NT


NT - 02.12.1984, Side 9

NT - 02.12.1984, Side 9
 i\i' Sunnudagur 2. desember 1984 9 LlL Ferðamál fyrsta ár var tvíþekjunni flogið tvisvar í viku til Lundúna og seinna um sumarið hófst einnig regiulegt áætlun- arflug til Hamborgar. Fyrsta árið fóru 440 farþegar urn Schiphol flugvöll og 22 Iestir af fragt. Umferð um völlinn hefur dálítið auk- ist síðan, eins og fyrr segir, því á síðasta ári fóru um tíu milljónir farþega um völlinn og 370 þúsund lestir af vörum og farangri. Allt undir einu þaki í fljótu bragði mætti ætla að slík umferð gerði það að verkum að í flugstöðvarbyggingunni væri örtröðin svo mikil að til vandræða horfði. Pví er þó alls ekki fyrir að fara. Með góðri skipulagningu og nútíma tölvuvæð- ingu hefur þeim Schiphol-mönnum tekist að koma hlutunum þannig fyrir að í rauninni tekur hinn almenni farþegi alls ekki eftir því hver ógrynni af fólki streymir þarna í gegn á degi hverjum. Flugstöðin sjálf er öll undir einu þaki og þeir sem millilenda eða ætla að skipta um vél þurfa ekki nema einu sinni að hafa samband við stjórn- tölvuna. Allur farangur er fluttur neðanjarðar og þurfa farþegar ekki að hafa áhyggjur af honum eða bera farteski sitt milli staða eins og víða gengur og gerist á stórum flugvöllum. Krár og kirkja f>að gefst því í flestum tilvikum góður tími til að versla í fríhöfninni á Schiphol. Reyndar er um einar fjöru- tíu mismunandi verslanir að ræða þar sem hægt er að kaupa allt frá dem- öntum upp í bifreiðar. Kannanir meðal farþega hafa leitt í ljós að mjög margir kjósa að ferðast um völlinn einmitt vegna fríhafnarinnar þar sem vöruverð þar mun vera með því allra lægsta sem þekkist. I rauninni mynda verslanir þessar eins konar innanhúss verslunargötu þar sem milli fjögur og fimm hundruð manns vinna við af- greiðslu. Vöruúrval er heldur ekki af verri endanum. í fríhöfninni er boðið upp á rúmlega 50 þúsund vörutegund- ir. Ef þig vantar til dæmis Rolls Royce til að aka í fríinu þá geturðu keypt hann á Schiphol Önnur þjónusta á vellinum er einn- ig til mikillar fyrirmyndar. Fyrir þá sern þurfa á hvíld að halda er þar að finna hótel og að auki litla svefnklefa sem farþegar get hvílt sig í á milli fluga. Þarna er einnig að finna litla kapellu og svo auðvitað fjölda veit- ingastaða af ýmsum gerðum og stærðum. Sá besti í heimi Á blaðamannafundinum með full- trúum flugvallarins var bent á að vinsældir Schiphol fælust einkum í því hversu mikla tengimöguleika völlurinn byði upp á. Þaðan er beint flug til 200 borga í 80 löndum og segir það sína sögu um þá ferðamöguleika sem um er að ræða. Það er því engin tilviljun að tvö þekkt tímarit, „Business Traveller“ og„Executive Travel" hafa, eftir um- fangsmiklar skoðanakannanir meðal lesenda sinna, komist að þeirri niður- stöðu að Schiphol flugvöllur sé sá besti í heimi. JÁÞ. tíð og þótti hættulegur skipum, sér- staklega í óveðrum þegar vindur stóð af vestri. Á flóanum voru meira að segja háðar grimmilegar sjóorustur eins og þegar floti Vilhjálms af Óran- íu, sem nefndur var hinn þögli, háði mikinn hildarleik við spænska flotann. í þeim átökum logaði flóinn og drunurnar úr fallbyssukjöftunum bárust langt inn yfir hinar friðsælu sveitir. Drunurnar heyrast reyndar enn þann dag í dag en nú koma þær úr silfruðum breiðþotum sem stöðugt eru að lenda eða hefja sig til flugs. Á hverjum degi koma á flugvöllinn á milli fimm hundruð og þúsund slíkar vélar og flugvöllurinn getur annað úm 300 þúsund flugvélum á ári. í heimsstyrjöldinni fyrri var fyrir löngu búið að þurrka flugvallarsvæðið upp og þá var ráðist í að leggja flugbraut fyrir þeirra tíma orustuflugvélar. Árið 1920 hófst svo reglulegt áætl- unarflug til Lundúna frá'Schiphol. Það var hollenska flugfélagið KLM sem þar var að verki en það er eitt elsta félag sinnar tegundar í heimin- um. Á fögrum vordegi, 17. maí árið 1920 hóf lítil tvíþekja sig á loft og sveif hring yfir flugbrautinni og tók síðan stefnuna út yfir Norðursjóinn í átt til Englands. Aðeins sautján árum áður höfðu bræðurnir Wilbur og Orw- ille Wright komið fyrstu vélflugunni á loft vestur í Bandaríkjunum. Þetta Þessi sögulega mynd var tekin 17. maí árið 1920 þegar reglulegt áætlunarflug hófst frá Schiphol til Lundúna. ■ Schiphol-flugvöllur var á síðasta ári kosinn besti flugvöllur í heimi í þremur skoðanakönnunum. Hér vinna rúmlega 28 þúsund manns við að gera farþegum lífið auðveldara.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.