NT - 07.11.1984, Blaðsíða 3

NT - 07.11.1984, Blaðsíða 3
Samningur hinna glötudu tækifæra - og ávísun á verðbólgu, segir Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri VSÍ_ ■ „Þetta eru verðbólgusamningar. Það segir sig sjálft að það skrifar enginn af mikilli ánægju undir launasamning upp á 24 prósent á sama degi og verið er að kynna fyrir þjóðinni að fiskafli á komandi ári geti orðið aliveruiega minni en á þessu ári, sem ekki þykir glæsilegt,“ sagði Magnús Gunnarsson, ffamkvæmdastjórí Vinnuveitenda- sambands íslands er 32 stunda samningafundi lauk í gærkvöldi með undirrítun samnings VSÍ og ASÍ. Magnús sagði einnig að ljóst væri að þessi samningur væri verulega hærri en VSÍ hefði stefnt að: „Við höfum unnið að því í allt að tvo mánuði að gera allt aðra samninga, en þegar ljóst varð að BSRB var að semja á þessum nótum töldu viðsemjendur okkar ekki raun- hæft að halda þeirri leið áfram.“ Magnús sagði í viðtali við NT að hann teldi að mögulegt hefði verið að tryggja kaupmátt og jafnframt að viðhalda jafnvægi í efnahagskerfi landsins, „það voru leiðir sem reyndar var búið að reikna út sem hefðu, að vísu þýtt allverulegar skattalækkanir og mun lægri prósentuhækkanir launa, en hefðu einnig þýtt að verðbólga hefði verið undir 10 prósent.“ Hann sagði einnig að samn- ingarnir þýddu allverulega kostnaðaraukningu fyrir fisk- vinnsluna, en að útgjaldaaukn- ingin dreifðist á tímabilið frá í dag fram að 1. maí. „En það er enginn vafi á að atvinnugrein sem á í jafn miklum erfiðleikum og aiþjóð veit að fiskvinnan á, á erfitt með að taka þessar kostn- aðaraukningu á sig. Aðspurður um hvort samn- ingurinn kallaði á gengisfellingu sagði Magnús að það sé nokkuð ljóst að ef kostnaðaraukningin verði það mikil að fyrirtækin geti ekki borið hana þá standi valið milli þess að hreinlega loka fyrirtækjunum eða að fundnar verði nýjar leiðir til að auka tekjur þeirra. „Hingað til hafa menn ekki kunnað nein galdraráð.“ „Þessir samningar eru samn- ingar hinna glötuðu tækifæra. Viðsemjendur okkar voru of seinir að átta sig á skattalækkun- arleiðinni og þegar þeir áttuðu sig var orðið of áliðið til að hægt væri að ganga frá þeim málum. Það var ljóst að þegar við vorum að skoða þetta þá voru þrjár ■ Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ leiðir. Ein var að setja allt í hnút með verkföllum og neita að ræðast við. Önnur var að fara þessa verðbólguleið sem allir þekkja. Þriðja leiðin var að finna einhvern flöt á þessum kaupmáttarauka með skatta- lækkunarleiðinni. Þetta var val milli vandamála." Magnús sagði að lokum að þessir samningar hefðu verið erfiðir og hefðu staðið lengi en „að vera búnir að ganga frá þessu án verkfalla. Það er ekki lítils virði.“ Miðvikudagur 7. nóvember 1984 VR samdi ekki: „Rugl í Magnúsi - segir formaður Apótekarafélags Reykja- víkur en Magnús L. Sveinsson segir apótekara hafa boðið meira en í samningnum felst ■ Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmanna- félags íslands, skrifaði ekki undir samning VSÍ og ASÍ í gær og sagði ástæðuna vera þá að formaður Apótekara- félags Reykjavíkur hefði hringt í sig og gefið í skyn að apótekarar væru reiðubúnir til að semja um hærri laun fyrir lyfjatækna. „Ég ætla ekki að láta þá taka mig í landhelgi með lokaðan samning, ef þeim er alvara í að vilja semja um eitthvað meira," sagði Magnús NT í gær og sagði að hann hefði óskað eftir form- legum viðræðum við VSÍ og apótekara. „Ég hringdi í Magnús L. Sveinsson og hélt að það væri hægt að tala við hann eins og normal mann,“ sagði Werner Rasmusson, formað- ur Apótekarafélags Reykja- víkur, aðspurður um ummæli Magnúsar. Werner sagði að lyfja- tæknar hefðu talað við sig og óskað eftir viðræðum, en hann hefði aldrei samþykkt slíkt enda þyrfti samþykki stjórnar félagsins til þess. „Ég hef hvorki boðið eitt né neitt og við höfum ekki einu sinni samþykkt að eiga viðræður við lyfjatækna. Þetta er rugl í Magnúsi," sagði Werner að lokum. ■ „Ég hélt að það væri hægt að tala við Magnús eins og normal mann.“ NT-mynd: Árni Bjarna BRSB: Sundruð andstaða gegn samningnum ■ Segjum nei í atkvæða- skila auðu í atkvæðagreiðslunni hússins segir meðal annars að greiðslunni er boðskapur nýs en sá hópur sem nú er kominn kjarabótin sem samið hafi verið dreifibréfs sem hópur BSRB af stað telur slíkt yfirlýsingu um Um standi höllum fæti og að manna dreifir þessa dagana. að fólk sé sátt við samninginn. bitur reynsla kenni að við verð- Fyrir skemmstu fór af stað bréf I dreifibréfinu sem varð til á um rænd henni á fáum vikum. þar sem fólk var hvatt til þess að fundi í kaffistofu Landsíma- HJA AGLI Toyota Corolla 76 Chev. Van 77 Hringið og leitið upplýsinga. Eru bestu verðin og kjörin i ; Fíat 127 78 ÍMazda 626 ‘80 1929 notodir bílar í eigu umbodssins EGILL. VILHJALMSSON HF Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Simi 79944— 79775 1984

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.