NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 25.11.1984, Qupperneq 21

NT - 25.11.1984, Qupperneq 21
Kæri geðlæknir, Ég er alveg í rusli og veit varla hvað ég á að gera aí mér. Þannig er mál með vexti að vinkona mín og maðurinn hennar voru að skilja um daginn. Þau eru húin að vera giít í nokkur ár og mér hefur alltaf fund- ist hann fara illa með hana. Hann hefur drukkið og stundum lagt á hana hendur. Vinkona mín hefur samt sem áður ekkert viljað um þetta tala yfirleitt en hefur oft verið í rusli eftir helgar. Þau eiga ekkertbarn saman og hef ég ekkert skihð í hvers vegna vinkona mín hefur ekki slitið sambandi við þennan gaur fyrr en núna. ísumar frétti ég frá annarri vinkonu minni að þessi náungi þ.e.a.s. maður vinkonu minnar væri að halda við einhverja gifta konu úti í bæ. Ég sagði vinkonu minni ekkert frá þessu, en reyndi að gefa henni í skyn að hann værinú ekki ahurþar sem hann væri séður. Nú um dag- inn þegar ég hitti vinkonu mína á baUi þá sagði hún mér að hún og þessi gæi væru búin að ákveða að skUja og sagðist vera að drekkja sorgum sínum. Mér fannst leiðin- legt að sjá hvernig henni leið, sagði henni að hún skyldi ekkert vera að sjá eftir þessum gæja,hann hefði hvort sem er haldið fram hjá henni svo ég vissi til og vafalaust hefði hann gert það oftar. Reyndar var ég sjálf dálítið í kippnum og sagði kannski meira en ég ætlaði eða sagði þetta eitthvað óvarlega en ég meinti þetta alveg. Vinkona mín fór þá að gráta þarna á ballinu, vildi ekkert segja, ég reyndi að hugga hana en hún vildi ekkert við mig tala og fór burtu afbaUinu. Ég reyndi að hringja í hana tvisvar sinnum næstu daga en þegar hún heyrði að þetta var ég þá skeUti hún á. Við erum búnar að þekkjast lengi, vorum saman í skóla frá því íbarnaskóla. Ég yrði ægUega spæld ef ég missti hana sem vinkonu því hún hefur oft hjálpað mér. Fyrst hún skeUti á mig þegar ég hringdi í hana þá þori ég ekki að hringja aftur en mig langar samt sem áður tU þess. Góði geðlæknir segðu mér hvað ég á að gera? Þín Sigga. Kæra Sigga, Skilnaður eða sambúðarslit eru aldrei auðveld og nær alltaf sárs- aukafull. Úr fjarlægð er oft erfitt að meta hvort hjónabönd eða sam- búð eru góðar eða slæmar. Oft er meiri ást og tilfinningar í hjónaböndum sem öðrum virðast full af sviptingum og erfiðleikum en í þeim þar sem allt virðist, á yfirborðinu, vera slétt og fellt. Sem betur fer erum við mismun- andi og veljum okkur mismun- andi maka þar sem okkar þarfir eru all ólíkar. Vinkona þín valdi þennan mann sem sinn maka en ekki þú. Það hljómar eins og þér hafi ekki líkað vel við þennan mann, en þú hefur kannski ekki kynnst honum frá þeirri hlið sem vinkona þín gerði. Sumir eru hrjúfir og kaldranalegir á yfir- borðinu en það er stundum vörn fyrir viðkvæma sál sem full er af hlýju og blíðu. Hef ég oft kynnst fólki sem á yfirborðinu virðist vera ruddafengið og jafnvel ofsa- fengið, dómhart og fráhrindandi við fyrstu kynni en þegar inn fyrir múrinn er komið reynast persónur þessar hinar viðkvæm- ustu sálir sem reyna að leyna auðsæranleika sínum og við- kæmni með köldum „Berlínar- múr“. Það eiga ekki allir jafn erfitt með að tjá sínar tilfinningar og oft getur verið mikil væntum- þykja og ástúð milli fólks þó að það sýni það ekki utanaðkomandi aðilum. Fólki getur þótt mjög vænt um hvort annað en getur samt sem áður komist að þeirri niðurstöðu að það geti ekki búið saman af ýmsum ástæðum t.d. að það eigi ekki skap saman. Er oft erfitt fyrir viðkomandi aðila að slíta þannig samböndum og bíða margir lengi eftir „kraftaverk- inu“. Ekki get ég séð af bréfi þínu að þú hafir spurt vinkonu þína um hvort hún vildi heyra álit þitt á manni hennar eður ei. Ég efa ekki að þú hafir bara viljað gera vin- konu þinni erfiðleika hennar létt- bærari en greinilegt er að þau skilaboð hafa eitthvað misfarist. í málum sem þessum er best að fara