NT - 06.12.1984, Blaðsíða 23
n i Fimfótudagur 6. desember 1984 23
lu Útlönd
Bardaga-
listamenn
berja á
æskulýð á
Madagaskar
Antananarivo-Reuter:
■ Um þrjátíu manns lctu lífið
og fjölmargir særðust í átök-
um milli atvinnulauss æskufólks
og iðkenda bardagalistarinnar
.kung-fu í höfuðborg Madag-
!askar, Antananarivo.
Að sögn sjónarvotta var harð-
'ast barist í kringum æskulýðs-
höll í miðborginni þar sem ríkið
reynir að hjálpa atvinnulausum
unglingum úr alþýðustétt. Að
jsögn útvarpsins kveiktu bar-
dagalistamennirnir í æskulýðs-
höllinni og mun reykjarmökk-
urinn hafa sést víða að.
Opinber skýring hefur ekki
verið gefin á átökunum, en í
.september síðastliðnum ver iðk-
un kung-fu bönnuð á Madag-
askar af þeirri ástæðu að það
leiddi til aukinna glæpa. Þá kom
.einnig til uppþota í höfuðborg-
inni.
Hótaði
að eitra
Nestlé-
súkkulaðið
I.ausanne-Reuter
■ Svissneska lögreglan hefur
:nú til meðferðar mál Svía, sem
í fyrra mánuði var handtekinn
. fyrir að hafa í hótunum við hinn
risavaxna Nestlé-auðhring. Hót-
aði maðurinn því að eitra
: súkkulaðið frá Nestlé ef honum
fyrði ekki greitt stórfé, eða 700
þúsund svissneskir frankar.
Samkvæmt svissneskum blöð-
um gekk Svíinn í gildru lögregl-
unnar í Genf. Honum var sagt
að honum yrði greitt féð á
■ ákveðnum stað að næturlagi, en
þar beið lögreglan hans.
Svissnesk yfirvöld hafa ekki
viljað tjá sig um málið, líklega
til að valda Nestlé ekki óþæg-
indum.
7000 drepnir
segir Ortega
Managua-Reuter
■ Daniel Ortega, ný-
kjörinn forseti Nicaragua,
hélt fyrr í vikunni ræðu
yfir hjúkrunarkonum frá
ýmsum Suður-Ameríku-
löndum og upplýsti þá að
7000 manns hefðu látið
lífið í stríðinu milli Sand-
inistastjórnarinnar og
uppreisnarmanna, sem-
njóta suðnings Bandaríkj-
anna. Átökin hafa geisað
í fjögur ár.
Barricada, málgagn
stjórnarinnar í Managua,
hafði það eftir Ortega að
6300 börn hefðu misst for-
eldri eða foreldra í stríð-
inu, 20 skólar hefðu verið
gjöreyðilagðir og 800 skól-
um hefði orðið að loka á
stríðssvæðum.
Hann sagði ennfremur
að 346 börn hefðu látið
lífið í átökunum. 170
kennarar, 47 starfsmenn
hjálparstofnana, 5 hjúkr-
unarkonur og nokkrir
læknar. Þar á meðal einn
franskur læknir og einn
þýskur.
Forsætisráðherra eyríkis
■ Nýi Þjóðarflokkurinn undir forystu Herberts Blaize rann afgerandi sigur í kosningunum á
Grenada um helgina, en ósigur stuðningsmanna Maurice Bishops, hins myrta forsætisraðherra,
var að sama skapi stór. Blaize, sem sést hér á myndinni ásamt konu sinni, vinnur nú að þvi að
mynda ríkisstjórn sem víst er að mun njóta mikils og eindregins stuðnings frá Bandaríkjunum.
Blaize hefur farið þess á leit að herlið frá Bandaríkjunum og nokkrum Karabíahafseyjum verði
áfram á Grenada um sinn. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að Sovétmenn hafa fordæmt
kosningarnar og kallað þær hið mesta sjónarspil - sögðu ekki Bandaríkjamenn eitthvað svipað
um kosningarnar í Nicaragua? símamynd-POLFOTO
Chernenko biður um
róttækar lausnir á
vígbúnaðarvandanum
Moskva-Rcuter
■ Konstantín Chernenko,
leiðtogi Sovétríkjanna, sagði í
gær að Sovétríkin væru tilbúin
að fallast á róttækar lausnir til
að stöðva vígbúnaðarkapp-
hlaupið, en fyrst og fremst væri
þó aðkallandi að banna vígvæð-
ingu himingeimsins.
I orðsendingu til alþjóðasam-
taka eðlisfræðinga sem berjast
gegn kjarnorkuvopnum sagði
Chernenko að ef vígbúnaðar-
kapphlaupið í geimnum yrði
ekki stöðvað myndi það spilla
öllu sem hingað til hefur náðst
á sviði vígbúnaðartakmarkana.
Chernenko minntist ekkert á
hugsanlegan fund núlli sín og
Reagans forseta, en í fyrradag
átti hann fund með Ármand
Hammer, bandarískum iðju-
höld, og sagði að sér væri slík-
ur • fundur ekki á móti skapi.
