NT - 15.12.1984, Page 19

NT - 15.12.1984, Page 19
Osanngirni er ekki nóg - Westmoreland stendur höllum fæti New York-Reuter ■ Pierre Leval, sem er dómari í skaðabótamáli Williams Westmorelands, fyrrum yfirhershöfðingja Bandaríkjanna í Vietnam, gegn CBS sjónvarpsstöðinni sagði að ekki væri hægt að sakfelia CBS af þeirri einni ástæðu að frásögn stöðvarinnar af atferli Westmorelands hafi verið ósann- gjörn. Eins og áður hefur komið fram krefst Westmoreland þess að CBS greiði honum 120 mill- jónir dala í miskabætur fyrir sjónvarpsþátt, þar sem kom fram að hann hefði sagt rangt til um herstyrk óvinarins í Viet- nam í þeim tilgangi að fegra vístöðu Bandaríkjanna. Þetta er talið mikið prófmál fyrir fjölmiðla í Bandaríkjunum. Dómarinn sagði: „Málið snýst ekki um það hvort sjón- varpsþátturinn var ósanngjarn. Útgefendur og fréttamenn ger- ast ekki sekir um meiðyrði þótt þeir birti ósanngjarnar og ein- hliða árásir. Samkvæmt meið- yrðalöggjöfinni þarf útgefandi ekki að sýna þeim sem veist er að sannngirni eða veita honum jafnan tíma til að verja sig. Það er eingöngu bannað að breiða út þekktar rangfærslur.“ Málaferlin hafa nú staðið yfir í tíu vikur og er sagt að ummæli dómarans auki mjög líkurnar á því að CBS fari með sigur af hólmi. ■ Eþíópskir flóttamenn á leið yfir eyðimörkina til Súdan. Þeir eru að flýja þurrkana í heimalandi sínu. Ástandið í Súdan er samt litlu betra þar sem þar eru einnig alvarlegir þurrkar. Símamynd-POLFOTO Laugardagur 15. desember 1984 19 Súdan: Flóttamenn vant- ar meiri matvæli Peking-Reufer ■ Stöðugur straumur flótta- manna til Súdan frá nágranna- ríkjunum Uganda, Chad og Eþí- ópíu á undanförnum árum hefur skapað gífurleg vandamál í Súd- an sem er eitt af fátækustu löndum veraldar. Forseti Súdans, Jaafar Mo- hamed Nimeiri, lýkur í dag fimm daga heimsókn til Kína þar sem hann fékk loforð um 3000 tonna matvælaaðstoð handa flóttamönnunum sem eru taldir í hundruðum þúsunda. Á blaðamannafundi, sem forsetinn hélt í Peking í gær sagði hann meðal annars að daglega kæmu tvö til þrjú hundruð flóttamenn frá þurrka- svæðunum í Eþíópíu til Súdan. Súdanir væru sjálfir aðþrengdir vegna matvælaskorts en þeir reyndu samt að deila mat sínum með flóttamönnunum. Pakistan: Sprenging í Islamabad-Reuter ■ Að minnsta kosti 16 manns létulífið í eldi sem kviknaði eftir sprengingu í gasleiðslu í Punjab-héraði í Pakistan nálægt indvcrslu landamærunum. Sprengingin er sögð hafa orð- ið vegna of mikils þrýstings í 16 tommu gasleiðslum sem fluttu náttúrulegt gas á milli héraða. gasleiðslu Nokkrir kofar í námunda við leiðsluna brunnu. Þeir höfðu verið reistir þar í trássi við bann yfirvalda að sögn lögreglunnar. Ellefu manns særðust einnig í sprengingunni, þar af fimni al- varlega og nautpcningur í nám- unda við leiðsluna drapst einnig í eldinum. Bandaríkin: KJARNORKUVARN- IR GAGNRÝNDAR Washington-Reuter I Fyrrverandi varnar- ur gagnrýnt aætlanir þéttbýlissvædi fyrir kjarn- málaráðherra Bandaríkj- bandarískra stjórnvalda orkuárás. • anna, Harold Brown, hef- um það hvernig verja eigi Harold Brown, sem var varnarmálaráðherra í stjórn Jimmy Carters, seg- ir að þessar áætlanir séu gagnslausar. Bandarískir stjórnmála- og hernaðar- leiðtogar eigi að viður- kenna opinberlega að eng- inn raunhæfur möguleiki sé á því að verja almenn- ing fyrir kjarnorkuárás. Slíkt verði örugglega ekki mögulegt á næstu áratug- um og kannski verði það aldrei hægt. ■ ( : ■ Umsjón: Ragnar Baldursson og Egill Helgason Kína: Evrópsk kjarnorkuver Peking-Reuter ■ Frönsk, bresk og vestur- þýsk fvrirtæki í kjarnorkuiðnaði heyja nú mikla samkeppni um að selja Kínverjum kjamorku- ver. Kínverjar hafa lýst því yfir að þeir ætli að framleiða um 10.000 megavött af rafmagni í kjarn- orkuverum um næstu aldamót. Kjarnorkusérfræðingar á Vest- urlöndum segja að þetta þýði að Kínverjar verði að byggja 10 kjarnorkuofna á næstu árum fyrir tíu til tuttugu milljarða dollara. Fyrir svo öra kjarn- orkuvæðingu í raforkuiðnaði verða Kínverjar að leita til vestrænna fyrirtækja. Bandarísk fyrirtæki eru enn - sem komið er útilokuð frá sam- keppninni um verkefni við upp- byggingu kínversks kjarnorku- iðnaðar þar sem bandaríska ' þingið hefur enn ekki staðfest samning um kjarnorkusamstarf við Kínverja. Samkeppni evr- ópskra fyrirtækja um að selja Kínverjum búnað fyrir kjarn- orkuver er þeim mun harðari. Nú er rúmlega 30 manna nefnd þýskra kaupsýslumanna og kjarnorkusérfræðinga stödd í Peking þar sem vestur-þýsk fyrirtæki vonast til að fá tveggja milljarða dollara samning við Kínverja um byggingu kjarn- ojkuvers fyrir norðan Shanghai. Hreindýrin kom■ in á ellilaun ■ Jólasveinar verða að gera ýmsar ráðstafanir til að standast þá miskunnarlausu tímans tönn. Það er kunnara en frá þurfi að segja að íslenskir jólasveinar eru löngu farnir að þeytast á vélsleð- um upp um fjöll og firnindi. Kollegar þeirra erlendis hafa líka tekið tæknina í sína þágu, eru sjálfsagt með jólagjafabókhaldið inni á nýtísku- legum tölvum og löngu búið að parkera hreyndýr- unum á ellilaun. í staðinn þeysa þeir um á mótorhjólum, eins og þessi jólasveinn frá San Diego í Kalifornínu, sem var á leiðinni í vinnuna einn morguninn á mótorhjóli. Símamynd-POLFOTO Husqvarna Optima Husqvarna Optima er fullkomin saumavél, létt og auðveld í notkun. Husqvarna Optima hefur alla nytjasauma innbyggða. Husqvarna Optima saumar allt frá þynnsta silki til grófasta striga og skinn. Husqvarna Optima óskadraumur húsmóðurinnar Verð frá kr. 12.000.- stgr. (A Gunnar Ásgeirsson hf. Suóuriandsbraut 16 Simi 9135200 (fi) Husqvarna HALLDÓR LAXNESS greinasafnið Og árín líða er komið út Verð kr. 951.- íjdgofdl Unuhúsi Veghúsastíg 5, sími 16837

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.