NT - 06.09.1984, Blaðsíða 22
Fimmtudagur 6. september 1984 22
L-esencflur hafa ordid
Breskar myndir góðar
■ Ég er algerlega ósammála
þessum „dýravini" sem skrif-
aði lesendabréf í NT á þriðju-
daginn. Þvert á móti finnst
mér breskar dýralífsmyndir
sem sjónvarpið hefur sýnt á
undanförnum árunt, yfirleitt
hafa verið mjög góðar. Sama
er að segja um breskar fræðslu-
myndir og breskt efni yfirleitt.
Að lokum vil ég taka fram
að Guðjón Einarsson er alveg
einstakur sjónvarpsmaður.
Áfram með breska efnið.
„Góður áskrifandi“
Dýralífsmyndir í sjónvarpinu:
Ofmikiðafþvígóða
I tvlcn\kj vjónvjipiit t
vlufnun. cinv ug Kikisuiv jipið
i hiild sinm fizðvlumyndir
ciu lika yi.tui fn «>liu nu
uml ofgcij Undjnfjnn kvold
halj vpinv jipuhorfendui
mill hoif j upp á vpoiAdieku i
Hrciljndi og dýulif i Kimci-
Að ckki ve uljð um Ijngj.
Iciðmlcgj mynd og vcrfiððj
um Spilfnc flugvClina hicvku
Allljf hjfj (scvvji fizðvlu
myndii vcnð vyndjr i hrvlj
limj. tkki vkjl cg cfjsl um jð
þciu cr ikjflcgj vjndað cfm.
er ckki hzgi jð dicifj þcvvu
Pjð scm mcvl hcfur fjrið I
uugjinai i méi ci að vumir
þcvvau þilU ciu gicinilcga
cmgongu siljðu fyrir brcvka
ihorfcndui Til dzmiv mi
ncfna að þzttinum um vpoið-
diekanj í Brcllandi Ijuk mcð
hughrcyviingarofðum lil
ihorfcnda um að þcir þyrflu
ckki jð ðtlavl vpoiðdick ana cf
þcii yiðu þcirra varii I goiðum
vinum. Ótnilcgt cr að vlik vam-
aðaioið cigi crindi lil okkjr
Frónbúa. coa hvað? Golt vzii
það c
vjðnvarpvinv að halda ifurr
að výna 2-3 dýralífvmyndir i
SvarumhæI
.ðnvarpvihorfcnda
maika mzlti kannanii. mun
vmvzlli cn i nigunnalondun-
Uicvkt clni likaði almcnni
mjog vd i IvUndi. vagði (iuð-
jiin og hicvkar fizðvlumyndu
■ Guðjðn Emarvvon hji
vjðnvaipmu. kvjðvl ckki gcta
vagi nikvzmlega til um viku-
legan fjolda mynda af þesvu
lagi i fumiíðinm. cn bcnli á að
fizðvluogdýulifvmyndirvziu
mjog vinvzlar mcðal ivlcnvku inzgju
ri af vliku cfni
Guðjón bztti því við að
rncðan lolk hcfði mivjjfnan
vmckk fym vjðnvaipvcfm. vzn
að vjalfvogðu ðklcifl að finna
cfm lil výmnga sc
I fullkon
■ Á þriðjudaginn birtum við bréf frá dýravini sem var orðinn
leiður á öllum bresku þáttunum í sjónvarpinu. „Góður áskrif-
andi“ sem skrifar í dag, er ekki á sama máli.
Ji Hefurdu skoðun á málunum? Viltu
vekja athygli á einhverju sem attaga fer í
samfélaginu? Þarftu að koma kvörtun á
framfæri? Eða viltu kannski hrósa ein-
hverjum?
Lesendasíðan er rétti staðurinn. Hún er
vettvangur fyrir allt það sem lesendum
liggur á hjarta, hvort sem þar er um að
ræða stór mál eða smá. Og við krefjum
ábyrga aðiia um svör við spurningum
lesenda, eftir því sem unnt er.
Skrifið til:
NT
Lesendasíðan
Síðumúla 15
108 Reykjavík
... eða hringið í síma 686300 milli kl. 13 og 14.
Athugið að við birtum bréf ykkar að
sjálfsögðu undir dulnefni efþess er óskað.
Engu að síður verður fulltnafn ogheimilis-
fang að fylgja bréfínu.
Kaninn líka í Kópavogi!
Skrif „Valla úr Vesturbænum"
vekja athygli í Kópavogi
Kæra NT.
■ Mig langaði til að skrifa
ykkur í framhaldi af skrifum
„Valla úr Vesturbænum"
þriðjudaginn 28. ágúst sl.
Ég er svo innilega sammála
Valla. Ég bý að vísu í Kópa-
voginum og ferðast þess vegna
meira með Kópavogsstrætó en
Reykjavíkur-. En þar er ná-
kvæmlega sama sagan og virð-
ist vera í Reykjavík. Strax og
maður stígur inn í vagninn
dynur yfir mann þetta óþolandi
garg á leiðinlegu og þvældu
erlendu tungumáli sem maður
neyðist til að sitja undir alla
leiðina.
