NT - 15.12.1984, Blaðsíða 4

NT - 15.12.1984, Blaðsíða 4
IW' Laugardagur 15. desember 1984 4 ui Fréttir 1 Áhrit 1 1 prent' 1 1 araverk- 1 1 fallsins: 1 |l Þús upp i b ind lOð lei ■ j igni am irá úar því ekki var hægt að auglýsa fyrr í Lögbi rtingabla ði ■ 445 fasteignir verða settar á nauöungaruppboö á skrifstofu borgarfógetaembættisins þann 25. janúar. Hliðstæður fjöldi mála verðurti! fyrstu fyrirtöku dagana 17. og 18. sama mánað- ar. Ástæða þessa mikla fjölda nýrra mála til þingfestingar í janúarmánuði er að þingfesting- ardagar í októbermánuði féllu niður vegna prentaraverkfalls- ins. Útgáfa Lögbirtingablaðsins var þá stöðvuð og því ekki hægt að auglýsa málin lögum samkvæmt. Að sögn Jóns Skaftasonar yfirborgarfógeta er einhver aukning í beiðnum um þingfest- ingu mála vegna vangoldinna skulda, frá því sem var í fyrra. Engu að síður er aukning sú sem nú verður í janúarmánuði fyrst og fremst vegna fyrr- greindra orsaka. Bifreiðaeftirlitsmenn: Harma slæma vinnuaðstöðu ■ Félag íslenskra bifreiða- eftirlitsmanna harmar hve illa hefur verið staðið að uppbyggingu á skoðunarað- stöðu bifreiðaeftirlitsmanna. í ályktun frá aðalfundi fél- agsins segir, að svo virðist sem skortur á ákvarðanatöku ráði mestu um það vandræðaástand, sem nú rík- ur í húsnæðis- og fjármálum bifreiöaeftirlitsins. Fundurinn vill vekja at- hygli á því, að margt bendi til þess, að vanbúnaður bifreiða sé oftar meðvaldur í umferð- arslysum en almennt hefur verið talið. Telur fundurinn að vænlegasta leiðin til úr- bóta sé að bæta verulega aðstöðu bifreiðaeftirlits- rnanna, þannig að þeir geti betur sinnt störfum sínum í bifreiðaskoðun og í eftirliti meðökutækjum úti á vegum. í ályktuninni segir, að bif- reiðaeftirlitsmenn séu opnir fyrir nýjum skipulagsleiðum, sem líklegar eru til að ná betri árangri í uppbyggingu bifreiðaskoðunar. Víðir opnar stórmarkað í Mjóddinni: Allir vildu fá konfektkassa ■ Mikil örtröð myndaðist fyrir utan nýjan stórmarkað verslun- arinnar Víöis í Mjóddinni í Breiðholti, þegar hann var opn- aður í gærmorgun. Allir vildu vera meðal fyrstu eitt þúsund viðskiptavinanna, en þeir fengu gefins glæsilegan konfektkassa. Stórmarkaðurinn er 2 þúsund fermetrar að flatarmáli og er hann stærsti matvörumarkaður hér á landi. ( versluninni verður lögð mikil áhersla á kjötvörur og fisk og kappkostað að hafa alltaf sem mest úrval. Einnig verður lagt upp úr því aö hafa ávallt á boðstólum mikið úrval af ávöxtum og grænmeti. Þá hefur sérstöku borði verið kom- ið upp, þar sem ætlunin er að efna til kynningar á ákveðnum vörutegundum. í versluninni er ennfremur söluturn og bakarí. Afgreiðslukassar eru fjórtán talsins. Að sögn starfsmanna verslun- arinnar var mikið að gera fyrsta daginn og var aðsóknin jöfn og þétt allan daginn. Víðir er fyrsti stórmarkaðurinn, sem opnar í Breiðholti. ■ Fyrstu eitt þúsund viðskiptavinir nýja stórmarkaðs Víðis í Mjóddinni fengu konfektkassa í kaupbæti, þegar verslunin var opnuð í gærmorgun. LJOS & ORKA Suðurlandsbraut 12 sími 84488 LÝSANDI KROSSAR Á LEIÐI Bæjarins besta hljóð: Háskólabíó endurbæt- ir Dolby kerfi sitt ■ Endurbætur hafa verið gerðar á hljóðkerfi Háskóla- bíós og það er nú búið full- komnustu tækjum frá Dolby fyrirtækinu. Sérstökum bassamögnurum hefur verið bætt við kerfið og með því móti verður hljóðið ná- kvæmara