NT - 29.12.1984, Page 1

NT - 29.12.1984, Page 1
Óskar Vigfússon um fiskuerðshækkunina: Skiptir sjómennina meiru en útgerðina ■ NT náði í gærkveldi táli af Óskari Vigfússyni formanni Sjómannasam- bandsins og bar undir hann ummæli Kristjáns Ragnarssonar í útvarps- fréttum í gærkvöldi, í þá veru að Óskar hefði neitað að fallast á fisk- verðstillögu sem gekk út á 2-3% meiri hækkun en raun varð á. Óskar kvaðst hafa sett fram þá kröfu að hækkunin yrði ekki minni en 25% til sinna umbjóðenda og sagðist ekki hafa treyst sér til að hvika frá þeírri kröfu. Hann sagðist ennfremur álíta að útgerð og fiskvinnsla væri mikið til sami grautur í sömu skál þítnnig að fiskverðhækkanir skiptu mfnna máli fyrir útgerðina en fyrir sjómenn. _ Fiskverð hækkar að meðaltali um 20% frá 21. nóv. s.l. Þorskur', steinbítur. keila og koli hækka um 20%. Karfi um 18% en aðrar tegundir um 15%. Þá voru ákveðnar verðuppbætur sem hér segir: 25% i ufsaverð, 16% á verð karfa, grálúðu og lúðu en 6% á verð annarra botnfisktegunda nema ýsu. Óskar bað NT að færa Kristjáni kveðju sína og það með að hann vænti þess að Kristján geymi þessi 2-3% í pússi sínu þangað til sjómenn leiti til hans um launahækkanir og nýti þau þá til varanlegra kjarabóta sjómönnum til handa. Veðurofsi um allt land I gær: Trillusjómenn hætt komnir á Eyjafirði Þakplötur fuku um Akureyrarbæ og bílar í Garðabæ Heimsmeistaraeinvígið: Flugeldasýn- ing í Moskvu Sjá skákskýringar Helga Ólafssonar á bls. 2 ■ Veðurofsi olli víða vand- ræðum í gærdag. Á Eyjafirði voru fjórar trillur hætt komnar og greip áhöfn einnar þeirra til þess ráðs að renna bátnum beint í fjöru. Bíll feyktist útaf vegi í Garðabænum og skemmdist mikið en engin slys urðu. Þá fauk rúta af vegi í sama bæ og hafnaði uppi á umferðaeyju. Þak- plötur fuku um Akureyrar- bæ. Bræðurnir Björgvin og Tóm- as Agnarssynir voru á veiðum á trillu sinni, Snorra þegar veður- ofsinn skall yfir. Þeir sáu sér þann kost vænstan að renna bátnum í fjöru skammt frá Dag- verðareyri. Sagði Tómas í sam- tali við NT að þeir hefðu sloppið fyrir horn og ekki lent í verulega miklum sjó. Trillan Hugrún slapp í var við Fjárklettsvík og sagði Jóhann Sigurðsson sem var á henni að um tíma hefði gefið yfir klettinn, sem er 6 til 8 metra hár. Báturinn var í dynjandi ágjöf þrátt fyrir var frá klettin- um. Eftir klukkutíma bið í vari komst Hugrún í Akureyrarhöfn og sömu sögu var af trillunum Jóngeir og Sigurjóni Friðriks að segja. 1 Akureyrarbæ komst vind- hraðinn yfir 12 vindstig, þak- plötur af Hótel Akureyri fuku og vegur skemmdist. Svalan sem lá við Torfunesbryggj u varð fyrir skemmdum þegar annar bátur barðist utan í hana. Ljósastaurar og umferðarljós urðu fyrir skemmdum og fjöldi Akureyringa lenti í vandræð- um. Sex vörubílar fuku til í Kambavegi og komust ekki áfram. Uppi á Hellisheiði fauk fjöldi bíla til og sumir útaf veginum en engin slys urðu á fólki. í Húnavatnssýslu lenti fjöldi bílstjóra í vandræðum og áætlunarbifreið komst ekki leið- ar sinnar. ■ Áramótahelgin fer I hönd og við segjum, skemmtið ykkur og gleðjist vel á tímamótunum. KT mynd Ami Bjama NT árnar landsmönnum árs og friðar i

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.