NT - 05.11.1984, Síða 13
01
Mánudagur 5. nóvember 1984 13
Bálför Indiru Gandhi
- leiðtogar funda í Nýju Delhi
Morðið á Indiru Gandhi:
Hin opinbera
skýring röng?
Nýja Delhi-Reuter.
■ Bálför Indiru Gandhi, leiötoga indversku þjóöarinnar
í tuttugu ár, fór fram við hið helga fljót Jamuna í Nýju
Delhi á laugardaginn. Það var Rajiv Gandhi, hinn nýi
forsætisráðherra, sem kveikti í bálkestinum að viðstöddum
um einni og hálfri milljón syrgjenda.
ks-
uni
hir
foto
Reyndar höfðu menn búist
við því að mannfjöldinn við
útförina yrði allt að tíu milljón-
um, en að sögn lögreglu mun
fjöldi manna hafa ákveðið að
vera heima af ótta við þá ofbeld-
isöldu sem riðið hefur yfir Ind-
land síðan Indira Gandhi var
myrt.
Það vakti athygli að meðal
heiðursgesta við útförina var
Maneka Gandhi, eiginkona
Sanjays Gandhis, sem var talinn
líklegur arftaki móður sinnar
þangað til hann lést í flugslysi
1980. Maneka hefur átt í deilum
við Indiru og Rajiv og hefur
haft í hótunum um að bjóða sig
fram gegn Rajiv í kjördæmi
hans á Norður-Indlandi í þing-
numi
að
'Waldegrave, taldi hins vegar að
Norðursjónum stafaði ekki stórhætta
af mengun nema á ákveðnum
svæðum. Hann taldi mengunarbann
í Norðursjó of kostnaðarsamt fyrir
breska skattborgara og hvatti til
annarrar ráðstefnu um þessi mál
síðar. Belgísku fulltrúarnir tóku í
sama streng.
Ráðherrarnir ákváðu að halda
annan fund um mengunarvarnir í
Norðursjó eftir tvö eða þrjú ár.
Segjast sumir þerira vona að þá náist
samstaða um að setja lög sem beinast
gegn mengunarvöldum.
Norsk álver:
Minnka
framleiðslu
Osló-Reuter
■ Tvö stærstu álfyrirtæki
Noregs, Elkem og Norsk
Hydro, tilkynntu um helgina
að þau hefðu ákveðið að draga
úr álframleiðslu sinni verulega
vegna lítillar eftirspurnar og
lágs verðs á heimsmarkaði.
Elkem mun minnka árs-
framleiðslu sína.sem er um 170
þús. tonn,um tíu prósent, en
Norsk Hydro 160 þúsund
tonna framleiðslu sína um átta
prósent.
í síðustu viku tilkynntu tvö
önnur norsk álfyrirtæki,
Ardal og Sunndal verk og^
Sör-Norge aluminium að þau
hefðu ákveðið að draga fram-
leiðslu sína saman um tíu
prósent. í Noregi eru fram-
leidd um 6.5 prósent af því áli
sem fer á vestræna markaði
eða um 710þúsund tonn á ári.
Verð á áli á markaði í
London hefur lækkað úr 1100
sterlingspundum á tonnið í 950
sterlingspund á tonn síðan í
janúar, einkum vegna of-
framboðs. Ymsir sérfræðignar
sjá þó teikn á lofti um að
eftirspurn eftir áli á vestrænum
mörkuðum muni aukast á
næsta ári.
kosningunum sem fyrirtælaðar
eru eftir tvo mánuði.
Sanjay var einnig brenndur á
þessum sama stað eftir lát sitt,
sem og Jawaharal Nerhu, for-
sætisráðherra og faðir Indiru.
Þar var einnig á heiðurspalli
N.T. Rama Rao, forsætisráð-
herra Andra Pradesh-fylkis, og
pólitískur fjandmaður Indiru
Friðvænlegra
á Indlandi
- eftir fjögurra daga
blóðsúthellingar
Nýja Delhi-Reuter
■ Eitthvað friðvænlegra var
í gær í Nýju Delhi eftir að
æstur hindúamúgur hafði elt
og ofsótt sikkha þar í fjóra
daga. Talið er að um 800
manns hafí nú týnt lífí í óeirð-
um á Indlandi eftir morðið á
Indiru Gandhi.
Um helgina fyrirskipaði nýi
forsætisráðherrann, Rajiv
Gandhi hertar öryggisaðgerð-
ir, skipti um borgarstjóra í
Nýju Delhi og fjölgaði mjög í
öryggisliði borgarinnar. Þetta
gerði hann fyrir báiför móður
sinnar, en margir óttuðust að
þá myndi hefjast ný alda blóðs-
úthellinga.
Eðlilegt líf virtist aftur vera
að færast yfir höfuðborgina, á
götunum sáust friðasamir veg-
farendur og leigubílar hófu
akstur að nýju. Sikkhar sjást
þó ekki mikið á ferli og að sögn
lögregluyfirvalda í Nýju Delhi
eru nú um tuttugu þúsund
sikkhar undir vernd lögreglu
og hers í sérstökum búðum.
