NT - 05.11.1984, Síða 1
Mikil ölvun í Reykjavík:
Brennivínsdauðir
unglingar hirtir
upp um allan bæ
■ Brennivínsþorstinn fór
heldur betur með Reykvíkinga
um helgina, þá fyrstu eftir að
útsölur áfengisverslunarinnar
voru opnaðir að nýju eftir mán-
aðar lokun.
Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík var mjög mikið um
ölvun í borginni, miklu meira
en um venjulega helgi, og voru
það einkum unglingarnir, sem
létu að sér kveða á þessum
vettvangi. Voru margir þeirra
hirtir upp brennivínsdauðir á
torgum úti og á strætisvagna-
.stoppistöðvum. Margir voru
keyrðir heim, aðrir voru sóttir
af foreldrum sínum niður á
stöð, og enn aðrir fengu að gista
fangageymslurnar við Hverfis-
götu, þar sem margt var um
manninn.
Að venju var eitthvað um
rúðubrot í miðbænum vegna
ölvunarinnar, en engin stórslys
urðu á mönnum.
ÓL í bridge:
Tapog
sigur
■ Islcndingar og Argentínu-
menn gerðu jafntefli, 15-15, í
21. umferð Olympíumótsins í
bridge, sem haldið er í Seattle í
Bandaríkjunum. íslenska sveit-
in var skipuð þeim Guðlaugi,
Erni, Jóni og Símoni. í 22.
umferð töpuðu okkar menn hins
vegar fyrir Ástralíu, 21-9. Þá
spiluðu Guðlaugur, Örn,
Guðmundur og Björn.
íslendingar eru nú í 11. sæti í
B-riðli með 359 stig, þegar 5
umferðir eru eftir. Efstir eru
Indónesar með 423 stig, í 2. sæti
ítalir með 414, USA í 3. með
412, Noregur í 4. með 398 og
Svíar í 5. með 397 stig. í A-riðli
eru Pólverjar efstir með 438-
■ Krani Eimskips í Sundahöfn er mikið mannvirki og sést víða að á höfuðborgarsvæðinu.
NT-mynd: Róbert
Gefur ríkið Eimskip
13 milljónir króna?
- búist við að aðflutningsgjóld af „stóra krananum" verði felld niður
■ Með afgreiðslu Ijárlaga-
frumvarps 1985 á Alþingi nú á
nxstunni á Eimskipafélagið
von á að fá endurgreidd úr
ríkissjóði, að hluta eða öllu
leyti, þau 12 til 13 millj. króna
innflutningsgjöld sem Eim-
skipafélagið átti að greiða af
stóra uppskipunarkrananum
sem félagið reisti í Sundahöfn
í Reykjavík fyrr á þessu ári.
Alls kostaði krani þessi um 75
miUj. króna að sögn Þórðar
Sverrissonar hjá Eimskip.
Hann sagði félagið búið að
greiða innflutningsgjöldin í
beinhörðum peningum og
kvað sér ekki kunnugt um
endurgreiðslu þeirra.
Aðspurður hvort rétt væri að
Eimskipafélagið fengi inn-
flutningsgjöldin niðurfelld
sagði Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu það út af fyrir sig rétt
vera. Fyrr á þessu ári hafi verið
búið að taka ákvörðun um að
lagaheimildar til þess yrði leit-
að og í fjárlagafrumvarpi 1985
sé heimildarákvæði þar að lút-
andi. Höskuldur sagði efni til
hafnarframkvæmda tollfrjálst
og þessi krani sé raunverulega
hluti af hafnarmannvirkjunum
í Sundahöfn þótt Eimskipa-
félagið eigi hann. Hann tók
fram að ákvæðið í frumvarpinu
sé ekki bundið við krana Eim-
skips sérstaklega - heldur
almennt. Mönnum hafi hins
vegar þótt óráðlegt að láta
þessa framkvæmd bíða í 6 til 8
mánuði einungis út af þessum
tollum.
Umrætt ákvæði í fjárlaga-
frumvarpi er svohljóðandi:
„Ríkisstjórninni er heimilt að
endurgreiða hluta aðflutnings-
gjalda af lyftubúnaði sem sér-
staklega er hannaður til upp-
setningar á hafnarsvæðum og
til nota við lestun og losun
skipa, enda flokkist hann undir
tollskrárnúmer 84.22.21 eða
84.22.29. Fjármálaráðuneytið
setur nánari reglur um fram-
kvæmd þessa ákvæðis."
