NT - 15.12.1984, Blaðsíða 2
IU
Laugardagur 15. desember 1984
Atvinnuhorfur fiskvinnslufólks:
Fólkinu sagt upp þar
sem kvótinn er búinn
■ Staða fiskvinnsluhúsa úti á
landi er misjöfn hvað hráefni
varðar og víðast hvar þar sem
kvótinn er búinn verður starfs-
fólki sagt up og er lokun fyrir-
huguð yfir hátíðirnar.
Hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarð-
ar fengust þær upplýsingar að
engin vinnsla yrði í frystihúsinu
um jólin, enda væri kvóti þeirra
skipa svo til búinn, en ráðgert er
að halda uppi fullri vinnslu í
loðnubræðslunni og nægjanlegt
hráefni fyrir hendi. Staðan hjá
Síldarvinnslunni á Neskaupstað
er nokkuð önnur. í>ar verður
vinnslu haldið í gangi alveg
fram að Þorláksmessu, og síðan
fara togararnir strax út í byrjun
janúar, að öllu óbreyttu? Það
verður engu starfsfólki sagt upp
á Neskaupstað og að sögn for-
ráðamanna frystihússins þar
vantar starfsfólk til vinnú, ef
eitthvað er.
Hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
ar er gert ráð fyrir því að vinnslu
verði haldið uppi milli jóla og
nýárs og ekkert stopp fyrirhug-
að. Fiskiðjusamlag Húsavíkur
mun hins vegar stöðva vinnslu
rétt fyrir jóíin og segja upp sínu
starfsfólki og sögðu forráða-
menn þar að það væri venja um
jól. Síðan hæfist aftur vinnsla
strax og samningar liggja fyrir
hjá sjómönnum.
Hjá Norðurtanganum á ísa-'
firði verður unnið milli jóla og
nýárs og hafist aftur handa strax
2. janúar. Mun hið sama vera
upp á teningnum hjá öðrum
vinnslustöðvum á Isafirði. í
Vestmannaeyjum er reytings-
vinna í fiski en Eyjamenn hafa
undanfarið verið mest upptckn-
ir af síldinni. Hjá Hraðfrystistöð
Vestmanneyja fengust þær upp-
lýsingar að ekkert stopp væri
fyrirhugað hjá þeim en búast
mætti við einhverjum sam-
drætti. Hins vegar væru húsin
klár til að byrja strax eftir
áramótin þegar afli tæki að
glæðast.
Hjá Kirkjusandi í Reykjavík
fengust þær upplýsingar að
vinnslu yrði haldið uppi fram að
jólum en ekkert væri ákveðið
með framhaldið. Engum hefur
enn verið sagt upp þar en 60-70
manns eru í fiskvinnslustörfum
hjá fyrirtækinu. Hraðfrystistöð-
in í Reykjavík hættir vinnslu
fyrir jólin og ekki verður farið
af stað fyrr en eftir áramótin.
Þar verður hins vegar engu
starfsfólki sagt upp og enginn
ótti er í forsvarsmönnum þar
um hráefnaskort í janúar.
Orninn flaug
í austurátt!
■ Þráinn Þorvaldsson,
Framkvæmda-
stjóraskipti
í febrúar
■ Þráinn Þorvaldsson
rekstrarhagfræðingur hef-
ur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins og
tekur hann við starfinu
þann 15. febrúar næst-
komandi.
Þráinn lauk viðskipta-
fræðiprófi frá Háskóla ís-
lands árið 1969 og tók þá
við framkvæmdastjóra-
starfi fyrirtækisins
Loðskinns. Því starfi
gegndi hann til ársins
1971, er hann réðst til
Útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins. Árið 1973 fór
hann til framhaldsnáms í
Bretlandi og skrifaði próf-
ritgerð um sölu íslensks
ullarfatnaðar þar í landi.
Að námi loknu starfaði
hann hjá Prjónastofu
Borgarness, Útflutnings-
miðstöðinni og árið 1975
varð hann framkvæmda-
stjóri Hildu hf.
Úlfur Sigurmundsson,
sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Útflutn-
ingsmiðstöðvarinnar frá
því að hún var stofnuð
1971, hefur verið ráðinn
viðskiptafulltrúi við ræðis-
mannsskrifstofuna í New
York frá 15. febrúar 1985.
■ Erninum, sem verið hefur í
umsjá Náttúrufræðistofnunar
eftir að hann var fluttur vestan
frá Patreksfirði útataður í sel-
feiti, var sleppt í gær við af-
leggjarann upp að Keldum.
Að sögn Ævars Petersen, sem
mest hefur haft með fuglinn að
gera hér fyrir sunnan, gekk allt
að óskum. Örninn hafði étið vel
áður en honum var sleppt og
búningur hans var kominn í gott
lag og sýndi hann engin veiklu-
merki. Hann flaug strax upp úr
kassanum og settist síðan á þúfu
í nágrenninu og hugsaði ráð
sitt. Síðan flaug hann upp og er
starfsmenn Náttúrufræðistofn-
unar reyndu að fylgja á eftir
honum sáu þeir hvar hann flaug
fugla hæst í forsal vinda og
stefndi í austurátt, eflaust frels-
inu feginn.
■ Ævar Petersen opnar kass-
ann og var viðbragð arnarins
svo snöggt að hann festist vart á
filmu.
NT-mynd: Sverrir
63 endur á
Núpaskóla
■ Bölsýnisraddir heyrast oft
tala um hina vonlausu héraðs
og heimavistarskóla á lands-
byggðinni þar sem landsbyggð-
arsálum fari ört fækkandi.
