NT - 05.11.1984, Blaðsíða 3

NT - 05.11.1984, Blaðsíða 3
Bakkus algengur ökumaður: Selfosslögreglan stóð í stórræðum ■ Selfosslögreglan haföi af- skipti af sjö mönnum, sem grunaðir voru um ölvun við akstur, frá því á föstudag og þar til síðdegis í gær. Er það eins og um verstu sumarhelgi, að sögn lögreglunnar. Fyrstu dansleikir eftir verk- fall opinberra starfsmanna voru haldnir fyrir austan fjall um þessa helgi og telja menn það skýringuna á þessum mikla ölvunarakstri. Þeir, sem voru gómaðir með Bakkus í fanginu,voru frá ýmsum bæj- um hér í grenndinni. Einhverj- ir munu hafa ekið heldur ógætilega, en ekki hlutust al- varlegir skaðar af. Lögreglumenn annars stað- Mánudagur 5. nóvember 1984 3 ar á landinu áttu náðugri daga og það kom sumum á óvart hversu rólegt allt var, eftir þessa löngu áfengis- og dans- leikjaþurrð. Trausti veðurfræðingur skrifar leikrit: Nafnlaus farsi - um mann sem kemur heim eftir langa fjarveru ■ „Þráðurinn er flókinn og ekki hægt að lýsa honum í smáatriðum, en verkið fjallar um mann sem kemur aftur til heimahaganna eftir langa fjarveru," sagði Trausti Jóns- son veðurfræðingur í samtali við NT, þegar hann var spurður út í leikrit eftir hann; sem leikdeild Ung- mennafélagsins Skallagríms í Borgarhesi ætlar að sýna í vetur. Trausti sagði, að þetta væri farsi og hefði hann verið skrifaður í fyrra. Nafn á stykkið hefur ekki enn verið ákveðið. Þetta er í annað sinn, sem Trausti skrifar leikrit. Áður hefur leikdeild Skallagríms flutt eftir hann verkið Svein- björgu Hallsdóttur. Trausti var spurður hvort hann ætl- aði sér að skrifa annað leikrit til. „Ég hef ekki hugmynd um það,“ sagði Trausti Jónsson veðurfræðingur og tveggja leikrita skáld. Enn sem kom- ið er. Sandgerðisvegur: Lét lífið í bílveltu ■ Tæplega 27 ára gamall maður úr Garðinum lét lífið aðfaranótt laugar- dagsins, er bifreið hans fór út af Sandgerðisvegi og valt nokkrar veltur. Atburður þessi átti sér stað um kl. 04. og var ökumaðurinn látinn er komið var með hann á sjúkrahúsið í Keflavík. Hinn látni hét Ingimundur Guðmundsson og var hann einn í bílnum, þegar slysið varð. Þjófur um nótt: Gómaður í Orkustofnun ■ Lögreglan handtók innbrotsþjóf í húsi Orkustofnunar við Grensásveg aðfaranótt laugardags. Hafði maður- inn brotið rúðu til að komast inn í húsið og voru það einu skemmdirnar, sem hann hafði unnið, er hann var gómaður. Tveir aðrir menn voru einnig handteknir við staðinn, en þeir tengdust málinu ekki og var þeim sleppt eftir yfirheyrslur. Innbrots- manninum hefur einnig verið sleppt. Sjómenn þinga ■ Sjómannasambandið heldur sitt 14. þing í Reykjavík dagana 8. til 10. nóvember næstkomandi og verða helstu umræðuefni þingsins kjaramál sjómanna og öryggismál. Rétt til þingsetu eiga 60 fulltrúar frá 40 aðildarfélögum. Þingið verður í Borg- artúni 18. Upphaflega var fyrirhugað að halda þingið 18. til 20. október en verkföll komu í veg fyrir það, þar eð ekki var hægt að auglýsa þingið í því fjölmiðlaleysi sem þá var. Þá má geta þess að út er komið málgagn Sjó- mannasambandsins, Sæfari og er þar margt fróðlegra pistla og greina úr sjávarútveginum. Alþjóðaskákmót flugfélaga: Flugleiðamenn unnu í3. sinn ■ Skáksveit Flugleiða sigraði á al- þjóðlegu skákmóti starfsmanna flugfélaga, sem fram fór í Mexíkóborg fyrir skömmu. Hlutu Flugleiðamenn 22 vinninga. Alls tóku sveitir 24 félaga þátt í mótinu og voru tefldar 8 umferðir. í 2. - 3. sæti voru A-sveitir Varig og KLM með 21.5 vinning. Mót þetta var hið sjöunda í röðinni, sem alþjóða flugfélög hafa haldið og í 3. sinn, sem sveit frá Flugleiðum ber sigur úr býtum. Áður sigruðu þeir 1978 og 1982. Ekkert annað flugfélag hefur sigrað oftar en einu sinni. Skáksveit Flugleiða skipuðu þeir Karl Þorsteins, Hörður Jónsson, Andri Hrólfsson og Hálfdán Hermannsson. Nr. 1 í JAPAN Já, í Japan, landi þar sem almenn neytendaþel<l<ing er á háu stigi og gæðakröfur eru miklar, er Panasonic mest keypta VHS myndsegulbandstækið. Panasonic er að sjálfsögðu einnig mest lœypta VHS myndsegulbandstæl<i í heimi. NV-370 NÝ HÁÞRÓUÐ TÆKI FYRIR KRÖFUHARÐAN NÚTÍMANN. • 8 liöa fjarstýring • Quarts stíröir beindrifnir mótorar • Quarts klukka • 14 daga upptökuminni • 12 stööva minni • OTR: (One touch timer recording) • Rafeindateljari • Myndleitari • Hraðspólun meö mynd áfram • Hraðspólun með mynd afturábak • Kyrrmynd • Mynd skerpu stilling • Mynd minni • Framhlaðið 43 cm breitt (Passar í hljómtækjaskápa) • Upptökuminni til daglegrar upptöku t.d. er hægt að taka 10—12 fréttatíma fram í tímanm • Sjálfspólun til baka • Fín Editering. Klippir saman truflanalaust nýtt og gamalt efni. • Tækið byggt á álgrind. • Fjölvísir Multi-Function Display Panasonic gæði. varanleg gæði. AKRANES; Stúdíóval. AKUREYRl: Radíóvinnustofan Kaupangi. Tónabúöin. BORGARNES: Kaupfélagið. ESKlF|ÖRDUR: Pöntunarfélagið. HAFNARF|ÖRDUR: Kaupfélagið Strandgötu. HELLA: Mosfell. HORNAFIÖRDUR: Radíóþjónustan. NESKAUPSTADUR: Kaupfélagið. SAUDÁRKRÓKUR: Rafsjá. SELFOSS: Vöruhús KÁ. SEYDISF|ÖRDUR: Kaupfélagið. TÁLKNAF|ÖRDUR: Bjarnarbúð. VESTMANNAEY|AR: Músík og Myndir. # WJAPIS hf BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.