NT - 15.12.1984, Qupperneq 5
Nýjung í iðnaði á Akranesi:
Uppfinning Jóhannesar
í framleiðslu á Skaga
Frá fréllarilara NT á Akranesi, S.L.P.:
■ Framleiðsla á einni af upp-
finningum Jóhannesar Pálssonar,
uppfinningamanns mun hefjast
á Akranesi innan tíðar. Bæjar-
stjórn Akraness samþykkti á
fundi 11. desember s.l. framlag
hlutafjár til hlutafélagsins Akró-
pólis hf., sem væntanlega hefur
starfsemi á Akranesi á næstu
mánuðum, í sambandi við
verndaðan vinnustað. Félagið
hefur gert einkaleyfissamning
við Jóhannes Pálsson, uppfinn-
ingamann sem nú er búsettur í
Danmörku, um einkarétt til
framleiðslu og sölu á öryggis-
læsingum til allra hugsanlegra
nota, m.a. á skápa undir hættu-
leg efni á heimilum og fleira
(household chemical).
Jóhannes hefur sótt um og
fengið einkaleyfi á þessari upp-
finningu sinni í 12 löndum aust-
an hafs og vestan. Góðar vonir
eru bundnar við þetta fyrirtæki.
Þetta er einn þátturinn í mark-
vissri baráttu bæjarstjórnar til
þess að laða ný iðnfyrirtæki til
starfsemi í bænunt.
Eldhættutímabil fer í hönd:
Flestir eldsvoðar nú
vegna jólaskreytinga
■ Við könnun á útköllum
slökkviliðs Reykjavíkur frá
miðjum desember 1983 til
miðs janúar 1984 kom í Ijós
að nær allir eldsvoðar sem
tilkynnt var um voru vegna
skreytinga, matargerðar,
skotelda og áramótahál-
kasta. Þá voru einnig áber-
andi slysaútköll af sömu or-
sökum.
Af því tilefni vill slökkvi-
liðsstjórinn í Reykjavík
hvetja alla til að sýna ýtrustu
varkárni með því t.d. að
ganga þannig frá borðskreyt-
ingum og kertum að kertin
geti brunnið án þess að valda
skaða, að viðhafa varúðar-
ráðstafanir við steikingu á
feiti, að ofhlaða ekki raf-
taugar og tæki og fara í
hvívetna eftir þeint leiðbein-
ingunt sem fylgja blysum og
skoteldum.
Deilt um ullarsólu:
Voru útsölurn-
ar ólögmætar?
3 íslensk fyrirtæki
kæra bandaríska konu
■ Þrjú íslensk fyrirtæki, Samband ís-
lenskra samvinnufélaga, Álafoss og Hilda
hf. hafa kært bandaríska konu, Dorette
Egilsson, fyrir ólögmæta viðskiptahætti með
íslenskar ullarvörur í Bandaríkjunum. Þá
hefur fyrirtækið Pólarprjón einnig kært
konuna, þar sem það telur hana skulda sér
200 þúsund dollara.
Dorette Egilsson rekur verslanir í Banda-
ríkjunum, en hefur staðið fyrir útsölum víða
um Bandaríkin, ýmist á hótelherbergjum
eða í verslunarplássi, sem hún hefur leigt.
Hefur hún auglýst útsölur þessar í útvarpi
pg sjónvarpi og boðið upp á 50% afslátt.
íslensku fyrirtækin telja þennan viðskipta-
máta ekki kórréttan og vilja fá skorið úr um
lögmæti hans.
Nýtt íslenskt spil:
Krossgátu-
spilið
■ Nýtt íslenskt spil, Krossgátuspilið, er
komið á markað. Þetta spil er íslensk
útfærsla á algengu erlendu spili, Scrabble,
og er leikurinn í því fólginn að þátttakendur
mynda íslensk orð eftir ákveðnum reglum
svo úr verður nokkurs konar krossgáta.
Erlendis hefur Scrabble náð miklum vin-
sældum og eru þar haldin mót þar sem keppt
er í spilinu.
Útgefandi Krossgátuspilsins er Spil hf.
Flugleiðir:
Áætlunarflug
til Salzburg
á næsta ári
■ Flugleiðir hyggjast hefja áætl-
unarflug til Salzburgar í Austurríki
í byrjun júní á næsta ári, með
viðkomu í Frankfurt í Vestur-
Þýskalandi. Flogið verður einu sinni
í viku, fram í september.
Sæmundur Guðvinsson fréttafull-
trúi Flugleiða sagði í samtali við
NT, að sótt hefði verið um flugleyfi
til Salzburgar fyrir nokkrum mánuð-
um og talið væri fullvíst, að heimild
til þess yrði veitt, þótt formleg
staðfesting væri ekki komin.
Með fluginu til Salzburgar opnast
nýir möguleikar fyrir ferðamenn frá
Austurríki, sem vilja koma hingað
til lands, og að sögn Sæmundar er
þar góður markaður. Þá vonast
Flugleiðir til að selja Austurríkis-
ferðir bæði á íslandi og í Bandaríkj-
unum. Austurríki er mjög miðsvæð-
is og þaðan er auðvelt að ferðast til
landa eins og Tékkóslóvakíu, Ung-
verjalands og Sviss.