NT - 05.11.1984, Side 10
Mánudagur 5. nóvember 1984 10
að vera svo væn að lýsa í
samáatriðum hjónalífi sínu
með manninum, sem hún
kynntist árið 1938, þegar þau
léku saman í myndinni „Brot-
her Rat“.
„Ronnie hafði ekki snefíl
af hæfíleikum“
En Jane er ekki til viðræðu
um einkalíf sitt, hvorki fyrr né
síðar. - Það ber vott um lélega
mannasiði að bera fyrrverandi
maka sína á torg. Ég hef
skömm á því fólki, sem blaðrar
um nánasta einkalíf sitt og
sinna við fréttamenn og þiggur
að launum háar fjárhæðir, eða
a.m.k. æsifréttir. Að mínu áliti
verða tvær manneskjur, sem
hafa deilt hugsunum og tilfinn-
ingum og elskað hvor aðra, að
sýna hvor annarri fullt traust
og tillitssemi, segir hún.
J ane Wyman hefur sem sagt,
ekki hug á því að auðgast á
því, að maðurinn, sem hún
skildi við á sínum tíma, af því
að hann „hafði ekki snefil af
hæfileikum", er nú forseti
Bandaríkjanna.
...en Jane fékk Óskar
Jane Wyman var á hátindi
frægðar sinnar sem kvikmynda-
stjarna um miðjan fimmta
áratuginn. Eftir að hafa leikið
hvert smáhlutverkið af öðru,
mörg þeirra í annars flokks
kvikmyndum, sló hún í gegn
1945, og tveim árum síðar var
hún í fyrsta sinn tilnefnd til
Óskarsverðlauna. Tvisvar síð-
ar varð hún tilnefnd til þeirra
verðlauna og hlaut þau loksins
fyrir frammistöðu sína í hlut-
verki daufdumbrar og blindrar
stúlku, fórnarlambs nauðgara,
í myndinni „Johnny Belinda“.
A velgengnisárum Jane í
kvikmyndum, segir hún að
leikarar hafi haft fyrirlitningu
á því að starfa við sjónvarp.
Það álit segir hún nú breytt og
bætir því við að sjaldan hafi
hún notið sín eins vel og í
hlutverki hinnar köldu og
harðlyndu Angelu Channing í
„Falcon Crest“
Þá var Jane einmanna
En þó Jane gætti sjálf'
fyllstu þagnmælsku um fortíð
sína, eru tíðindamenn fjöl-
miðla ekki af baki dottnir.
Einhverjir sáu til hennar á því
augnabliki, þegar sjónvarpað
var um þver og endilöng
Bandaríkin afhöfninni, þegar
Ronald Reagan var settur inn
í embætti fyrir tæpum fjórum
árum. Þá var Jane stödd á
flugvelli í Los Angeles. Ein»-
mana og niðurlút gekk hún í
gegnum flugstöðvarbygging-
una, enginn tók á móti henni,
enginn færði henni blóm og
enginn rauður dregill var lagð-
ur undir fætur hennar. í fáum
orðum sagt, veittu fáir henni
athygli. Einhvern tíma síðar
fannst þó einhverjum ástæða
til að spyrja hana, hvernig
henni hefði liðið á þeirri
stundu, hvort hún hefði þá
ekki séð eftir því að hafa hrint
Ronnie frá sér á sínum tíma.
Ekki vildi Jane taka undir það,
kvaðst hafa tekið sína ákvörð-
un, þegar það átti við, og síðan
aldrei litið til baka. - Mitt líf
var helgað kvikmyndaleik -
ekki pólitík. Ég óska Ronnie
hjartanlega til hamingju með
að hafa náð þessum áfanga.
Kvikmyndirnar og eigin
frami áttu hug hennar all-
an
Kunnugir segja, að Jane
Wyman hafi verið svo upptek-
■ Þau voru fallegt par Ron-
ald Reagan og Jane Wyman,
en ekki leið á löngu þar til
auöséð var að leiklistin var
þeim mismikið í blóð borin.
Það olli hjónaskilnaði.
■ Jane Wyman lifir nú blóma-
tíma, sem hæstlaunaðasta sjón-
varpsstjarna Bandaríkjanna og
ókrýnd drottning Hollywood.
Það á hún Ronald Reagan að
þakka.
verðarborðið með nokkrum
vel völdum orðum um að nú
væri orðið tímabært að hann
hypjaði sig af heimilinu. Það,
sem hún fann hönum helst til
foráttu, var sú árátta hans að
vilja ræða stjórnmál við morg-
unverðarborðið, en það var
ekki hennar aðaláhugamál. Á
þeim tíma var hún mikils metin
leikköna í Hollywood og fram-
leiðendur rifust um að fá hana
til að leika aðalhlutverk í
myndum sínum. Ronald aftur
á móti gerði sig fyllilega
ánægðan með að fara með
lítilfjörleg aukahlutverk.
Þrátt fyrir að henni þætti
lítið til eiginmanns síns koma
fyrir 40 árum, getur hún engu
að síður þakkað honum það,
að nú - 70 ára að aldri - hefur
hún aftur náð að skipa þann
sess í Hollywood, að framleið-
endur rífast um að fá hana til
að taka að sér stór hlutverk og
eru reiðubúnir til að borga
henni vel fyrir. Árslaun hennar
fyrir aðalhlutverkið í sjón-
varpsþáttunum, sem fyrr eru
nefndir, eru um 3 milljónir
dollara, og illkvittnar tungur
segja að hún ráði lögum og
lofum um framleiðslu þeirra.
