NT - 06.09.1984, Blaðsíða 2
Fimmtudagur 6. september 1984
Utanríkisráðherrafundurinn:
Loðnan rædd
utan dagskrár
Samningaviðræður á næstunni
■ Viðræður milli íslands,
Danmerkur og Noregs um
skiptingu loðnuaflans á um-
deilda svæðinu við Jan Mayen
munu hefjast í náinni framtíð,
að því er Geir Hallgrímsson
utanríkisráðherra sagði á blaða-
mannafundi í gær. Geir sagði
ennfremur, að hann væri bjart-
sýnn á, að samkomulag næðist í
þessari deilu þjóðanna.
Jan Mayen deilan var aðeins
rædd óformlega á hefðbundnum
haustfundi utanríkisráðherra
Norðurlandanna, sem lauk í
Reykjavík í gær. Aðalverkefni
fundarins var undirbúningur
fyrir allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna í haust. í yfirlýsingu
Ekiðábarn
■ Ekið var á barn á gatna-
mótum Bústaðavegar og
Tunguvegar um miðjan dag í
gær. Ekki er full Ijóst með
hvaða hætti slysið bar að, en
barnið var samstundis flutt á
slysadeild. Ekki var vitað um
líðan barnsins, síðast þegar
fréttist.
fundarins eru heimsmálin reifuð
vítt og breitt og settar fram
skoðanir Norðurlandanna.
Ráðherrarnir lýsa t.d. yfir
stuðningi sínum við tilraunir til
að hindra frekari útbreiðslu
kjarnorkuvopna. Aftur á móti
náðist ekki samstaða um að lýsa
Norðurlöndin kjarnorkuvopna-
laust svæði, heldur var ákveðið
að halda áfram viðræðum um
það. Á blaðamannafundinum
sagði Geir Hallgrímsson, að
Norðurlöndin væru kjarnorku-
vopnalaus og því ætti að beina
kröftunum að því að Iosa önnur
svæði við bombuna.
í>á lýsa norrænu ráðherrarnir
áhyggjum sínum yfir framhaldi
stríðs {rana og íraka og að
venju fordæma þeir kynþátta-
stefnu Suður-Afríku, svo eitt-
hvað sé nefnt.
1 upphafi fundarins sló Geir
Hallgrímsson á létta strengi og
vék talinu að eldgosinu, sem við
íslendingar hefðum „skipulagt“
fyrir gesti okkar. Engar hrær-
ingar virðast hins vegar hafa
veriö á tundi ráöherranna, og
engin óvænt gos.
■ Utanríkisráðherrar Norðurlandanna sitja fyrír svörum. Frá
vinstrí: Uffe Ellemann-Jensen frá Danmörku, Paavo Váyrynen frá
Finnlandi, Geir Hallgrímsson, Svenn Stray frá Noregi og Lennart
Bodström frá Svíþjóð. NT-mjnd Árni Bjama
Tveir ökumenn á slysadeild
Tilgangslaus fíkni
efnainnflutningur
■ Harður árekstur varð á
gatnamótum Laugavegs og
Kringlumýrarbrautar í gær-
morgun. Bifreið sem ekið var
norður Kringlumýrarbraut og
hugðist sveigja austur á Lauga-
veg, skall af miklu afli á bifreið
sem í þeim svifum kom aðvíf-
andi suður Kringlumýrarbraut.
Ökumaður annarrar bifreiðar-
innar var fluttur á slysadeild og
farþegi í aftursæti skrámaðist á
höfði. Bílarnir eru báðir taldir
ónýtir.
Þá varð annar árekstur á gatna
mótum Bústaðavegar og Háa-
leitisbrautar er tveir bílar skullu
saman. Var ökumaður annars
bílsins fluttur á slysadeild og
bílarnir báðir illa útleiknir.
■ í gær rann út gæslu-
varðhaldsúrskurður yfir
stúlkunni sem reyndi að
smygla 100 grömmum af
amfetamíni inn til landsins
í síðustu viku. Við yfir-
heyrslur kvaðst stúlkan
ekki hafa vitað sjálf hvað
hún ætlaði að gera við
efnið, en upplýsingar
hennar gáfu ekki til kynna
að fleiri tengdust málinu.
Efnið sem stúlkan flutti
með sér, var sent í styrk-
leikagreiningu til rann-
sóknarstofnunar Háskól-
ans en niðurstöður liggja
ekki fyrir enn. Fíknaefna-
lögreglan hefur sent málið
til Sakadóms þar sem það
verður væntanlega tekið
fyrir, innan tíðar.
OS
ormur
Hvað er það
sem er kolsvart,
með klemmu á öðrum
endanum,
ljósaperu á hlnum,
eins og stífur gormur
þar á milli,
gefur frá sér ljós
jpegar því er stungið í
samband við rafmagn
og kostar
minna en 500 kall
út úr búð?
