NT - 05.11.1984, Blaðsíða 8

NT - 05.11.1984, Blaðsíða 8
Mánudagur 5. nóvember 1984 Fótafbrigðileg ir illa settir - skást ástand hjá Steinari Waage, en þar er þó hluti lagersins í mjög háum verðflokki ■ Ein skóverslun í Reykja- vík reyndist hafa sæmilegt úr- val skófatnaðar fyrir kvenfólk í mjög stórum og mjög litlum númerum. Aðrar verslanir reyndust annað hvort ekki eiga slíka skó eða þá aðeins fáeinar tegundir. Almennt virtist vera nokkru auðveldara að finna litla skó en stóra þótt munur- inn væri kannski ekki ýkja mikill. Þettaeru ístórumdrátt- um niðurstöður könnunar sem NT framkvæmdi á föstudaginn í 14 skóbúðum í Reykjavík. Lesendabréf frá ungri konu sem kallaði sig „Eina fúla og skólausa" varð kveikjan að þessari úttekt á skóvandamáli fótstórra og fótsmárra kvenna. Petta lescndabréf vakti þegar athygli annarra lescnda og hleypti af stað skriðu skrifa og símhringinga. Allar þær konur, sem höfðu samband við okkur, voru á einu máli um það að ótrúlega erfitt væri að finna skó stærri en númer 41 eða minni en 36. Við á NT ákváðum því að fara á stúfana og athuga fram- boð á kvenskóm í þessum númerum. Árangurinn varð satt að segja heldur dapurlegur á flestum stöðum. Sumar skó- verslanir áttu ekki til svo mikið sem eitt einasta skópar í þess- um númerum og á öðrum stöðum voru fáeinir skór dregnir fram úrskúmaskotum. Aðeins ein verslun af þeim fjórtán scm við heimsóttum gat sýnt okkur nokkurn veginn frambærilegt úrval. Það var Skóverslun Steinars Waage. Þarvorutila.m.k. milli tuttugu og þrjátíu tegundir í hvoru númeri og auk þess gat versl- unin dregið fram úr pússi sínu kvenskó númer 34 og 43. Þar á ofan kvaðst Steinar geta út- vegað kvenskó upp í númer 46 og karlmannaskó allt upp í númer 52 eða jafnvel 54. - Ýmsar skýringar Við fengum ærið misjafnar skýringar á skóleysinu. Því var jafnvel haldið fram á einstaka stað að „svona stórir skór" væru bara ekki framleiddir. Flestir létu sér þó nægja skynsamlegri skýringar og al- gengust var sú skýring að eftir- spurn eftir þessum númerum væri of lítil til þess að hægt væri að taka tillit til hennar. Ein verslun kvaðst hafa gert tilraun með það fyrir nokkrum árum að flytja inn kvenskó allt upp í nr 43 en sú tilraun hefði endað með því að meginþorra send- ingarinnar hefði verið fleygt eftir að útséð var um að skórnir myndu ekki seljast. Eitthvað af þessari sendingu hafði þó selst og höfðu það mestanpart verið sömu konurnar sem komu aftur og aftur og keyptu skó. Úrvalið hefði hins vegar ekki þótt nægilega fjölbreytt. ■ Skást var ástandið (að skóverslun Steinars Waage frátalinni) í Skóverslun Þórðar Péturssonar og úrvalið má sjá á þessari mynd. _ Stærri fsstiir . . sem við töluðum við var sam- ustu áratugum. Fullorðin minm feimni mála um það að fætur fólks kona, sem við ræddum við, Margt af því afgreiðslufólki hefðu stækkað töluvert á síð- sagði það hafa gengið guðlasti ■ Við lögðum ekki í að stilla upp öllum þeim tegundum af skóm sem til voru í „afbrigðilegum“ númerum hjá Steinari Waage, heldur létum okkur nægja að mynda þetta sem sýnishorn. Það skal þó tekið fram til að fullnægja öllu réttlæti að hluti af skóvalinu í þessari verslun er „lúxusskór" að sögn Steinars og þar af leiðandi í býsna háum verðflokki 8 I Nokkur sýnishorn af því sem kemur í leitirnar þegar gengið er inn í skóverslun í Reykjavík og beðið um kvenskó nr 42 og nr 35. Ath. á hveri mynd er allt úrval viðkomandi verslunar í báðum númerum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.