M.a. þykjast margir góðir og
gegnir leikarar hafa verið illa
sviknir í viðskiptum sínum við
framleiðendur þáttanna, þegar
þeir hafa verið búnir að fá
hlutverk þar, sem síðan hafa
ýmist verið skorin niður eða
sleppt alveg, vegna afskipta
hennar.
Staðreyndin er sú, að Jane
Wyman var umheiminum
gleymd, þegar fyrrverandi eig-
inmaður hennar var kosinn
Bandaríkjaforseti. En hann
var ekki fyrr sestur að í Hvíta
húsinu, en til hennar tóku að
streyma alls kyns tilboð um að
koma fram í sjónvarpi og
kvikmyndum. Á þessum tíma
hafa henni borist yfir 250 hand-
rit með boði um að taka að sér
aðalhlutverkið. Og óþarft ætti
að vcra að taka fram, að henni
hafa boðist stórar summur fyrir
in af kvikmyndaheiminum og
svo metnaðargjörn, að tilfinn-
ingar hennar í garð Ronalds
Reagan hafi strax tekið að
kólna, þegar hún gerði sér
ljóst, að hann yrði aldrei nein
lýsandi stjarna í Hollywood.
Á þeim tíma sagði hún í
fyllstu hreinskilni, að hann
væri að vísu elskulegur maður
og að hann ynni mikið og
samviskusamlega. Það væri
bara ekki nóg. Hún var nógu
raunsæ til að gera sér grein
fyrir að hans biði ekki annað
en lítilfjörleg smáhlutverk.
Hin bjarta og heita ást fór að
láta á sjá og Ronald fór að fara
í taugarnar á sinni heitt-
elskuðu. Því meiri frama sem
hún sjálf náði, því meira fór
hún að finna til þess, að hann
væri henni eiginlega ekki sam-
boðinn. Henni fannst hann
halda aftur af sér. Ekki það að
hann væri afbrýðisamur vegna
þess hvað henni gekk vel -
hann kvartaði aldrei þó að
hann væri kallaður „hr. Jane
Wyman“ - en henni fannst
hann virkilega vera sér fjötur
um fót.
Og ekki skánaði það, þegar
Ronald fór að fá áhuga á
öðrum hlutum en þeim, sem
beinlínis tengdust kvikmynda-
heiminum, t.d. pólitík, sem
Jane fannst hreint og beint
leiðinleg.
Náinn ættingi Ronaldssegir:
- Ronnie var ákaflega hrifinn
af Jane og í langan tíma eftir
skilnaðinn var hann ekki
mönnum sinnandi. Oftar en
einu sinni reyndi hann að fá
hana til að taka sig í sátt, en
Jane var ekki til viðtals um
það. Það eina, sem hún kærði
sig um að ræða við Ronald, var
uppeldið á börnum þeirra
tveim.
Heimur hennar var takmark-
aður við kvikmyndirnar og
allt sem tengdist þeim. Eigin-
menn, sem urðu henni til traf-
ala á framabrautinni, hentuðu
henni ekki. Það fengu fleiri að
reyna en Ronald Reagan. Hún
giftist tveim öðrum mönnum,
en hún losaði sig við þá, rétt
eins og Ronald Reagan á
sínum tíma.
Ronald vildi tala um
pólitík við morgun-
verðarborðið!
Jane Wyman -sem um þess-
ar mundir er einráð og aðal-
leikkona vinsælla bandarískra
sjónvarpsþátta, „Falcon
Crest“ - hefði átt fullan kost á
því að vera núverandi forseta-
frú Bandaríkjanna, ef henni
hefði ekki orðið það á morgun
einn fyrir u.þ.b. 40 árum að
hvolfa úr pakka af koruflex
yfir höfuð eiginmanns síns,
Ronalds Reagan, við morgun-
■ Margir velta því fyrir sér,
hvort Jane Wyman hafi ekki
iðrast þess síðustu fjögur árin,
að morgun nokkurn fyrir 40
árum hvolfdi hún úr kornflex-
pakka yfir hausinn á þáverandi
eiginmanni sínum og sagði
honum skýrt og skorinort að
nú skyldi hann axla sín skinn.
Eiginmaðurinn var Ronald
Reagan, núverandi forseti
Bandaríkjanna, sem yfirgnæf-
andi líkur benda til gegni því
embætti næstu fjögur árin,
nema eitthvað alveg óvænt
komi upp á.
Jane Wyman hefur ekkert
látið uppskátt um, hvort með
henni leynist eftirsjá eftir því
sem var og hefði getað orðið,
en víst er, að hún má þakka
sjálfum Bandaríkjaforseta
að nú hefur verið dustað af henni
rvkið eftir áratuga fjarveru af
hvita tjaldinu, og henni hefur
hlotnast sú upphefð á gamals
aldri að verða ókrýnd drottn-
ing Hollywood og hæstlaunaða
sjónvarpsstjarna Bandaríkj-
anna. Ólíklegt er að henni
hefði fallið þetta í skaut, ef
ekki hefði rifjast upp fyrir
einhverjum glöggum peninga-
manni vestur þar, að nú væri
einmitt heppilegur tími til að
draga fyrrverandi eiginkonu
Ronalds Reagan fram í dags-
ljósið.