NT - 29.12.1984, Qupperneq 16
Laugardagur 29. desember 1984 16
Sjónvarp laugardag kl. 20.35:
Góður og gamall kunn-
ingi í heimsókn
-DaveAII-
en lætur
móðan
mása
■ Kl. 20.35 á laugardags-
kvöld keniur góöur og gamall
kunningi á skjáinn, vafalaust
mörgum til óblandinnar
ánægju. Það er sjálfur Dave
Allen, írski háðfuglinn, sem
fátt virðist heilagt. Ekki er
ósennilegt að kaþólska kirkjan
fái eitthvað á baukinn í þessum
þætti hans,sem reyndar er
kcnndur við jólin, en sem
kunnugt er hefur hún verið
einn aðalskotspónn hans, enda
segist hann hafa hana að gríni
vegna hreinnar og klárrar
væntumþykju!
Sjónvarp laugardag kl. 22.40:
■ Óskarsverðlaunamyndin
Júlía er á dagskrá sjónvarps á
laugardaginn kl. 22.40. Þar
fara með aðalhlutverk Jane
Fonda, Vanessa Redgrave, Ja-.
son Ropbards og Maximilian
Schell, allt afbragðs leikarar.
Sagan segir frá tveim vin-
konum, bandarískri skáld-
konu, sem lýsir örlögum Júlíu,
æskuvinkonu sinnar. Júlía er
gagnmenntuð, hefur lagt stund
á nám í læknisfræði, en hún
hefur ekki hugann eingöngu
bundinn við námsbækurnar,
heldur fyllist hún áhuga á
stjórnmálum og mannréttinda-
málum. Hún tekur virkan þátt
í baráttu gegn uppgangi nas-
ismans, en það var sem kunn-
ugt er hættulegasta iðja. sem
liægt var að fást við.
Myndin er bandarísk, gerð
1977, byggð á bókinni „Penti-
mento" eftir Lillian Hellman.
Lcikstjóri er Fred Zinnemann.
Þýöandi er Kristrún Þórðar-
dóttir.
.Myndin hlaut þrenn Óskars-
verðlaun.
■ Vanessa Redgrave fer með hlutverk Júlíu
Rás 2 laugardag kl. 24.
„Sending í loftinu“
- á næturvakt
■ Stjórnendur næturvaktar þætti sínum. Þeir ætla að tala
Rásar 2 á laugardagskvöld, við íslenskan flugstjóra hjá
þeir Arnar Hákonarson (t.h.) Flugleiðum á leið frá New
ogGunnlaugurHelgason(t.v.) York til (slands. Samtalið fer
bjóða upp á algera nýjung í fram í beinni útsendingu með
milligöngu loftskeytastöðvar-
innar í Gufunesi, og að sögn
þeirra félaga er þetta í fyrsta
sipti, sem slík útsending á sér
stað hér. „Sendingin verður
því í loftinu, eða „in the Air,“
eins og Kaninn segir," segja
þeir. Þá flytur líka Guðni
Bragason pistil um áramóta-
hald í New York.
Utvarp kl. 20.50:
Aldarminning Arnar Arnarsonar skálds:
„Löngum er ég
einn á gangi“
■ Helgi Már Barðason
■ Örn Arnarson skáld, eða
Magnús Stefánsson, hefði orð-
ið 100 ára 12. desember sl., en
hann var fæddur austur á
Bakkafirði 1884. í útvarpinu
verður dagskrá honum helguð
og nefnist hún „Löngum er ég
einn á gangi". Helgi Már
Barðason sér um dagskrána og
tók saman efni hennar. Lesari
með Helga er Gyða Ragnars-
dóttir.
Helgi Már sagði. að í þættin-
um yrði stiklað á Stóru í æviat-
riðum skáldsins. Sagt verður
lítillega frá bernsku og upp-
vexti Magnúsar fyrir austan,
og drepið aðeins á veru hans í
Vestmannaeyjum og síðast
getið um dvöl hans í Hafnar-
firði, en þar bjó hann til dauða-
dags.
Magnús var sérstæður að
mörgu leyti, sagði Helgi Már.
Hann sóttist ekki eftir frægð-
inni, heldur forðaðist hana og
var hlédrægur alla sína ævi.
Við reynum í þættinum að
kynnast skáldinu og þó einkum
manninum sjálfum á bak við
skáldið.
Lesin verða nokkur Ijóð
Arnar Arnarsonar, og leikin
verða lög sem samin hafa verið
við ljóð hans. Helgi Már sagði,
að þegar hánn hefði farið að
leita eftir tónlist við vísur og
Ijóð skáldsins, þá hefði ótrú-
legur fjöldi laga komið í Ijós.
