NT - 05.11.1984, Page 9

NT - 05.11.1984, Page 9
Mánudagur 5. nóvember 1984 9 Lesendur hafa orðid ■ Steinar Waage sýndi okkur karlmannaskó nr 37 og 52 hlið við hlið til gamans. næst í sínu ungdæmi að nota skó nr 40. Hún sagði einnig að 40 væri nú sennilega algengasta kvennúmerið í stað 38 áður fyrr. En það er ekki nóg með að fólk sé almennt stórvaxnara nú en áður og fætur þar af leiðandi stærri - heldur eru konur ekki lengur feimnar við að ganga í nægilega stórum skóm og langflestar konur steinhættar að pína sig í skó sem eru númerinu of litlir. Petta kvað sumt afgreiðslufólk hafa verið algengt fyrr á árum enda hefði fátt þótt alvarlegra lýti á kvenmanni en að hafa stóra fætur. - 35algengara Það reyndist ekki vera ýkja mikill munur á árangri eftir því hvort beðið var um skó nr 35 eða 42. Þó var örlitlu al- gengara að sjá skó nr 35, hvort sem þar er um að ræða ein- hvers konar gamla venju í skóverslunum frá þeirri tíð er konur voru fótnettari en nú gerist og gengur. Þar sem skór voru til í þessum númerum á annað borð voru yfirleitt til fleiri gerðir í nr 35 en 42. Á einstöku stað voru iíka til fáein pör af enn minni eða enn stærri skóm en það var mjög fátítt. - Allt í himnalagi Hver verður þá niðurstaðan af þessu öllu saman má spyrja. Mega þessar konur kannski vel við una að það skuli, þrátt fyrir allt, vera til ein verslun sem a.m.k. gerir ráð fyrir tilvist þeirra? Auðvitað verður því ekki neitað að það er strax illskárra að „afbrigðileg" skónúmer skuli fást í einni verslun en engri. Ef hins vegar það úrval, sem þar er til, er borið saman við þau reiðinnar býsn sem til eru í skórverslunum af kven- skóm í „venjulegum“ stærðum, horfir málið nokkuð öðru vísi við. Það verður að vísu sjálfsagt nokkuð íöng bið á því að „fótaafbrigðilegt" fólk njóti jafnréttis á við aðra á þessu sviði en engu að síður virðist það sanngjörn krafa að úrval - ið sé mun meira en raunin sýndi í þessari könnun okkar. Fjöldi skótegunda í nr. 42 og 35 í 14 verslunum í Reykjavík Skóverslun Steinars Waage 42 35 Egilsgötu 3 Skóverslun Þórðar Péturssonar 20-30 20-30 Laugavegi95 Skóverslunin Ríma 3 11 Austurstræti 6 Skóverslun Hvannbergsbræðra 4 4 Laugavegi71 SkóbúðinMílanó 3 4 Laugavegi20 Skóbær 1 6 Laugavegi69 SkóversluninRíma 2 3 Laugavegi89 SkóverslunAxelsÓ 4 0 Laugavegi11 Domus 0 2 Laugavegi91 Skósalan 1 1 Laugavegi1 Skósel 0 1 Laugavegi60 Skæði 1 0 Laugavegi74 Skóbúðin 1 0 Snorrabraut38 0 0 ■ Eins og sjá má á þessari töflu, er skóverslun Steinars Waage eina skóbúðin sem býður upp á eitthvert úrval af skóm fyrir þær konur sem ekki geta notað hinar hefðbundnu kvenna- stærðir. í öðrum verslunum er „úrvalið“ allt frá núllinu og upp í fáeinar tegundir. Ríkisútvarpið þagnaði - og þar með missti þjóðin allt samband við umheiminn ■ „The lights have gone out over Evrope", sagði Churchill í frægri ræðu í stríðsbyrjun. Eitthvað svipað og hlustendum Churchill varð íslendingum innanbrjósts um hádegisbil 1. okt. síðastliðinn þegar starfs- menn útvarps og sjónvarps. gengu út af vinnustöðum sín- um til að mótmæla því, að laun voru ekki greidd þann dag að fullu fyrir októbermánuð, þar sem þá var Ijóst, að verkfall opinberra starfsmanna myndi skella á þann 4. október. Verkfall bókagerðarmanna hafði byrjað 10. sept. og þess vegna komu engin blöð út um þetta leyti. Það rann því fljót- lega upp fyrir fólki að það var með öllu svipt fréttasambandi við umheiminn. Úrræðagóðir og snarráðir áhugamenn um að gefa útvarpssendingar frjálsar, sáu sér þarna leik á borði og kærðu sig kollótta þó að þeir brytu lög. Ólöglegar útvarpsstöðvar skutu því óðara upp kollinum víðs vegar um land, og verður að viðurkenn- ast að margir voru því fegnir að eiga þess kost að fá einhvern