NT - 25.11.1984, Qupperneq 11
11J' Sunnudagur 25. nóvember 1984 11
LlL
ÓSA
________——“•
í leikhúsum í dag.
„Þetta byrjaði allt saman úti í Kaup-
mannahöfn þar sem ég var við myndlist-
arnám. Einn skólabróðir minn var mikill
áhugamaður um léikbrúður og bauð
mér að skoða safn sitt. Þegar ég kom
heim til konu minnar um kvöldiö eftir
að hafa séð brúðurnar þá sagði ég henni
að nú væri ég búinn að ákveða hvað ég
ætlaði að gera í framtíðinni. Ég ætlaði
að vinna með leikbrúður. Við hlógum
auðvitað að þessu en ég varð fyrir svona
sterkum áhrifum þetta kvöld. Eftir þetta
áttu brúðurnar hug minn allan.
Eftir að við fluttum heim til íslands
fór ég að kenna við Myndlista- og
handíðaskólann en notaði frístundirnar
til að smíða brúður og æfa þær. Ég
kenndi líka í mörg ár við Miðbæjarskól-
ann og þá komu brúðurnar að góðu
gagni því börnin kunnu að meta þær.
Það er hreint ótrúlegt hvað feimið barn
getur opnað sig ef það fer að stjórna
leikbrúðu. í gegnum brúðuna fær það
tækifæri á að tjá sig, bæði gleði sína og
sorgir og það án allra hafta. Ég held líka
að þetta hafi átt sinn þátt í því að kynna
brúðuleikhúsið hér á landi. Hvar á að
byrja ef ekki á börnunum?
Seinna ferðaðist ég um landið á
sumrin með brúðurnar og sýndi hina
ýmsu leiki. Þetta gekk í ein tíu ár og
sumar brúðurnar urðu mjög vinsælar.
Ég man sérstaklega eftir honum Fúsa
flakkara sem átti stóran aðdáendahóp.
Hann er því miður ekki með á sýning-
unni að þessu sinni en í mörg ár eftir
þetta var hann að fá bréf og alls kyns
sendingar.*-
Þegar Jón talar um brúður sínar er
engu lfkara en hann sé að tala um lifandi
persónur. Ekki nóg með það heldur
talar hann við þær eins og menn þannig
að mörkin milli hins raunverulega og
þess sem við köllum óraunverulegt,
riðlast og maður gefur sig ævintýrinu á
vald. Með þaulæfðum hreyfingum lætur
hann brúðurnar dansa eftir sínu höfði
og með látbragði segja það sem ekki er
hægt að segja á annan hátt.
Við spyrjum Jón hvernig brúðurnar
verði til.
„Ég byrja alltaf á því að teikna þær
upp og smíða þær síðan eftir teikning-
unni. Menn nota ýmis efni. Ég geri
flestar mínar brúður úr tré og stundum
nota ég pappamassa en móta þá
brúðuna fyrir í leir. Ég lærði myndskurð
á sínum tíma og tré er efni sem ég þekki
vel þannig að það verður oftast fyrir
valinu. Spilverkið eða stjórntækin í
strengbrúðunum verður svo að smíða
sérstaklega fyrir hverja brúðu fyrir sig.
Undir klæðum brúðunnar verður síðan
að fóðra stangirnar milli liðamóta til að
koma í veg fyrir að glamri í þessu öllu
þegar brúðan fer að hreyfa sig.
Það er óhætt að fullyrða að hið langa
starf Jóns með brúðurnar hefur borið
ríkulegan ávöxt. Fyrir utan það að hafa
stytt bæði ungum og öldnum stundirnar
þá hefur áhugi á brúðuleikhúsi vaxið
hér á landi fyrir hans starfa. Fyrir
fáeinum árum réðust nokkrar ungar
konur í það að stofna brúðuleikhúsið
„Leikbrúðuland" og hafa þær sýnt bæði
hér heima og erlendis. Þannig hefur sá
áhugi sem Jón kveikti orðið til þess að
fleiri hafa farið að starfa að málum
leikbrúðunnar á íslandi.
3dagar, kr.8.653.-
5dagar, kr.9.915.-
7dagar,kr. 13.091.-
Þægindi
Flugleiðir bjóða þér að velja á milli hótela í Glasgow
eða Edinborg. Þessi hótel eru öll fyrsta flokks, en ódýr
engu að síður. Við viljum sérstaklega vekja athygli þína
á splunkunýju og stórglæsilegu hóteli í Glasgow sem
heitir Skean Dhu. Gisting á þessu ágæta hóteli er
ótrúlega ódýr.
Skemmtun
Glasgow státar af afbragðs góðum veitingastöðum og
pöbbum í hefðbundnum skoskum stíl. Á fjölum leikhús-
anna er alltaf eitthvað spennandi. Einnig er líklegt að
þú lendir á skemmtilegum hljómleikum.
Verð
Ofangreindar verðtölur fela í sér flug og gistingu í 2
manna herbergi á Skean Dhu. Morgunverður er innifal-
inn, en flugvallarskattur bætist við. Sérstakur afsláttur
er veittur fyrir börn.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi