NT - 06.12.1984, Blaðsíða 25

NT - 06.12.1984, Blaðsíða 25
Fimmtudagur 6. desember 1984 25 Útlönd Gaseitrunin á Indlandi: Meira en tvö þúsund látnir Rajiv Gandhi gagnrýndur ■ Eiturgasið hafði áhrif á augu að minnsta kosti 20.000 manna og óttast er að sumir þeirra kunni að verða blindir. Það verkaði líka á öndunarfæri, nýru og lifur fólksins. Þessi mynd var tekin af tveim fórnarlömbum gassins í indversku sjúkrahúsi í gær. símamynd-POLFOTO Bhopal-Rcuter ■ Indverska fréttastofan PTI skýrði frá því í gærkvöldi að þá hefðu rúmlega 2000 manns látist vegna eitrunar í Bliopal borg þar sem mikið af eiturgasi streymdi úrefnaverksmiðjusem framleiddi skordýraeitur. Þá höfðu læknar líka sinnt um fimmtíu þúsund manns sem sýndu merki eitrunar. Margir eru enn taldir í lífshættu. Forsætisráðherra Indverja, Rajiv Gandhi, hefur sjálfur tek- ið að sér stjórn hjálparstarfsins. Nú er aðeins rúmlega háifur mánuður þar til kosningar verða haldnar á Indlandi. Gandhi hafði skipulagt umfangsmikla kosningaherferð með miklum fjöldafundum víðs vegar á Ind- landi. Slysið í Bhopal hefur neytt hann til að aflýsa eða fresta mörgurn af þessunt kosn- ingafundum. Andstæðingar Kongress- flokksins hafa nú gert eiturslysið að kosningamáli. Bandaríska alþjóðafyrirtækið Union Carbi- de á meirihluta í et'naverksmiðj- unni þarsem slysið varð.Til þess þurfti sérstaka undanþágu frá Þarf Pentagon loks að spara? Washinglon-Reuter ■ Reagan forseti virðist hafa fallist að einhverju leyti á tillög- efnahagssérfræðinga sinna ur um að draga úr aukningu út- gjalda til hermála í því skyni að vinna bug á hinum mikla fjár- lagahalla. Útgjöld Bandaríkj- anna til hermála hafa farið vax- andi ár frá ári síðan Reagan tók við og munu enn vaxa frá þeim 266 milljörðum dala sem þau nema á fjárlagaárinu I985. Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, vildi ekki tjá sig um það hversu mikill niðurskurð- urinn yrði, en David Stockman, helsti efnahagsráðgjafi Reag- ans, hvetur til þess að útgjöld til hermála verði 58 milljörðum dala ntinni en áætlað hefur verið næstu þrjú árin. Á þeim tíma gerir Bandaríkjastjórn ráð fyrir að verja um 988 milljörðum dala í þennan málaflokk. Lokaákvörðun verður þó ekki tekin fyrr en Caspar Wein- berger varnarmálaráðherra snýr aftur til Washington frá NATO fundi í Brussel. ríkjandi lögum þar sent útlend- ingum er að öllu jöfnu ekki leyft að eiga meirihluta í fyrirtækjum á Indlandi. Rajiv Gandhi hefur einmitt verið talsmaður þess að rýmka reglur urn erlendar fjár- festingar á Indlandi og innflutn- ing erlendrar tækniþekkingar. Stjórnarandstæðingar segja að slysið hjá Union Carbide sýni svo að ekki sé um villst að Indverjar hafi ekkert við erlend stórfyrirtæki að gera í landi sínu. Hátæknin megi bíða. Einn helsti stjórnarandstöðu- flokkurinn, Dalit Mazdoor Kisan, lét útvarpa í gær yfirlýs- ingu þar sem hann lofar að leggja áherslu á lausn vanda- mála jarðarinnar áður en hlaup- ið er út í geimkapphlaup og vafasöm tækniævintýri. Yfirmaður Hamidia-sjúkra- hússins, þar sem mörg fórnar- lömb gaseitrunarinnar eru, sagði í gær að eitrið hefði greini- lega ekki aðeins áhrif á háls, augu og öndunarfæri eins og áður var álitið. Eitrið hefði líka skaðað nýru og lifur margra. Tala látinna gæti því átt eftir að hækka