NT - 05.11.1984, Blaðsíða 19
Frá Reyni Þór Finnbogasyni fréttaritara NT
í Hollandi:
■ Excelsior-Feyenoord 2-4
Það þurfti ekki langan tíma
til að sjá að Feyennord var
sterkara liðið í þessum leik.
Strax á 8 mín. tókst Steen að
gera fyrsta mark Feyenoord,
1-0. Nokkrum mínútum seinna
tókst þó Excelsior að jafna og
var Storrn þar að verki. Feye-
noord lét það ekki stöðva sig,
þeir fengu víti á 22. mín. og
skoraði Houtman úr því, 1-2.
Á síðustu mínútu fyrri hálf-
Ieiks tókst Houtman að bæta
marki við og staðan í hléi 1-3.
1 upphafi seinni hálfleiks
virtist lítill kraftur í báðum
liðum og leikurinn leiðinlegur
á að horfa. Þegar um það bil
20 mín. voru eftir af leiknum
gaf Pétur Pétursson glæsilega
fyrir markið og Houtmann
bætti þriðja marki sínu við.
Staðan orðin 1-4. Um 10
mínútum síðar tókst Excelsior
þó aðeins að rétta hlut sinn
þegar Leenheer gaf fyrir mark
Feyenoord og Heimir Karlsson
skallaði inn, 2-4. Pétur spilaði
ágætan leik hann virðist vera
að falla betur að leik Feennord
og úthaldið batnar óðum.
Heimir virðist falla strax inní
leik Excelsion.
Ajax-Utrecht 1-0
Ajax byrjaði leikinn mjög
kröftuglega með því að skora
eftir aðeins 37 sekúndur. Van
Ba.sten gaf fyrir og Gaselich
tókst að skora. Ajax sýndi
mun sterkari leik en undanfar-
ið.
Heimirvarmeð
■ Frétt NT um að
Heiniir Karlssun hafi
ekki leikið með Excelsior
í bikarleik í síðustu viku
var á misskilningi byggð.
Heimir lék með í leiknum
og stóð sig ágætlega.
Mánudagur 5.nóv
íriu; m i in
Samúel Örn Erlingsson (ábm.) Þórmundur Bergsson, Gylfi Þorkelsson
■ Hann var alveg hörku-
spennandi og harður leikur ÍR
og Vals í úrvaisdeildinni í körfu-
knattleik í Seljaskóla í gær-
kvöldi. Honum lauk þó með
sigri ÍR-inga 88-81 en sigurinn
gat lent hvorum megin sem var.
Það voru ÍR-ingar sem byrj-
uðu leikinn með látum og fóru
Hreinn-lega á kostum þó sér-
lega Hreinn Þorkelsson sem
skoraði grimmt jafnt 3 stig sem
tvö stig. Þá var Ragnar Torfa-
son einnig í stuði fyrstu mínút-
urnar þrátt fyrir að missa nokk-
ur auðveld „lay-up“. Eftir um 6
mínútna leik var staðan orðin
20-6 fyrir ÍR en þá sögðu Vals-
arar hingað og ekki lengra.
Þeir pressuðu nú stíft og ÍR-
ingar gerðu mörg klaufaleg
mistök. Smá saman minnkaði
munurinn og mátti sjá tölur
eins og 25-15 síðan 25-22 og
loks jöfnuðu Valsarar 29-29.
Þeir náðu síðan forystu og í
hléi var staðan 41-46 fyrir Val.
Síðari hálfleikur byrjaði með
jafnvægi á báða bóga. Vals-
menn héldu st'nu forsk’oti allt
fram í miðjan hálfleikinn er
Hreinn jafnaði 64-64. Þá var
komið að þætti Gylfa Þorkels-
sonar sem skoraði grimmt fyrir
ÍR í síðari hálfleik og hann
kom þeim yfir 67-66 og aftur
71-70.
Þegar um þrjár mínútur voru
eftir var staðan 81-76 ÍR í vil og
Minningarmótið á Akureyri:
Kári var
sterkastur
Fró Gylfa Kristjanssyni fréttaritara NT
á Akureyri:
■ Kári Elísson kraftlyftinga-
maður hlaut Grétarsstyttuna á
minningarmóti um Grétar
Kjartansson sem háð var á
Akureyri um- helgina. Mót
þetta er haldið árlega til
minningar um Grétar sem var
frumkvöðull lyftingamála á
Akureyri.
Keppt var í kraftlyftingum
og Kári sem keppti í 75 kg
flokki lyfti samtals 635 kg og
hlaut fyrir það 7137 stig. Vík-
ingur Traustason sem keppti í
110 kg flokki og lyfti samtals
800 kg varð annar.
Af öðrum sigurvegurum má
nefna að Flosi Jónsson sigraði
í 90 kg flokki lyfti samtals 665
kg og setti hann alls 4 Akureyr-
armet á mótinu. Freyr Aðal-
steinsson sigraði í 82,5 kg
flokki lyfti 660. í 100 kg flokki
sigraði Jóhann Gíslason ÍBV
sem lyfti 580 kg, og í 125 kg
flokki lyfti Helgi Eðvaldsson
samtals 582,5 kg.
Jafnhliða mótinu fór fram
bæjarkeppni milli Akureyrar
og Vestmannaeyja og kepptu
þrír frá hvorum aðila. Þar
urðu úrslit þau að Akureyri
sigraði hlaut 1825 stig gegn
1646 stigum Eyjamanna.
Hreinn Þorkelsson átti góðan leik með ÍR. Svipurinn er dæmi um baráttu ÍR-inga.
NT-mynd Sverrir
Hörkuspennandi!
