NT - 02.12.1984, Qupperneq 21
Kæri Páll,
Við erum hér tvær vin-
konur og erum íjórtán ára.
Við vorum að rííast um það
hvort við værum orðnar
nógu gamlar til að eignast
barn og þá datt okkur í hug
að skriía í blaðið og biðja
þig að svara þessu. Önnur
okkar heldur því íram að
það séu einungis ofþroska
stelpur sem geti orðið ólétt-
ar svona ungar.
Hin okkar segir að maður
verði líka að vera orðinn
nægilega andlega þrosk-
aður til að eignast barn.
Vinkonur sem eru alltaf
að rífast.
Kæru vinkonur,
Af bréfi ykkar er ekki hægt
að sjá hvort að þið eruð
orðnar kynþroska en ef þið
væruð það þá væruð þið
orðnar nógu gamlar líkam-
lega til þess að geta eignast
barn. Móðurhlutverkið er
aftur á móti almikilvægasta
hlutverk sem móðir náttúra
hefur gefið okkur og 14 ára
unglingur á erfitt með að
standa undir þeim skyldum
og þeirri ábyrgð sem því
hlutverki fylgir. Að mínum
dómi finndist mér feður og
mæður eigi að vera orðnir
það þroskaðir andlega sem
líkamlega að þeir geti axlað
þetta hlutverk, að þeir viti
hvað þeir eru að ganga út í
og að þeir geti boðið væntan-
legu barni sínu lífvænleg
skilyrði. Því miður fæðast
alltof mörg börn af hugs-
unarleysi, vankunnáttu og
jafnvel kæruleysi inn í þenn-
an heim sem vegna þessa
eiga í erfiðleikum að ná þeim
þroska sem þau annars gætu
fengið ef fyrst og fremst væri
hugsað um velferð barnsins
áður en til getnaðar kæmi.
Kæru vinkonur, þið getið
orðið óléttar ef þið passið
ykkur ekki og leitið umfram
allt upplýsinga um kynlífið
og getnaðarvarnir áður en
það er orðið of seint.
Kæri Páll,
Hér í blokkinni er fjöl-
skylda sem að okkar áliti
fer mjög illa með börnin
sín. Það er búið að vera
mikið vesen á þessu fólki
og spilar drykkjuskapur þar
örugglega eitthvað inní.
Margoft hefur komið til
átaka íhúsinu viðþetta fólk
og nú síðast um áramótin
þegar bóndinn skaut af
haglabyssu ofan af svölum
og var þá að halda upp á
daginn. Ég hef nokkrum
sinnum aumkað mig yfir
yngstu börnin þegar þau
hafa ekki komist inn og það
er greinilegt að þrifnaður
er ekki eins og best verður
á kosið. Samt eru þetta
bestu skinn og manni óai
við þessu hvernig farið er
með þau. Hvað er hægt að
gera í svona málum. Auð-
vitað tel ég að maður eigi
ekki að kæra svona tiJ yfir-
valda nema þá að um alvar-
legri tilfelíi sé að ræða.
Stundum finnst mér að svo
sé en þess á milli virðist
þetta ganga og ég veit að
elstu krakkarnir standa sig
sæmilega i skólanum og
virðast ágætlega gefin.
Mér finnst að þegar
krakkarnirhafa veriðhérna
hjá mínum krökkum þá sé
það ekkert of vel séð, alla
vegana finnst mér að því
sé mætt með tortryggni.
Hvað á maður að gera í
svona tilfellum. Ég veit að
lýsingin er ef til vill ekki
fullnægjandi en hvað segir
þú sem geðlæknir um
svona mál? Á. . , „
AhyggjufuII.
Til áhyggjufulii ar
Bréf ykkar virðist benda til
þess að ástæða sé til þess að
hafa samband við barna-
verndarnefnd og eru því
miður allt of margir of ragir
við það. Það að börnin
standa sig sæmilega í skól-
anum og virðast ágætlega
• gefin segir ekkert til um
ástandið á heimilinu. Mundi
ég í ykkar sporum hafa sam-
band við barnaverndarnefnd
og gefa þá ýtarlegri upplýs-
ingar en þið gefið upp í
þessu bréfi til mín. Þvi miður
er allt of algengt að nágrann-
ar, vinir og kunningjar þori
ekki að grípa inn í af misskil-
inni tillitssemi uns í óefni er
komið. Stundum getur mað-
ur ekki haft nein áhrif á
fullorðna fólkið í svona fjöl-
skyldum en börnunum má
oft hjálpa. Hafið því sam-
band við barnaverndar-
nefnd.
Með kveðju,
Páll Eiríksson.
Til lesenda
■ Við hvetjum lesendur til að nýta
sér þá þjónustu sem Páll Eiríksson
veitir varðandi vandamál af pers-
ónulegu tagi, hvort sem þau eru stór
eða smá.
Öllum fyrirspurnum hvort sem
þær berst símleiðis eða í bréfi mun
Páll leitast við að svara. Best er þó
að um skriflegar fyrirspurnir sé að
ræða. Eins og lesendum er kunnugt
eru fæst þessara bréfa birt með
undirskrift viðkomandi og er slikt
að sjálfsögðu undir hverjum og ein-
um komið.
Dráttarvélar íýmsum
stærðum.
Með eða án framdrifs.
SUMAR - VETUR
-VOROGHAUST
ALLTAF MEÐ
Bendum sérstaklega á hinn fjölþætta búnað, svo sem:
Frábæra aðstöðu fyrir stjórnanda. - Hljóðeinangrað
hús með sléttu gólfi, lituðu gleri ogfrábæru útsýni. Auk
þess er öllum stjórnbúnaði komið fyrir á þægilegasta
máta fyrir stjórnandann.
___________________________Kynnið ykkur verd og greiðslukjör
Boðið er upp á tvennskonar gírkassa
Annarsvegar 12 hraðastig áfram og 4 afturábak
Hinsvegar vökvaskiptan (Hydra-Shift)
Þann fullkomnasta sem við þekkjum.
©
Járnhálsi 2
110 Reykjavíl
Sími 83266.