fréttaflutning af því, sem var að gerast í þjóðfélaginu. Starfsfólk, og ritstjórn, NT fór aðra leið; það hófst strax handa um að gefa út fjölritað fréttablað, TNT, til að auð- velda fólki að fylgjast með gangi mála. Það er nefnilega oft þörf á góðum fréttaflutn- ingi, en þegar órói er slíkur í þjóðlífinu eins og verið hefur undanfarnar vikur, er hann blátt áfram nauðsynlegur. Að þeirri niðurstöðu komust yfirvöld líka innan tíðar. Það var óviðunandi að eftirláta lög- brjótum, mjög sennilega meira og minna hlutdrægum, einka- rétt á fréttaflutningi á öldum ljósvakans. Það varð því ofan á, þegar fréttaleysið var búið að hrjá okkur í u.b.þ. viku að veita undanþágur til frétta- flutnings í ríkisútvarpi tvisvar á dag, kl. 12.20 og 19.00. Það kannast sjálfsagt flestir við að hafa hreinlega orðið háðir því að hlusta á útvarps- fréttir á þessum föstu tímum undanfarnar vikur, og það ekki síður þó að blöðin hafi aftur farið að koma út þegar prentara- verkfallinu lauk. Fólk skipu- lagði tíma sinn með tilliti til þess að verða ekki af fréttun- um, því aðalltaf hefurblundað von um, að stórar og góðar fréttir yrðu sagðar einmitt í næsta fréttatíma. Umsjón þessara tveggja Pantið að utan ■ Agata hringdi og kvaðst vilja koma því á framfæri við „Lipurtá“ og þær konur aðrar sem ættu í vandræðum með að fá skó við sitt hæfi í hérlendum verslunum, að vandalaust væri að panta sér skó eftir erlendum pöntunarlistum. Þessa aðferð sagðist Agata hafa notað árum saman með ágætum árangri. Agata sagðist vita að þetta skóleysi væri verulegt vanda- mál hjá mörgum konum og kvaðst hún nýlega hafa gefið tvenna skó konu, sem hafði verið orðin alveg skólaus af þessum skökum. daglegu .fréttatíma, alla sjö daga vikunnar, hefur hvílt á herðum örfárra fréttamanna, og hafa þeir staðið sig með stökustu prýði, við erfiðar og viðkvæmar aðstæður. Vafalausti hafa margirsakn- að sjónvarpsins þennan tíma, en í Ijós hefur komið, að það er fyrst og fremst útvarpið, sem er svo stór hluti af daglegu lífi fólks, að það á erfitt með að sætta sig við að njóta þess ekki. Fréttaþyrstur 1 ■ Starfsfólk útvarpsins gekk út úr útvarpshúsinu ad Skúla- götu á hádegi 1. okt. s.l. og lagði niður vinnu. Þá komst þjóðin að raun um hvað út- varpið er; .nauðsynlegur og ómissandi miðill. Húseigendur - Framkvæmdamenn Fjölbreytt úrval af vönduðum hellum í gangstéttir og bílaplön ásamt 2 gerðum af kantsteinum. Einnig brothellur í veggi og ker. Splittsteinar úr rauðamöl til notkunar innanhúss og utan í stærðunum 40 x 10 x 10 og 30 x 10 x 7. Hagstæð greiðslukjör - Fjölritaðar leiðbeiningar Opið laugardag til kl. 16. HELLU OG STEINSTEYPAN VAGNHOFÐ117 SÍMI30322 REYKJAVÍK BÍLASMIÐJAN W KYNDILI. Stórhöföa 18 II i A Bílamálun Bílaréttingar Vönduð vinna SÍMI35051 KVÖLDSÍMI 35256 DESOUTTER LOFTVERKFÆRI DITZLER BÍLALAKK BINKS SPRAUTUKÖNNUR Bíleigendur athugið Við höfum margra ára reynslu í viðgerðum á mikið löskuðum bifreiðum, þess vegna notum við eingöngu Guy Chart réttingar og mælitæki. Við bjóðum viðskiptavinum okkar staðgreiðsluafslátt á allri tækjavinnu, greiðslukjör og föst verðtilboð á allri vinnu. A málningarverkstæði okkar notum við Ditzler málningarefni sem er amerískt efni og sú staðreynd að General Motors og margar aðrar amerískar bílaverksmiður nota Ditzler efni tryggir fagmönnum árangur. Þar ætlum við líka að koma viðskiptavinum á óvart. Við sækjum bílinn og sendum eiganda að kostnaðariausu. Eigum á lager Desoutter loftverkfæri, amerískar Binks sprautukönnur og varahluti í þær og Ditzler málningarefni STÓRHÖFBI pUNAHOFOt : SMIÐSHOFÐt: m hyr JARHOFOI hamarshópo dvergshófoi VAGNHÓFOI ; T| TANGARHÖF-OI g 0D BILDSHOFOI BIFREIOAEFT»RLl-nO

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.