þeim tókst að halda þessum
mun, mest fyrir tilstuðlan
Kristjáns Steffensen sem var
geysigrimmur í fráköstunum.
Og svo skoraði Gylfi heil 17
stig í síðari hálfleik. Lokatölurn-
ar urðu svo 88-81 eins og áður
segir.
ÍR-liðið var vel að þessum
sigri komið. Þeir börðust ákaf-
lega vel og þrátt fyrir að Gylfi,
Hreinn og Ragnar hafi skorað
langmest þá ber einnig að hrósa
öðrum leikmönnum. Sérlega
Kristni sem var mjög sterkur í
fráköstum og þá sérstaklega í
síðari hálfleik. Um Valsliðið er
það að segja að þeir eru allt of
köflóttir. Stundum áttu þeir
frábæra spretti og gerðu þá það
sem þeim sýndist. Tómas
Holton, og Kristján voru góðir
í fyrri hálfleik og Tómas byrjaði
seinni hálfleikinn eins og hann
ætlaði að vinna leikinn einn og
óstuddur.
Gylfi og Hreinn voru stiga-
hæstir ÍR-inga gerðu 23 stig og
Ragnar gerði 20. Hjá Val gerði
Tómas 21 og Kristján 15 en
Torfi aðeins 2 stig og þau í
síðari hálfleik.
Gautaborg
vann í 3.
sinn í röð
Gautaborg vann
sænska meistaratitilinn í
knattspyrnu í þriðja sinn í
röð á laugardaginn þegar
þeir unnu í Nörrköping 2-0
(0-0) í seinni leik liðanna i
úrslitakeppninni. Gauta-
borg vann samtals 7-1.
Tommy Holmgren og Pet-
er Larsson, víti, skoruðu
mörkin á laugardaginn.
Enn sigrar Kiel
Frá Guðmundi Karlssyni fréttamanni
NT í V-Þýskalandi:
Lið Jóhanns Inga
Gunnarssonr þjálfara,
Kiel, er enn með fullt hús í
þýsku Búndeslígunni í
handbolta, en að vísu eftir
aðeins þrjá leiki. Kiel vann
í síðustu viku Tura
Bergkamen, Atla Hilmars-
son og félaga 22-19.
Spánn:
Jafnt á
Nou Camp
■ Tvö efstu liðin í
spænsku knattspyrnunni
Barcelona og Valencia
gerðu jafntefli á heimavelli
Barcelona Nou Camp, 1-1.
Barcelona heldur enn for-
ystu í deildinni en Valencia
og Real Madrid eru ekki
langt undan.
Belgíska knattspyrnan:
Stórsigur
Anderlecht
Arnórlék í 15 mínútur og skoraði
Frá Kcyni Þór Finnbogasyni fréttamanni
NT í Hollandi:
■ Anderlecht heldur sigur-
göngu sinni í belgísku 1. deild-
inni í knattspyrnu áfram. Um
helgina vann liðið St. Nildaas
5-1 á heimavelli, og skoraði
Arnór Guðjohnsen eitt mark-
anna. Sævar Jónsson og félag-
ar í CS Brugge töpuðu um
helgina.
Strax á 5. mínútu leiksins
tókst Anderlecht að opna
markareikning sinn. Scifo gaf
fallega fyrir mark St. Niklaas
og Vercauteren skoraði 1-0.
Ovænt tókst þó St. Niklaas að
jafna. Cornilesen gerði það
mark eftir fallega sóknarlotu.
Stuttu seinna gaf Arnesen fal-
lega fyrir mark St. Niklaas og
Scifo skallaði inn, óverjandi
2-1. Vandenbergh skoraði
þriðja mark Anderlecht eftir
góðan undirbúning Olsen.
Skömmu fyrir leikhlé skoraði
Ervin Vandenbergh annað fal-
legt mark, 4-1. Þannig var
staðan í hléi.
Anderlecht hélt áfram að
sækja í seinni hálfleik og hefði
getað bætt nokkrum mörkum
við. Arnóri var skipt inn þegar
um 15 mínútur voru eftir til
leiksloka og þakkaði hann fyrir
sig með því að skora á síðustu
mínútu leiksins. Hann komst
einn innfyrir vörn StNiklaas og
var ekki í vandræðum með að
skora, 5-1. Úrslitin voru
sanngjörn.
Cercle Brugge-Kortríjk. 0-1
Bæði liðin virtust vera búin
að ákveða strax í upphafi leiks-
ins að 0-0.yrðu góð úrslit því í
fyrri hálfleik gerðist ekkert
markvert. Staðan því 0-0 í
hléi. Seinni hálfleikur var eins
Hollenska knattspyrnan:
Heimir skoraði
gegn Feyenoord
■ Heimir Karlsson
■ Amór Guðjohnsen.
og sá fyrri ekkert markvert
gerðist. Kortrijk átti þó eina
góða sókn sem lauk með því
að einum leikmanna þeirra var
brugðið innan vítateigs og
Lukic átti ekki í vandræðum
með að skora úr vítinu, 0-1 og
þannig lauk leiknum.
Úrslit og staða efstu liða í
Belgíu:
Andcrtocht 12 • 0 3 43 12 21
Waregem 12 7 3 2 23 14 16
Fc. Liege 12 6 1 6 21 12 16
Club Brugge 12 6 3 3 19 18 15
Beveren 12 6 4 2 27 13 14
Lokeren 12 6 5 2 20 22 14
Lokeren-Waterschei
SUndard-Gent .
Bevertn-Sming
Cleb Bngge-Koctrijk
Jet
34
2-0
2-2
0-1
1-1
1-0
0-0
1-2
5-1