NT - 15.12.1984, Blaðsíða 10
Laugardagur 15. desember 1984 10
Elías kominn
til Kanada
■ Komin er út hjá Iðunni ný
bók um Elías, fyrirmynd ann-
arra barna í góðum siðum (eða
hitt þó heldur!) eftir Auði
Haralds. Nefnist hún Elías í
Kanada. Eins og allir muna,
kom Elías fram í barnatíma
sjónvarpsins (leikinn af Sigurði
Sigurjónssyni) og vann hylli
áhorfenda með kostulegum
uppátækjum,
Þegar við skildum við Elías í
bókinni um hann í fyrra var
hann á förum til Kanada ásamt
foreldrum sínum. í þessari bók
eru þau komin til Kanada og
það finnst Elíasi raunar alveg
merkilegt eins og pabbi hans
var seigur við að lenda í vand-
ræðum á leiðinni. í Kanada er
engin Magga móða og þar ríkir
unaðslegur friður. Alla vega
fyrstu klukkutímana. Þá
sprangar pabbi á svölunum á
nærbuxunum og kynnist þannig
ísabellu frá Rússlandi. Hún er
hákarl, segir pabbi, dulbúinn
sem fín frú. Elías fer í könnun-
arferð út í skóg. Þar hittir hann
indíánastrák og þeir skiptast á
friðargjöfum. Gjöfin sem Elías
fær er mjög lífleg og pabbi hans
er lengi að ná sér. Þeir vinirnir
veiða líka jólagjafir. Það verður
til þess að Magga móða skrifar
bréf sem er svo æst að það
spriklar í umslaginu. Magga
vinnur líka í happdrættinu og
hvað gerir hún við peningana?
Kaupir farseðil til Kanada svo
hún geti alið Elías upp. En
uppeldið fer fyrir lítið því í
Kanada fær Magga undarlegan
sjúkdóm sem er bæði hollur og
hressandi.
Fyrri bókin um Elías hlaut
miklar vinsældir barna á öllum
aldri og það er óhætt að fullyrða
að Elías í Kanada gefur hinni
fyrri ekkert eftir. Bókin er
prýdd mörgum myndum eftir
Brian Pilkington sem einnig
hannaði kápu.
Mary Stewart
heldur áfram
að skemmta
■ Iðunn hefur sent frá sér
nýja bók, Leyndarmálið, eftir
ástarsagnahöfundinn Mary
Stewart.
Á kápubaki bókarinnar segir
m.a.: „Leyndarmálið fjallar um
Bryony Ashley sem snýr heim
úr löngu ferðalagi þegar faðir
hennardeyr. Þegarheim kemur
fréttir hún að ættaróðal fjöl-
skyldunnar muni falla í hendur
Emory frænda hennar... og að
fráfall föður hennar hafi borið
að með undarlegum hætti. Bry-
ony er gædd skyggnigáfu og svo
er einnig um annan aðila í
Ashley fjölskyldunni, þótt ekki
viti hún hver sá er - hún veit það
eitt að stundum fyllist næmur
hugur hennar rómantískum
hugsunum og hún finnur nálægð
væntanlegs elskhuga þótt eng-
inn virðist nærri.“
Leyndarmálið er níunda bók
Mary Stewart sem út kemur á
íslensku enda hefur hún fyrir
löngu eignast fjölmennan aðdá-
endahóp hér sem í öðrum
löndum. Og nú heldur hún enn
áfram að skemmta sínum stóra
lesendahópi með þessari meist-
aralegu og rómantísku fléttu.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir
þýddi. Kápa er hönnuð í auglýs-
ingastofunni Octavo. Oddi hf.
prentaði.
Reykjavík fyrri
tíma
eftir Árna Óla
■ Út er komin hjá Skuggsjá
Reykjavík fyrri tíma I eftir Árna
Óla. Er hér um að ræða endur-
útgáfu Reykjavíkurbóka hans,
sem voru 6 að tölu. Þessi nýja
útgáfa Reykjavíkurbókanna
verður í þremur bindum, þ.e.
tvær bækur í hverju bindi. í
þessu fyrsta bindi eru Fortíð
Reykjavíkur og Gamla Reykja-
vík.
Reykjavíkurbækur ÁrnaÓla
hafa að geyma geysilega mikinn
fróðleik um Reykjavík fyrri
tíma, um persónur, stofnanirog
staði, og er í þessu bindi hálft
annað hundrað gamalla mynda
frá þessum tíma, m.a. margt
mynda af málverkum Jóns
Helgasonar biskups. Saga og
sögustaðir verða ríkir af lífi og
frá síðum bókanna gefur sýn til
fortíðar og framtíðar. Nútíma-
maðurinn öðlast nýjan skilning
á höfuðborg landsins og forver-
unum, sem Reykjavík byggðu.
Öll er útgáfan hin vandaðasta,
svo sem vera ber.