Frá Chandigarh, höfuðborg
Punjab-fylkis, þar sem meiri-
hluti indverskra sikkha býr
berast þær fréttir að þar ríki
mikil spenna. Fimm æðstu
prestar sikkha fóru þess á leit
við stjórnvöld í gær að þau
settu neyðarlög í þremur norð-
lægum fylkjum til að vernda líf
og eigur sikkha. Skólar eru
lokaðir í Punjab-fylki og her-
menn hvarvetna á ferli til að
koma í veg fyrir að sikkhar og
hindúar, sem eru í minnihluta
í Punjabfari að berast á
banaspjótum.
Gandhi eftir að hún reyndi að
setja hann af í sumar.
Lögregla og her höfðu mjög
stranga öryggisgæslu um heið-
ursgestina, en á meðal þeirra
voru leiðtogar frá 94 þjóð-
löndum. George Schulz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna og
Nikolai Tikhonov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, voru full-
trúar þjóða sinna og áttu með
sér fund eftir útförina. Þar mót-
mælti Schulz þeim áburði aust-
antjaldsfjölmiðla að Banda-
ríkjamenn hafi átt einhvern þátt
í morðinu á Indiru Gandhi og
Tikonov sagði að það væri ekki
skoðun Sovétstjórnarinnar.
Margir fleiri þjóðleiðtogar
notuðu tækifærið og áttu með
sér fundi, þar á meðal er talið
að Rajiv Gandhi og Zia-Ul-
Haq, forseti Pakistan, hafi átt
orðaskipti.
London-Reuter:
■ Breska blaðið Sunday
Times sagði um helgina að
það hefði áreiðanlegar heim-
ildir fyrir því að hin opinbera
frásögn indversku stjórnar-
innar af morðinu á Indiru
Gandhi sé röng og að morð-
ingjar hennar hafi ekki verið
skotnir undireins, heldur hafí
þeir fyrst verið fluttir í varð-
skýli og skotnir þar nokkrum
mínútum síðar.
í hinni opinberu frásögn
segir að morðingjarnii; þrír
■ Fjölskylda Indiru Gandhi fylgist með þegar olíu er hellt á bálköst hennar á laugardag. Ösku Indiru
verður siðan dreift úr flugvél yfír Himalayafjöll. Á myndinni er meðal annara Rajiv Gandhi, hinn nýi
torsætisraðherra, með húfu, ítölsk eiginkona hans Sonia og dóttir þeirra Priyanka.
Símamynd-POLFOTO
Forsetakosning-
arnar eru búnar!
Frá Karli Birgissyni,
fréttarítara NT í Washington
■ Umræðuefni stjórnmála-
manna og fjölmiðla hér í
Bandaríkjunum hefur breyst
þessa síðustu daga fyrir kosn-
ingar. Það er ekki lengur
reynt að spá í hver verður
sigurvegari í forsetakosning-
unum á þriðjudaginn, heldur
beinist athyglin meira að
þingkosningunum þar sem
baráttan er sumstaðar mjög
hörð.
„Forsetakosningarnar eru
búnar,“ sagði George Bush
varaforseti fyrir skömmu.
Þetta er ekki venjulegt kosn-
ingagaspur, heldur virðist
óhjákvæmilegt að Ronald
Reagan verði forseti Banda-
ríkjanna næstu fjögur árin.
Spurningin er bara hversu
stór sigurinn verður og
hvernig samsetning þingsins
verður.
Repúblikanar hafa stjórn-
að öldungadeild Bandaríkja-
þings síðastliðin ár með tíu
þingmanna meirihluta. Allt
bendir til þess að þeir muni
tapa tveimur til þremur sæt-
um í deildinni, en það þýðir
að forsetanum mun ganga
verr að koma í gegn þeim
málum sem hann hefur
áhuga á.
Fulltrúadeildin hefur um
áraraðir verið undir stjórn
demókrata og verður það
líklega áfram næstu árin.
Vinsældir forsetans munu
hjálpa nokkrum repúblikun-
um á þing þar sem mjótt er á
munum, en það mun ekki
breyta valdahlutföllunum
milli flokkanna.
Þing sem er andsnúið for-
setanum er ekki nýtt fyrirbæri
í bandarískum stjórnmálum.
Richard Nixon þurfti að
kljást við mjög óvinsamlegt
þing á sínum tíma og Dwight
Eisenhower átti líka í vand-
ræðum með þingmenn dem-
ókrata á sjötta áratugnum.
Valdamesti samstarfsmað-
ur Reagans á þingi, Howard
Baker, hefur dregið sig í hlé
og því mun reyna mjög á
samningalipurð forsetans
næstu fjögur árin. Ef Reagan
reynir að koma uppáhalds
stefnumálum sínum í fram-
kvæmd eins og hann hefur
lofað má hann eiga von á
harðri valdabaráttu við
þingið.
öryggisverðir af trúflokki
sikkha, hafi fallið fyrir kúlna-
hríð öryggisvarða sem braust
út strax eftir að þeir höfðu
skotið Indiru Gandhi.