Búist við samkomulagi milli ASÍ og VSÍ í dag
■
■
ASI ætlar að vera á undan
BSRB í næstu samningalotu
■ Þeir bjartsýnni í hópi samn- sem ákveðinn hefur veriðnú kl. vandamál sem höfðu verið til ágreiningsefnið á sunnudags- samningar og fleiri séu inni í
ingamanna ASI og VSI töldu 10 fyrir hádegi í dag. Samninga- trafala. Enn er þó nokkuð eftir, nóttina var vegna kröfu VSÍ um nýja samningnum.
samninga komna það vel á veg fundurinn sem hófst síðdegis á m.a. ekki að fullu búið að koma að sérsamningar m.a. við ísal,
að jafnvel megi búast við að laugardag stóð til kl. 7 á sunnu- sér niður á tölur þó þær séu Grundartanga,- Dagsbrúnar við Að sögn VSÍ-manna taka við-
>eim Ijúki á samningafundinum dagsmorgun og leystust þar ýmis sagðar liggja í loftinu. Helsta Reykiavíkurborg, virkjana- semjendur þeirra alfarið mið af
■ Björn Björnsson póstmeistari: (innfellda myndin) „Aldrei
verið svona mikill póstur áður" Á aðalmyndinni sést yfir
flokkunarsalinn í nýju póstmiðstöðinni í Ármúla, en láta mun
nærri að 80% af öllum pósti sem berst sé lesinn í sundur þar.
Á tröllunum til hægri sést hluti þess bréfapósts sem kom inn
á fyrsta degi eftir verkfall. NT-myndir: s*cnir
Póstfjallið að hjaðna:
Tvöfaídur út-
burour í dag
Aldrei verið svona mikill póstur hjá okkur
- segir Björn Bjömsson póstmeistari
■ „Það hefur aldrei verið eins
mikill póstur hjá okkur eins og
núna eftir verkfall, jólaösin
mcðtalin, en bréfapósturinn
verður kominn í eðlilegt horf í
vikunni og bögglapósturinn um
aðra helgi,“ sagði Björn Björns-
son póstmeistari í samtali við
NT í gær en mikið hefur verið
að gera hjá Póstinum frá því
verkfalli lauk og unnið stans-
laust á tvískiptum vöktum.
Tvöfaldur póstútburður var
á laugardaginn var og sami hátt-
ur verður hafður á í dag, þannig
að margir geta átt vona á
„gluggapósti" og öðrum glaðn-
ingi inn um bréfalúguna í dag.
Búið er að koma út öllum
ábyrgðarbréfum og hraðpósti
og hefur skapast eðlilegt ástand
þar. Skipapósturinn liggur að
mestu óhreyfður ennþá og er
hann dreifður um geymsluhús-
næði vítt og breitt um bæinn.
Ekki er hægt að segja með vissu
hversu mikill póstur
safnaðist fyrir í verkfallinu, fyrr
en farið hefur verið í gegnum
allar skrár en lauslega hefur
verið áætlað að póstmagnið sé á
bilinu 140 til 150 tonn, auk þess
sem mikill póstur streymdi inn
fyrstu dagana eftir verkfall.
- og vill
þvífá
tímasetn-
jngar samn-
ingsins
færðar fram
BSRB-samningi hvað varðar
kauphækkanir. VSÍ vill þar á
móti miða við sömu tímasetn-
ingar á samningstíma (áramót
1985) og uppsagnarákvæði 1.
sept. 1985, sem mörgum hjá
ASÍ er meinlega við, í ljósi
nýfenginnar reynslu. „Það má
segja að búið sé að gera okkur
áskrifendur að þessari vitleysu,“
sagði einn í hópi samninga-
manna ASÍ, sem var lítt hrifinn
af að eiga á ný von á að flækja
ASÍ-samningum inn í BSRB-
samninga. Hins vegar hafi verið
rætt um að taka samninga
öðrum tökum næst, þ.e. reyna
að byrja fyrr og jafnvel að vera
búinn að ganga frá nýjum samn-
ingum áður en BSRB færi í
næstu stórorrustu. Hvort aftur
megi búast við svipaðri samn-
ingalotu 1. september að ári
sögðu menn fara nokkuð eftir
því hvernig ríkisstjórnin hagi sér
í sambandi við gengisfellingar
og annað. Markið sé ekki sett
hærra en það að halda í kaup-
mátt síðari helming ársins 1983.
En verði hann aftur kominn
niður fyrir það haustið 1985
megi búast við að allt fari í bál
og brand aftur.