NT


NT - 07.11.1984, Síða 2

NT - 07.11.1984, Síða 2
Miðvikudagur 7. nóvember 1984 2 Samningur ASÍogVSÍ ■ Engin kaupmáttartrygging er í samningi VSÍ og ASI sem undirritaður var í gær en upp- sagnarákvæði miðast við 1. sept. á næsta ári. Samningurinn er metinn á 24 prósent launahækkanir á samn- ingstímabilinu. Við undirritun hækka starfsheiti 9.-13. launa- flokks um einn launaflokk nema hvað 9. launaflokkur hækkar um tvo. Að auki hækka allir flokkar um einn launa- flokk. Eftir flokkahækkanir hækka öll laun um 9.0 prósent. Lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu verða eftir þessar breytingar 14.075 krónur, í 12. launaflokki. Þá eru persónuuppbætur í desember, 1.500 krónur, mars 1.000 krónur og maí 500 krónur, fyrir þá sem fá iágmarkslaun. Þá eru í samningnum flokka- hækkanir 1. janúar, 1. mars og 1. maí. Reiknitala bónusvinnu hækk- ar í 67 krónur við undirskrift og síðan stighækkandi í 74 krónur í maí. Samningurinn gildir til 31. desember 1985, en þó er í honum uppsagnarákvæði fyrir launaliði 1. september, nái aðil- ar ekki samkomulagi um fram- lengingu fyrir 25. júní 1985. Pá eru í samningum ákvæði um endurskoðun afkastahvetjandi launakerfa og að fylgst verði með þróun efnahagsmála. Samingurinn var undirritaður í húsi Vinnuveitendasambands íslands við Garðastræti eftir um 32 tíma samningaviðræður. Ólympíumótið í bridge: Mikil vandræði með passkerf ið Frá Guðmundi Hermannssyni, frétturit- ara NT í Seattle í Bandaríkjunum: ■ Þegar tveimur umferðum er ólokið í undankeppni Ól- ympíumótsins í bridge erum við íslendingar í 9. sæti í b-riðli aðeins fimm stigum frá sjötta sætinu. Ef við fáum ekki þeim mun verri útreið gegn Bandaríkjamönnum í næst síðustu umferðinni í dag ættum við a.m.k. að halda þessu sæti því þjóðirn- ar sem eru í námunda við okkur eiga eftir erfiða leiki. Við höfum verið að spila við sterkar þjóðir að undan- förnu og hefur gengið þokka- lega vel. í 21. umferð var spilað við Argentínu sem hefur lengst af leitt riðilinn. Það munaði minnstu að ekk- ert yrði af leiknum því þegar Guðlaugur og Örn settust niður í lokaða salnum lögðu andstæðingarnir fram nýtt kerfi, eins konar passkerfi, sem þeir höfðu reyndar feng- ið leyfi keppnisstjóra fyrir að nota. Þar sem Guðlaugur og Orn höfðu ekki undirbúið sig undir þetta kerfi neituðu þeir framanaf að hefja leik- inn. En eftir nokkurt strögl sættust þeir á að byrja eftir að hafa fengið 15 mínútna undirbúningstíma. Þessi töf tók á taugar Argentínu- mannanna þannig að þegar loksins var farið að spila sviku þeir lit í fyrsta spili og töpuðu unnu geimi. Guð- laugur og Örn áttu góðan leik. Við hitt borðið spiluðu Argentínumenn vel á móti Jóni og Símoni, og lyktaði leiknum með jafntefli, 15-15. Við Björn fengum síðan að glíma við pass-kerfi í næsta leik gegn Ástralíu. í fyrsta spili blöff-opnaði ann- ar Ástralíumaðurinn á passi sem lofaði opnun, og það varð til þess að við misstum af geimi. Við spiluðum síðan frekar illa, þó ekki væri það passkerfinu að kenna, og Guðlaugur og Örn komust hvergi áfram við hitt borðið. Tvö spil í lokin löguðu þó stöðuna aðeins. Geim sem við Björn fengum gefins og ævintýraleg slemma sem Björn fór í, og stóð fimm niður í upphafi, en eftir vit- laust útspil vann Björn hana með skemmtilegri þvingun. Leikurinn tapaðist 21-9. í 23. umferð áttum við Svía. Við Björn spiluðum við Sunderling og Flodqvet og höfðum öllum betur. Þetta var í heildina vel spilaður leikur og við uppskárum 19- 11, Norðmönnum til mikillar ánægju en þeir eiga í harðri baráttu um úrslitasætið við Svía og Pakistana Bermudamenn voru and- stæðingarnir í 24. umferð. Jón og Símon og Guðlaugur og Örn áttu ekki í miklum erfiðleikum með þann leik, og loksins kom að því að við fengum 25 stig. Leikurinn fór 25-3. Belgar voru á svipuðum slóðum og við í B-riðli og því var nauðsynlegt að vinna þá. Við Björn og Guðlaugur og Örn spiluðum við þá í 25. umferð. Hvort parið um sig átti tvö vond spil en gott blað að öðru leyti. Þessi vondu spil reyndust síðan vera þau sömu hjá báðum pörum þannig að tapið á þeim varð ekki svo mikið, þannig að leikurinn vannst 21-9. Eftir 25 umferðir eru Indónesar efstir í B-riðli með 485 stig, Bandaríkjamenn í öðru sæti með 470 stig, Ítalía í þriðja sæti með 467 stig Noregur í fjórða sæti með 449 stig. Pakistanar fylgja þeim fast á eftir með 442 stig. Þessar þjóðir spila saman í næst síðustu umferðinni í dag og er búist við