Sigurður Bjarnason frá
Vigur, um langt árabil náinn
vinur og samstarfsmaður Árna
Óla á Morgunblaðinu skrifar
formála fyrir þessari útgáfu. í
formálanum segir hann m.a.:
„... íslenska þjóðin og þá
ekki síst íbúar Reykjavíkur eiga
honum mikið að þakka. Þessi
mikilhæfi fræðimaður var alla
sína ævi að grafa upp alþýðlegan
fróðleik. Ég hefi leyft mér að
staðhæfa: ,Hann var hógværast-
ur allra, leitaði ávallt sannleik-
ans að fornu og nýju.“
Við sem unnum með Árna
Óla um langan aldur og kynnt-
umst honum persónulega vitum
að í þessum orðum er ekkert
ofsagt. Hann sagði þjóð sinni
aldrei ósatt. Ritferill hans
mótaðist af óslökkvandi þorsta
eftir þjóðlegum fróðleik, sem
hann þráði að miðla þjóð sinni.
Bækur hans voru ekki þyrkings-
legar heldur lifandi og skemmti-
legar. Þess vegna náði hann til
yngri sem eldri. Rit hans munu
því halda áfram að kynna
merkilegan tíma, sem á erindi
til nýrrar kynslóðar. Þau munu
lifa sem sérkennileg þjóð-
fræði..."
vélbátar komu fyrst til sögunnar
árið 1906. Vélbátaútgerðin í
Eyjum, og annars staðar á land-
inu, var nokkurs konar iðnbylt-
ing íslands, þá lauk aldalöngum
þrældómi sjómanna undir
árum, og í kjölfar þessarar at-
vinnubyltingar fylgdi þéttbýlis-
myndun eins og jafnan. íbúum
Vestmannaeyja fjölgaði úr um
það bil 600 í 3.500 á næstu tveim
áratugum.
Guðlaugur lætur sér ekki
nægja að rekja útgerðarsöguna
heldur birtir hann einnig for-
mannatal Vestmannaeyja og
eru þar rakin helstu æviatriði
tæplega fimm hundruð skip-
stjóra og þá einkum fjallað um
sjómannsferil þeirra.
í ítarlegum formála fyrir for-
mannatalinu ritar hann um
helstu þætti í atvinnusögu Eyj-
anna á þessari öld sem auðvitað
tengjast fyrst og fremst sjávarút-
vegi. Hann rekur þróun fisk-
veiða, breytingar á fiskiskipa-
flotanum, hina hörmulegu sjó-
slysasögu Eyjanna og segir frá
gagnmerkum samtökum út-
vegsmanna og sjómanna á þess-
um árum, en þeir hafa verið
mjög framsýnir á mörgum
sviðum, t.d. í öryggismálum og
fiskverndarmálum.
Guðlaugur Gíslason er
gjörkunnugur því efni sem hann
ritar um og er höfundur tveggja
annarra bóka um sögu Vest-
mannaeyja, Eyjar gegnum
aldirnar og Guðlaugs sögu
Gíslasonar. Hann hefur sjálfur
verið einn helsti framámaður í
atvinnulífi og stjórnmálum í
Eyjum á þessum tíma.
Bókarkápuna hannaði- Sigur-
þór Jakobsson en setning,
prentun og bókband var unnið
hjá prentsmiðjunni Eddu hf.
MANNUF \hkobsscm
UNDIR KÍÍMBUM
a
'W Só
Saga vélbáta-
útgerðar í
Vestmanna-
eyjum
- og fullkomið skip-
stjóratal
■ í þessari bók rekur Guð-
laugur Gíslason fyrrverandi al-
þingismaður sögu útgerðar og
fiskveiða í Vestmannaeyjum
stærstu verstöö landsins, frá því
Mannlíf
undir kömbum
■ Guðmundur Jakobsson
spjallar við fólk í Hveragerði í
þessari bók, en hann hefur áður
skrifað bækur um sjómenn og
sjómennsku.
Reykjaforlagið gefur bókina
út.
mótorhjól og
vélsleða
Hver festing fyrir
500 kg.-20 tonn.
Enga spotta -
Heldur handhægar
og öruggar festingar
Ósal Reykjavík
BYKO Kópavogi & Hafnarfirði
Axel Sveinbjörnss. hf. Akranesi
K.B. byggingavörur, Borgarnesi
Matthías Bragason, Ólafsvík
Kaupfélag ísfirðinga, ísafirði
Þórshamar hf., Akureyri
• Shell-stöðin, Neskaupstað
K.A.S.K. Hornafirði
Cm
Sanyo HiFi system 234
@ SAIMYO
er meö á nótunum
O Stórglæsileg hljómtækjasamstæða i
vönduðum skáp með reyklituðum gler-
hurðum.
O 2x40 watta magnari með innbyggðum
5 banda tónjafnara.
O Þriggja bylgju stereo útvarp með 5 FM
stöðva minni.
O Segulbandstæki fyrir allar snældugerð-
ir, með „soft touch" rofum og Dolby
suðeyði.
O Hálfsjálfvirkur tveggja hraða reimdrif-
inn plötuspilari.
Allt þetta fyrlr aðeins
kT. 29.9CX).- stgr.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðtíflandsbraiit 16 Simi 9135200