NT - 07.11.1984, Blaðsíða 20

NT - 07.11.1984, Blaðsíða 20
■ Barbara Stanwyck leikur Mary Carson, hina ríku og ráðríku ekkju á DROGHEDA. Hér er hún að fara í útreiðartúr með prestinum Ralph, sem Richard Chamberlain leikur. Sjónvarp kl. 21.10: „Þyrnifuglarnir" ^ ■ ÞriðjiþátturPyrnifuglanna verður sýndur í kvöld í sjón- varpinu kl. 21.10, í öðrum þætti, sem sýndur var sl. miðvikudagskvöld, var ríkja ekkjan, Mary Carson, farin að herða tökin á prestin- um, föður Ralph. Hún kostar Maggie, bróðurdóttur sína, í klausturskóla og þar verður hún skjólstæðingur föður Ralphs. Vinfengi prestsins við telp- una verður til þess, að Mary Carson verður afprýðisöm, og dregur því skólastyrkinn til baka og vill að Maggie fari heim að hjálpa til við að gæta litla bróður síns. Hann varð ekki langlífur, því hann dó skömmu síðar. Töluvert er farið að bóla á ástríðuhita í þáttunum, en enn sem komið er, er það aðallega í fari Mary Carson, sem Bar- bara Stanwyck leikur. En hún á nú ekki langt ólifað. Nafn þáttanna er dregið af keltneskri þjóðsögu, sem minnir á sögu H.C. Andersen af næturgalanum. Skv. keltn- esku sögunni er til fugl, sem eyðir ævi sinni í leit að þyrni- tré. Þegar tréð er fundið, sting- ur fuglinn sig viljandi á skarp- asta þyrninum og á banastund syngur hann fallegan söng, ifullan af þjáningum, þann eina söng, sem hann syngur á allri sinni ævi. Einhverja líkingu með lífi þessa fugís finnur höfundur sögunnar um Þyrnifuglana, Colleen McCullough, í ör- lögum Clerary-fjölskyldunnar í Astralíu í gegnum nokkra ættliði, hún verður að sætta sig við óumflýjanleg örlög, bæði fögur og sorgleg. „Otroðnar slóðir - kristiieg popptónlist ■ Ótroðnar slóðir - kristileg ; popptónlist er á dagskrá kl. 15-16 á Rás2 í dag. Stjórnend- ur þáttarins eru þeir Andri Már Ingólfsson og Halldór Lárusson. Okkur langaði til að fræðast svolítið um þessa tegund tón- listar og hringdum því í annan stjórnandann, Andra Má, og honum sagðist frá á þessa leið: - Við byrjuðum með staka þætti um þetta efni í apríl sl. en frá því í júní höfum við verið með „kristilegan popp- tónlistarþátt" hálfsmánaðar- lega. Við ætlum að halda okkar striki og kynna bæði gamalt efni og líka splunkunýtt. Þaö, sem við köllum kristi- lega popptónlist, byggist mest á textunum, því að músíkin sjálf er venjuleg popptónlist af öllum tegundum, svo sem rokk, kántrí, nýbylgjurokk, bandarísk gospeltónlist o.s.frv. Ef svo vel viðrar hrær- um við út í þetta örlítilli sveita- rómantík. í þættinum í dag koma undir nálina bæði gömul og ný nöfn úr poppinu, en allir þessir tónlistarmenn eiga það sam- eiginlegt að trúin er stórt atriði í lífi þeirra. Það hefur orðið beinlínis sprenging í útgáfu þessarar tónlistar. Mest er hún þó áber- andi í Bandaríkjunum, ætli hún verði ekki farin að fá sömu spilun hér á landi, og þar, eftir svona 2 ár. Ég held að við séum að fara ótroðnar slóðir í kynningu þessarar tónlistar hér á landi (og drögum nafn þáttarins af því), því fólk virðist almennt hafa ranga hugmynd um hvers konar tónlist þetta er. Og mér finnst svipaður misskilningur oft eiga sér stað hjá mörgum um kristindómiri líka. Við spilum nú lög með Al Green, Cliff Richard, Steve Taylor, Amy Grant og Donnu Summer, svo dæmi séu tekin, og svona til upplýsingar fyrir hlustendur ætlum við að reyna að komast að því hvar hægt er að komast yfir þessa tónlist hér á landi. Halldór Lárusson Andri Már Ingólfsson Útvarpssaga barnanna: „Ævintýri úr Eyjum“ - eftir Jón Sveinsson ■ í kvöld kl. 20 hefst í útvarpi lestur sögunnar Ævin- týri úr Eyjum eftir Jón Sveins- son, Nonna kæran vin margra kynslóða, ekki aðeins ís- lenskra barna heldur hefur hún líka notið vinsælda meðal út- ,Iendinga um langt skeið. Les- ari er Gunnar Stefánsson, dag- skrárstjóri. Gunnar fræðir okkur á því, að Jón Sveinsson, Nonni, sé frægastur allra íslenskra barna- bókahöfunda. Bækur hans hafa verið þýddar á um 30 mál, en hann skrifaði þær flestallar á þýsku. Frægustu barnabækur Nonna fjalla allar um bernsku- og æskuár hans sjálfs á íslandi og í Danmörku, og ferðina til Danmerkur. Hann fór til útlanda 12 ára gamall og var þá fyrst í Danmörku og fór svo síðan til náms í Frakklandi á vegum kaþólsku kirkjunnar. Upp úr því var hann kaþólskur prestur. Sagan Ævintýri í Eyjum ger- ist í Danmörku og fjallar um ferðalag, sem Nonni fór í með vini sínum um Sjáland og Fjón, og þau ævintýri, sem þeir lentu í á þeirri ferð. Eyjarnar, sem sagan er kennd við, eru sem sagt danskar. Jón Sveinsson var fæddur árið 1857 á Möðruvöllum í Hörgárdal og dó árið 1944 í Köln í Þýskalandi. Miðvikudagur 7. nóvember 1984 20 ■ Jón Sveinsson hefur skemmt mörgum kynslóðum íslenskra og útlendra barna með frásögnum af bernsku- og æskuárum sínum á íslandi og í Danmörku. Matar- og næringarþættir hefja göngu sína: Fiskur er hollur og góður matur ■ í kvöld kl. 20.40 verður á dagskrá sjónvarps fyrsti þátt- urinn af fimm, sem það hefur látið gera um næringu og hollt mataræði. í hverjum flokki verður fjallað um einn flokk fæðu, og í kvöld er það fiskur, sem orðið hefur fyrir valinu. í þáttunum er blandað sam- an fræðslu um hollustu og næringargildi fæðunnar og leiðbeint um matreiðslu. Hér fylgja með sýnishorn af ein- földum og hollum réttum, sem kynntir verða í kvöld. Gestir í þessum þætti verða Guðmundur Þorgeirsson lækn- ir og Alda Möller, dósent við Háskóla íslands. Umsjónar- maður þáttanna er Laufey Steingrímsdóttir næringar- fræðingur. Fitkur ClóAadur fiskur I. fiskflak (5(K) g) ýsa cða smálúða 1/4 Isk. salt pipar - örlílið 1-2 msk. bnclt smjör cða mal- arolía 2 msk. brauðmylsna Skraut: sítrónubálar. slcin- sclja 1. Lcggið roðdregin og bein- hrcinsuð flök í smurl eldfast möt (cf smálúðuflök cru notuð má hafa roðið og láta það snúa upp. 2. Penslið fiskinn mcð olíu cða bra-ddu smjöri ogslráið salli. pipar og brauðmylsnu yfir. 3. Cilöðið í miðjum ofni í 10-15 mín. 4. Lálið sílrónubáta og stcin- scljugfcinar yfir. Bcrið soðnar kartöflur. hrált salal og grófl. ósmurt brauð mcð. Karfaflök með fvllingu 2 frckar slór karfaflök roð- og bcinhreinsuð 2. msk. sítrónusafi ,1/2 Isk. salt Ipipar á hnífsoddi 11/2 laukur. saxaður 1-2 tömatar í snciðum 1/2 græn paprika í litlum bitum rósmarín ostsnciðar (267o t.d. óðalsost- ur) matarolía til að pensla mcð I. Lcggið annað karfaflakið í smurt, cldfast mót. 2. Stráið salti og pipar á bæði I flökin og hellið sítrónusaf- I anum yfir. 3. Látiðlauk.tómatsnciðarog paprikubita yfir. stráið rósmarín yfir og hyljið fyll- inguna með ostsneiðum. 4. Leggið hitt flakið ofan á. pcnslið með matarolíu. 15. Látið mótið neðarlcga í 2(XPC hcitan ofn og bakið i um 30 mín. |6. Lcggið ostsneiðar yfir og I bakið áfram í 5-10 mín. Fljótlegur hádegisverður Síld úr cdikslegi harðsoöin cgg sýrðar rauðrófur bananar soðnar kartöflur flatbrauð cða rúgbrauð Sjónvarp kl. 20.40: Útvarp kl. 20. Miðvikudagur 7. nóvember 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir 10.10 Veöurfregnir. For- ustugr. dagbl (útdr ). 