NT


NT - 25.11.1984, Page 2

NT - 25.11.1984, Page 2
Sunnudagur 25. nóvember 1984 2 HELCiiAR- BLAD Umsjónarmenn Helgarbiaðs: Atli Magnússon Inga Dóra Björnsdóttir Jón Ársæll Þórðarson GAMALT Forsíðumynd: ■ Jóhannes Kr. Jóhannesson var einn þeirra sem áður settu svip á samtíðina. Póstkortin hans áttu sér engan sinn líka. Sjá síður 8-9. ■ Jón E. og brúðurnar hans. Við litum inn á sýningu Jóns í Norræna húsinu, en henni lýkur nú um helgina. Sjá síður 10-11. ■ íslenskir áfengisflöskumiðar. NT rekur sögu þessara vel þekktu álím- inga. Sjá bls. 12-13. ■ öll dreymdi okkur um að verða eitthvað sérstakt, þegar við yrðum stór. í dag er rætt við nokkra vel valda íslendinga um þennan óska- draum þeirra. Sjá síður 6-7., Hallir,elddrekar og töframenn Er ki Sk0r,ir ævin,.Vraverurnar í ),Orænfjoðru„gi“. Eldspúandi drekar koma fram, styttur tala og hreyfast <*g galdramenn töfra fram heilu hallimar Ævintýrin gerast enn í „Grænfjöðrungi", sem Nemendaleikhúsið sýnir áfram nú um helgina ,,Við vildum spreyta okkur • u hnr Tnlinius og Alda Árnadóttir. á ekta grímuleik,“ segja þau Þor Tul.n.us og ■ Þegar Ncmendaleikhúsið fer á stjá með sýningu leggja allir leikhús- vinir við eyru og búast til að sperra upp augun, því hvergi gefst betra tækifæri til að komast að raun um hvar leiklistarsnillingar framtíðarinn- ar eru að st.'ga fyrstu skrefln. Er það ekki nokkurs um vert að geta sagt eftir 10 ár. Ég sá hann (hana) einmitt í fyrstu sýningunni hérna um árið, - jú, einmitt í Nemendaleikhúsinu. GEGNHEH PARKETGÓLf - 6UTSA LÓKK - RUSTIK BORDPLÓTUR JM J JUNCKERS INDUSTRIER as OSKAR HJARTANLEGA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLID OG ÞAKKAR FYRIRTÆKINU EGILL ÁRNASON HF. SKEIFUNNI 3 — PÓSTHÓLF 345 — REYKJAVÍK FYRIR GÓDA SAMVINNU í 50 ÁR. En það eru fleiri ástæður til að líta inn á sýningu Nemendaleihússins, sem eins og allir vita er jafnan hópur nemenda í 4. bekk Leiklistarskóla íslands, því venjulega eru það úrvals- verk sem þeir taka til sýningar. Svo er að þessu sinni, en nú sýnir Nemenda- leikhúsið Grænfjöðrung eftir Carlo Gozzi, sautjándu aldar Itala, sem var samtíðarmaður C. Goidoni. „Þetta er verk sem bæði börn og fullorðnir hafa ákaflega gaman af," segja þau Þór Tulinius og Alda Arn- ardóttir, sem bæði fara með stór hlutverk á sýningunni. „Þarna er heill ævintýraheimur á ferðinni, austur- lenskur töfrabj armi sem um leið hefur mót af alþýðumenningu síns tíma, eldspúandi drekar koma fram, styttur tala og hreyfast, galdramenn töfra fram heilar hallir og svo framvegis. Börnin eru auðvitað yfir sig heilluð af þessu, en þeir fullorðnu hafa kannski meira gaman af textanum, sem Karl Guðmundsson þýddi af mikilli list. Leikgerðin er annars frá 1982 og hana gerði Benno Besson. En af hverju þennan ævintýraleik? Þau Alda og Þór segja að nemendur hafi lengi langað til að spreyta sig á grímuleik, sem ekki gafst færi á að kynnast í náminu og hér er einmitt ekta grímuleikur á ferðinni. Tvær sýningar um helgina Tvær sýningar eru á leiknum nú um helgina. Súfyrrierálaugardagkl. 15, en sú síðari á sunnudagskvöld kl. 20. Tíu sýningar hafa verið þegar á leikn- um og er leikstjórinn Haukur Gunn- arsson og leikmynd eftir Guðrúnu Sigríði Haraldsdóttur. Auk hinna átta leikenda Nemendaleikhússins hafa þeir fengið til liðs við sig tvo leikara frá atvinnuleikhúsunum í Reykjavík, þau Ragnheiði Steinþórs- dóttur frá Þjóðleikhúsinu og Jón Hjartarson frá LR. Aðsókn er alltaf mikil að Leiklist- arskóla íslands. Próf eru haldin að vori þrjú ár í röð og átta nemendur teknir inn, en fjórða hvert ár, eru engin próf haldin, svo skólinn yfirfyll- ist ekki. Um fimmtíu manns sækja um árlega. Nú eru nemendur 22 í skólanum. Þau Þór og Alda segja að atvinnu- horfurnar séu ekki of góðar hjá leikurum, en hvað um það. Þau eru óhrædd og hlakka til að spreyta sig að náminu loknu, því allir listamenn verða að trúa á eigin hæfileika, og stóru ævintýrin halda áfram aðgerast, - rétt eins og í „Grænfjöðrungi". AM

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.