NT - 07.11.1984, Blaðsíða 24
Miðvlkudagur 7. nóvmnber 1984 24
Pólland:
Þrír öryggislögreglumenn
ákærðir fyrir prestsmorðið
Varsjá-Reuter
■ Þrír pólskir öryggislögreglu-
menn voru í gær ákærðir form-
lega fyrír að hafa myrt pólska
prestínn Jerzy Popieluszko. Þeir
höfðu áður veríð ákærðir fyrír
að hafa rænt honum. Mennirnir
heita Grzegorz Piotrowski
kapteinn, Leszek Pekala liðs-
foringi og Waldemar Chmiel-
ewski liðsforingi. Þeir munu
hafa játað morðið á sig.
Czeslaw Kiszczak, innanrík-
isráðherra, lýsti ráninu á Popiel-
uszko fyrir innanríkisnefnd
'pólska þingsins í gær. Hann sagði,
að dánarorsök prestsins væri
ekki enn kunn og yrði það ekki
fyrr en eftir frekari úrvinnslu á
niðurstöðum krufningarinnar.
Innanríkisráðherrann endur-
tók þá skoðun stjórnvalda að
morðið á prestinum hefði verið
ögrunaraðgerð við stjórn Jaru-
zelskis og sagði að stjórnin
myndi ekki hika við að opinbera
óþægilegar og sársaukafullar
staðreyndir.
Heimildir frá krufningunni
segja að Popieluszko hafi verið
barinn, bundinn og keflaður og
að vatn hafi fundist í lungum
hans. Þetta bendir til þess að
hann hafi verið á lífi þegar
honum var hent út í lón við ána
Vislu norður af Varsjá.
Kiszczak sagði hins vegar að
ræningjarnir héldu því fram að
ekkert lífsmark hefði verið með
Popieluszko þegar honum var
hent út í lónið.
Rannsókn hefur leitt í ljós að
mikil tengsl eru á milli morðsins og
öryggis- og leyniþjónustusveita
sem starfa á vegum innanríkis-
ráðuneytisins. Háttsettur yfir-
maður þar hefur verið ásakaður
fyrir að hafa rétt morðingjunum
hjálparhönd. Innsta ráð komm-
únistaflokksins, Politburo, hef-
ur nú ákveðið að Wojciech
Jaruzelski hafi á næstunni yfir-
umsjón með þeim hluta af
starfsliði innanríkisráðuneytis-
ins sem fer með öryggismál og
er jafnvel talað um að yfirmaður
þeirrar deildar, miðnefndar-
maðurinn Miroslaw Milewski,
verði látinn fara frá vegna
morðsins.
Búist er við því að Jósef
Glemp, kardínáli og höfuð
pólsku kirkjunnar, haldi innan
skamms til Rómar til að ræða
við Jóhann Pál páfa um morðið
á Popieluszko og þær afleiðing-
ar sem það gæti haft fyrir sam-
skipti ríkis og kirkju í Póllandi.
Indland:
Sikkar
halda
hátíð
- ný morðalda
í uppsiglingu?
Nýja Delhi-Rcuter
■ Indversk stjórnvöld
hafa nú talsverðar áhyggj-
ur af því að ný alda morða
og gripdeilda geti riðið
yfir landið þegar sikkar
halda trúarhátíð á fimmtu-
daginn. Hún er haldin
vegna afmælis Nanaks,
eins helsta læriföðurs
sikka. Æðstu prestar
sikka í hinni helgu borg
Amritsar hafa beðið sikka
að hafa hægt um sig á
hátíðinni.
I tilefni af hátíðinni
verður öryggisgæsla hert
við helga staði sikka og
hof þeirra, en margir sikk-
ar hafa leitað skjóls og
verndar hersins þar.
Áætlað er að nú séu um
30 þúsund sikkar í sér-
stökum búðum undir her-
vernd. Þetta er fólk sem
hefur beðið tjón vegna
ofbeldisöldunnar og segist
Rajiv Gandhi, nýji for-
sætisráðherrann, ætla að
greiða að fullu tjónið auk
þess sem þeir sem misst
hafa ástvini sína og ætt-
ingja fá skaðabóta-
greiðslur frá ríkisstjórn-
inni.
