NT - 06.09.1984, Blaðsíða 32
LÚRIR ÞÚ Á FRb II?
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn.
Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir
tíl fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrír ábendingu sem leiðir
til bitastæðustu fróttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gaett
Ekki fyrirboði
Suðurlandsskjálfta
- enda ekki á sjálfu svæðinu, segir Páll Halldórsson
■ Þetta verður að umræðu-
efni því þetta er í byggð, sagði
Páll Halldórsson jarðeðlis-
fræðingur hjá Veðurstofunni í
samtali við NT seint í gær. Hjá
honum kom fram að skjálftinn
í gærmorgun var ekki á sjálfu
Suðurlandssvæðinu heldur er
þessi vestasti hluti Suðurlands
flokkaður með svokölluðu
Hengilsvæði, sem verið hefur
órólegt. Samkvæmt þeirri
reynslu að Suðurlandsskjálftar
eigi upptök sín á austurhluta
Suðurlands er ólíklegt að þessi
sé fyrirboði að slíkum. Skjálft-
inn var 3,9 stig á richter og
varaði í nokkrar sekúndur.
„En það getur verið órói í
mælinum miklu lengur og eins
er með hluti sem eru komnir á
hreyfingu að þeir geta haldið
áfram að hreyfast miklu lengur
en skjálftinn á jarðskorpunni
varir,“ sagði Páll. „En það er
ekki með góðu móti hægt að
finna neitt sem bendir til sam-
bands þessa við jarðeldana fyr-
ir norðan, ekki á grundvelli
þeirra upplýsinga sem við
höfum. Og ég held að hér sé
bara um tilviljun að ræða“.
Um upptökin sagði Páll þau
hafa verið nálægt bæjarþyrp-
ingunni að Hjalla en þar standa
Bjarnarstaðir sem er einn
þeirra bæja sem NT heimsótti
í gær.
Ekki er kunnugt um neitt
tjón af völdum skjálftans eða
að hlutir hafi hrunið úr hillum
neinsstaðar, en skjálftans varð
vart í öllu Olfusi og í Flóa. Á
þessu svæði eru Selfoss og
Hveragerði og varð vart við
hann á báðum stöðum. Þá
fannst .lítillega fyrir honum í
Reykjavík. Hafði blaðið heim-
ildir af honum úti á Granda, á
Rauðarárstíg og í Öskjuhlíð-
inni. Síðast varð sjálfti af þess-
ari stærðargráðu áHengilsvæð-
inu 1977,4,l á richter og 1968,
4,7 á richter.
Það er
skrekkur
í mönnum
- Þráinn Svansson í
Essoafgreidslunni
í Hveragerði
■ Þetta var ansi myndar-
legur kippur. Ég rauk út að
dyrum og heyrði þá hávaða
innan úr geymslunni þar sem
járnrekkar hristust á gólf-
inu,“ sagði Þráinn Svansson.
í Essó-benslnstöðinni í
Hveragerði. Þráinn sagði
skjálftann hafa varað nokk-
uð lengi þvi' fyrst fór hann út
úr skrifstofunni og út í dyr,
þaðan svo inn í vörugeymsl-
una og allan tímann lék
húsið á reiðiskjálfi.
„Ég veit ekíci hvort þessi
endi hússins stendur á klöpp
en það var ansi mikili titring-
■ „Þessir járnrekkar
g reiðiskjálfi - ég hcút nú
það færi allt af stað í biih
um, eu það gerði það ekld,"
sagði Þráinn Svansson í
Essobensinstöðinni í Hvera-
gerði.
ur hérna. Eg hélt nú að það
færi allt á stað í hillunum en
það gerði það ekki,“ sagði
Þráinn og bætti svo við „Það
er skrekkur í mönnum út af
þessu hérna.“
Skjálftinn mældist
í fimm mínútur
- ájarðskjálftamælinumáSelfossi
■ „Já hérna er skjálftinn,“
segir Þorfinnur Tómasson á
Selfossi sem sér um skjáiftamæli
þar. Hann var búinn að taka
blaðið úr mælinum þegar blaða-
menn bar að garði á hádegi i
gær til þess að geta sent það
suður á Raunvísindastofnun.
„Hann hefur mælst í alveg fímm
mínútur og svo verið einhverjir
kippir fram eftir degi alveg til
klukkan tólf á hádegi. En nú
virðist allt vera búið.“
Þorfinnur finnur fyrir okkur
eldri blöð sem sýna að smá
kippir hafa komið fram undan-
farna daga 26. og 27. ágúst
hefur einhver óróleiki verið á
jarðskorpunni og eins þann
fyrsta þessa mánaðar. En allir
þessir skjálftar hafa verið minni
en svo að nokkur fyndi til
þeirra, nema mælirinn.
Þorfinnur kvaðst ekki hafa
fundið mikið fyrir skjálftanum
en kona hans sem var þá komin
á vinnustað í saumastofunni í
bænum fann hvernig vélin fyrir
framan hana tók kipp á borðinu.
■ Hrinan hófst klukkan níu í
morgun og skilur eftir sig þessa
ágætu mcrkingu á skjálftaritinu
hjá Þorfinni á Selfossi. Enn-
fremur sést á þessarri mynd að
klukkustundirnar á undan eru
afskaplega rólegar en eftir kipp-
inn greindi ntælirinn smá
skjálfta alveg fram um hádegi í
gær.
■ En þetta er alveg búið mina, sagði Þorfinnur og benti okkur á
fyrstu línurnar á nýju blaði sem voru sléttar og hreinar eins og vera
ber.
Ekkert
þólós
- segir njain
bóndi á Bjarn
Fylgdi hcmum ekki mikill hávaði, sagði Hjalti Þórðarson á Bjarnarstöðum sem þama stendur við mælinn. Aðspurður kvaðst
hann ekki óttast að þetta væri fyrirboði Suöurlandsskjálfta, - enda ekkert nýnæmi.
NT-niyndir Sverrir
ynæmi
ingli
órðarson
arstöðum
■ „Það skalf allt og titraði,
en nei, þetta er ekkert ný-
næmi. Við fáum alltaf svona
tvo til þrjá svo sterka á ári að
Ijósin dingli“, sagði Hjalti
Þórðarson bóndi á Bjarnar-
stöðum en hjá honum er einn
af jarðskjálftamælum Raun-
vísindastofnunar. „Það fylgdi
þessum skjálfta ekki jafn mikill
hávaði og oft áður - það fer nú
svolítið eftir því hvaðan hann
Á mælinum hjá Hjalta mátti
merkja skjálftann en nálinni
hafði þó orðið heldur mikið
um ósköpin og hálfpartinn
hoppað upp af blaðinu svo
merkin voru ekki eins greinileg
og hjá Þorfinni á Selfossi. En
það sáust kippir alveg fram um
hádegi og einn virtist hafa
komið eftir tólf.