10.45 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja 11.15 Úr ævi og starfi íslenskra kvenna Umsjón: Björg Einarsdótt- ir. 11.45 Tónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Gunn- vör Braga. 13.30 Islensk dægurlög. 14.00„Á Íslandsmiðum" eftir Pierre Loti Séra Páll Pálsson á bergþórs- hvoli les þýöingu Páls Sveinssonar (10). 14.30 Spænsk rapsódia eftir Maur- ice Ravel Sinfóniuhljómsveitin i París leikur: Herbert von Karajan stj. 14.45 Popphólfið - Jón Gústafsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Sfðdegistónleikar 17.10 Siðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Siguröur G. Tóm- asson flytur. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón Sveinsson 20.20 Mál tit umræðu 21.00.Frá tónlistarhátíðinni í Berg- en 21.30 Utvarpssagan: „Hel“ eftir Sigurð Nordal Árni Blandon les (2). 22.00 „Morgundraumur", Ijóð eftir Gustaf Fröding 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Skilyrði fyrir friði Hannes H. Gissurarson flytur fimmta og siö- asta erindi sitt. 23.15 íslensk tónlist Miðvikudagur 7. nóvember 10:00-12:00 Morgunþáttur. Róleg tonlist. Viðtal. Gestaplötusnúöur. Ný og gömull tónlist. Stjórnendur: Kristján Sigurjónsson og Jón Ólafsson. 14:00-15:00 Út um hvippinn og hvappinn. Létt lög leikin úr ýmsum áttum. Stjórnandi: Inger Anna Aikman. 15:00-16:00 Ótroðnar slóðir. Kristi- leg popptónlist. Stjórnendur: Andri Már Ingólfsson og Halldór Lárus- son. 16:00-17:00 Náiaraugað. Djassað rokk. Stjórnandi: Jónatan Garöars- son. 17:00-18:00 Tapaðfundið. Sögu- korn um soul tónlist. Stjórnandi: Gunnlaugur Sigfússon. Miðvikudagur 7. nóvember 19.25 Aftanstund. Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni sem verö- ur á þessa leiö: Söguhornið - Hnyklarnir, ævintýri. Sögumaöur Þorbjörg Kolbrún Ásgrímsdóttir. Myndir geröi Herdis Hubner. Litli sjóræninginn: þýsk brúöumynd. Þýöandi Saldme Kristinsdóttir. Tobba: þýskur brúðumyndaflokk- ur. Þýöandi Kristrún Þórðardóttir. Sögumaöur Þuríður Magnúsdórri. Högni Hinriks: bresk teiknimynd. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Matur og næring. 1. Formáli og fiskur. Fyrsti þátturinn af fimm sem Sjónvarpið hefur látiö gera um næringu og hollt mataræöi. Fléttaö er saman umræöu og fræöslu um næringarefni fæöunn- ar og matreiðslu skemmtilegra og hollra rétta. I hverjum þætti er fjallað um einn flokk fæöu og i fyrsta þætti verður fiskur fyrir val- inu. Gestir i þessum þætli veröa Guðmundur Þorgeirsson læknir og Alda Möller, dósent viö Háskóla íslands. Umsjónarmaður Laufey Steingrimsdóttir næringarfræö- ingur. Upptöku stjórnaöi Kristín Pálsdóttir. 21.10 Þyrnifuglarnir. Þriðji þáttur. Framhaldsmyndaflokkur eftir sam- nefndri skáldsögu Colleen McCul- loughs. Aöalhlutverk: Richard Chamberlain, Rachel Ward og Barbara Stanwyck. Efni síðasta þáttar: Mary Carson kostar Meggie i klausturskóla þar sem faöir Ralph heldur verndarhendi yfir henni. Fee er barnshafandi og Frank hellir sér yfir Paddy, sem Ijóstrar þvi upp aö hann sé óskilgetinn. Frank ákveður þá aö fara að heiman. Þýðandi Óskar Ingimars- son. 22.00 Kastljós. Þáttur um erlend málefni. Meöal annars veröur fjall- aö um forsetakosningar í Banda- ríkjunum og úrslit þeirra. Umsjón- armaður Einar Sigurösson. 22.35 Fréttir í dagskrárlok.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.