NT - 06.09.1984, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 6. september 1984 27
Átján
deyja
úr matar-
eitrun
VVakcfícld, Englandi-Reuter
■ Heilbrigðisyfirvöld'í Yorks-
hire-héraði á Englandi sögðu í
gær að átján manns hefðu látist
af matareitrun á geðsjúkrahúsi
í Wakefield í Yorkshire síðustu
dagana.
Matareitrunarinnar, sem hef-
ur einkenni salmonella-sýking-
ar, varð fyrst vart á Stanley
Royd-spítalanum fyrir um tíu
dögum, en síðan hafa, eins og
áður sagði, 18 sjúklingar látist,
um 300 sýnt merki sjúkleika
sem og fjölmargir úr starfslið-
inu.
Orsakir matareitrunarinnar
dularfullu eru enn ókunnar, en
rannsókn stendur yfir.
Segjast hafa
rænt Reuters-
fréttamanni
Eondon-Rcutcr
■ Hópur hryðjuverkamanna,
sem kallar sig Sósíalísk bylting-
arsamtök múhameðstrúar-
manna, kvaðst í fyrradag hafa
í haldi Jonathan Wright, frétta-
mann Reuters, sem hvarf í
Líbanon fyrir viku. Maður sem
sagðist hringja frá Búkarest
hringdi þessi skilaboð inn á
skrifstofu arabísks blaðs í
London.
í orðsendingu samtakanna
lýstu þau einnig á hönd sér
morðinu á breska menningar-
fulltrúanum, Kenneth Whitty,
sem skotinn var til bana í
Aþenu í mars síðastliðnum.
Ennfremur var sagt að samtökin
myndu halda áfram að elta uppi
alla sem standi' í sambandi við
„hina heimsvaldasinnuðu stjórn
í Bretlandi".
Enn er ekki vitað hvort sam-
tökin muni setja fram einhverj-
ar kröfur í skiptum fyrir Wright.
Sovéskir dagar 1984
Tónleikar-danssýning
■ Konstantín Chern-
enko, æðsti maður So-
vétríkjanna, kom aftur
fram opinberlega í gær
eftir sex dularfullar vikur
sem hafa gefið vangavelt-
um vestrænna frétta-
manna um að hann sé
farinn að heilsu byr undir
vængi. Chernenko kom
fram við athöfn sem hald-
in var til heiðurs sovésk-
um geimförum, þar á
meðal Svetlöndu Savit-
skayu, kvengeimfara.
Fréttir herma að enda
þótt Chernenko hafi
haldið ræðu, þar sem
hann hvatti Bandaríkja-
menn til að samþykkja
bann við kjarnorkuvopn-
um í geimnum, nokkru
veginn slysalaust frá sér,
þá hafi hann verið óstyrk-
ur á fótum og fölari og
teknari en þegar hann
kom síðast fram í júlí
síðastliðnum.
Söng- og dansflokkurinn „Könúl“ frá Bakú í Azerbajdsjan heldur tónleika og
danssýningu í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 8. sept. kl. 20.
Fjölbreytt efnisskrá: Hljóðfæraleikur, einsöngur, tvísöngur, þjóðdans-
ar.
Aðgöngumiðar seldir í miðasölu Þjóðleikhússins áfimmtudag og föstudag kl.
16-19 og laugardag kl. 16-20.
MIR.
Spánn:
Samræmdar
skotárásir
skæruliða
Madrid-Reuter
Þrír menn létust í skotárásum
á Spáni í gær, og sýnir það
berlega að lögreglunni hefur
ekki orðið jafn vel ágengt í
baráttunni gegn vinstri sinnuð-
um borgarskæruliðum og hún
hefur viljað halda fram.
í Madrid var fasteignasali
skotinn til bana og kaupsýslu-
maður í Sevilla, en síðar um
daginn var verkfræðingur alvar-
lega særður í La Coruna.
Skömmu síðar réðist lögregla
inn í íbúð í La Coruna, þar sem
einn maður, sem grunaður var
um aðild að tilræðunum, var
skotinn til bana og annar
særður.
Spænska lögreglan segir að
það séu meðlimir vinstri öfga-
hóps, And-fasísku október-
samtakanna (GRAPO), sem
beri ábyrgð á skotárásunum
én samtökin voru stofnuð
árið 1975, skömmu fyrir andlát
Francos einræðisherra. Hingað
til hafa samtökin einkum staðið
að sprengjutilræðum. Nú munu
þau hins vegar hafa hótað skot-
árásum á framámenn; herfor-
ingja, stjórnmálamenn og iðju-
hölda, og hefur lögreglan reynt
að vernda slíka eftir fremsta
megni. Fórnarlömbin í gær nutu
engrar verndar, enda ekki um
stóra fiska að ræða.
Námumanna-
verkfallið:
Sáttafundur
á sunnudag?
Bríghton-Reuter
■ Nell Myers, blaðafull-
trúi Landssambands
námumanna í Bretlandi,
sagði í gærkvöldi að námu-
menn mundu taka boði
breska ríkiskolafyrirtækis-
ins um að hefja viðræður í
deilu kolanámumanna á
nýjan leik á sunnudag.
Nú hafa aðilar deilunn-
ar ekki hist í sex vikur og
í gær var fyrirhugaður
sáttafundur í deilunni síð-
ar í þessari viku afboðað-
ur. Arthur Scargill, leið-
togi námumanna, vildi
ekkert segja um það fyrr í
gær hvort námumenn
myndu sækja sáttafund-
inn.
