NT - 06.09.1984, Blaðsíða 12
Fimmtudagur 6. september 1984 12
Kartöflur:
Frjálsar freista
en okaðar endast?
■ Eru „frjálsu kartöflurnar“
verri vara en „gömlu góðu
einokunarkartöflurnar“, sakir
rangrar meðhöndlunar? Fljótt
á litið virðist manni reyndar að
nýjar íslenskar kartöflur ættu
að halda nokkurn veginn sama
gæðaflokki, hvort sem þæreru
sendar beint til kaupmannsins
eða látnar fara í gegnum Græn-
metisverslun landbúnaðarins.
Engu að síður virðist nú sem ef
til vill gæti verið um nokkurn
mun að ræða.
Hér á neytendasíðunni var
á mánudaginn skýrt frá „frjáls-
um kartöflum“ sem voru orðn-
ar gjörónýtar eftir tæpa viku í
verslun Vörumarkaðarins í
Ármúla í Reykjavík. Eðvald
Malmquist, yfirmatsmaður
garðávaxta, sagði urn þessar
kartöflur að ástæðan fyrir því
hversu illa þær voru farnar,
væri sú að þær hefðu orðið
fyrir hnjaski í upptöku, verið
þurrkaðar of hratt eftir þvott
og sennilega verið fluttar á
markað í netpokum.
Þessi ummæli vöktu óhjá-
kvæmilega þá spurningu, hvort
mönnunt kynni að liggja svo
mikið á að koma „hinum
frjálsu kartöflum" á markað
að minna væri hirt um með-
höndlun þeirra en nauðsyn
krefur.
Mikligarður og Hagkaup
Til að fá a.m.k. vísbendingu
um þetta voru á mánudaginn
keyptar kartöflur hjá tveimur
stórum verslunum í Reykja-
vík, Miklagarði og Hagkaup.
í báðum verslununum voru
keyptar kartöflur af gerðinni
gullauga og sömuleiðis „rauðar
íslenskar" í báðum verslunum.
Auk þessara „frjálsu“ kart-
aflna var keyptur einn poki af
bintje frá Grænmetisverslun
landbúnaðarins til samanburð-
ar.
Eðvald Malmquist, yfir-
matsmaður garðávaxta, var
eins og áður fenginn til að líta
á kartöflurnar.
Eðvald kvað kartöflurnar
frá Grænmetisversluninni vera
ágætar útlits og réttilega með-
höndlaðar, sömu sögu væri að
segja um gullauga frá Hag-
kaup. Eðvald fann hins vegar
nokkra ágalla á öllum hinum
sýnishornunum. Minnstir
ágallar voru á gullauga hjá
Miklagarði. Þær kartöflur voru
nokkuð marðar en þokkalega
söluhæfar.
I rauðum íslenskum kar-
töflum frá Hagkaup voru
nokkrar kartöflur sýktar af
stöngulsýki, sem Eðvald sagði
að sérstaklega þyrfti að varast
eftir heit og rakasöm sumur.
Eðvald sagði einnig að ef slíkar
kartöflur lentu í
neytendapakkningum smituðu
þær út frá sér á svo skömmum
tíma að hæpið væri að telja
vöruna söluhæfa. Væru stöng-
ulsýktu kartöflurnar teknar
frá, áleit Eðvald þessar kar-
töflur þó söluhæfar.
Rauðar íslenskar kartöflur
frá Miklagarði, kvað Eðvald,
hafa orðið fyrir allt of miklum
áföllum. Þær gætu hafa litið
ágætlega út þegar verslunin
tók við þeim, en þær hefðu
greinilega orðið fyrir sköddun
í upptöku, bæði mari og hýðis-
flögnun. Afþessu kvað Eðvald
hafa leitt að kartöflurnar hefðu
ekki þolað þvott og þurrkun
sem skyldi. Áfleiðingin verður
síðan sú að kartöflurnar falla
saman og verða linar og gerla-
gróður kemst í sárin og auk
þess kvað Eðvald gæta vot-
rotnunar út frá sárum.
Þær kartöflur sem ekki
höfðu orðið fyrir skemmdum
á liýði, kvað Eðvald þó enn
hæfar til sölu, en hinar væru
stórskemmdar og þar af leið-
andi ekki söluvara.
Sumaruppskeran
viðkvæm
Eðvald sagði sumarupp-
skeruna sérstaklega vandmeð-
farna og viðkvæma. Hann
kvað það líka augljóst að það
væru kartöflur, ræktaðar í
sandkenndri jörð, sem væru
verst farnar enda væru þær
vandmeðfarnari en hinar sem
ræktaðar væru í mildari jarð-
vegi. Eðvald sagði kartöflurn-
ar alltaf óhjákvæmilega verða
fyrir einhverjum áföllum í upp-
töku en áríðandi væri að þær
yrðu fyrir sem allra minnstu
hnjaski.