Greinilega hafa Ijóðin hvatt
tónskáldin til verka. Söngvarar
verða m.a. Jóhann Daníelsson
frá Dalvík, Hálft í hvoru,
Árni Johnsen, Ellý Vilhjálms,
Lítið eitt o.fl.
Magnús Stefánsson lést í
júlí 1942.
Laugardagur
29. desember.
7.00 Veðurfregnir Fréttir Bæn Tón-
leikar Þulur velur og kynnir 7.25
Leikfimi Þórhallur Heimisson talar
8.00 Fréttir Dagskrá Morgunorð
Þórhallur Heimisson talar
8.15 Veðurfregnir
8.30 Forstugr. dagbl. (útdr.) Tónleik-
ar.
9.00 Fréttir Tilkynningar Tónleikar
9.30 Óskalög sjúklinga Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir.) Óskalög
sjúklinga, frh.
11.20 Eitthvað fyrir alla Sigurður
Helgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 DagskráTónleikarTilkynningar
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir Til-
kynningar Tónleikar.
13.40 fþróttaþáttur Umsjón: Her-
mann Gunnarsson.
14.00 Hér og nú Fréttaþáttur i viku-
lokin.
15.15 Úr blöndukútnum - Sverrir
Páll Erlendsson. (Rúvak)
16.00 Fréttir Dagskrá 16.15 Veður-
fregnir.
16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður
P. Njarðvík.
17.10 Tónleikar í útvarpssal a.
„Chaconna" i d-moll eftir Johann
Sebastian Bach. Hlíf Sigurjóns-
dóttir leikur á fiðlu. b. Sex lög úr
lagaflokknum „Helgu jarlsdóttur"
eftir Jón Björnsson. Elín Sigurvins-
dóttir og Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir syngja. Ólafur Vigmr Alberts-
son leikur á píanó. c. „Fimm
stykki" eftir Hafliða Hallgrímsson,
og „Hans", tilbrigði um íslenskt
þjóðlag, eftir Þorkel Sigurbjörns-
son. Edda Erlendsdóttir leikur á
pianó.
18.10 Tónleikar Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir Tilkynningar.
19.35 Veistu svarið? Umsjón: Unnur
Ólafsdóttir Dómari: Hrafnhildur
Jónsdóttir. (Rúvak)
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón
Sveinsson Gunnar Stefánsson
les þýðingu Freysteins Gunnars-
sonar (12).
20.20 Harmonikuþáttur Umsjón:
Sigurður Alfonsson.
20.50 „Löngum er ég einn á gangi"
Dagskrá um örn Arnarson skáld á
aldarafmæli hans. Helgi Már
Barðason tók saman. Lesari ásamt
honum Gyða Ragnarsdóttir.
21.30 Kvöldtónleikar Þættir úr sí-
gildum tónverkum.
22.15 Veðurfregnir Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð kvöldsins
22.35 Weyse, gamall kunningi Is-
lendinga Þáttur um líf og starf
þýsk-danska tónskáldsins Weyse
og leikin nokkur lög eftir hann.
Umsjón: Anna María Þórisdóttir.
23.15 Hljómskálamúsik Guðmundur
Gilsson kynnir.
24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón
Jón örn Marinósson.
00.50 Fréttir Dagskrárlok - Næturút-
varp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
30. desember
8.00 Morgunanakt Séra Jón Ein-
arsson flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir
8.15 Veðurfregnir Forstugr. dagbl.
(útdr.)
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit
Mantovanis leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar „Jólaóratórí-
an“ eftir Johann Sebastian Bach.
(3. og 4. þáttur) Elly Amerling,
Helen Watts, Peter Pears og Tom
Krause syngja með Söngsveitinni
i Lúbeck og Kammersveitinni í
Stuttgart; Karl Múnchinger stj.
10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Messa í Kristskirkju Prestur:
Séra Hjalti Þorkelsson. Organleik-
ari: Leifur Þórarinsson.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá Tónleikar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir Til-
kynningar Tónleikar.
13.30 Þorsteinn Ö. Stephensen átt-
ræður Jón Viðar Jónsson velur og
kynnir kafla úr gömlum hlóðritun-
um.
14.30 Frá tónleikum íslensku
hljómsveitarinnar i Bústaða-
kirkju 19. þ.m. (Síðari hluti)
Stjórnandi: Guðmundur Emilsson.
Söngsveitin Fílharmonía syngur.
Einleikarar: Ásdis Valdimardóttir
og Mats Rondin. Kynnir: Ásgeir
Sigurgestsson.
