NT - 02.12.1984, Síða 22
• 2200 ára borg
• keisaragröf
• styttuher
• ferðamannaiðnadur
• götusalar
• grafarræningjar
• menningarstolt
Xianyang-borg í Mið-Kína
og nágrannaborg hennar.
Xian, eiga sér ákaflega langa
og merkilega sögu. Fyrsti kín-
verski keisarinn, Oin Shihuan,
sem sameinaði Kína árið 221 f.
Kr. hafði höfuðborg sína á
þessum slóðum. Aðrir kín-
verskir keisarar hafa einnig
byggt sér höfuðborg þarna.
Tang-keisaraættin byggði til
dæmis stórborgina Changan á
þessu svæði fyrir tólf til þrettán
hundruðárum. PegarChangan
var sem fjölmennust bjuggu
þar að minnsta kosti um tvær
milljónir manna.
Þessi mikla saga hefur að
sjálfsögðu skilið eftir nokkur
merki í Xianyang og Xian.
Engar byggingar eru að vísu til
frá þessum tima enda byggðu
Kínverjar hús sín aðallega úr
timbri og þau voru gjarnan
brennd í uppreisnum eða stríði
þegar keisaraættunum var
steypt af stóli. En ýmsar merk-
ar fornminjar hafa samt verið
grafnar úr jörðu.
frægustu fornminjarnar á
þessum slóðum eru miklar
grafir fyrsta keisarans sem lést
árið 210 f. Kr. Fyrir tíu árum
fundu fornleifafræðingar heil-
an her af hermanna-og hesta-
styttum í gröf keisarans sem
er útbúin eins og hcil borg.
Stytturnar, sem eru úr leir, eru
í fullri líkamsstærð og mjög
nákvæmlega unnar. Uppgref-
tri er ekki enn að fullu lokið en
nú þegar hafa mörg hundruð
styttur verið grafnar upp og
það er talið að þær séu samtals
sex þúsund. Engin ein stytta er
eins og álíta menn að raun-
verulegur her hafi verið hafður
fyrirmynd við gerð styttanna.
Pessi mikli fornleifafundur
hefur dregið að sér gífurlegan
fjöldaferðamanna. Þaðerekki
á mörgum stöðum í heiminum
sem hægt er að sjá styttur sem
eru þúsund árum eldri en ís-
landsbyggð. Styttur þessar
■ Fyrir tíu árum fannst heill
her af hermanna og hestastytt-
um skammt fyrir utan Xian í
Mið-Kína. Styttumar voru
gerðar fyrir tæplega 2200
árum. Þær eru allar í fullri
líkamsstærð. Upphaflega vora
þær líka málaðar en liturinn
hefur máðst af á þessum langa
tíma. Samt virðast þær ennþá
ótrúlega lifandi. Þótt upp-
greftri sé ekki enn lokið er
talið að þær séu samtals sex
þúsund.
þykja svo merkilegar að þeim
hefur verið líkt við Kínamúr-
inn sjálfan og haft er á orði að
enginn geti sagt að hann hafi
komið til Kína nema hann hafi
komið á Kínamúrinn í Peking
og séð styttuherinn í Xian.
íerðaskrifstofan í Xian
skipuleggur sérstakar skoðun-
arferðir fyrir útlendinga þang-
að sem stytturnar eru og á aðra
staði þar sem er að finna
merkar fornminjar. Slíkt
ferðalag er samt tiltölulega
dýrt enda reyna Kínverjar að
fá útlendinga til að skilja sem
mest af erlendum gjaldeyri eft-
ir í landi sínu.
Þcgar ég kom til Xianyang
og Xian síðastliðið sumar kaus
ég því frekar að skoða þessar
fornminjar með kínverskum
túristum sem ferðast á mun
ódýrari hátt en útlendingar.
Til skamms tíma var kínver-
skur ferðamannaiðnaður nær
eingöngu bundinn við útlend-
inga en á síðari árum hefur
kínverskum ferðamönnum
fjölgað mjög mikið á ýmsum
sögufrægum stöðum í Kína.
Alls konar smákaupmennska
setur nú svip sinn á kínverska
ferðamannaiðnaðinn svipað og
tíðkast í öðrum löndum. Minj-
agripasalar og aðrir götusalar
eru ekki lengur smeykir við að
vera kallaðir kapítalistar þótt
þeir reyni að pranga alls kyns
dóti upp á ferðamenn.
