NT - 06.12.1984, Blaðsíða 28
UÚRltft i*€J A
HRINGDU ÞÁ f SÍMA 68-65-62
Viðtökumviðábendingumumfréttirallansólarhringinn. Greiddarverða 1000krónurfyrirhverjaábendingusemleíðir til
fréttar í blaðinu og 10.000krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fuilrar nafnleyndar er gætt
NT Síðumúli 15S Reykjavík, sírnfc @86300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 ® ritstjórn 686362 og 687695 # íþróttir 686495
Hans G. Andersen á heilsíðuauglýsingu bandarísks tímarits:
Frá Karli Birgissyni, fréttarilara NT í Banda-
ríkjunum:
■ „Suma þá hluti sem okkur
Jólahappdrætti SÁA:
Miðarnir
á flakki!
■ Tiiluverð brögð hafa
verið að því, að heimsendir
miðar i jólahappdrxtti SÁÁ
hafi ekki komist til réttra
aðila, þar sem viðtakcndur
höfðu flutt búferluin. Þess
eru jafnvel dxnii, að miöar
hafi verið sendir fólki, sem
iést fyrir meira en ári.
Ragnheiður Guðnadóttir,
starfsmaður SÁÁ, sagði í
sanitali við NT, að þau
hefðu orðið vör við þessi
mistök. Hún sagði, að sam-
tökin hefðu átt þjóðskrá frá
því fyrsta happdrættinu var
hlcypt af stað, en talsvcrð
vinna hcfði verið lögð í að
leiðrétta hana cftir
þjóðskrá, sem miðaðist við
búsetu I. descmber I983.
„Það hefur greínilega ekki
tekist nógu vel og við erum
svolítið óhress yfir því að
liafa þctta ekki rétt," sagði
Ragnheiður.
SÁÁ sendi út !70 þúsund
miða til lóára íslcndingaog
eldri, en útgefnir miðar í
happdrættinu eru alls 225
þúsund.
þykir vænt um, eins og heilt
vatn úriörumjaröarog norður-
Ijós finnum við ekki hér í Wasli-
ington, en til þess að frélta af
því besta sem hcr er á boöstól-
uni leitum við til The Washing-
tonian.“ Þessi setning er tekin
upp úr heilsíðuauglýsingu tíma-
ritsins The Washingtonian á
sjálfu scr og það eru íslensku
scndiherrahjónin í Wasliington,
Hans G. Andersen og frú Ást-
ríöur Andersen, sem svo nucla.
Auglýsingunni fylgir mynd af
þeim hjónum með blaðið á milli
sín og fyrir neðan fer blaðið
nokkrum orðum um útbreiðslu
sína og lesendahóp. Meðal þess
scm þar kemur fram er að
meðaltekjur þeirra fjölskyldna
sem lesa blaðið eru tæpir 70.000
dollarar á ári, eða um 2.8 mill-
jónir íslenskra króna, en banda-
ríska „vísitölufjölskyldan" hef-
ur 18-20 þús. dollara árstekjur,
eða um 800 þúsund krónur ís-
lenskar, en þá er tekið meðaltal
af tekjum fjögurra manna fjöl-
skyldna frá milljónamæringum
til snauðustu fátæklinga.
í auglýsingunni segir að les-
endur biaðsins séu m.a. háem-
bættismenn, þingmenn og fjöl-
miðlamenn. Lesendur blaðsins
hafa að meðaltali liærri tekjur
en lesendurThe New Yorkerog
The New York Times Maga-
zine, að því að sagt er í auglýs-
ingunni.
„Þeir höfðu samband við mig
og báðu mig að gera þetta og
það var alveg sjálfsagt af minni
hálfu," sagði HansG. Andersen
Afleiðingar hins heita hausts?
Framlðg til ASÍog~
BSRB skorin niður!
■ Framlög til BSRB cru að
mestu skoriu niöur í því ijár-
lagafrumvarpi sein nú liggur
fyrir Alþingi, þá eru framlög til
Álþýðusambands íslands skorin
verulega niður og í áskorun,
sem ASÍ hefur sent fjárveitinga-
nefnd Alþingis, er mótmælt
harðlega fyrirhuguðum niður-
skurði á fjárveitingum ríkisins
til Alþýðusambands íslands.
í samtali við fréttamann NT í
Washington. Hann sagðist ekki
sjá neitt óeðlilegt við það að
háttscttur embættismaður noti
stööu sína til að auglýsa blað á
þennan liátt. „Þetta er ágætt
tímarit og ég er vanur að tala
við blöðin, þegar þau biðja um
þaö. Ég vona að enginn
hneykslist á því,“ sagði Hans G.
Andersen. Hann sagðist vera
fyrstur í röð manna sem myndu
koma þannig fram í auglýsing-
unr fyrir blaðið.
Þingfréttamaður
sjónvarps kærir
útvarpsráðsmann
■ Páll Magnússon, þingfrétta-
maður sjónvarpsins, hefur kært
Ingibjörgu Hafstað, varamann
Kvennalistans í útvarpsráði, til
ríkissaksóknara fyrir ærumeið-
ingar er varði við 108. grein
almennra hegningarlaga nr.