Þvottinn kvað hann mikið
vandaverk, best væri að þvo
kartöflurnar strax við upptöku
en gæta yrði þess að þær þorn-
uðu ekki of hratt, best væri að
þurrka þær við hægan súg.
Eðvald kvað plast- og netum-
búðir varasamar, best værfað
flytja kartöflurnar í kössum á
markað.
Barnasjúkdómar
Neytendasíðan hafði sam-
band við Hagkaup og Mikla-
garð og spurðist fyrir um með-
höndlun þeirra kartaflna sem
þessar vgrslanir kaupa beint
frá framleiðendum.
Jón Sigurðsson hjá Mikla-
garði kvað kartöflur þar keypt-
ar af ýmsum aðilum og sagðist
því ekki geta sagi nákvæmlega
til um meðhöndlun þeirra þar
til þær kæmu í verslunina.
Hann kvaðst ekki hafa orðið
var við að þær skemmdust
neitt að ráði, þótt erfitt væri
að segja nokkuð um geymslu-
þol þeirra þar eð þær stæðu
yfirleitt mjög stutt við í versl-
uninni.
Gísli Blöndal hjá verslun-
inni Hagkaup, sagði líka að
kartöflurnar stæðu yfirleitt
stutt við í búðinni. Gísli kvaðst
ekki hafa orðið var við kvart-
anir, né heldur að kartöflurnar
skemmdust meðan þær stæðu
við í versluninni.
Gísli áleit þó ekki útlokað
að einhverju kynni að vera
ábótavant í meðhöndlun kart-
aflnanna og sagði að því mætti
að vissu leyti líkja við barna-
sjúkdóma. Viðskipti af þessu
tagi hefði ekki farið fram áður
og því ekki óeðlilegt að við
vissa byrjunarörðugleika væri
að glíma.
Gísli kvað ennfremur vel
koma til greina að setja upp
spjöld í versluninni með leið-
beiningum um meðferð kart-
aflnanna, til að reyna að
tryggja geymsluþol þeirra sem
best, eftir að þær væru komnar
í hendur neytandans.
Liggur of mikið á?
Sú athugun sem hér hefur
verið gerð grein fyrir er náttúr-
lega ekki nein tæmandi
rannsókn. Svo virðist þó sem
það séu einkurn kartöflur sem
ræktaðar eru í sandríkri jörð,
sem verði fyrir full miklu
hnjaski við upptökuna og hafi
þar af leiðandi lítið geymslu-
þol. Það hefur líka komið fram
■ Rauðar íslenskar hjá Hagkaup í Kjörgarði voru yfirleitt
þokkalcgar en allmikið var þó innan um af skemmdum kartöflum.
Kartaflan sem skorin er í tvennt á myndinni var haldin stöngulsýki
og lytkin af henni var ekki góð.
■ Rauðar íslenskar kartöflur í Miklagarði höfðu orðið fyrir allt
of miklum áföllum.
■ Ef þessi mynd prentast ekki þeim mun verr, má glöggt sjá á
henni hversu áríðandi það er að mjúklega sé farið með
kartöflurnar í upptöku. Hinir sýktu hlutar kartöflunnar hafa
orðið fyrir hnjaski í upptöku. í miðjunni hafa engin áhöld komist
að kartöflunni og þar er hún heil og óskemmd.
■ Það er af sem áður var, meðan finnsku kartöflurnar voru og
hétu. Bintje kartöflurnar frá Grænmetisversluninni líta prýðilega
út. Þær eru auk þess mun stærri en aðrar kartöflurá markaðnum.
að þessar kartöflur eru enn
vandmeðfarnari en þær sem
vaxa í mýkri jarðvegi.
Þótt þannig sé að nokkru
leyti fundin eðlileg skýring á
því hve sumar hinna „frjálsu
kartaflna“ skemmast fljótt,
virðist ýmislegt benda til að
þær hljóti ekki jafn góða með-
ferð og kartöflur þær sem fara
gegnum Grænmetisverslunina.
Þannig virðist í mörgum tilvik-
um hafa verið lögð rík áhersla
á það af hálfu verslana að láta
sem allra stystan tíma líða frá
því kartöflurnar eru teknar
upp þar til þær eru til sölu í
búðinni. Á bak við þetta liggur
auðvitað sú hugsun að bjóða
neytendum upp á sem allra
ferskasta vöru en einmitt þetta
virðist að minnsta kosti í
sumum tilfellum geta haft þver-
öfug áhrif, einfaldlega vegna
þess að menn gefi sér ekki tóm
til þeirrar varkárni í meðferð
kartaflnanna sem nauðsynleg
er.
■ Kartöflur af tegundinni gullauga í Miklagarði virðast í vel
þokkalegu ástandi þótt ein og ein hafi orðið fyrir hnjaski.
■ Gullauga kartöflur hjá Hagkaup í Skeifunni voru vel útlítandi
og virtust hafa verið réttilega meðhöndlaðar.