Ég tala nú ekki um þegar
menn ferðast með strætó á
hverjum degi og eitthvað
merkilegt er í íslenska útvarp-
inu, t.d. fréttir, eða þá einhver
þáttur sem maður hefur verið
að hlusta á, eins og oft er. Þá
þykir manni þetta fyrir neðan
allar hellur.
Hvernig er það með SVK,
leyfist bílstjórum þeirra að láta
hvað sem þeim sýnist dynja
yfir farþegana?
Maður hefur svo oft rekið
sig á þetta. Fleiri en einn
bílstjóri virðist ekki hlusta á
neitt annað en Kanann að
staðaldri. Mér finnst að þeir
mættu taka örlítið meira tillit
til farþega hvað þetta snertir.
Fyrir þá eru strætisvagnarnir,
ekki satt?
Með bestu kveðjum.
Hrafn.
- Svar um hæl
Karl Árnason, forstöðu-
maður Strætisvagna Kópa-
vogs, sagði ekki beinlínis hægt
að banna vagnstjórum að
hlusta á Kanann, meðan
mögulegt væri að ná þeirri stöð
á viðtæki vagnanna. Hann
kvað það hins vegar ekki til-
takanlega vel séð að mikið
væri hlustað á Kanann og
vagnstjórarnir yrðu að sjálf-
sögðu að gæta þess að taka
fullt tillit til farþeganna og
valda þeim ekki ónæði.
Karl sagði einnig að eins og
nú stæði væri ekki unnt að ná
Rás 2 á öll viðtæki í vögnunum
og þyrfti náttúrlega að breyta
því. Þá kæmi vel til greina frá
sínu sjónarmiði að ganga
þannig frá tækjunum að Kan-
inn næðist ekki.
■ Þorvaldur Þorvaldsson hvetur til stuðnings við breska námamenn sem nú hafa verið í verkfalli í nærri hálft ár. Á þessari mynd
bera námamennirnir spjöld þar sem krafist er sólarhrings allsherjarverkfalls til stuðnings kröfum þeirra.
Styðjum námumenn í Bretlandi
■ Um þessar mundir er nærri
hálft ár síðan kolanámumenn
í Bretlandi hófu verkfall til að
mótmæia áformum um að loka
fjölmörgum koianámum og
senda þar með mörg þúsund
manns í sívaxandi raðir at-
vinnulausra.
Vaxandi kreppa í öllum iðn-
aði Bretlands nema vopnaiðn-
aði hefur valdið því að eftir-
spurn eftir kolum hefur stór-
lega dregist saman og reiknað
er með að á næsta ári verði hún
aðeins um 100 milljónirtonna,
sem er aðeins um helmingur af
því sem 10 ára gömul kolaáætl-
un gerir ráð fyrir. Við þessar
aðstæður grípur borgarastéttin
til þess hefðbundna ráðs að
loka og svipta þannig þúsundir
manna atvinnu sinni og lífsvið-
urværi því að þetta fólk hefur
hvergi annars staðar von um
vinnu. Verkafólkinu er ætlað
að borga fyrir þá kreppu sem
auðvaldsskipulagið hefur
skapað. En í þetta sinn eru
verkamennirnir staðráðnir í
að lirinda árásinni og knýja
borgarastéttina með verkfalli
til að leysa málið á eigin
kostnað.
Borgarastéttin hefur frá
upphafi reynt sitt ýtrasta til að
brjóta á bak aftur verkfallið og
notað til þess grófustu aðferð-
ir. Hvað eftir annað hefur
fjölmennt lögreglulið ráðist á
verkfallsverði til að reyna að
tvístra þeim og þessar árásir
hafa kostað tvo verkamenn
lífið. Þúsundir námumanna
hafa verið fangelsaðir og marg-
ir þeirra hafa orðið að þola
pyndingar. Þetta eru þær að-
ferðir sem borgarastéttin beitir
alls staðar þegar verkafólk rís
upp til að verja réttindi sín en
þrátt fyrir þetta hefur breska
borgarastéttin hleypt af stað
mikilli áróðursherferð um
meint „ofbeldi verkfalls-
manna“ til að reyna að ein-
angra þá. Foringjar Verka-
mannaflokksins hafa tekið
virkan þátt í þessari rógsher-
ferð auðvaldsins um leið og
þeir hafa reynt að grafa undan
verkfallinu með málamiðlun-
um.
Styðjum verkfallið
En þrátt fyrir mótbyr og
mikla erfiðleika halda verka-
menn í bresku kolanámunum
baráttunni áfram og eru
ákveðnari en nokkru sinni fyrr
í að halda henni áfram til
sigurs. Þrátt fyrir að foringjar
Verkamannaflokksins hafi
snúið baki við þessari réttlátu
baráttu kolanámumanna, nýt-
ur hún vaxandi stuðnings með-
al vinnandi fólks bæði í Bret-
landi og um allan heim. Sem
dæmi má nefna að 30.000
manns söfnuðust saman í
London 11. ágúst til stuðnings
verkfallinu og í mörgum
löndum er unnið stuðnings-
starf með fj ársöfnun og fleiru.