Það er viðtekin skoðun vest-
rænna hernaðarsérfræðinga að
Sovétríkin óttist að þurfa að
keppa við Bandaríkin um víg-
væðingu himingeimsins, vegna
þess að þau hafa hvorki tækni-
þekkingu né fjármagn til þess.
El Salvador:
Skæruliðar ráðast
á stjórnarhermenn
- þrátt fyrir friðarviðræður
San Salvador-Rcutcr:
■ Vinstrisinnaðir skæruliðar í
El Salvador drápu að minnsta
kosti 42 hermenn í árás á þorp
40 km fyrir suðvestan höfuð-
borgina rétt fyrir síðustu helgi.
Árásin var gerð þrátt fyrir frið-
arviðræður skæruliða við stjórn-
völd á föstudag í síðustu viku.
Háttsettir menn innan hersins
í El Salvador hafa viðurkennt
að árásin hafi verið hin harðasta
í langan tíma. Skæruliðar segj-
ast sjálfir hafa fellt um 60 her-
menn í henni og sært 40. Þeir
hafa lýst sig fúsa til áframhald-
andi friðarviðræðna þótt sanin-
ingaviðræðurnar við stjórnvöld
liafi ekki skilað neinum árangri
enn sem komið er.
Að loknum viðræðunum á
föstudag, sem huldnar voru í
Ayagualoborg í El Salvador var
ákveðið að hittast aftur seinna
og halda viðræðunum áfram.
Herinn í El Salvador og hægri-
sinnar eru mjög mótfallnir öll-
um viðræðum við skæruliða.
Einn af leiðtogum skæruliða,
Hector Oqucli, sagði á blaða-
mannat'undi í Mexíkó að það
citt að fulltrúar stjórnvalda
liefðu fallist á að ræða viö
skæruliða þrátt fyrir andstöðu
hægrisinna væri mikill sigur.
Umsjón: Ragnar Baldursson og Egill Helgason
íranskir öryggis-
verðir hefta för
flugræningjanna
■ Á meðal þeirra 44 kvenna og barna, sem flugræningjarnir í
Teheran leyfðu að fara frá borði, var dönsk flugfreyja, Lisbeth
Mathers að nafni. Hún er til hægri á myndinni, en hinar tvær
stúlkurnar munu einnig hafa verið um borð. í gærkvöldi þótti j
mönnum það ískyggilegt hvað flugræningjarnir voru orðnir æstir á
taUgUlll. Síniamynd - POLFOTO.
197 borgarskæruliðar fyrir rétti
Teheran-Reuler:
■ íranskir öryggisverðir tálm-
uðu í gærkvöldi för kuwaitskrar
farþegaflugvélar, sem staðið
hefur á flugvellinum í Teheran
í tvo daga. Henni var rænt með
155 manns um borð á leið til
Pakistan af fimm mönnum sem
mæltir eru á arabísku. Ræn-
ingjarnir krefjast þess að menn
sem eru í fangelsi í Kuwait verði
látnir lausir.
Samningaviðræður við flug-
ræningjana hafa lítið gengið og
eru þeir að sögn íranskra yfir-
valda æstir á taugum. Þeir lýstu
því yfir í gær að þeir hefðu
komið fyrir sprengiefni í flug-
vélinni og væru þess albúnir að
sprengja hana upp. Nokkru síð-
ar virtust þeir vera að búa sig
undir flugtak, en þá gripu örygg-
isverðir til sinna ráða og komu
upp tálmunum á flugbrautinni.
Flugræningjarnir hafa þegar
myrt einn af gíslum sínum, sem
talið er að hafi verið bandarísk-
ur sendimaður. Þeir slepptu úr
haldi öllum konum og börnum
um borð og einnig 23 Pakistön-
um. Talið er að þeir haldi enn
eftir 98 gíslum.
Róm-Reuter:
■ Salvatore Vecchione, sak-
sóknari sem rannsakað hefur
athæfi vinstrisinnaðra borgar-
skæruliða á Ítalíu, fór þess á leit
í gær að haldin yrðu réttarhöid
yfir 197 meintum borgarskæru-
liðum. Þeir yrðu ákærðir fyrir
vopnaða uppreisn gegn ríkinu
og tilraun til að koma af stað
borgarastríði.
Dómari hefur nú þessa mála-
leitun saksóknarans til um-
fjöllunar.
197-menningarnir voru flestir
meðlimir í hryðjuverkasam-
tökunum Rauðu herdeildunum
og Öreigakjarnanum. Sumir
þeirra eru í fangelsi og hafa
svarað til saka í öðrum málurn,
en aðrir ganga lausir.
Chile:
Stjórnar-
andstæð-
ingum
refsað
Sanliago-Reutcr
■ Herstjórnin í Chile
hefur sent 221 mann í
útlegð frá því í síðasta
mánuði þegar stjórnar-
andstaðan skipulagði mót-
mælaaðgerðir gegn stjórn-
inni.
Útlagarnir eru sendir til
afskekktra héraða í Norð-
ur-Chile. Síðasti hópurinn
sem þannig var sendur í
útlegð telur 58 manns.
Þeir voru dæmdir til
þriggja ára útlegðar. Flest-
ir þeirra eru sagðir vera
nemendur sem tóku þátt í
mótmælaaðgerðum í sein-
ustu viku.