NT - 15.12.1984, Blaðsíða 21
*“ rff? Laugardagur 15. desember 1984 21
m Útlönd
■ Bresku Bítlarnir, eins og
þeir heita í gufuradíóinu, unnu
fyrr í vikunni áfangasigur í máli
sem þeir hafa höfðað gegn
breska útgáfufyrirtækinu EMI.
„ Þeir halda því fram að EMI hafi
snuðað þá stórlega um höfundar-
laun á árunum þegar frægð
þeirra óx með degi hverjum.
■ Bítlarnir undirrituðu fyrsta
hljómplötusamning sinn við
Parlophone, dótturfyrirtæki
EMI, árið 1962. Þeir voru síðan
á snærum EMI þar til þeir
stofnuðu sitt eigið útgáfufyrir-
tæki, Apple, árið 1968.
Það er Apple sem höfðar
málið fyrir hönd Paul McCart-
ney, Ringo Starr, George Harri-
son og Yoko Ono, ekkju John
Lennon.
Niðurstaða dómstóls í
London var sú að ítarleg rann-
sókn þyrfti að fara fram á samn-
ingum Bítlanna og hljómplötu-
- fyrirtækisins frá þessum árum.
Dómarinn, Peter Gibson, gat
heldur ekki leynt hrifningu sinni
á Bítlunum og sagði að sjöundi
áratugurinn hefði verið „áratug-
ur Bítlanna, fólk um allan heim
naut laga þeirra og nýtur þeirra
reyndar enn“.
Eftir dómsúrskurðinn sagði
talsmaður Apple að Bítlarnir
teldu sig eiga milljónir sterlings-
punda í vangoldnum höfundar-
launum hjá EMI.
■ Á þeim glöðu árum þegar
Bítlarnir unnu hug og hjörtu
gervallrar heimsbyggðarinnar
snuðaði EMI-hljómplötufyrir-
tækið þá um höfundarlaun í
stórum stíl. Svona litu nú strák-
arnir út árið 1966. Ásamt þeim
á myndinni er sá frægi umboðs-
maður, Brian Epstein.
Vill giftast tengdamúttu sinni
London-Reuter
■ Breska lávarðadeildin hefur sam-
þykkt sérstaka undanþágu frá hjú-
skaparlöggjöfinni til þess að 29 ára
gamal! bílstjóri geti gifst tengdamóður
sinni.
Bílstjórinn heitir AlanMonk. Hann
býr nú heima hjá fyrrverandi tengda-
móður sinni, Valerie Hill, sem er 48
ára. Monk á tvö börn með dóttur
sambýliskonu sinnar sem skildi við
hann fyrir einu ári.
Þau geta samt ekki gift sig strax þar
sem sérstök nefnd á vegum lávarða-
deildarinnar verður að gefa leyfi fyrir
giftingunni. Hingað til hefur gifting af
þessu tagi verið bönnuð í Bretlandi
þar sem hún hefur verið talin fela í sér
sifjaspell.
Hin væntanlegu brúðhjón segjast
vera himinlifandi yfir samþykkt lá-
varðadeildarinnar. En ekki voru samt
allir lávarðarnir samþykkir ráðahagn-
um þar sem þeir töldu að það gæti
verið ruglandi fyrir börnin að eiga
föður sem væri giftur ömmu þeirra.
Plötufyrirtæki
snuðaði Bítlana
um milljónir
Túlkavanda-
mál hjá EBE
Brussel-Reuter
■ Stjórn Efnahagsbanda-
lagsins hefur ákveðið að ein-
falda tungumálaþjónsutu á
fundum bandalagsins í fram-
tíðinni. Framvegis verður að-
eins þýtt eða túlkað hjá EBE
þegar það er talið nauðsynlegt
en hingað til hafa túlkar jafn-
vel verið notáðir til að túlka á
fundum þar sm fundarmenn
skyldu mál hvers annars.
Pegar Spánvcrjar og Port-
úgalir ganga í EBE í janúar
1986 fjölgar opinberum mál-
unt bandalagsins úr sjö í níu.
Það táknar að ef einn túlk
þyrfti fyrir hvern þýðingar-
möguleika yrðu túlkarnir að
vera 81 á hverjum fundi þótt
fundarmenn væru kannski
ekki nema níu.
Núna starfa 1.700 manns
við þýðingar hjá EBE og stjórn
bandalagsins vill helst ekki
fjölga þeim mikið þótt Spán-
verjar og Portúgalir gangi í
EBE. Tillögur um að gera
frönsku og cnsku að opinber-
um niálum EBE hafa samt
ekki fengist samþykktar hing-
að til þar sem sum bandalags-
ríkin telja að með því væri
gengið á hlut sinn. En nú hafa
þau fallist á að nota ekki túlka
nema þegar þess er brýn þörf.