Barátta námumannanna í
Bretlandi skiptir miklu máli,
ekki bara fyrir þá sjálfa, heldur
verkalýð alls heimsins. Þessi
barátta er fordæmi fyrir verka-
lýðsstéttina og vísar þá einu
leið sem fær er til þess að knýja
fram hagsmuni stéttarinnar í
lengd og bráð.
Þess vegna er það mikilvægt
að við hér á íslandi lítum á
þessa baráttu sem okkar bar-
áttu og veitum henni virkan
stuðning bæði með siðferðis-
legum stuðningi og fjárfram-
lögum því að fjárframlög geta
ráðið miklu um úthald verk-
fallsmanna.
í þessu skyni hefur verið
myndaður stuðningshópur við
verkfall bresku námumann-
anna og hafin fjársöfnun þeim
til stuðnings. Ég vil nota þetta
tækifæri til að hvetja fólk til að
láta fé af hendi rakna og taka
þátt í starfinu.
Fyrst um sinn verður hægt
að hafa samband við eftirtalda
einstaklinga til að koma til
skila fjárframlögum eða taka
þátt í stuðningsstarfinu á ann-
an hátt:
Þorvaldur Þorvaldsson
Æsufelli 6, 4c, sími 79564
Sigríður Friðriksdóttir
Njálsgötu 7, sími 14402
Ásgeir H.Ingvarsson
Neðstaleiti 6, sími 31974
Að síðustu vil ég undirstrika
að hagsmunir verkalýðsins eru
þeir sömu um allan heim og
alþjóðleg samstaða skiptir
miklu fyrir heill stéttarinnar.
Við getum orðið það verkafólk
sem næst þarf á alþjóðlegum
stuðningi að halda.
Ritað 30. ágúst 1984
Þorvaldur Þorvaidsson.
Ekkert kanaútvarp í strætó, takk
- vill Valli úr vesturbænum
KzraNT
■ Einsogmargirillalaunaðir
vesturbæingar ferðast ég með
SVR á degi hverjum og get ég
ckki annað en þakkað fyrir þá
góðu þjónustu, sem þarna er
boðið upp á fyrir lítinn pening
á þessum dapurlegu tímum
hægri stjórnar Steingríms Her-
mannssonar.
Ástæða þess, að ég sendi þér
■ Valla úr vesturbænum
finnst allt í lagi að hlusta á
útvarpið í strætó, bara það sé
ekki kaninn. Skyldu aliir les-
endur vera sama sinnis?
línu að þessu sinni, er nú
reyndar ekki efnahagsástandið
hcldur smá fyrirspurn. Bíl-
stjórar SVR hlusta flestir á
útvarpið meðan á akstri stend-
ur og finnst mér það alls ekki
slæmt. Einn bílstjóri á leið 2,
sem ekur mér stundum, hefur
hins vegar þann leiðinlega ósið
að hlusta bara á kanann og
finnst mér mjög hvimleitt að
þurfa einnig sjálfur að hlusta á
þetta rugl af Vellinum. Ég vil
taka fram, að það er eftir kl.
10 á morgnana, þannig að Rás
2 er komin í gang, svo ekki er
það ástæðan.
Gætuð þið á NT ekki kannað
fyrir mig hvort bílstjórunum
sé yfirleitt leyft að hlusta á
útvarp meðan á akstri stendur.
svo ekki sé minnst á kanaút-
varpið?
Með kærri kveðju,
Valli úr vestuibænum
Svar um hæl
Lesendasíðan snéri sér til
Sveins Björnssonar, forstjóra
SVR og bað hann að svara
spumingum Valla úr vestur-
bænum.
Sveinn sagði að vagnstjórar
SVR hefðu fyrirmæli um það
að vera ekki með kanaútvarpið
á í akstri. Hins vegar væri
þarna um 130 manna hóp að
ræða og gæti verið crfitt að
fylgjast með að því væri
framfylgt. Nú væru auk þess
50-60 manns í sumarafleysing-
um hjá fyrirtækinu.
Sveinn kvaðst reyndar alls
ekki vilja fullyrða að hér hefði
verið um sumarafleysinga-
mann að ræða. Obbinn af af-
leysingafólkinu væri ungt fólk
og flest af því hefði reynst
ágætlega.
Sveinn sagði að sá skikkur
hefði komist á að vagnstjórum
væri heimilt að hlusta á útvarp
í vögnunum og mætti kannski
deila um hvort nokkurt vit
væri í því en erfitt mundi þó að
taka það af.
Sveinn sagði ennfremur að
ef Valli vildi koma formlegri
kvörtun á framfæri, gæti hann
snúið sér til eftirlitsmanna
SVR á Hlemmi. Hann þyrfti
þá að gefa upp leiðarnúmer og
tima vagnsins, þannig að ekki
færi milli mála um hvaða bíl-
stjóra væri að ræða.