Heldur var kyrrlátt á
Indlandi í gær, nema hvað
að frá Punjabfylki bárust
þær fréttir að öfgamenn
hefðu skotið tvo farþega
til bana í strætisvagni.
Ekki var ljóst hverrar trú-
ar hinir myrtu voru, en í
Punjab eru sikkar í meiri-
hluta.
Að sögn indversku frétta-
stofunnar þótti tvísýnt um
líf annars morðingja
Indiru Gandhi í gær, en
hann var særður alvarlega
eftir skotárásina. Hann er
nú í strangri öryggisgæslu
á spítala í Nýju-Delhi.
Ekki hefur enn verið upp-
lýst hvort yfirvöld hafi náð
að yfirheyra hann að
nokkru marki.
Ný hárareiðsla á þinginu
■ Að gamalli hefð var breska konungsfjölskyld-
an viðstödd þegar Elísabet Bretadrottning hélt
sína árlegu ræðu í breska þinginu í gær. í ræðunni
er að venju reifuð staða mála í breska þjóðfélag-
inu hverju sinni, en síðan hefjast umræður sem
virtust í gær ætla að verða langvinnar og harðar.
Neil Kinnock, leiðtogi Verkamannaflokksins,
réðist eftir ræðuna harkalega á stjórn Margaret
Thatcher vegna sívaxandi atvinnuleysis, en Thatc-
her svaraði og kenndi óhóflega háum launum um
atvinnuleysið. Athygli ljósmyndara í breska þing-
inu í gær beindist náttúrlega fyrst og fremst að
Díönu prinsessu sem var þar ásamt manni sínum,
Karli prins - og auðvitað með nýja hárgreiðslu!
Parísar-Kanar kjósa
■ Fastagestir á „Harry’s Bar“, einni fastaknæpu Bandarfkja-
manna sem búsettir eru í París, héldu í gær sína eigin kosningu á
milli forsetaframbjóðendanna Mondales og Reagans. Þessi siður
hefur verið haldinn í heiðri á Harry’s Bar allar götur síðan 1924 og
segja fastagestirnir að úrslitin hafi aðeins einu sinni stangast á við
úrslitin í forsetakosningunum sjálfum. Þá spáðu drykkjufélagarnir
á Harry’s Bar Gerald Ford sigri yfir Jimmy Carter í kosningunum
1974. Iþetta sinn voru engin tvímæli um úrslitin - Reagan fór með
sigur af hólmi, fékk 376 atkvæði gegn 234 atkvæðum Mondales.
Símamynd-POLFOTO
Kreml:
Gorbachev enn
í öðru sæti
Moskva-Keuter
■ Árlega eru í Kreml hengdar
upp risamyndir af tólf meðlim-
um Politburo, pólitískri nefnd
miðstjórnar sovéska kommún-
istaflokksins og hinni eiginlegu
ríkisstjórn Sovétríkjanna, í til-
efni af afmæli byltingarinnar
7. nóvember. Reyndar eru
myndir af tólfmenningunum
hengdar upp víðar, en Sovét-
skoðendur og sendimenn hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
uppröðun myndanna á aðalsíma-
húsinu við Kreml segi mikla
sögu um ris og fall tólfmenning-
anna innan stjórnkerfisins.
Annars staðar í Moskvu eru
leiðtogamyndirnar hengdar upp
í stafrófsröð.
Á veggnum hangir nú Kon-
stantín Chernenko fyrstur, eins
og gefur að skilja, en næstur
honum kemur þetta árið Mikha-
il Gorbachev, Gorbachev hefur
lítið verið í sviðsljósinu upp á
síðkastið og hafa margir viljað
ráða af því að hann ætti erfitt
uppdráttar um þessar mundir.
En ef ráða má af myndunum er
Gorbachev enn líklegasti eftir-
maður Chernenkos.
Argentína:
Ráðherra spyrst
fyrir um örlög
sænskrar stúlku
Buenos Aires-Reuter
■ Pierre Schori, varautan-
ríkisráðherra Svíþjóðar, er
nú á ferðalagi í Argentínu
og hefur haldið þar uppi
fyrirspurnum um afdrif
Dagmar Hagelin, 17 ára gam-
allar sænskrar stúlku, sem
hvarf í Argentínu árið 1977.