harðri baráttu. Tíundi dagur undan- keppninnar er í dag og þá spila íslendingar við Banda- ríkin og Marokkó. Á morgun hefst úrslitakeppnin og einn- ig sérstök keppni íyrir þær þjóðir sem ekki komast í úrslit. „Skynsamleg asti kostur- inn, sem við é ittum völ á“ - segir Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ um nýja kjarasamninginn ■ „Ég held, að við stöndum seint upp frá samningi, sem við teljum að sé góður. Ef ég á að benda á það, sem er augljóslega stærsti ágallinn í þessum samningi, þá er það það, að ekki skuli vera í honum nein kauptryggingará- kvæði, og að opnun á samningnum skuli ekki vera möguleg fyrr en 1. september,“ sagði Ásmundur Stefáns- son forseti ASÍ eftir samningsundirritunina í gær. Hann sagði, að vegna þeirrar miklu óvissu, sem ríkti í gengis- þróun og verðlagsþróun á næstu mánuðum, væri jafn síðbúið uppsagnarákvæði mjög mikill ágalli. „En miðað við aðstæður, held ég að þetta sé skynsamleg- asti kosturinn, sem við áttum völ á.“ - Þið óttist sem sagt meiri gengisfellingu, en hingað til hef- ur verið gert ráð fyrir? „Við gerum okkur grein fyrir því, að í því efni eigum við undir stefnu stjórnvalda, og þar er út í óvissuna róið.“ Ásmundur sagði, að það sem einkenndi samninginn væri grundvallaráhersla þeirra fé- laga, sem eru með stærstan fjölda lágtekjufólks innan sinna raða, að komast frá tvöfalda launakerfinu, sem væri afleiðing þeirrar tekjutryggingar, sem samið hefði verið um í undan- gengnum samningum. Um skattalækkunarleiðina sagði Ásmundur, að margir inn- an ASÍ hefðu haft áhuga á henni og margir hefðu bundið vonir við það, að ríkisstjórnin hefði áhuga á því að reyna að ■ Ásmundur Stefánsson, for- seti ASÍ. koma til móts við launþega með því að lækka tekjuskatt og útsvar. „Það kom hins vegar í ljós, að ríkisstjórnin hafði ekki þann áhuga. í samskiptunum við BSRB voru aldrei lögð fram tilboð um skattalækkanir af neinu tagi, aðrar en þær, sem mætt yrði með nýjum sköttum." - Telurðu, að þessir samningar muni hafa aukna verðbólgu í för með sér? „Þaðeralvegljóst, aðþegar stórar prósentuhækkanir verða, þá eykur það þrýstinginn á verðlagið. Það er hins vegar ekki eitt sér ákvarðandi. Það fer eftir því hvernig verður brugðist við þeim kauphækkunum úti í þjóðfélaginu, hvað gerist með verðlagið. Þar eigum við mjög mikið undir því hvernig stjórn- völd bregðast við,“ sagði Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ. Af nám tvöfalda kerf is- ins merkasti áfanginn - segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins ■ „Ég er ekkert yfír mig hamingjusamur, en samningur- inn er að ýmsu leyti góður. Hinu býst ég við, að meira verði deilt um hvort hann sé á réttum leiðum. Hann er ákaflega opinn. Verkamannasambandið og iðnverkafólk höfðu upphaflega í huga öðru vísi samning, sem byggðist kannski á minni kauphækkunum en þvi öflugri trygging arákvæðum. Jafnframt vorum við ákaflega hlynntir skatta lækkunum, þó að þær væru vandasamar,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasam- bandsins eftir að samningurinn við VSI var undirritaður í gær. Guðmundur sagði, að merk- miður. En hins vegar voru ýmis asti áfanginn í þessum samningi utanaðkomandi öfl, sem gripu væri afnám tvöfalda kerfisins inn í þróunina. Sjálfsagt má svokallaðaásamningstímanum, mörgum um kenna, ríkisstjórn- það hefði verið orðið óþolandi inni, vinnuveitendumogjafnvel fyrir Verkamannasambandið. okkur sjálfum fyrir að vera ekki - Þykir þér miður, að ekki nógu harðir. Hins vegar var tókst að fara skattalækkunar- þettaákaflegaerfittundirlokin, leiðina að þessu sinni? þegar BSRB var búið að standa „Já, mér fannst það mjög í hörðu verkfalli og stefndi ■ Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Verkamanna- sambands íslands. greinilega á allt annað. Ég efast ekkert um, og veit reyndar, að almennur launamaður hefur fulla þörf fvrir þessar launa- hækkanir. Otti minn er hins vegar sá, að þetta renni út.“ - Hver var erfiðasti þrösk- uldurinn í þessari samninga- gerð? „Það var ákaflega erfitt að finna leiðir út úr tvöfalda kerf- inu, og þegar svona mörg félög og stór samtök eiga í hlut.þá er gífurleg vinna í svona. Eg er ekki með nein illindi út í félaga mína í Alþýðusambandinu eða BSRB, en ég er þeirrar skoðun- ar, að affarasælast hefði verið að Verkamannasambandið og Landssamband iðnverkafólks hefðu náð samningum í lok september," sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.