sér hægt og hugsa ekki allt út frá eigin brjósti. Reyndar veit ég ekki einu sinni hvort að þú hefðir kært þig um að besta vinkona þín ryki á þig strax eftir að þú hefðir skilið við þinn mann og sagt sína skoðun á honum að hann væri óalandi og óferjandi og hefði jafn- vel haldið fram hjá þér. Oft hef ég heyrt marga kvarta yfir því að vinir og vinkonur séu að koma hlaupandi strax eftir skilnað segj- andi að hinn aðilinn hafi verið einskis virði að þeir hafi nú vitað hitt og þetta um hann og haft sínar skoðanir, yfirleitt alltaf nei- kvæðar og að viðkomandi aðili ætti bara að þakka guði fyrir að vera iaus við þessa „skepnu". Finnst mörgum þetta sjálfsagt að gera og telja sig vera að gera hið mesta góðverk þegar um skilnað er að ræða. Staðreyndin er að viðkomandi aðili hefur misst maka kannski til annars aðila og vilja menn þá gjarnan hlaupa til og létta sorgina á þennan hátt. Menn geta líka misst maka sína á annan hátt þ.e.a.s. er makinn deyr. Man ég ekki til þess að þá hafi vinir og kunningjar komið hlaupandi og lýst yfir hverskonar skíthæll makinn hafi verið í lif- anda lífi. Þvert á móti þá er makinn hafinn til skýjanna og allir „ryð-og skítablettir" þurrk- aðir af i snarheitum. Tilfinninga- lega séð get ég oft ekki sé á missi maka hvort sem það er við skilnað að borði og sæng eða við dauða. Sársaukinn er jafn mikill og jafn þungbær. Viðbrögð umhverfis eru samt sem áður oftast önnur þegar þú missir þinn maka við skilnað en þegar þú missir hann við dauða. Virðist fólk oft, við það eitt, að gefa upp öndina, komast í dýrlingatölu en skilji það við maka sinn er því oft lýst sem útsendurum hins illa. Hvorugt er raunhæft að mínum dómi og verð ég því miður að segja að ég hef sjálfur séð í blöðum hástemmdar minningargreinar um einstakl- inga sem ég vissi að svifust einsk- is til þess að ná sínu fram. Skipti þá ekki máli hvort aðrir biðu tjón af andlega eða líkamlega. Einnig þekki ég ýmis dæmi um einstakl- inga sem máttu vart vamm sitt vita, vildu öllum vel en sem t.d. ekki gátu uppfyllt viss skilyrði þjóðfélagsins og þess vegna hakkaðir niður af samfélaginu. Ekki hef ég oft farið í jarðarfarir en stundum hef ég þurft að fylgja vinum, ættingjum og kunningum og verð því miður að segja að stundum hafi mér liðið illa undir ræðum prestsins sem aðeins töl- uðu um allt hið góða sem hinn látni hafði látið af sér leiða. Eitt sinn man ég eftir ættingja mínum sem lýst var í minningarræðu sem algjörum engli frá himnum sendur mynd sem ég gat ómögu- lega fengið til að passa við þá mynd, sem ég hafði upplifað sjálfur. Prestunum er að sjálf- sögðu vorkunn þar sem þeir fá sínar upplýsingar frá ættingjum en ef ætti að halda minningar- ræðu yfir sjálfum mér vildi ég helst ekki bara að láta tala um mig sem engil. Þú skilur kannski ekki hvað ég er að fara, kæra Sigga, en það sem ég er í raun og veru að segja er að erfitt sé að setja sig í dómarasæti hvað varðar aðra og þeirra sam- bönd við maka, sambýlisfólk eða vini. Því er best að fara sér hægt og varlega í að skipta sér af samböndum annarra og helst ekki blanda sér inn í þau nema viðkomandi biðji um slíkt. Þú hefur þegar sagt þína mein- ingu við vinkonu þína en segir jafnframt að þú þorir ekki að reyna að hringa aftur. Legg ég til að þú sleppir símanum í þetta skipti og bankir upp hjá vinkonu þinni og að þið ræðið málin saman. Með bestu kveðjum, Þinn Páll Eiríksson SNJOBLASARAR Fyrir: Einbýli - Fjölbýli - Skóla - Vinnustadi o.fl. o.fl. Afköst frá 15 tonn til 35 tonn pr.st. Til afgreiðslu strax. YS 220 2.0 hestöfl - þarf að ýta kr. 13.360.- YS 524W 5.5 hestöfl - sjálfdr. á hjól kr. 39.660,- YS 524T 5.5 hestöfl - sjálfdr. á beltum kr. 41.500.- Öll verð eru með söluskatti •• OIl verð áætluð og háð breytingum Hafið samband við sölumenn okkar, sem gefa allar nánari upplýsingar.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.