enn með hverri klukku- stundinni sem liði. Vanstitltur þingmaður villbrenna kaþólikka Belfast-Reuter ■ Hann mætti læra að stilla skap sitt, George Seawright, harðlínumað- ur sem situr á norður-írska þinginu í Belfast. Seawr- ight þessi er ákafur rnót- mælandi og þingmaður hins öfgasinnaða Dernoc- ratic Unionist Party. Fyrr í vikunni varð að draga Seawright niður úr ræðustól í þinginu og varpa honunt á dyr þegar hann hrópaði ókvæðisorð að Douglas Hurd, hinum nýja írlandsmálaráðherra Breta. „Þú ert gagnslaus, þeir hefðu ekki átt að senda þig hingað," hrópaði Se- awright. Hann var síðan dreginn út af öryggisveröi hróp- andi: „Éggefstekki upp!" Seawright sem er 33 ára gamall getur státað sig af fleiri slíkum uppákontum. í síðustu viku fékk hann Í000 sterlingspunda sekt fyrir að hafa hvatt til þess að byggður yrði stór ofn til að brenna í honurn alla kaþólikka í Belfast. Fyrir nokkru var Seawr- ight staddur í einu hverfi kaþólskra í Belfast og sá þar blakta hinn þrílita fána lýðveldissinna. Seawright varð svo mikiö unt að liann reif niður fánann og otaði síðan byssu að nær- stöddum vegfarendunt sem líkaði ekki þetta at- hæfi hans. Falleg og Ijúf jólagjöf Hlið A 1. Trompet Voluntary {D lag: Henry Purcell piccalótrompet: Ásgeir Steingríms- son orgel: dr. Orthulf Prunner tími: 3,20 2. Aría á G-streng. lag: J.S. Bach Strengjasveit undir stjórn Þorvaldar Steingrímssonar. tími: 3,16 3. Steppen Zauber lag: Walter Fenske úts.: Herbert Gabriel kvartett: Jónas Þ. Dagbjartsson, fiöla sr. Gunnar Björnsson, cello loan Stupcano, kontrabassi Jónas Þórir, píanó tími: 5,15 4. Ljóð móður minnar. lag: A. Dvorak þýöing: Jón Gunnarsson sópran: Anna Júlíana Sveinsdóttir fiöla: Jónas Þ. Dagbjartsson píanó: Jónas Þórir tími: 2.53 5. Ó, undur lífs. lag: Jakob Hallgrimsson Ijóð: Þorsteinn Valdemarsson söngtríó: Hildigunnur Rúnarsdóttir Marta Guórún Halldórsdóttir Hildigunnur Halldórsdóttir tími: 2,42 6. Yfir hverri eykt á jörðu. lag: Gunnar Reynir Sveinsson Ijóö: Stefán frá Hvítadal bassi: Halldór Vilhelmsson óbó: Kristján Þ. Stephensen orgel: Gústaf Jóhannesson tími: 4,50 7. Mánaskin. lag: Sigfús Halldórsson Ijóö: Friörik Hansen tenór: Friöbjörn G. Jónsson píanó: Sigfús Halldórsson tími: 2,50 HliðB 1. Salut de Amore. lag: E. Elgar tríó: Jónas Þ. Dagbjartsson, fiöla sr. Gunnar Björnsson, celló Jónas Þórir, píanó tími: 3,15 2. Slá þú hjartans hörpustrengi. lag: J.S. Bach Blandaöur kór syngur orgel: Gústaf Jóhannesson tími: 2,56 3. Ave Maria. lag: Schubert cello: sr. Gunnar Björnsson orgel: Jónas Þórir tími: 2,56 4. Liebesleid. lag: Kreisler fiðla: Einar Grétar Sveinbjörnsson píanó: Þorkell Sigurbjörnsson tími: 3,17 5. Þá var ég ungur. lag: Jónas Þórir Ijóö: Örn Arnarsson bassi: Halldór Vilhelmsson píanó: Jónas Þórir tími: 3,47 6. Heyr himna smiður. lag: Þorkell Sigurbjörnsson Ijóö: Kolbeinn Tumason, kvartett syngur: Elín Sigurvinsdóttir, sópran, Anna Júlíana Sveinsdóttir, alt, Friðbjörn G. Jónsson, tenór, Halldór Vil- helmsson, bassi, orgel: Jónas Þórir timi: 3,25 7. Jólasálmur lag: Páll ísólfsson Ijóö: Freysteinn Gunnarsson sópran: Elín Sigurvinsdóttir orgel: Marteinn H. Friöriksson tími: 3,09 mm jHL Dreifing Sími 29901 Jroskahjá/p fæst í hljómplötuverslunum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.