangast á við fyrri
fullyrðingar stjórnarinnar
um að skæruliðar hafi
tvístrast og eftir séu aðeins
litlir bófahópar.
r
mniri
Þcrarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Indverskur Reagan getur átt
eftir að reynast Indiru ofjarl
Rama Rao líklegastur til að sameina andstæðinga hennar
■ INDIRA Gandhi á nú á
hættu, að andstæðingar hennar
sameinist flestir eða allir í eina
kosningafylkingu og sigri
þannig flokk hennar í þing-
kosningunum, sem eiga að fara
fram í síðasta lagi á fyrri helm-
ingi janúar á næsta ári.
Flokkur sá, sem Indira
Gandhi hefur stuðst við hverju
sinni, hefur unnið í öllum þing-
kosningum í Indlandi, nema í
þingkosningunum 1977, þegar
nær allir andstæðingar hennar
sameinuðust í eina fylkingu
gegn henni. Ástæðan var sú,
að tveimur árum áður hafði
Indira gripið til eins konar
herlaga og stjórnað eins og
einvaldsherra. Þettasameinaði
andstæðinga hennar í kosning-
unum 1977.
Flokkur Indiru hefur aldrei
haft meirihluta kjósenda að
baki sér', og hefur því átt
kosningasigra sína því að
þakka, að andstæðingar henn:
ar hafa verið sundraðir. Í
Indlandi er kosið f einmenn-
ingskjördæmum og veitir það
stærsta flokknum sterka að-
stöðu, ef keppinautar hans eru
sundraðir.
Andstæðingum Indiru nýtt-
ist illa sigurinn 1977, því að
þeir höfðu ekki haft nema eitt
markmið, sem var að fella
Indiru. Um flest annað voru
þeir ósammála. Mikill ágrein-
ingur kom upp í ríkisstjórn
þeirra, og lauk honum með
því að stjórnin sprakk og var
efnt til kosninga 1980. Þá vann
flokkur Indiru mikinn sigur,
þótt ekki fengi hann meirihluta
atkvæða, og komst Indira þá
aftur til valda.
Engar líkur hafa verið taldar
á því, að andstæðingar Indiru
myndu sameinast gegn henni
að nýju fyrir kosningarnar nú
og Óokkur hennar var því
talinn vænlegur til sigurs, þótt
vaxandi óánægju hafi gætt með
stjórn hennar.
Þetta hefur nú skyndilega
breyst. Höfuðástæðan er sú,
■ Rama Rao.
að Indira og flokkur hennar
hafa gengið feti framar í valda-
brölti sínu en almenningur
virðist geta sætt sig við.
Jafnframt hefur komið til
sögu sá maður, sem farið er að
kalla hinn indverska Reagan,
og ekki þykir ólíklegt, að hann
geti orðið sameiningartákn
andstöðunnar gegn Indiru.
SÁ MAÐUR, sem hér um
ræðir, er Rama Rao, vinsælasti
kvikmyndaleikari, sem Ind-
verjar hafa átt. Hann hefur
leikið í einum tvö hundruð
kvikmyndum og oftast verið í
eins konar guðahlutverki eða
Buddha.
Rama Rao háfði haft lítil
eða engin afskipti af stjórnmál-
um þangað til fyrir 3-4 árum,
þegar hann hóf að skipuleggja
nýjan flokk í einu fjölmenn-
asta fylki Indlands, Andra
Pradesh. Þetta fylki hefur ver-
ið eitt sterkasta vígi flokks
Indiru og hafði hann farið með
fylkisstjórnina þar frá því, að
Indland varð sjálfstætt ríki.
Fylkisstjórnin hafði fengið
það orð á sig að vera orðin
mjög spillt og hóf Rao því
baráttu gegn henni. Hann
sagðist hins vegar ekki ætla að
slyipta sér af landsmál,um, held-
ur aðeins málum fylkisins.
Indira barðist með oddi og
egg gegn flokki Raos, en samt
fóru leikar svo í fylkiskosning-
um á síðasta ári, að flokkur
hans vann yfirburðasigur í
Andra Pradesh og Rao varð
forsætisráðherra fylkisins.
Vinsældir hans minnkuðu ekki
sem nú hefur sagt af sér em-
bætti. Indiru ber að skipa nýja
fylkisstjóra og er nú eftir að
sjá hver viðbrögð hans verða.
Það er ekki talið líklegt, að
hann tilnefni Rao sem forsætis-
ráðherra að nýju.
Sennilega verður það svar
Raos að skipuleggja kosninga-
bandalag gegn Indiru.
■ Rama Rao var ákaft hylltur
ekið í hjólastól um göturnar.
við það, að hann þótti fara vel
af stað sem stjórnandi.
Þótt Rao væri ekki farinn að
hafa bein afskipti af landsmál-
um, mun Indira hafa haft illan
bifur á honum. Þó kom það
öllum á óvart, þegar fylkis-
stjórinn í Andra Pradesh vék
Rao frá völdum og byggði það
á því, að meirihluti fylkisþings-
ins hefði snúist gegn honum á
þann hátt, að margir þingmenn
úr flokki hans hefðu gengið til
liðs við flokk Indiru og þannig
myndast nýr meirihluti. Sam-
kvæmt þvf hefði hann falið
manni, sem var náinn samherji
Raos, að mynda nýja fylkis-
stjórn.
Rao snérist hart gegn þessu
tiltæki, þótt hann hefði nýlega
gengið undir hjartaskurð og
styddist enn við hækjur. Hann
í Nýju Delhi, þegar honum var
mótmælti því, að meirihluti
fylkisþingsins hefði snúist gegn
sér og því til sönnunar fór
hann til Nýju Delhi á fund
ríkisforsetans og hafði með
sér 162 af 295 þingmönnum á
fylkisþinginu.
í Nýju Delhi var Rao tekið
með kostum og kynjum, en
hann krafðist þess af forsetan-
um að fá embætti sitt aftur.
Boðað var til mikils útifund-
ar í Nýju Delhi, og stóðu að
honum ekki færri en tuttugu
stjórnmálaflokkar, sem ýmsir
spá að eigi eftir að sameinast
undir merki Raos í kosninga-
bandalag. Flokki Indiru gæti
þá orðið hætt.
Indira hefur lýst yfir því, að
hún hafi hvergi nærri komið
frávikningu Raos og hún sé
alveg á ábyrgð fylkisstjórans,
ÞAÐ þykir mörgum gera
hlut Indiru eða flokks hennar
verri, að svipuðum aðferðum
hefur áður verið beitt gegn
forsætisráðherrum í tveimur
fylkjum, eða Sikkim og
Kashmír. Með tilstyrk liðhlaupa
hefur vinsælum forsætisráð-
herrum verið vikið þar frá
völdum af landsstjóra Indiru.
Flokkur Indiru fer nú með
völd í öllum fylkjum Indlands
nema tveimur.
Indira er nú búin að vera
forsætisráðherra Indlands í ein
16 ár eða fyrst frá 1966-1977 og
svo aftur síðan í ársbyrjun
1980. Hún er orðin 67 ára, en
virðist samt óbuguð, þótt
stjórnarforustan hljóti að hafa
reynt mikið á hana.
Oft hefur á valdaferli hennar
reynt á þrek hennar, en þó
sennilega sjaldan meira en nú,
þegar hún þarf að glíma við
uppreisnarhreyfingu sikha
annars vegar og hreyfingu
Raos hins vegar.