Pólskir flóttamenn sár-
óánægðir í V-Þýskalandi
veita þeim hæli sem pólitískum
flóttamönnum. Þeir hvetja
einnig þýsk stjórnvöld til að
gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að beita sér fyrir því
að hin frjálsu verkalýðsfélög í
Póllandi verði leyfð.á nýjan leik.
Pólverjarnir eru meðal 900
landa sinna sem hafa gengið af
pólskri skipsfjöl í Þýskalandi að
undanförnu og ekki viljað snúa
aftur til heimalands síns. 42
þeirra undirrita yfirlýsingu þar
sem lýst er yfir stuðningi við
Samstöðu og vestræn ríki hvött
til þess að beita sér fyrir því að
frjáls og lýðræðisleg verkalýðs-
félög verði endurreist í Pól-
landi.
Vestur-þýska stjórnin hefur
leyft Pólverjunum að dvelja í
Þýskalandi, en viðurkennir ekki
að þeir séu pólitískir flótta-
menn. Talsmenn Pólverjanna
segja hins vegar að þeir hafi
flúið vegna þess að þeir hafi
ekki lengur „þolað það misrétti
sem þeir voru beittir vegna
stjórnmálaathafna sinna.“
„Þarf ég að koma hingað með
undirritaðan dauðadóm áður en
stjórnin veitir mér pólitískt
hæli?“ spyr einn þeirra sem
undirrituðu yfirlýsinguna og
bætir við að ekki geti Pólverj-
arnir talist efnahagsflóttamenn,
því lífskjör þeirra hafi síður en
svo batnað.
Að sögn hans þurfa Pólverj-
arnir að lifa á 300 marka (um
4000 ísl. kr.) styrk á mánuði,
sem þeir þiggja frá félagsmála-
stofnunum. „Við skildum eftir
allt sem við áttum til að lifa í
lýðræðisríki, en nú þurfum við
að berjast fyrir réttindum
okkar.“
Upp á síðkastið hefur stjórnin
í Bonn verið tregari en áður við
að veita flóttamönnum pólitískt
hæli. Hún telur að margir flótta-
mannanna sæti ekki pólitískum
ofsóknum, heldur séu þeir ein-
ungis að ieita sér að ríkmann-
legra lífi vestan megin.
Hamborg-Reuter mjög gagnrýnir á viðtökurnar
■ Pólverjar sem nýverið sem þeir hafa fengið þar, en
flýðu til Vestur-Þýskalands eru stjórnin í Bonn þráast við að
. Ali vill heimsmeistara-
titilinn frá 1967-1971
VVashington-Rcuter
■ Múhammeð Ali, frægasti
boxari allra tíma og heimsmeist-
ari til margra ára, hefur höfðað
skaðabótamál vegna fangelsis-
dóms yfir sér frá árinu 1967. Þá
var Ali hnepptur í fangelsi fyrir
að neita að gegna herþjónustu á
tíma Víetnamstríðsins. Hann
krefst 50 milljóna dala í skaða-
bætur.
■ Ali biðst fyrir: Hann segir
að hann hefði ekki þurft að
_ gegna herþjónustu vegna þess
að hann var klerkur í krikju
Múhameðs spámanns.
Auk þess heimtar Ali að hann
verði úrskurðaður heimsmeist-
ari frá árinu 1967 til 1971, en
hann var sviptur titlinum vegna
máls þessa.
í málshöfðuninni segir að
háttsettir embættismenn hafi
brotið á honum rétt með því að
neita honum um undanþágu frá
herþjónustu af samviskuástæð-
um. Þeir halda því hins vegar
fram að AIi hafi ekki viljað fara
í herinn af stjórnmálaástæðum.
Ali segir einnig að hann hefði
átt að vera undanþeginn her-
þjónustu þar sem hann var
klerkur í kirkju múhameðstrú-
armanna í Bandaríkjunum.
í frægum dómi frá 1971
hnekkti hæstiréttur Bandaríkj-
anna fangelsisdómnum yfir Ali,
sem og 10 þúsund dollara sekt
sem hann fékk.
Ali segir að ef hann vinni
málið muni stór hluti skaðabót-
anna renna til samtaka sem
liðsinna fyrrum hermönnum í
Víetnam ogfjölskyldum þeirra.
Umsjon: Ragnar Baldursson og Egill Helgason