■ Engin ein stytta er eins
heldur hafa þær allar sín pers-
ónulegu einkenni. Það er talið
að raunverulegur her hafí setið
fyrir hjá listamönnunum sem
gerðu stytturnar. Þessum her-
mönnum var væntanlega ætlað
að vernda keisarann í fram-
haldslífinu og tryggja sigur
hans þar yfir óvinum sínum.
Þeir hlutu að vera margir því
Qin Shihuan keisari sendi
fjölda óvinveittra aðalsmanna
burt úr þessum heimi þegar
hann sameinaði Kína með
herjum sínum.
samlega hefði auðhyggja spillt
nokkrum bændum á þessu
svæði að þeir hefðu meira að
segja lagst svo lágt að gerast
grafarræningjar. Þeir grófu
upp fornmuni og seldu þá
síðan til kaupahéðna frá Hong
Kong sem smygluðu þeim úr
landi. Kínverjar eru stoltir af
menningu sinni og vilja varð-
veita fornmuni sína í eigin
landi. En græðgin hefur náð
yfirhöndinni hjá þessum bænd-
um enda er auðvelt að finna
fornmuni á þessu svæði og þá
mikil freisting að selja þá til
hæstbjóðanda.
Hér er því miður ekki
mögulegt að lýsa þeim forn-
minjum, styttum, grafhýsum,
silfur- og gullvögnum og öðru
sem er að finna í nágrenni
Xian-borgar enda yrði slíkt
efni í heilan greinaflokk. Það
verður að nægja að segja að
fátt fyllir sögufátækan fslend-
ing meiri minnimáttarkend en
að skoða þessi merki um upp-
haf mesta heimsveldis fornald-
ar. Það er erfitt að ímynda sér
hvað kínversk list og verk-
menning hafði náð langt á
þessum tíma þegar forfeður
okkar voru enn óheflaðir bar-
barar á meginlandi Evrópu.
(framhald)
Ragnar Baldursson
■ Bændakonur selja skraut-
legar flíkur og aðra minjagripi
við meira en tvö þúsund ára
gamla gröf fyrsta keisarans.
Þær létu smávegis úrkomu
ekki hafa áhríf á kaup-
mennskuna, heldur settu bara
upp regnhlífar fyrir ofan sölu-
borðin. Minjagrípasala er nú
orðin drjúg tekjulind fyrir
bændur á helstu ferðamannast-
öðunum í Kína.
Kína, sumar 1984, NT-mynd rb
Sunnudagur 2. desember 1984 22
hann hafði á boðstólum. Einn
þeirra seldi egg sem höfðu
verið soðin í fyrsta flokks salt-
vatni og kjötsúpu. Annar bauð
kort og kynningarbæklinga til
sölu og nokkrir buðu upp á
minjagripi.
iWinjagripaúrvalið var jafn-
vel ennþá meira þegar komið
var til grafanna. Bændur á
svæðinu höfðu greinilega upp-
götvað kosti kaupmennskunn-
ar því að þeir röðuðu sér
meðfram veginum og buðu
veikgeðja ferðamönnum minja-
gripi á „kostakjörum" og jafn-
vel hálfvirði að þeirra eigin
sögn. Það er mesta furða að
fyrsti keisarinn Qin Shihuan,
skuli ekki vera búinn að ganga
aftur til að mótmæla kaup-
mennskunni við gröf sína. En
tvö þúsund ár eru líklega svo
langur tími að jafnvel kaup-
mennska dugar ekki til að
vekja upp svo ongu dauða
drauga.
Áínversk blöð skýrðu frá
því fyrir skömmu að svo ger-
Kunningi minn, Wang
Fusheng, sem ég dvaldist hjá á
meðan ég var í Xianyang,
keypti tvo skoðunarmiða sem
giltu bæði sem farmiðagjald í
langferðabíl og inngöngumið-
ar að helstu ferðamannasvæð-
unum. Vagninn lagði ekki al-
veg strax af stað svo að við
settumst inn í hann og virtum
fyrir okkur mannlífið. En við
vorum ekki fyrr sestir en hver
farandsalinn á fætur öðrum
steig inn í vagninn og lofaði
frábær gæði þess varnings sent