og í það næst meiri vídd. „Petta er okkar svar, og tilraun til að þjóna neytend- um betur í harðnandi sam- keppni við myndböndin,'" sagði Friðbert Pálsson for- stjóri Háskólabíós, þegar hann kynnti nýju tækin. Við það tækifæir fengu blaða- nienn að sjá stutta kynning- armynd frá Dolby Labora- tories, þar sem möguleikar hljóðkerfisins voru nýttir til fullnustu. Mátti þar greina hljóð, sem hefðbundin hljóð- kerfi koma ekki til skila til áhorfenda. „Við viljum að áhorfendur viti, að þeir fái gott hljóð, þegar þeir sjá að kvikmynda- liúsið er búið Dolby tækjum," sagði Dion Hanson, sérfræðingur frá Dolby, sem hefur verið hér á landi til að stilla nýju tækin. Hann sagði, að þegar hljóð í kvikmyndum væri tekið upp í Dolby, fylgdist sérfræðing- ur frá fyrirtækinu með hljóð- vinnslunni frá upphafi og þar til myndin fer til sýninga í kvikmyndahús. Friðbert Pálsson sagði, að kostnaðurinn við þessar endurbætur væri upp undir eina milljón króna. Einkaumboð fyrir Jil Sander ■ ísflex hf. hefur tekið að sér einkaumboð á ís- landi fy rir Jil Sander sny rti vörur. Jil Sander er þýskur tískuhönnuður, sem tíma- ritið Vogue hefur valið í hóp tíu fremstu tísku- frömuða heinis. Hún hef- ur í átján ár framleitt snyrtivörur, bæði fyrir konur og karlmenn. Tísku- stefnu hennar má, að sögn íslcnska umboðsaðilans, kalla „tísku cinl'aldlcik- ans.“ ísflex er fyrsti aðilinn á Norðurlöndum sem liefur sölu Jil Sander snyrtivara, en á næsta ári munu lleiri fylgja í kjölfarið. ■ Á myndinni eru Óttar Halldórsson og Ingrid Halldórsson frá ísflex og Anne Goldkorn frá þýska framleiðslufyrirtækinu með sýnishorn af Jil Sander vörum. NT-mynd: Róberi Flugleiðir: Nígeríu- fluginu lýkur í janúar ■ Flugleiðir munu hætta flugi fyrir nígeríska flugfél- agið Kabo Air um miðjan jan. 1985. Ástæðurnar eru m.a. þær, að stjórnvöld í Nígeríu stefna að því, að flugvélar, sem annast at- vinnuflug í landinu verði skrásettar þar og þeim ein- göngu flogið af innlendum flugmönnum. Samningur Flugleiða og Kabo Air var gerður til fjögurra ára snemma árs 1981 og hefur einkum verið flogið á milli Kabo og Lagos. Sæmundur Guðvinsson frétta- fulltrúi Flugleiða sagði í samtali við NT, að endalok Nígeríu- flugsins væru ekki stóráfall fyrir Flugleiðir, m.a. vegna þess, að flutningar á áætlunarleiðum fél- agsins væru mun meiri nú en þegar samningurinn var gerður árið 1981. Sæmundur sagði, að reiknað væri með hagnaði af leigufluginu á þessu ári, en út- reikningar hefðu sýnt, að slíks hefði ekki verið að vænta á næsta ári. Pá sagði hann, að eigandi Kabo Air væri að hugsa um að kaupa tvær flugvélar af Nigerian Airways. Ef samning- ar tækjust urn það væri hann bundinn af því að nota innlenda flugmenn. Kabo Air hefur lýst mikilli ánægju með samstarfið við Flugleiðir og mun eigandi þess eyða áramótunum hér á landi, ásamt fylgdarliði. Flugleiðir hafa notað Boeing 727-100 þotu í Nígeríufluginu og hafa 18 manns verið bundnir yfir verkefninu. Flugvélin var seld bandarísku flugfélagi í fyrra, en Flugleiðir leigðu hana áfram. Vélin verður afhent eig- endum sínurn um mánaðamótin janúar-febrúar á næsta ári. Endalok Nígeríuflugsins kunna að hafa þær afleiðingar, að færri nýir flugmenn verði ráðnir til Flugleiða á næsta ári en upphaflega var gert ráð fyrir.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.