í Sunday Times segir að
svo virðist sem að sikkharnir
hafi gefist upp fyrir meðlim-
um úr indversk-tíbetska
landamæraverðinum. Þeir
hafi sfðan verið fluttir í varð-
skýli, þar sem átök hafi brot-
ist út þegar einn morðinginn
þreif til byssu og annar greip
rýting úr vefjahetti sínum.
Ösku Indiru
dreift yfir
Himalaya
Nýja Delhi-Reuter.
■ Indversk stjórnvöld tilkynn-
tu í gær að aska Indiru Gandhi,
sem brennd var á laugardaginn,
yrði sett um borð í sérstakar
lestir, sem fara munu um sveitir
lndlands næstu vikuna. Með
þessu móti vill stjórnin gefa
almenningi færi á að votta hin-
umi látna leiðtoga virðingu sína.
Öskunni verður síðan safnað
saman aftur og ellefta nóvem-
ber verður henni dreift úr flug-
vél yfír Himalaya-fjöll, sem
voru Indiru Gandhi mjög
ástkær.
Sikkhar hafa
í hótunum við
Rajiv Gandhi
London-Reuæter
■ Jagjit Singh Chauhan, út-
lægur leiðtogi sikkha sem nefnir
sig forseta Khalistan, sjálfstæðs
ríkis sem herskáa sikkha dreym-
ir um að stjórna, hafði um
helgina í hótunum við Rajiv
Gandhi í London. Hann sagði
að Indira Gandhi hefði átt skilið
að deyja og að hins nýja for-
sætisráðherra biðu sömu örlög.
Rajiv Gandhi hefði verið í
vitorði með móður sinni um að
láta indverska herinn ráðast inn
í Gullna hofið í Amritsar, helg-
an stað sikkha, í júní.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, sem var við
útför Indiru Gandhi lýsti van-
þóknun sinni á þessum ummæl-
um Chauhans, sem býr í
London, og lét í það skína að
henni þætti slæmt að geta ekki
sótt hann til saka fyrir þau.
Popieluszko jarðsettur:
250 þúsund manns við útf örina
- Jaruzelski styrkir stððu sína
Varsjá-Reuter
■ Jósef Glemp, kardínáli í
Póllandi, jarðsöng á laugardag-
inn Jerzy Popieluszko, andófs-
prest sem myrtur var af þremur
meðlimum leynilögreglunnar
fyrir nokkru-. Um 250 þúsund
manns fylgdu Popieleszko,i, nú
helsta píslarvotti hinna bönn-
uðu verkalýðssamtaka, Sam-
stöðu, til grafar. Þar á meðal
var Lech Walesa. Mannfjöldinn
var ekki minni en þegar Stefan
Wyszinski, ástsæll leiðtogi
pólsku kirkjunnar, var jarðaður
Í98L y
í ræðu sinni hvatti Glemp
Pólverja til að troða ekki illsak-
ir, en ganga heldur til samninga
og Lech Walesa hélt stutta tölu
þar sem hann sagði meðal
annars: „Samstaða lifir vegna
þess að Popieleszko úthellti
blóði sínu fyrir hana.“
Útförin fór friðsamlega fram
og er tekið til þess í fréttaskeyt-
um að þar hafi ríkt góður andi
þótt margir hafi fellt tár.
Þrír öryggislögreglumenn
hafa nú verið ákærðir fyrir ránið
á prestinum og verða líkast til
ákærðir fyrir morðið líka. Tveir
embættismenn úr innanríkis-
ráðuneytinu eru einnig í varð-
haldi og undirhershöfðingi hef-
ur verið sviptur embætti um
stundarsakir vegna gruns um
aðild að ráninu.
Nú þykir ljóst að Wojciech
Jaruzelski, Póllandsleiðtogi,
hefur síður en svo beðið hnekki
vegna ránsins, en um tíma leit
út fyrir að það gæti valdið djúpri
stjórnmálakreppu í Póllandi.
Jaruzelski þykir hafa haldið vel
á málum. Hann brást skjótt við,
gætti þess að ekki slægi í brýnu
milli stjórnvalda og kirkjunnar,
eins og mun hafa verið von
ræningjanna. Hann hefur gert
harðlínumönnum úr röðum
kommúnista ljóst að ránið
hafi verið í mikilli óþökk stjórn-
valda og nú náð sér í völd til að
hreinsa út æsinga- og harðlínu-
menn í lögreglunni og innanrík-
isráðuneytinu.
■ Ledi Walesa var meðal 250 þúsunda Pólveija sem fylgdu
andófsprestinum Jezy Popieluszko tíl grafar á laugardagjnn. Hann.
fluft stutt ávarp og sagði þar meðal annars að Samstaða myndi lifa
vegna þess að Popieluszko hefði úthellt blóði sínu fyrir hana.
Símamynd-POLFOTO
Stærsti sigur Jaruzelskis er menn sem nú verða sóttir tn
þó sá hversu fljótt honum tókst saka. Þetta rennir stoðum undir
að gera Pólverjum og alheimin- það hald Jaruzelskis að honum
um Ijóst að stjórn hans átti enga sé að takast að koma á pólitísk-
hlutdeild í ráninu heldur öfga- um stöðugleika í Póllandi.