NT - 07.11.1984, Page 1

NT - 07.11.1984, Page 1
Borgarfógetaembættið í Reykjavík: Stefnir í200% aukn- ingu gjaldþrotamála - miðað við síðasta ár sem þó var metár í þessu efni ■ Greiðslustaða fyrir- tækja og einstaklinga gagnvart hinu- opinbera er mun verri nú en verið hefur undanfarin ár, samkvæmt upplýsingum borgarfógetaembættisins í Reykjavík. „Okkur virðist sem það stefni í þreföldun gjaldþrota- mála hjá embættinu trá síðasta ári, sem þó var metár,“ sagði Markús Sigurbjörnsson, borgar- fógeti, í samtali við NT í gær. Sagði Markús að áberandi aukningar hefði þegar orðið vart í upp- hafi ársins og hefði sú aukning haldist jöfn og stígandi það sem af er árinu. Þá eru skuldir mun hærri en verið hefur undanfarin ár. „Oft er þó erfitt að meta raun- verulega skuldastöðu, því hjá fyrirtækjum er í mörgum tilfellum um að ræða skattaáætlanir sem komaíkjölfar vanrækslu á framtalsskyldu,“ sagði Marlcús''„en þetta eru svimandi upphæðir margar hverjar, og óhætt að fullyrða að tölurnar eru mun hærri en verið hefur.“ Samningur hinna glötuðu tækifæra VR ekki aðili að nýgerðum kjarasamningi VSÍ og ASi ■ Samningur VSÍ og ASÍ felur í sér 24 prósent launahækkanir á samningstímabilinu. Samningur- inn gildir til 31. des. 1985, en þó er hægt að segja upp launaliðum 1. september á næsta ári. Kaupmáttartrygging er ekki í samningnum og segja forystu- menn ASÍ að það sé helsti galli hans. Guðmundur Jónsson, for- maður Landssambands iðnverka- fólks sagði helstu kosti samnings- ins felast í afnámi tvöfalda launa- kerfisins og hárra launahækkana. Verslunarmannafélag Reykja- víkur var ekki aðili að samn- ingnum og sagði Magnús L. Sveinsson ástæðuna þá að for- maður Apótekarafélags Reykja- víkur hefði hringt í sig og gefið í skyn að hærri laun fyrir lyfjatækna væru möguleg. Vinnumálasamband samvinnu- félaganna undirritar nýjan kjara- samning við ASÍ kl. 13 í dag í höfuðstöðvum Alþýðusambands- ins, sem er í öllum atriðum eins og samkomulagið við VSÍ Sjá nánar fréttir og viðtöl bls. 2-3 ■ „Ætlar maðurinn virkilega að skrifa undir þetta,“ gæti Björn Þórhallsson verið að hugsa þar sem hann stendur fyrir aftan Ásmund Stefánsson, forseta ASÍ og Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóra VSÍ, með glóðvolgan samninginn í höndunum. NT mynd Ámi Bjama Skoðanakannanirnar voru óyggjandi: ■ Reagan forseti og kona hans Nancy kusu í gær í bænum Solvang skammt frá búgarði þeirra í Santa Barbara í Kaliforníufylki, þar sem Reagan var eitt sinn fyikisstjóri. símamynd-poLFOio Stórsigur forsetans! - fylgisskrið Mondales kom aldrei ■ Þegar NT fór í prentun í nótt var það orðið fullljóst að Ronald Reagan hefði verið endurkjörinn fertugasti forseti Bandaríkjanna og sæti í Hvíta húsinu næstu fjögur árin. Walter Mondale, forsetaframbjóðandi demókrata sem hefur háð eina umfangsmestu kosningabaráttu í sögu Bandaríkjanna, má bíta í það súra epli að það rann aldrei af stað fylgisskriðið sem hann hafði ætlað sér á kosninga- daginn. Samkvæmt tölum í nótt hafði Reagan hlotið 62 prósent atkvæða, en Mondale aðeins 38 prósent. Það er einhver alstærsti kosningasigur í sögu Bandaríkjanna. Um eittleytið í nótt full- yrtu fréttastofur og sjón- varpsstöðvar að Reagan hefði verið endurkjörinn. Þá átti hann sigurinn vísan í fylkjunum Indiana, Ken- tucky, Alabama, Virginíu, Georgíu, New Hampshire, Flórida, Mississippi, Suður- Karólínu, Vestur-Virginíu, Texas og Ohio. Mondale hafði gert sér miklar vonir um sigur í síðasttalda fylk- inu. Um 1.15 var svo fullyrt að Reagan hefði tryggt sér 80 kjörmenn af 534. Ekki varð þá séð að Mondale myndi ná að vinna sigur í neinu fylki nema í höfuðborginni Washington DC. Hún gefur aðeins af sér þrjá kjörmenn. í nótt var talið að um 95 milljónir Bandaríkjamanna myndu greiða atkvæði í kosningunum, en síðustu kjörstaðir á vesturströnd Bandaríkjanna lokuðu ekki fyrr en klukkan fimm í morgun. Þetta eru um 55 prósent atkvæðisbærra manna í Bandaríkjunum, sem eru alls um 174 milljón- ir. í kosningunum 1980 greiddu 52.6 prósent at- kvæði. Walter Mondale hafði gert sér vonir um að á síðustu stundu myndu atkvæði kvenkyns kjósenda og blökkumanna streyma til hans og tryggja honum sigur. Kannanir sjónvarpsstöðva á kjörstöðum í gær sýndu hins vegar að Reagan hafði ör- uggan meirihluta meðal bæði karla og kvenna, og í raun allra hópa kjósenda nema blökkumanna, gyðinga og hinna alfátækustu Banda- ríkjamanna. I kosningunum er einnig kosið um 33 af 100 meðlim- um öldungadeildar þingsins, alla meðlimi fulltrúadeildar- innar, 435 að tölu og fjölda ríkisstjóra víðs vegar um Bandaríkin. Úrslit í þeim kosningum lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun, en búist var við því að tíu sæta meirihluti repúblikana í öldungadeildinni muni minnka um tvö til þrjú sæti, en að valdahlutföllin í full- trúadeildinni muni ekki breytast að marki. Þar hafa demókratar meirihluta. Ronald Reagan er fyrsti forseti Bandaríkjanna sem nær endurkjöri síðan Ric- hard Nixon sigraði George MacGovern árið 1972. Síðan Dwight Eisenhower fór frá árið 1961 hefur enginn for- seti setið í tvö kjörtímabil. Reagan er nú 73 ára gamall, elsti forseti sem setið hefur í embætti í Bandaríkjunum og verður 77 ára þegar næst verður gengið til kosninga. Sjá nánar um forsetakosn- ingarnar í Bandaríkjunum á síðu 25.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.