Að Núpum í Dýrafirði eru
forsvarsmenn þó heldur hressir
í bragði eftir að þar varð nú á
dögunum 26% fjölgun. í
Núpaskóla voru 50 nemendur
þar til fyrir skemmstu. Síðan
flugu Flugleiðir þangað með
13 pekingendur frá Saurbæ í
Dalasýslu sem kennararnir
pöntuðu á' staðinn. Er síðan
mál manna að þeir hafi á sínum
vegum svo mikið sem 63
endur...
Það er svo saga af íslenskum
samgöngum að til þess að kom-
ast frá Saurbæ í Dalasýslu og
vestur á Núpa var í alla staði
hagstæðast fyrir ferðalangana
að millilenda í Revkjavík þar
sem þeir dvöldu í góðu yfirlæti
yfir nótt.
Bankastjóri
á förum?
■ I hressilegri ræðu Jónasar
Haralz á^pástefnu Stjórnunar-
félagsins núna í vikunni tók
hann sér meðal annars fyrir
hendur.að kenna hinum ýmsu
hópum í þjóðfélaginu að leggja
sitt af mörkum til að bæta
þjóðfélagsástandið. Þar á
meðal sagði hann að opinberir
starfsmenn gætu byrjað á því
að segja upp störfum, og-flytja
sig annáð; það væri eina leið
þeirra til að bæta kjör sín.
Nú eru menn að velta því
fyrir sér hvað þessi ummæli
Jónasar þýða. Er hinn opinberi
starfsmaður í ríkisbankanum
e.t.v. að boða uppsögn sína?
Kjarkleysi
pólitíkusa
Önnur ráðlegging Jónasar
Haralz var til stjórnmála-
rnanna, þess efnis að þeir efldu
þor sitt og þyrðu að standa á
meiningu sinni.
Jónas tók sjónvarpsþingsjána
núna í vikunni sem dæmi um
bágborið ástand í þessum
efnum. í þættinum hefðu allir
svarendurnir, stjórnmálafor-
ingjarnir, verið því sama merki
brenndir að reyna í svörum
sínum að koma til móts við
spyrjendurna, sent þó voru úr
röðum andstæðinganna. Eng-
inn foringjanna hefði þorað að
segja: Þetta kemur bara ekki
til nokkurra mála.
Dropar eru svo að velta því
fyrir sér, ef iýsing Jónasar á við
rök að styðjast, hvort fleiri
slíkir sjónvarpsþættir myndu
ekki verða til góðs, og beinlínis
leysa stjórnmálavanda þjóðar-
innar. Héldu foringjarnir upp-
teknum hætti, þá yrði þess
varla langt að bíða að þeir
nálguðust hver annan svo að
þeir yrðu bókstaflega sammála
um alla hluti.
Guggnaði á
strokinu
■ Strokufanginn af Hraun-
inu sem slapp úr höndum lög-
reglu á Skólavörðustígnum
fyrr í vikunni hefur nú guggnað
á strokinu og gefið sig fram við
lögreglu. Er reiknað með að
mál hans verði sent til Rann-
sóknarlögreglu til rannsóknar
en fanginn aftur á Hraunið.
Islenskar tísku-
vörur í sókn:
Flóin farin
í víking
til Noregs
og Svíþjóðar
■ Tískusýning sem
Gerður í Flónni hélt á
vörum sínum í nætur-
klúbbnum Alexandría í
Stokkhólmi í fyrrakvöld
-vakti mikla athygli, að
sögn sænsks viðmælanda
NT sem þar var staddur,
og virðist sem tiííaun
hennar til að komast inní
fatabransann í höfuðborg
Svíþjóðar hafi fengið
óskabyrjun.
Til stóð að Flóin opnaði
verslun í hjarta Stokk-
hólmsborgar í dag þar sem
seldur yröi íslenskur og
enskur tískufatnaður, en
að sögn hins sænska við-
mælanda blaðsins hefur
orðið að fresta opnuninni
um eina viku. Gerður er
einnig að reyna fyrir sér á
norska tískumarkaðinum
og hefur sett á stofn um-
boðssölu í Osló. Mun Sól-
veig Þórisdóttir Luxus-
drottning stýra því fram-
taki. Ætlunin er að reyna
að selja íslenskar tísku-
vörur sem Flóin framleið-
ir hér heima í norskar
tískubúðir.
Gerður Pálmadóttireig-
andi Flóarinnar er búin að
vera í Stokkhólmi til að
fylgja þessum málum eftir
og ekki tókst að ná sam-
bandi við hana í gær til að
fá seinkun opnunarinnar
þar staöfesta. Hún er
væntanleg heim í dag.
Margir þurfa á
aðstoð að halda
■ Mæðrastyrksnefnd Kópa-
vogs hefur sent frá sér tilkynn-
ingu þar sem minnst er á að í
Kópavogi eru margir sern þurfa
á aðstoð félagsins að halda,
einstæðar mæður, sjúklingar,
einstæð gamalmenni og fleiri.
Jafnframt því sem nefndin biður
Kópavogsbúa unt stuðning við
starfið óskar hún eftir því að
fólk hafi'samband við nefndar-
menn viti það af einhverjum
bágstöddum samborgara. Gíró-
reikningur Mæðrastyrksnefndar
Kópavogs er 66900-8. Nefndina
skipa Svana Svanþórsdóttir,
Ingibjörg Helgadóttir, Ólöf Ás-
geirsdóttir og Þóra Davíðsdótt-
Lögreglan í Reykjavík hafði
upp á verustað fangans eftir
nokkra leit og lét þá koma
skilaboðum til hans að hann
hefði samband við þá svo ekki
þyrfti að koma til þess að þeir
sæktu hann. Það gerði fanginn
og áttu svo hann og laganna
verðir stefnumót á stað sen
fanginn ákvað og þaðau
honum komið í heg
ið við Skólavörðuj