19/1940. Tilefni kærunnar er
bókun Ingibjargar í útvarpsráði
■ Páll Magnússon, þingfrétta-
maður sjónvarpsins, afhendir
Braga Steinarssyni, vararíkis-
saksóknara, kæruna á hendur
útvarpsráðsmanninum Ingi-
björgu Hafstað.
NT-mynd Árni Bjarna
frá 9. nóvember síðustliðnum,
þar sem hún telur Pál hafa
margbrotið 3. grein útvarpslaga
um hlutleysi í fréttaflutningi.
Fer hún fram á, að úttekt verði
gerð á umfjöllun sjónvarpsins á
þingstörfum mismunandi flokka
og samtaka frá apríl og maí s.l.
og frá því að þing kom aftur
saman í haust.
„Hún lætur sér ekki duga að
níða niður starfsheiður minn
sem fréttamanns, heldur sakar
rnig beinum orðum um marg-
ítrekuð lögbrot. Þetta er hlutur,
sem ég vil ekki sitja undir,"
sagði Páll í samtali við NT,
þegar hann hafði afhent kæru
sína hjá embætti ríkissaksókn-
ara í gær.
Þegar skoðuð eru fjárlög fyrir
yfirstandandi ár má sjá að tvær
milljónir eitt hundrað áttatíu og
þrjú þúsund krónur hafa runnið
til hagdeildar, kjararannsókna
orlofsmála og fræðslustarfs á
vegum BSRB. Nú er liins vegar
aðeins inni u.þ.b. 300 þúsund
krónur til hagdeildar.
Stærsti þátturinn sem skorinn
er niður hjá ASÍ er framlag til
framkvæmda við orlofsbyggðir
verkalýðssamtakanna sem nam
í fyrra 3 milljónum tvö hundruð
og áttatíu þúsund krónum, en
er fellt niður nú.
Það er ljóst að fjöldi annarra
félagasamtaka hefur mátt þola
niðurskurð samkvæmt því frum-
varpi sem nú liggur fyrir fjár-
veitinganefnd Alþingis. )
Laugardagskennsla á Selfossi:
Nemum ekið 50 km
fyrir leikfimina
■ Megn óánægja er nú meðal
Fjölbrautaskólanema á Sel-
fossi, sem hafa verið skikkaðir
til laugardagskennslu í kjölfar
verkfallsins en hjá sumum
þeirra felur sú ienging skóla-
vikunnar ekki annað í sér en
nokkra leikfimitíma. Rúmur
helmingur nemenda skólans
býr utan Selfoss oog kemur
með skólabflum; um 50 kfló-
metra veg er að fara fyrir þá
sem lengst eiga að sækja
Síðastliðna þrjá laugardaga
hafa einungis verið kenndir
þeir tímar sem eru í verkahring
BSRB kennara og sama verður
uppi á teningnum næsta laug-
ardag. Ástæða þessa er að
sögn Þorláks Helgasonar
skólameistara, að á síðustu
dögum BSRB verkfallsins tók
skólanefnd skólans þá ákvörð-
un í trássi við skólameistara og
kennara að láta þá kennara
sem ekki eru í BSRB hefja
kennslu. Öll starfsemi skólans
hafði þá legiö niðri í verkfall-
inu. Þvíkenndu kennararHins
íslenska kennarafélags í fjóra
daga án þess að BSRB kennar-
arnir væru við og nú væri verið
að vinna það upp. „Ég var
algjörlega á móti þessu og
sagði þetta vera óráðlegt. Það
yrði ekki hægt að vinna þetta
upp eins og við yerðum svo að
gera núna, þetta er bara rugl,“
sagði Þorlákur.
Þau fög sem BSRB kennarar
kenna eru allt iðnnám og
verknám, íþróttir,
myndmennt, grunnteikning og
áfangar í stærðfræði. Þorlákur
kvaðst ekki ætla að margir
nemendur þyrftu að sækja
laugardagskennslu í íþróttum
eingöngu. „En það eru margir
sem þurfa að standa í því sem
ég tel alveg á mörkum þess að
vera boðlegt, eins og að að-
komnir krakkar koma til að
sækja þrjá til fjóra kennslu-
tíma. Það gætu verið 10 til
20% nemenda,“ sagði Þorlák-
ur og bætti við að áberandi
væri hve tímasókn nemenda
utan Selfoss í vissar greinar
væri léleg á laugardögum.
Sagði skólameistarinn að til
þessara aðstæðna yrði tekið
eitthvert tillit við útreikning á
mætingareinkunn.
AIIs verða laugardagar með
BSRB „kennslu" eingöngu,
fjórir talsins og er næsti laugar-
dagur sá síðasti þeirra. Eftir
það verður kennt í tvo laugar-
daga til þess að bæta upp
kennslutap sem varð vegna
verkfallsins þegar öll kennsla
lá niðri og verða þá allir kenn-
arar skólans við störf.
Rúmlega 400 nemendur eru
í Fjölbrautaskólanum og tæp
60% þeirra búa utan Selfoss.
Skólaakstur er um allt Suður-
land, allt frá Hvolsvelli sem er
í 50 kílómetra fjarlægð frá
Selfossi í austur og Þorláks-
höfn 30 kílómetra í vestur
frá skólanum.