Margareth Thatcher
forsætisráðherra hafnaði í
gær kröfu Verkamanna-
flokksins um að breska
þingið yrði kallað úr
sumarfrfi til að ræða hið
langvinna verkfall námu-
manna. Hún sagði í svari
til Neil Kinnocks, for-
manns Verkamanna-
flokksins, að hægt yrði að
binda enda á deiluna fljót-
lega ef aðeins samtök
námumanna gætu fallist á
það langtímamarkmið
stjórnarinnar að loka
óarðbærum námum.
f síðustu viku hætti
Thatcher við fyrirhugaða
ferð til Suðaustur-Asíu
vegna válegra horfa í
breskum iðnaði. Kinnock
hefur einnig hætt við áætl-
aða ferð til Mið-Ameríku.
Lögregla hefur álitið að sam-
tökin, sem í gær minntust
þriggja ára dánarafmælishelsta
leiðtoga síns Enrique Calixto,
sem lést í skotbardaga við lög-
reglu 1981, væru að mestu fyrir
bí, en árásirnar í gær vekja
áhyggjur um að þau séu að
eflast aftur með nýjum baráttu-
aðferðum og lítilli róttækni
spænsku sósíalistastjórnarinn-
ar.
Leiðtogafundurinn í Tanzaníu:
Stefna Bandaríkjanna
í Suður-Afríku fordæmd
Arusha-Tansanía-Reuter
■ Leiðtogar fimm ríkja í
suðurhluta Afríku; Botswana,
Mósambík, Tanzaníu, Zambíu
og Zimbabwe, hafa nýlokið
tveggja daga fundi ásamt tveim-
ur leiðtogum evrópskra sósía-
lista, forsætisráðherrunum Olof
Palme frá Svíþjóð og Mario
Soares frá Portúgal. í lok fund-
arins, sem fram fór í Arusha
litlum bæ í hlíðum Kilimanjaro-
fjalls íTanzaníu, fordæmdu þeir
Bandaríkjastjórn harðlega fyrir
að standa í vegi fyrir sjálfstæði
Namibíu, sem lýtur forsjá
Suður-Afríkustjórnar.
í lokaniðurstöðu fundarins
eru Bandaríkin fordæmd fyrir
að standa fast á því að Namibía
geti ekki orðið sjálfstæð fyrr en
kúbanskir hermenn séu á brott
frá Angóla. Þar segir ennfremur
að vandamál suðurhluta Afríku
„eigi ekki að skoða í ljósi stór-
veldahagsmuna eða deilunnar
milli austurs og vesturs.“
Fundurinn lýsti einnig van-
þóknun sinni á stefnu Banda-
ríkjanna í málefnum Pretóríu,
„verndarsvæðis“ Suður-Afríku-
stjórnar, og aðstoð þeirra við
uppbyggingu þar, sem þeir
sögðu að styrkti aðeins
kynþáttaaðskilnaðarstefnu
Suður-Afríkustjórnar.
Júlíus Nyerere, forseti Tanz-
aníu, hvatti til þess í viðtali við
blaðamenn að loknum fundin-
um að komið yrði á fót loftbrú
til Lesotho, sem hann sagði að
Suður-Afríka héldi í óeiginlegu
hafnbanni. Lesotho á hvarvetna
landamæri að Suður-Afríku.
Lesothmenn halda því fram
að Suður-Afríkustjórn hafi
komið í veg fyrir að vopn og
nauðsynlegar vistir næðu að
berast tilLesotho,meðal annars
með því að neita þyrlum á leið
til Lesotho um leyfi til millilend-
ingar.
Alþjóðadómstóllinn í Haag
franir ráðast á
sænskandómara
Haag-Reuter
■ Fulitrúar Bandaríkjanna við Al-
þjóðadómstólinn í Haag fordæmdu í
gær árás tveggja íranskra dómara á
sænskan meðdómara fyrr í þessari viku.
írönsku dómararnir réðust á Nilks
Mangard, sænska dómarinn, þegar
hann gekk inn í byggingu Alþjóðadóm-
stólsins á mánudaginn. Hermt er að
honum hafi verið mjög brugðið, en ekki
orðið fyrir neinu umtalsverðu hnjaski,
þótt íranirnir hafi snúið upp á hendina
á honum og látið höggin dynja á
honum. Lögreglan fylgdi honum síðan
út úr byggingunni.
Mangard situr ásamt níu öðrum dóm-
urum í dómstól sem á að fjalla um
gagnkvæmar fjárkröfur írana og Banda-
ríkjamanna. Dómstólinn skipa þrír ír-
anir, þrír Bandaríkjamenn og þrír aðil-
ar frá hlutlausum löndum, og er búist
við að hann starfi allt fram til ársins
1990. Hann var settur á laggirnir eftir
að íranir slepptu úr haldi gíslunum 52 í
bandaríska sendiráðinu í Teheran.
íranir hafa margoft sakað Mangard
um að halda fram hlut Bandaríkja-
manna í þeim viðkvæmu skaðabótamál-
um sem koma fyrir dómstólinn en eftir
rannsókn, sem fór fram á störfum
Mangards árið 1982 var úrskurðað að
ekki væri ástæða til að leysa hann af.
Ekki er vitað hvort eitthvert frekara
málavafstur mun hljótast af árásinni í
Mangard, en yfirdómarinn, Christop-
her Pinto frá Sri Lanka, hefur ekki
viljað tjá sig um málið.