Mannréttindahópar hafa
ásakað Alfredo Astiz, for-
ingja í sjóhernum, fyrir að
bera ábyrgð á hvarfi stúlk-
unnar og nú er málið í
höndum herdómstóls.
Faðir Hagelin hefur kvart-
að yfir því við yfirvöld
hversu seint rannsóknin
gangi.
Astiz þessi var foringi í
argentínska hernum í Falk-
landseyjastríðinu og var
handtekinn þar af breskum
hersveitum og fluttur til
Bretlands. Þá fóru sænsk og
frönsk yfirvöld þess á leit að
þau fengju að spyrja Astiz
um þátt hans í ofbeldisað-
gerðum herforingjastjórnar-
innar, sem sat frá 1976-83.
Astiz var þá skilað aftur til
Argentínu.
Frakkar eiga sitthvað van-
talað við Astiz vegna hvarfs
tveggja franskra nunna og
tíu Argentínumanna úr
kirkju einni árið 1977.
Eiturlyfja-
faraldur í
V-Þýskalandi
Wiesbaden-Reuter.
■ Eiturlyfjabrot hafa
aldrei verið fleiri í Vestur-
Þýskalandi en á fyrri helm-
ing þessa árs. Háttsettir
menn í vestur-þýska
innanríkisráðuneytinu
segja að stöðugt meira
magn af kókaíni berist nú
til Evrópu frá Suður-Am-
eríku.
Ritari innanríkisráðu-
neytisins, Siegfried Frö-
hlich hefur hvatt til sam-
einaðs átaks í Evrópu í
baráttu við aukinn eitur-
lyfjavanda í álfunni. Á
ráðstefnu sem nú stendur
yfir um eiturlyfjavandann,
skýrði Fröhlich m.a. frá
því að á fyrri helmingi
þessa árs hefði eiturlyfja-
brotum í Vestur-Þýska-
landi fjölgað um tíu
prósent.
Hann sagði að fyrstu
níu mánuði þessa árs hefði
lögreglan gert 116 prósent
meira magn af kókaíni
upptækt en á sama tíma á
seinasta ári. Þessi aukning
stafaði m.a. af aukinni
framleiðslu í Suður-Am-
eríku en einnig af því að
markaðurinn í Norður-
Ameríku væri nú tiltölu-
lega mettaður og því væri
hætta á því að kókaín
flæddi yfir Evrópu á næst-
unni.
Á síðasta ári skráði
vestur-þýska lögreglan
næstum því 64.000 eitur-
lyfjabrot og 472 manns
dóu vegna notkunar eitur-
lyfja.
Helsti keppinautur Gorbac-
hevs, Grigory Romanov, hefur
hins vegar verið mikið í fjöl-
miðlum upp á síðkastið og hefur
það þótt benda til þess að
stjarna hans færi hækkandi.
Samkvæmt myndaröðinni í
Kreml virðist hann samt vera
nokkuð aftarlega á merinni.
Hann kemur þar á eftir Gorbac-
hev og hinum gamalgrónu leið-
togum í Kreml, Ustinov varn-
armálaráðherra, Gromyko
utanríkisráðherra og Tikhonov
forsætisráðherra.
Frekari vísbendingar um póli-
tíska stöðu Kremlherra má svo
fá í dag þegar þeir raða sér upp
á grafhýsi Leníns við Rauða
torgið til að fylgjast með hinni
árlegu hersýningu byltingar-
afmælisins.
Sérfræðingar í Sovétmálefn-
um fylgjast með Gorbachev,
sem er ungur á Kremlmæli-
kvarða aðeins 53 ára, með
miklum áhuga. Þeir sjá von um
að hann gæti orðið mun sveigj-
anlegri í samskiptunum við
vestrið en Chernenko og að
hann fýsi að létta á sovéskum
efnahag með því að draga úr
útgjöldum til hernaðarmála.
Keppinauturinn Romanov,
sem er 61 árs gamall, þykir hins
vegar harðlínumaður sem vart
myndi breyta frá núverandi
stefnu.