15.10 Með bros á vör Svavar Gests
velur og kynnir efni úr gömlum
spurninga- og skemmtiþáttum út-
varpsins.
16.10 (slensk utanríkisstefna lýð-
veldistímabilið 1944-1984 Dr.
Hannes Jónsson sendiherra flytur
fyrra erindi sitt.
17.00 Síðdegistónleikar a. Tilbrigði
um stef úr lagaflokknum „Malara-
stúlkunni fögru“ eftir Franz-
Schubert. James Galway og PhiliR
Moll leika á flautu og píanó. b.
Ljóðalög eftir Johannes Brahms.
Edda Moser syngur. Christoph
Eschenbach leikur á pianó. c.
Rondó í C-dúr op. 73 eftir Frédéric
Chopin. Martin Berkofskyog David
Hagan leika á tvö pianó. d. Conc-
erfante op. 87 eftir Felix Mendels-
sohn og Ignaz Moscheles. Martin
Berkofsky og David Hagan leika
með Sinfónihljómsveit Berlinar.
Lutz Herbig stj.
18.00 Á tvist og bast Jón Hjartarson
rabbar við hlustendur.
18.20 Tónleikar Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir Tilkynningar.
19.35 Á bökkum Laxár Jóhanna Á.
Steingrímsdóttir i Árnesi segir frá.
(Rúvak)
19.50 „Undarleg er þráin" Guömund-
ur Ingi Kristjánsson les eigin Ijóð.
20.00 Um okkur Jón Gústafsson
stjórnar blönduðum þætti fyrir ung-
linga.
20.50 Útvarpssagan: Grettis saga
Óskar Halldórsson les (17)
22.15 Veðurfregnir Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð kvöldsins
22.35 Kotra Umsjón: Signý Pálsdótt-
ir. (Rúvak)
23.05 Djassaga Jón Múli Árnason.
23.50 Fréttir Dagskrárlok.
Mánudagur
31. desember
Gamlársdagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
Séra Jón Bjarman flytur (A.v.d.v).
Á virkum degi - Stefán Jökuls-
son, María Maríusdóttir og Hildur
Eiriksdóttir.
7.25 Leikfimi. Jónína Benedikts-
dóttir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöur-
fregnir. Morgunorð - Kristin
Waage talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir.
(RÚVAK)
9.25 Tilkynningar. Tónleikar. Þul-
ur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.).
Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tið“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur Sig-
nýjar Pálsdóttur frá kvöldinu áður.
(RÚVAK)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Sólveig
Pálsdóttir.
13.30 Álfalög og íslensk þjóðlög
14.00 Nýárskveðjur
16.00 Frétfir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Hvað gerðist á árinu? Frétta-
menn útvarps greina frá atburðum
á erlendum og innlendum vett-
vangi 1984 og ræða við ýmsa sem
þar komu við sögu.
17.50 Hlé
18.00 Messa í Háteigskirkju
Prestur: Séra Tómas Sveinsson.
Organleikari: Ortulf Prunner.
19.00 Kvöldfréttir
19.25 Þjóðlagakvöld Einsöngvara-
kórinn syngur með félögum i Sin-
fóníuhljómsveit íslands, þjóölög í
útsetningu Jóns Ásgeirssonar,
sem stiórnar flutningnum.
20.00 Ávarp forsætisráðherra,
Steingríms Hermannssonar
20.20 Lúðrasveit Reykjavikur leik-
ur Stefán Þ. Stephensen stj.
20.45 Áramótavaka a. Nótt á Hellis-
heiði 1899 Þorsteinn frá Hamri
flytur þátt úr endurminningum Ind-
riða Einarssonar. b. Tímamóta-
Ijóð Jón Sigurðsson, skólastjóri
les úr kvæðum Sigurðar Breiðfjörð.
c. Með álfum og mönnum Rann-
veig Löve les íslenska þjóðsögu. Á
milli atriða verða leikin og sungin
álfalög. Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.45 Árið kvatt með Ellington
Umsjón: Siguröur Einarsson.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Þetta viljum við heyra Álfar á
tónlistardeild velja sér óskalög.
23.30 „Brennið þið vitar“ Karlakór-
inn fóstbræður og Sinfóníuhljóm-
sveit islands flytja lag Páls ísólfs-
sonar; Róbert Ottósson stj.
23.40 Við áramót Andrés Björnsson
útvarpsstjóri flytur hugleiöingu.
23.55 Klukknahringing. Sálmur. Ára
mótakveðja. Þjóðsöngurinn.
(Hlé). ,