%
£ Það er ljósormurinn
frá Philips.
<8>
Helmilistæki hf
HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
■ Þvert ofan í spár hefur Karli Þorsteins gengið erfiðlega það
sem af er skákþinginu. Eftir 3 umferðir er hann í 12. sæti með
aðeins 1/2 vinning.
■ Halldór G. Einarsson var einn í efsta sæti eftir 2. umferð. í gærkvöldi tefldi hann við Sævar
Bjarnason og fór skákin í bið. Sævar hefur betri stöðu.
Landsliðsflokkur á Skákþingi íslands:
Jóhann kominn í efsta sætið
_ Enn á ný setti geypilegt
tímahrak' svip á keppnina í
landsliðsflokki á Skákþingi
íslands. í 3. umferð sem fram
fór í gærkvöldi réðust úrslit í
nokkrum skákum á síðustu
mínútum 5 klst. setunnar.
Jóhann Hjartarson vann Karl
Þorsteins eftir miklar svipt-
ingar. Eftir rólega byrjun.þar
sem Karl virtist hafa yfirhönd-
ina.tókst Jóhanni smátt og
smátt að virkja liðsafla sinn
og ná góðum sóknarfærum.
En Karl varðist vel, hirti
skiptamun sem Jóhann var
svo djarfur að fórna, virtist
hafa öll ráð í hendi sér. Til
viðbótar lék svo Jóhann heil-
um manni „beint í dauðann"
en það undarlega gerðist, báð-
ir virtust slegnir skákblindu
og í stað þess að hirða mann-
inn lék Karl afleitum leik,
biskup slapp undan á afar
ógnandi reit og með tilstilli
hans náði Jóhann að knýja
fram sigur. Úrslit í 3. umferð
urðu annars þannig:
Guðmundur - Helgi Vi'.Vi
Dan - Lárus 1:0
Karl - Jóhann 0:1
Margeir - Haukur biðskák
Halldór - Sævar biðskák
Ágúst - Hilmar 0:1
Skák Jóns L. Árnasonar og
Björgvins Jónssonar var
frestað.
Biðskák Karls og Björgvins
var svq til lykta leidd sl.
þriðjudag og lauk með sigri
Björgvins. Þá vann Halldór
G. Einarsson frestaða skák
úr 1. umferð við Hauk
Angantýsson.
Dan Hansson vann eftir
mikinn darraðadans gegn Lár-
usi Jóhannessyni sem enn
einu sinni byggði upp góða
stöðu en kastaði henni á glæ í
miklu tímahraki. Dan fórnaði
skiptamun, sem var í hæsta
máta vafasamt og Lárus nýtti
ekki færi sín og varð að lokum
að lúta í lægra haldi. Þá tefldu
Ágúst og Hilmar undarlega
skák þar sem frumkvæðið
gekk á milli keppenda, en
Ágúst gerði þó síðustu vit-
leysuna og tapaði.
Eina jafnteflisskák kvölds-
ins var á milli Guðmundar
Sigurjónssonar og undirrit-
aðs. Mikil uppskipti og mislit-
ar biskupar gerðu áframhald-
andi taflmennsku tilgangs-
lausa. Skákin stóð þó aðeins í
18 leiki.
Tvær skákir fóru í bið, skák
Margeirs og Hauks en þar er
staðan þessi:
Margeir - Haukur
Margeir lék biðleik. Stað-
an er mjög tvísýn.
Þá fór skák Halldórs G.
Einarsson sem komst einn í efsta
sætið eftir sigurinn yfir Hauki
í bið og stendur Halldór
höllum fæti:
Halldór - Sævar
Hvítur lék biðleik.
Að þrem skákum óloknum
er staðan í mótinu þesssi:
1. Jóhann Hjartarson 2 Vi v.
2. Halldór G. Einarsson 2 v.
+ 1 biðskák. 3.-5. Helgi
Olafsson, Guðmundur Sigur-
jónsson og Dan Hansson 2 v.
hver. 6. Jón L. Árnason 1 1/2
v. + 1 frestuð skák. 7. Hilmar
Karlsson 1 Vi v. 8.-11. Mar-
geir Pétursson, Haukur Ang-
antýsson, Sævar Bjarnason og
Björgvin Jónsson 1 v. + l
biðskák (Björgvin á frestaða
skák). 12. Karl Þorsteins V2 v.
13.-14. Lárus Jóhannesson og
Agúst Karlsson 0 v.
Idag verður 4. umferð tefld
og þá eigast við Helgi og Dan,
Jón og Guðmundur, Lárus og
Halldór. Sævar og Ágúst"
Hilmar og Margeir, Haukur
og Karl og Björgvin og
Jóhann.
Helgi Ólafsson skrifar um skák